Morgunblaðið - 19.05.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KASTAÐIST 8 FAÐMA
Maður sem var að síga eftir eggj-
um í Hornbjargi á laugardag fékk
grjót á sig og kastaðist við það 7–8
faðma. Hann er lærbrotinn og liggur
á Landspítala. Félagar hans fluttu
hann um 600 metra leið frá slysstað
og í gúmmíbát sem fór með hann í
Hornvík, en þangað sótti þyrla
Landhelgisgæslunnar hann.
Fundi Sharon og Bush aflýst
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, hefur aflýst ferð sinni til
Bandaríkjanna á fund George Bush
forseta vegna hryðjuverka í Jerúsal-
em um helgina. Sharon lýsti því yfir í
gær að hann ætlaði að halda áfram
að reyna að finna lausn á deilunni við
Palestínumenn. Þá var því lýst yfir
eftir neyðarfund ísraelsku rík-
isstjórnarinnar að einskis yrði látið
ófreistað til að ráða bug á hryðju-
verkahættunni.
Minna flutt út af hestum
Útflutningur á íslenskum hestum
hefur dregist verulega saman und-
anfarin ár. Gæði hrossanna hafa
hins vegar aukist verulega og mikil
eftirspurn er eftir keppnishestum og
mjög góðum reiðhestum. Spáð er því
að verðmætasköpun í greininni muni
breytast og útflutningur á þekkingu
og þjónustu sem tengist íslenska
hestinum muni aukast á næstu ár-
um.
Fækka stofnunum um 30–40
Verslunarráð Íslands hvetur til
þess að tekið verði til skoðunar við
gerð nýs stjórnarsáttmála að ný rík-
isstjórn hefji vinnu við að fækka rík-
isstofnunum með niðurlagningu og
sameiningu þeirra. Væri það gert í
því markmiði að fækka ríkisstofn-
unum um 30–40 á næstu fjórum ár-
um. Verslunarráð telur í nýrri
skýrslu að sífelld hækkun opinberra
útgjalda sé verulegt áhyggjuefni.
Belgíustjórn heldur velli
Guy Verhofstadt, forsætisráð-
herra Belgíu og leiðtogi frjálsra
demókrata í flæmskumælandi hluta
landsins, lýsti fyrir hönd margflokka
samsteypustjórnar sinnar yfir sigri í
þingkosningunum sem fram fóru í
landinu í gær. Græningjar, sem áttu
aðild að stjórninni en gengu klofnir
til kosninga, töpuðu stórt. Vlaams
Blok, sem er yzt til hægri, vann hins
vegar mikinn kosningasigur.
2003 MÁNUDAGUR 19. MAÍ BLAÐ B
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VALSMENN KOMU, SÁU OG SIGRUÐU / B2, B3, B6
Viðurkenningar til þjálfara ársinsféllu báðar Haukum í skaut.
Viggó Sigurðsson, þjálfari Íslands-
og deildarmeistara Hauka, var kjör-
inn þjálfari ársins hjá körlunum og
Gústaf Adolf Björnsson, þjálfari bik-
armeistara Hauka, hjá konunum.
Stefán Arnaldsson og Gunnar Við-
arsson voru útnefndir dómarar árs-
ins. Fjölmargar aðrar viðurkenning-
ar voru veittar á lokahófinu:
Háttvísiverðlaun:
Vigdís Sigurðardóttir ÍBV og
Andreas Stelmokas KA
Unglingabikar HSÍ:
Haukar, Hafnarfirði
Valdimarsbikarinn:
Halldór Ingólfsson, Haukum
Markahæstu leikmenn:
Jaliesky Garcia Padron, HK, og
Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Hauk-
um
Bestu varnarmenn:
Ingibjörg Jónsdóttir, ÍBV, og
Júlíus Jónasson, ÍR
Bestu sóknarmenn:
Sylvia Strass, ÍBV, og
Alexanders Petersons, Gróttu/KR
Bestu markmenn:
Berglind Íris Hansdóttir, Val, og
Roland Valur Eradze, Val
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Handknattleiksmenn ársins 2003 með verðlaun sín á lokahófinu á laugardagskvöldið – Andrius
Stelmokas línumaður úr KA, og Hanna Guðrún Stefánsdóttir, hornamaður úr Haukum.
Stelmokas og
Hanna best
HAUKAR hirtu mörg verðlaun á uppskeruhátíð handknattleiksfólks
sem haldin var á Broadway á laugardagskvöldið. Bestu leikmenn í
karla- og kvennaflokki voru útnefnd Andrius Stelmokas, KA, og
Hanna G. Stefánsdóttir, Haukum. Efnilegustu leikmennirnir voru
kjörnir Ásgeir Örn Hallgrímsson úr Haukum og Elísabet Gunnars-
dóttir, Stjörnunni.
JÓN Arnór Stefánsson körfuknatt-
leiksmaður hjá TBB Trier í Þýska-
landi hefur tilkynnt forsvars-
mönnum
NBA-deildar-
innar að hann
gefi kost á sér í
nýliðaval
NBA-deildar-
innar sem
fram fer í New
York þann 26.
júní n.k.
Jón Arnór er
í hópi 42
bandarískra
leikmanna og
14 alþjóðlegra
sem hafa ekki verið í bandarískum
háskóla á ferli sínum.
Þessi leikmenn geta hætt við
ákvörðun sína allt fram til 19. júní.
Jón Arnór mun ekki leika meira
með liði sínu á þessu keppnistíma-
bili þar sem hann fór í aðgerð á hné
á dögunum en verður væntanlega í
íslenska landsliðshópnum sem held-
ur til Möltu í byrjun júnímánaðar,
verði hann heill helsu.
Jón Arnar verður hinsvegar ekki
með íslenska landsliðinu sem leikur
þrjá leiki gegn því norska í lok
mánaðarins. Leikið verður dagana
23.-25. maí og fara leikirnir fram í
Keflavík, Reykjavík og Hafnarfirði
en það verða jafnframt fyrstu
landsleikir Damon Johnson sem
fékk íslenskt ríkisfang um áramót.
Aðeins einn íslenskur leikmaður
hefur leikið með NBA-liði en það
gerði Pétur Guðmundsson árið
1981 er hann var valinn af Portland
Trailblazers í þriðju umferð og sá
61. í röðinni. Pétur var fyrsti Evr-
ópubúinn sem samdi við NBA-lið en
Pétur lék síðar með Los Angeles
Lakers og San Antonio Spurs í
NBA-deildinni.
Jón Arnór
gefur kost á
sér í nýliða-
val NBA
Jón Arnór
Stefánsson
ÍBV hefur samið við ungverska
handknattleiksmanninn Imre Kiss
um að leika með liðinu á næstu leik-
tíð. Kiss er örvhent skytta og var
fimmti markahæsti leikmaðurinn í
ungversku deildinni á nýliðinni
leiktíð. Þar með er ljóst að tveir
Ungverjar verða í herbúðum ÍBV í
vetur, Eyjamenn hafa samið við Ro-
bert Bognar um að hann leiki
áfram með liðinu en hann gekk til
liðs við ÍBV fyrir síðasta tímabil.
Annar Ungverji
til liðs við ÍBV
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 25
Viðskipti 11 Bréf 26
Erlent 12/13 Dagbók 28/29
Listir 14/15 Leikhús 30
Umræðan 16/17 Fólk 30/33
Forystugrein 18 Bíó 30/33
Skoðun 20 Ljósvakar 34
Minningar 20/25 Veður 35
* * *
endur í fimleikum sem og
fremsta íþróttafólk landsins í
áhaldafimleikum, hópfimleikum
og þolfimi drógu hvergi af sér í
glæsilegri sýningu og á myndinni
eru ungar fimleikastúlkur að
setja punktinn fyrir aftan dans-
atriði sitt í hópfimleikum.
Heiðursgestir á sýningunni
voru meðlimir í Evrópunefnd í al-
mennum fimleikum sem hélt fund
á Íslandi um helgina en meðal
nefndarmanna er Birna Björns-
dóttir, fyrrverandi formaður FSÍ.
ÞAÐ var mikið um dýrðir í Laug-
ardalshöll í gær er Fimleika-
samband Íslands, FSÍ, hélt upp á
35 ára afmæli sitt. FSÍ var stofn-
að hinn 17. maí árið 1968 og
sýndi fimleikafólk á öllum aldri
ýmis atriði af því tilefni. Byrj-
Morgunblaðið/Arnaldur
Mikið um dýrðir í Laugardalshöll
VIÐBRÖGÐ Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og
Samtaka atvinnulífsins (SA) við hugmyndum um
aukinn stuðning við launafólk í langtímaveikindum
á kostnað skammtímaveikinda og breytingar á
sjúkrasjóðum eru blendin eða hóflega jákvæð.
Þessar hugmyndir komu fram í viðtali við Gunnar
Pál Pálsson, formann Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, í blaðinu í gær.
SA minna á að rétturinn sé bundinn í lög og mjög
víðtæk sátt þyrfti því að nást um slíka breytingu.
Eins sé óvíst hvort það myndi skila sér að fullu til
atvinnulífsins ef ekki væru greidd laun fyrsta veik-
indadaginn. ASÍ segir málið ekki nýtt af nálinni og
að það hafi ekki reynst mikill áhugi fyrir því að
gera fyrsta veikindadag launalausan eins og Gunn-
ar Páll vill að verði skoðað en þetta sé auðvitað
samningsatriði og því ekki hægt að útiloka neitt.
Þungt fyrir fæti með breytingar
Halldór Björnsson, varaforseti ASÍ, segir að
ekki hafi reynst mikill áhugi fyrir því að gera fyrsta
veikindadag launalausan. Atvinnurekendur telji
þetta að vísu dýrasta daginn fyrir sig en menn hafi
talið að ekki kæmi það á móti að það myndi borga
sig. „Þetta hefur áður verið á dagskrá en það var
mjög lítill áhugi fyrir því,“ segir Halldór. „Ef eitt-
hvað yrði í boði sem menn teldu viðunandi er auð-
vitað aldrei að vita. En það hefur ekki reynst vera í
þau skipti sem þetta mál hefur verið á dagskrá og
það var lögð mikil vinna í það á sínum tíma.“
Spurður um hugmyndir Gunnars um fækkun og
stækkun sjúkrasjóða og að réttindi verði gerð
millifæranleg bendir Halldór á að t.d. innan Starfs-
greinasambandsins hafi verið að myndast stærri
einingar með sameiningu félaga. „En ég held að
það verði mjög þungt fyrir fæti að fara að breyta
þessu. Mig grunar að Gunnar kunni að hafa í huga
einn sjúkrasjóð fyrir hvert landssamband fyrir sig.
Við ræddum þetta örlítið á fundi framkvæmda-
stjórnar Starfsgreinasambandsins á dögunum en
ég fann að slíkar hugmyndir myndu standa illa í
mönnum. En hugmyndin er í sjálfu sér góðra
gjalda verð að mínu mati.“
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir samtökin oft hafa velt fyrir sér
hugmyndum um aukin réttindi í langtímaveikind-
um á kostnað skammtímaréttinda. „Mér finnst
þær hugmyndir sem hann veltir upp í Morgun-
blaðinu allrar athygli verðar. En rétturinn til launa
í veikinda- og slysaforföllum er bundinn í lög og
það er ekki á valdi okkar samningsaðilanna að
breyta því. Þess utan má einnig velta fyrir sér að
hvaða marki það geti talist líklegt að fyrsti veik-
indadagurinn næðist í reynd fram sem kostnaðar-
lækkun hjá atvinnulífinu. Það er að minnsta kosti
ólíklegt að það myndi skila sér að fullu til kostn-
aðarlækkunar.“
Heppilegt að menn setji af stað starf í haust
Ari segir miklum tilviljunum háð hvar kostnaður
vegna langtímaveikinda kemur niður og það geti að
mörgu leyti verið eðlilegra að hafa fyrstu tvær vik-
urnar hjá vinnuveitanda en einhvers konar sam-
tryggingu um það sem umfram er.
Hann segist telja heppilegt, með hliðsjón af
komandi samningum, ef samningsaðilar gætu sett
af stað eitthvert starf á sínum vegum með haustinu
til þess að skoða þessa hluti sem séu flóknir og
lengri tíma taki að átta sig á og ná samkomulagi um
ef þeir eigi að geta legið fyrir til ákvörðunartöku
um og upp úr áramótum. „Mér finnst jákvætt út-
spil hjá Gunnari að opna á umræðu um þessi mál.
Ég tel það einnig vera nauðsynlegt að skoða hvern-
ig þeir fjármunir geti best nýst sem nú renna til
sjúkrasjóðanna en ég hef miklar efasemdir um að
nýtt fyrirkomulag verði grundvallað á núverandi
sjúkrasjóðakerfi. Það þarfnast endurskoðunar að
mínu mati, algerlega óháð öllu öðru.“
Launalaus veikindadagur og breytingar á sjúkrasjóðum
Þyrfti mjög víðtæka sátt
KARLMAÐUR um tvítugt, sem
játað hefur aðild að ráni í Sparisjóði
Kópavogs, var úrskurðaður í viku-
langt gæsluvarðhald á laugardags-
kvöld. Ránið var framið á föstu-
dagsmorgun, en maðurinn var
tekinn höndum um kvöldið eftir að
myndir af honum höfðu birst í sjón-
varpi.
Lögregla í Kópavogi segir að
málið sé ekki að fullu upplýst þar
sem ránsfengurinn hefur ekki skil-
að sér. Af þeim sökum var farið
fram á gæsluvarðhald yfir mann-
inum.
Í gæslu-
varðhaldi
eftir rán í
sparisjóði
TVÆR bílveltur urðu í Borgarfirði
aðfaranótt sunnudagsins. Önnur átti
sér stað laust eftir miðnætti á Drag-
hálsi. Engin meiðsl urðu á fólki en
bíllinn er mikið skemmdur. Þá varð
önnur bílvelta á Stórási neðan við
Húsafell klukkan tæplega tvö um
nóttina. Þar skarst farþegi í andliti
og var fluttur á sjúkrahúsið á Akra-
nesi. Bíllinn skemmdist mikið.
Lögreglan í Borgarnesi segir að í
báðum þessum slysum sé líklegt að
bílstjórar hafi misst stjórn á bifreið-
um sínum í lausamöl en hvorki yfir
Dragháls né Stórás er bundið slit-
lag.
Bílveltur í
Borgarfirði
♦ ♦ ♦
undir taðið og fær þannig skjótari
og öruggari þurrk heldur en ef allt
lægi á grasinu svo sem áður var.
Mörg handtök hafa til fallið áður
en hér er komið og enn er þó eftir að
hlaða fullþurrkuðum taðflögum í
taðhlaða þar sem þær mega bíða
þess að notast í reykhúsi bónda
næsta vetur. Að reykja silung við
sauðatað er matargerðarlist og
íþrótt sem stunduð er á flestum bæj-
um í Mývatnssveit. Heimamenn hafa
þróað með sér um aldir kunnáttu,
sem er einstök. Enda er reyktur mý-
vatnssilungur landsþekkt gæða-
álegg sem engan svíkur.
ÞORSTEINN Aðalsteinsson, bóndi á
Geiteyjarströnd, sinnir hér fornum
búskaparháttum á góðviðrisdegi.
Hann er að kljúfa taðhnausa til frek-
ari þurrkunar. Að baki honum eru
taðhraukar á vörubrettum. Hraukar
nefnist stæða af hnausum sem
stungnir voru út úr grindarlausu
fjárhúsi fyrripart vetrar.
Þarna má einnig sjá taðflögur
sem hreykt hefur verið á kerrugrind
og bretti til frekari þerris. Öllu er
þessu haganlega fyrir komið, sem
vænta má hjá Þorsteini. Tækniþró-
un á sér stað hér sem annars staðar.
Þannig notar Þorstein vörubretti
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Þorsteinn Aðalsteinsson klýfur taðhnausa með hníf. Þannig fær hann betri
verkun á taðið og reykurinn verður betri.
Taðverk á
Geiteyjarströnd
Mývatnssveit. Morgunblaðið.