Morgunblaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 25
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 25 R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Skrifstofuherbergi/leiga Til leigu rúmgóð nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Reykjavík. Beintengt öryggiskerfi. Sameiginleg kaffistofa. Upplýsingar í síma 896 9629. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Bindindisfélag ökumanna Aðalfundur Bindindisfélags ökumanna verður haldinn miðvikudaginn 21. maí nk. kl. 17.30 í húsi góðtemplara í Stangarhyl 4, Reykjavík. Dagskrá fundarins verður skv. ákvæðum 4. greinar laga félagsins. Félagsmenn, sem greitt hafa félagsgjöld sín fyrir árið 2002, hafa atkvæðisrétt á aðal- fundinum. Stjórn Bindindisfélags ökumanna. NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir. Hafraholt 32, Ísafirði, þingl. eig. Hermann Alfreð Hákonarson, gerð- arbeiðendur Íbúðalánasjóður og Ísafjarðarbær, föstudaginn 23. maí 2003 kl. 10:30. Mjósund 2, 0101, Ísafirði, þingl. eig. Fólks- og vörubílastöð Ísafj. sf., gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, föstudaginn 23. maí 2003 kl. 10:00. Planhús, (Stefnisgata 11), Suðureyri, þingl. eig. Gunnhildur Hálfdán- ardóttir og Guðmundur Karvel Pálsson, gerðarbeiðendur Ísafjarðar- bær, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og Þróunarsjóður sjávarútvegs- ins, föstudaginn 23. maí 2003 kl. 11:30. Sindragata 11, 0101, Ísafirði, þingl. eig. Súðir ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun, Íslandsbanki hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., föstudaginn 23. maí 2003 kl. 9:30. Sætún 8, Suðureyri, þingl. eig. Margrét Hildur Eiðsdóttir og Jón Arnar Gestsson, gerðarbeiðendur Ísafjarðarbær og Vátryggingafélag Íslands hf., föstudaginn 23. maí 2003 kl. 12:00. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 16. maí 2003. TIL SÖLU Til sölu hitaborð fyrir matvörurverslun, veitingastað, hótel eða mötuneyti Lítið notað. Selst á hálfvirði. Upplýsingar gefur Karl í síma 892 0160. NORÐURLANDAMÓTIÐ í brids hefst í Þórshöfn í Færeyjum í dag en þar keppa landslið Íslands, Færeyja, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar í opnum flokki og kvennaflokki. Norðurlandamót- ið hefur verið haldið annað hvert ár, þau ár sem Evrópumótið er ekki haldið, en nú eru þrjú ár liðin frá því þetta mót var haldið síðast þar sem tímasetningu Evrópumótsins var breytt. Raunar munaði ekki miklu að mótið í Færeyjum yrði það síðasta því Svíar hafa viljað leggja Norð- urlandamótin niður; fannst varla svara kostnaði að fara til Íslands, Finnlands og Færeyja. Á fundi Bridssambands Norðurlanda fyrir skömmu var þó ákveðið að halda mótin áfram en þau verða nú spiluð til skiptis í Svíþjóð, Noregi og Dan- mörku um hvítasunnuhelgina og hin löndin þrjú fá ferðastyrki frá Norðurlandasambandinu. Einnig verður keppt í yngri flokki á sama tíma en til þessa hefur verið keppt sér í þeim flokki. Í opna flokknum í Færeyjum spila Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Bjarni Einarsson og Þröstur Ingimarsson og Guðmund- ur Páll Arnarson er fyrirliði. Þetta er nokkuð sigurstranglegt lið en fyrirfram má búast við því að Ís- land, Danmörk og Noregur berjist um sigurinn, að minnsta kosti eru sænsku spilararnir nánast óþekktir en Svíar eiga Norðurlandatitil að verja í opnum flokki. Norska liðið er skipað Per Erik Austberg, Jon Egil Furunes, Geir Helgemo, Terje Aa og Erik Rynn- ing sem er fyrirliði. Þetta eru allt keppnisreyndir menn sem erfitt verður að vinna. Þá senda Danir bræðurna Lars og Morten Lund Madsen, Jacob Røn og Freddi Brøndum. Þetta eru ungir menn sem hafa unnið ýmis afrek við bridsborðið, þar á meðal hampað heimsmeistaratitli spilara 25 ára og yngri. Það verður gaman að sjá hvernig þeir spjara sig í Þórshöfn. Í íslenska kvennaliðinu spila Esther Jakobsdóttir, Ljósbrá Bald- ursdóttir, Alda Guðnadóttir og Stefanía Sigurbjörnsdóttir. Ragnar Hermannsson er fyrirliði. Síðast þegar Norðurlandamót var spilað í Færeyjum unnu Íslendingar kvennaflokkinn en Esther var þá einnig í liðinu. Íslenska liðið er skipað keppnisreyndum konum þótt Stefanía hafi ekki áður spilað í landsliði. Finnar eru núverandi Norður- landameistarar í kvennaflokki og senda nú þær Sue Bäckström, Raija Tuomi, Mirja Mäntylä og Sari Kulmala til leiks en Kulmala er sú eina úr sigurliðinu í Hveragerði. Ekki er ólíklegt að Norðmenn og Svíar berjist um sigurinn í kvenna- flokknum. Norðmenn senda Anne- Lill Helleman, Gunn Kari Helness, Åse Langeland og Ann-Mari Mircovic og Svíar þær Jenny Evelius-Nohrén, Ylva Karlsson, Catarina Midskog og Kathrine Bertheau. Spilamennska hefst eins og áður sagði í dag og verður spiluð tvöföld umferð með 24 spila leikjum. Ís- lendingar byrja á Finnum og spila síðan við Færeyinga í kvöld. Á morgun spila íslensku liðin fyrst við Norðmenn, síðan Dani og loks Svía. Á miðvikudag er frí en á fimmtudag spila Íslendingar við Finna, Fær- eyinga og Norðmenn og loks við Dani og Svía á föstudag en þá lýkur mótinu. Norðurlandamót að hefjast í Færeyjum BRIDS Þórshöfn Íslenska liðið í opnum flokki. F.v. Þorlákur Jónsson, Þröstur Ingimars- son, Bjarni Einarsson, Guðmundur Páll Arnarson og Jón Baldursson. Íslenska kvennaliðið sem spilar í Færeyjum. Frá vinstri eru Alda Guðna- dóttir, Stefanía Skarphéðinsdóttir, Ragnar Hermannsson, Ljósbrá Bald- ursdóttir og Esther Jakobsdóttir. Norðurlandamótið í brids hefst í Þórs- höfn 19. maí og stendur til 23. maí. Heimasíða mótsins er www.bridge.fo. Guðm. Sv. Hermannsson Þegar ég hugsa til bernskunnar finnst mér stundum að ég hafi mest verið á hlaupum yfir Sýslumannstúnin. Í samnefndu húsi, sunn- an við Tungu okkar, bjó þá Erlendur Björnsson sýslumaður og Katrín Jónsdóttir kona hans ásamt fimm börnum. Þar var einnig í heimili Vil- borg Guðnadóttir eða Villa. Húsið var stórt og þar var gaman að leika sér, ekki síst fyrir það að börn þeirra hjóna voru ákaflega skemmtilegir leikfélagar. Í minningunni eru þessi ár samfellt ævintýri og þar leikur fjöl- skyldan í Sýslumannshúsi stórt hlut- verk. Kata er sú síðasta sem kveður af eldri kynslóðinni þar. Erlendur dó ár- ið 1980 og Villa átta árum síðar. Ég minnist Kötu við píanóið inni í bestustofu. Hún hafði ung lært á pí- anó og farið til Þýskalands í nám. Kannski átti hún drauma sem tengd- ust tónlist. Hennar var hlutskipti flestra kvenna þessa tíma fyrir kvennabaráttu, að giftast og verða húsmóðir. Þetta var á þeim árum sem mömmur voru heima. Þegar Kata sat við píanóið og lék upp úr þýskum nótnabókum var stundum fjarrænt blik í augum hennar. Kannski minnt- ist hún daganna í Lübeck forðum. Villa gamla var á þönum í eldhúsinu eða úti í fjósi. Ef hún var ekki að elda eða mjólka var hún að stoppa í sokka eða þurrka upp. Sjálfsagt var það Villu að þakka að Kata hafði stundum næði til að sitja við píanóið. Og það sem hún Villa reyndist okkur vel þeg- ar mamma dó. Það verður aldrei full- þakkað. Erlendur var rólyndur mað- ur og ákaflega barngóður. Þegar „Sjervinn“ kom í bæinn 1956 hafði maður náttúrulega aldrei séð aðra eins dýrð nema í bíó. Erlendur bauð okkur krökkunum í bílferðir inn í land. Að líða áfram í þessum eðal- vagni er ógleymanlegt. Þá var farið KATRÍN JÓNSDÓTTIR ✝ Katrín Jónsdótt-ir fæddist á Seyðisfirði 20. apríl 1913 og ólst þar upp. Hún lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík 2. apríl síðastliðinn og var jarðsett á Seyð- isfirði 26. apríl. inn að Systrafossi, í hellinn. Síðan haldið áfram að spila slagbolta innan við hús þangað til ég hljóp heim í kvöld- mat yfir túnið. Kata var sérstök. Hún var listakona. Hús- móðurhlutverkið pass- aði henni ekki alltaf. Ég velti því fyrir mér hvað hún hefði orðið ef hún væri ung í dag. Áreið- anlega tónlistarkona. Hún fann upp á ýmsu skemmtilegu. Hélt grímuböll fyrir krakk- ana á Öldu, í Firði og Bakka. Þá fyllt- ust stofurnar af grímuklæddum krökkum. Kata lék á píanóið og söng og við tókum undir og dönsuðum. Svo voru veitt verðlaun fyrir besta bún- ing. Dæmigert fyrir Sýslumannshús- ið; skemmtilegar uppákomur, frjótt ímyndunarafl. Árið 1959 flutti fjölskyldan norður fyrir Tungu, upp í Fjörð. Erlendur hafði reist stórt hús á hinni gömlu arf- leifð konu sinnar. Þar bjuggu þau næstu tuttugu árin. Þetta hús var ákaflega fínt og féll vel að pörum okk- ar krakkanna. Allt í kring voru túnin og jafnlangt að hlaupa úr Tungu og áður. Svo uxum við úr grasi, urðum túberaðir unglingar með bítlahár og hæla. Búskapur lagðist af og nýir tímar tóku við. Leið okkar lá að heim- an í skóla. En í fríum kom maður í Fjörð. Þar var nú hljóðlátara en fyrr- um. Samt mátti heyra gígjuslátt í bestustofu. Þar sat húsmóðirin og lék á sinn kliðmjúka hátt með ljúft bros á vör. Að hitta Kötu hin seinni ár var eins og að hitta sinn besta vin. Hún var alltaf svo hlý og glöð að sjá mann. Þessar tvær fjölskyldur úr Firði og Tungu, sem bjuggu samhliða í þrjá áratugi, eru alltaf tengdar sérstökum böndum. Mig langar að þakka Kötu og þeim hinum fyrir gömlu árin og allar stund- irnar sem við áttum saman í blíðu og stríðu. Ég er alveg viss um að fjöl- skyldan í Sýslumannshúsi hefur gefið okkur Tungubúum meiri innblástur en hana grunar. Fyrir það allt þökk- um við. Systkinunum og öðrum vandamönnum sendi ég mínar bestu samúðarkveðjur. Ingólfur Steinsson. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.