Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 20
SUÐURNES
20 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„BÓK verður bíó“ var yfirskrift
vettvangsferðar sem nemendur tí-
unda bekkjar Heiðarskóla í Kefla-
vík fóru í gær. Meðal annars var
farið á söguslóðir Engla alheimsins
í Reykjavík.
Nemendurnir lásu í vetur skáld-
sögu Einars Más Guðmundssonar,
Engla alheimsins, og fóru á sam-
nefnda kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar og var fjallað um
bæði verkin með margvíslegum
hætti í náminu.
Að sögn Steinunnar Njálsdóttur
íslenskukennara voru ýmsar náms-
greinar samþættar í vettvangsferð-
inni, svo sem íslenska, nátt-
úrufræði, samfélagsfræði,
stærðfræði, enska, danska, text-
ílmennt og meira að segja leikfimi.
Með henni í verkefninu var Sveindís
Valdimarsdóttir kennari. Meðal
markmiða var að nemendur dýpk-
uðu skilning sinn á sagnfræðilegri
skáldsögu og beittu þekkingu og
færni við skynjun á skáldsögu sem
hefur verið kvikmynduð. Einnig að
þeir auðguðu þekkingu sína á
sjúkrastofnunum fyrir einstaklinga
með geðhvarfasýki og þekkingu á
samfélagi geðsjúkra.
Á meðan hópnum var ekið frá
Keflavík var kvikmyndin sýnd. Far-
ið var um Vogahverfið í Reykjavík,
staldrað við hjá Kleppi, farið fram
hjá „Öryrkjablokkunum“ við Hátún
og Landspítalanum og borðað í
Grillinu á Hótel Sögu. Þar hittu Ein-
ar Már Guðmundsson rithöfundur
og Ingvar E. Sigurðsson aðalleikari
úr Englum alheimsins hópinn. Ein-
ar Már las ljóð og kafla úr Englum
alheimsins og Ingvar sagði frá því
hvernig hann hefði undirbúið sig
fyrir hlutverk Páls í myndinni og
túlkun tilfinninga manns sem
skuggi geðveikinnar færðist yfir.
Vöktu jákvæðar lýsingar hans á
greind þessara einstaklinga athygli
nemendanna, að sögn Steinunnar.
Á heimleiðinni var Vaxmynda-
sögusafnið í Perlunni skoðað.
Morgunblaðið/Kristinn
Einar Már Guðmundsson las ljóð og kafla úr Englum alheimsins fyrir nemendur úr Heiðarskóla.
Hvernig
bók
verður að
bíómynd
Keflavík
Vill vera í örygginu á Íslandi
Þegar Karen var 19 ára sá hún
auglýsingu í dagblaði frá IceJob
þar sem verið var að óska eftir
fólki til starfa á Íslandi. „Ég ákvað
að sækja um, enda enga vinnu að
fá fyrir mig á Írlandi, og fór að
vinna í Hagkaupum í Skeifunni.“
Vinnuna hafði Karen í 6 mánuði en
áður en sá tími var úti hafði hún
kynnst tilvonandi eiginmanni sín-
um og hálfs árs dvölin er nú orðin
að 16 árum.
„SEGJA má að þetta sé tilraun til
að hafa áhrif á pöbbamenningu Ís-
lendinga, sem ég myndi gjarnan
vilja sjá breytingar á,“ sagði Kar-
en Halldórsson í samtali við Morg-
unblaðið, en hún og eiginmaður
hennar, Jóhann Halldórsson, opn-
uðu nýlega írska krá við Hafn-
argötuna í Keflavík. Barinn nefndu
þau Paddy’s, sem er uppnefni fyrir
Íra og vísar til verndardýrlings
Íra, Saint Patrick. Úr hátölurun-
um ómar írsk tónlist og ekki er
laust við að tilfinningin sé eins og
að stökkva inn í annan heim.
Karen, sem upphaflega bar eft-
irnafnið Ward, er fædd og uppalin
í Dublin. Þar býr fjölskylda henn-
ar enn og þangað heldur hún einu
sinni til tvisvar á ári, vitjar
bernskustöðvanna og drekkur í sig
írska menningu, sem hún segir
mjög ólíka þeirri íslensku. „Menn-
ing okkar Íra snýst að mestu um
pöbbana, þar gerast hlutirnir. Það
er hefð að koma við á barnum eftir
að vinnudegi lýkur, fá sér kollu og
spjalla áður en farið er heim. Bar-
menning okkar snýst ekki um að
drekka sig fullan. Sjálf fór ég mik-
ið á barina þegar ég bjó í Dublin
og var ekki alltaf að drekka bjór.
Oft fékk ég mér bara glas af Pepsí
eða öðrum gosdrykk. En á barnum
hitti maður fólkið, spjallaði og
naut félagsskaparins,“ sagði Karen
í samtali við blaðamann.
Henni finnst þetta mynstur
vanta í íslenska barmenningu. „Ég
myndi til dæmis vilja sjá fleiri
hjón koma saman á barinn, fá sér
kannski einn bjór að kvöldi og fara
svo bara aftur heim. Mér finnst
allt of algengt að fólk fari út seint
og drekki mikið á stuttum tíma.
Þetta er ólíkt því sem ég hef van-
ist.“
– Langar þig aldrei aftur til Ír-
lands?
„Ekki til að búa, nei. Við Jóhann
eigum þrjú börn og hér finnst mér
þau örugg. Mér finnst lífsstíllinn
hér líka betri en oft finnst mér
samt erfitt að vera hér, maður
þarf að vera sterkur þegar maður
er af öðrum uppruna. Ég fer hins
vegar til Írlands á hverju ári og
dvel þar í dágóðan tíma. Þá hef ég
tekið eitt barnanna með í einu til
skiptis svo að þau fái að kynnast
uppruna mínum,“ sagði Karen.
Karen Halldórsson rekur írska
bjórkrá við Hafnargötuna
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Karen við barborðið á Paddy’s ásamt eiginmanni sínum, Jóhanni Halldórs-
syni, og föður, Christopher Ward. Á Paddy’s er hægt að fá hinn fræga
Guinness-bjór, einan sér eða sporðrenna niður með pítsum.
Menning Íra snýst
um krárnar
Keflavík
413 án
vinnu
í lok apríl
ATVINNULEYSI á Suður-
nesjum minnkaði heldur í apríl
frá mánuðinum á undan. Enn
eru þó yfir 400 einstaklingar án
vinnu, mun fleiri en á sama
tíma á síðasta ári.
Atvinnuleysi var hlutfalls-
lega mest á landinu á Suður-
nesjum í apríl, 4,7%, sam-
kvæmt upplýsingum frá
Vinnumálastofnun. Samsvarar
það því að 380 hafi verið án
vinnu að meðaltali allan mán-
uðinn. Er þetta sjö færra en í
mars.
Í lok apríl voru 413 einstak-
lingar án vinnu á Suðurnesjum,
27 færri en í lok mars en 214
fleiri en í lok apríl á síðasta ári.
Ástandið virðist lítið hafa
breyst það sem af er maí-
mánuði því fram kemur á vef
Vinnumálastofnunar að nú eru
410 án vinnu á svæðinu.
Flestir hinna atvinnulausu
eru búsettir í Reykjanesbæ,
322 talsins.
Í Sandgerði búa 34, 28 í
Garði, 16 í Grindavík og 13 í
Vatnsleysustrandarhreppi.
Suðurnes
Handteknir
á flótta við
Kleifarvatn
TVEIR menn voru handteknir við
Kleifarvatn um helgina. Þeir eru
grunaðir um innbrot og þjófnaði og
telur lögreglan að málin séu hluti af
skipulagðri brotastarfsemi sem
tengist fíkniefnaheiminum.
Í dagbók lögreglunnar í Keflavík
er atvikum lýst svo: Kl. 01.32 [að-
faranótt laugardags] voru tveir karl-
menn handteknir við Kleifarvatn
grunaðir um innbrot eða innbrotstil-
raun í fiskvinnslufyrirtæki í Grinda-
vík þá skömmu áður. Þeir gistu
fangaklefa og voru yfirheyrðir af
rannsóknarlögreglu um morguninn.
Viðurkenndu þeir m.a. innbrot og
þjófnað á humri í fiskvinnslufyrir-
tæki í Garði í vikunni og virðist sem
þarna sé um að ræða skipulagða
starfsemi sem tengist fíkniefnaheim-
inum, en í vikunni voru tveir menn
handteknir við samskonar iðju í Þor-
lákshöfn og Eyrarbakka.
Grindavík
LIÐ frá íþróttafélaginu Nesi á Suð-
urnesjum sigraði í fyrstu deild
sveitakeppni í boccia á Íslandsmóti
Íþróttafélags fatlaðra sem fram fór
á Akureyri á dögunum. Í liðinu eru
Helgi Sæmundsson, Guðný Ósk-
arsdóttir og Óskar Ívarsson.
Liðið keppti til úrslita við Ís-
landsmeistarana frá síðasta ári, lið
Völsungs frá Húsavík. Var lokaleik-
urinn afar spennandi og réðust úr-
slit ekki fyrr en með síðustu bolt-
unum í sjöttu og síðustu lotunni.
Nes átti tólf sveitir á mótinu, í
þremur efstu deildunum. Auk Ís-
landsmeistaranna í fyrstu deild
náði lið frá Nesi góðum árangri í
annarri deild, þar sem það fékk
bronsverðlaun. Í því liði eru Árni
Jakob Óskarsson, Guðrún Halla
Jónsdóttir og Elínrós Benedikts-
dóttir.
Nemendur úr Fjölbrautaskóla
Suðurnesja aðstoðuðu keppendur í
ferðinni ásamt foreldrum og öðrum
aðstoðarmönnum.
Lið frá Nesi sigraði í fyrstu deild-
inni í boccia. Í liðinu eru Helgi
Sæmundsson, Guðný Óskarsdóttir
og Óskar Ívarsson.
Íslandsmeist-
arar í boccia
Suðurnes
Alþjóðleg ferðaráðgjöf
Ferðamálaskóli Íslands er eini skólinn á Íslandi
sem hefur kennt alþjóðlegt IATA/UFTAA námsefni
samfleitt í 12 ár. Á hverju ári útskrifar skólinn
„ferðaráðgjafa“ til starfa á ferðaskrifstofum,
flugfélögum og við aðra ferðaþjónustu,
enda er í dag krafa ferðaþjónustuaðila
að starfsfólk hafi slíka menntun.
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22