Morgunblaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. SENN líður að því að framkvæmdir við veggöng til Siglufjarðar verði boðin út, fari sem horfir, 11 km löng, þar af 0,4 km steyptir vegskálar, sem eru dýrari einingar en göng í bergi. Fjölmörg styttri göng eru meir aðkallandi en þessi. Kjósendum er því storkað með þessari röð fram- kvæmda. Borgarbúar fárast oft yfir því þegar „borað er gegnum fjöll“ til fámennra byggða og er sízt þörf á að gefa þeim þvílíkt tilefni að hefja þann söng – sem jafnvel landsbyggð- arfólk verður með þessu neytt til að taka undir. Hér verður því um hina óþörfustu hermdargjöf að ræða frá Alþingi. En að henni munu standa allir stjórnmálaflokkarnir – og allir alþingismenn, eða ekki er annars getið. Þó er kunnugt að viðhorf margra þeirra er nú allt annað – og hefur skrifari margan mann spurt og alls engan sem tekið hafi upp hanskann fyrir Alþingi í þessu máli. Röng hönnun Annað er þó verra en hin fráleita forgangsröðun. Það er að göng um Héðinsfjörð eru að líkindum vitlaus hönnun, sem menn mundu brátt iðr- ast, en geta þá ekki aftur tekið. Þetta verður að vísu ekki fullyrt mema með rannsókn, en hana þora ábyrgðarmenn ekki fyrir sitt líf að láta gera, af ótta við að hún sýni ann- að en þeir myndu kjósa. Verjast þeir með þeim rökum, að önnur leið en um Héðinsfjörð væri „utan þess ramma“ sem þeim sé heimilt að kanna. Hafa þeir þó varið ærnum fjármunum og vinnu til að kanna enn fjarlægari leið en hér er um að ræða (!) Sé það rétt að Alþingi setji Vega- gerðinni slíkan ramma til að hindra rannsókn annarra kosta, hins bezta frá tæknilegu sjónarmiði, fjárhags- legu, vistfræðilegu og félagslegu, þá er ótækt að Alþingi hafi vald til þessa. Kann að vera nauðsynlegt að skilgreina hlutverk Vegagerðarinn- ar og styrkja stöðu hennar og heim- ildir til rannsókna. Að rannsókn lok- inni ber Alþingi að sjálfsögðu að skera úr. Markmið Héðinsfjarðarleið virðist ætlað að þjóna einungis bæjunum Ólafsfirði og Siglufirði – er því beinlínis mót- mælt að hún skuli gagnast fjarlæg- ari byggðum. Þessu til staðfestingar er reynt að láta svo að núverandi vegur um Strákagöng og Almenn- inga muni verða framtíðarleið til Fljóta og inn í Skagafjörð. Það stenzt auðvitað ekki, heldur koma göng undir Siglufjarðarskarð eða milli Hólsdals og Nautadals. Með þeim væru göng á þessari leið orðin jafnlöng og á Leið II, frá Ólafsfirði um Hólsdal til Siglufjarðar, ásamt álmu til Fljóta, líklega 16–17 km alls í þrem álmum. Leið í heild milli nefndra staða væri hins vegar mun styttri á Leið II, nema milli Ólafsfjarðar og Siglu- fjarðar, þar sem hún yrði 2–3 km lengri (17–18 km í stað 15). Mestu munar á milli landshlutanna, þ.e. Ólafsfjarðar og Ketiláss í Fljótum, þar yrði Leið II 17–18 km, en ca 30 km um göng til Siglufjarðar og það- an um Héðinsfjörð, en 40 km um Al- menninga. – Þjóðhagslega mætti kannski una við Héðinsfjarðargöng og frá Siglufirði önnur göng út í Fljót, þá helzt milli Nautadals og Hólsdals, ef menn sætta sig við þá röskun sem verður í Héðinsfirði, – hún verður lítil sem engin á Leið II, einungis dyr að dalbotni við Héðins- fjörð. Göng undir Skarðið, eða leið um Almenninga, býður þeirri hættu heim, að menn láti freistast til að spara sér krókinn inn fyrir Mikla- vatn og leggi veg um Hraunamöl, en það er mér sagt að yrði mikil nátt- úruspjöll. Að sjálfsögðu gerbreytast viðhorf, ef Héðinsfjörð mætti nýta, t.d. undir flugvöll fyrir báða bæina, eða sem höfn til vöruflutninga fyrir þá eða jafnvel allt Eyjafjarðarsvæðið. En slík rök hef ég ekki heyrt né nein önnur sem réttlæti hina þarflausu og umdeildu röskun í Héðinsfirði. Nýtt er það í þessu máli, að ný tækni, nýjar vélar, nýjar aðferðir eru að koma fram, nú þegar að verki við Kárahnjúkavirkjun, og mun vera ómaksins vert að bíða þeirra áður en meira verður sprengt í göngum. Látum Siglufjarðargöng bíða um sinn og notum tímann til að endur- skoða hönnun þessa verks. Leggjum á meðan kapp á nokkur styttri göng: Almannaskarð, báðum megin Reyð- arfjarðar, Vaðlaheiði, Bakkasels- brekku og báðum megin Arnarfjarð- ar. Og kannski ein göng eða tvenn í höfuðborginni. GUÐJÓN JÓNSSON, fv. kennari. Ekki storka allri þjóðinni Frá Guðjóni Jónssyni                        

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.