Morgunblaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 29 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þið eruð ákveðin og kraft- mikil og hafið meðfædda leið- togahæfileika. Á komandi ári munu nánustu sambönd ykk- ar verða í brennidepli. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Varið að eyða of miklum pen- ingum í skemmtanir eða gjaf- ir handa ykkar nánustu. Það má gera of mikið af því góða. Naut (20. apríl - 20. maí)  Farið varlega í að lofa fjöl- skyldunni einhverju í dag. Það hefur oft mest aðdrátt- arafl sem er utan seilingar og það getur reynst dýrkeypt að eltast við það. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þér líður vel og þú lítur til- veruna björtum augum. Hamingjan felst í því að vera sáttur við það sem maður hefur. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Eyddu ekki of miklum pen- ingum í vini þína í dag eða vegna áskorana vina þinna. Þú þarft ekki að standa undir væntingum annarra. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Gættu þess að færast ekki of mikið í fang í dag. Það er hætt við að þú gangir of langt í viðleitni þinni til að gera yf- irmönnum þínum til hæfis. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ferðaáætlanir og áætlanir sem tengjast fjölmiðlum, út- gáfustarfsemi og framhalds- menntun virðast vænlegri en þær eru í raun. Haltu vöku þinni. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Farðu varlega í að gefa frá þér hlutina í dag. Það er hætt við að of mikil gjafmildi hafi áhrif á dómgreind þína. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Dagurinn hentar vel til að gera langtímaáætlanir með öðrum. Reyndu að fá yfirsýn yfir heildarmyndina án þess að hafa áhyggjur af smáatrið- unum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Jákvæðni þín og bjartsýni smita út frá sér í dag og því nýtur fólk þess að vera með þér. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það er hætt við að viðskipti gangi brösuglega í dag. Farið sérstaklega varlega í við- skiptum sem tengjast sjúkra- húsum og skemmtanaiðn- aðinum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú lítur lífið jákvæðum og bjartsýnum augum í dag. Þú hefur góða yfirsýn yfir hlut- ina og átt því auðvelt með að gera langtímaáætlanir. Þú ættir engu að síður að hlusta á aðra og sýna sveigjanleika. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er hætt við að þú lofir upp í ermina á þér í vinnunni. Reyndu að hugsa málið til enda áður en þú talar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. SAKNAÐARLJÓÐ Þá var ég ungur, er unnir luku föðuraugum fyrir mér saman. Man ég þó missi minn í heimi fyrstan og sárstan, er mér faðir hvarf. Man ég afl andans í yfirbragði, og ástina björtu, er úr augum skein. Var hún mér æ, sem á vorum ali grös in grænu guðfögur sól. - - - Jónas Hallgrímsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 80 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 19. maí, er áttræð Hulda Sigrún Snæbjörnsdóttir, Holtsgötu 6. Hún tekur á móti skyld- fólki og vinum í Safn- aðarheimili Kaþólsku kirkj- unnar, Hávallagötu 16 í dag milli kl. 16 og 19. STEVE Weinstein og Bobby Levin unnu Caven- dish-tvímenninginn í fyrra en gekk illa í ár og enduðu í 27. sæti af 50 pörum. En þeir áttu auðvitað sín góðu spil. Norður gefur; AV á hættu. Norður ♠ ÁG865 ♥ 8 ♦ 6432 ♣843 Vestur Austur ♠ 103 ♠ 4 ♥ K10 ♥ ÁDG762 ♦ DG9875 ♦ K10 ♣ÁD6 ♣G975 Suður ♠ KD972 ♥ 9543 ♦ Á ♣K102 Weinstein varð sagnhafi í fjórum spöðum í suður eftir þessar sagnir: Vestur Norður Austur Suður Bramley Levin Lazard Weinstein – pass 2 spaðar 2 spaðar 3 hjörtu 4 spaðar Pass Pass Pass Í andstöðunni voru Bart Bramley og Sidney Laz- ard. Bramley kom út með hjartakónginn, sem Lazard yfirdrap og skipti yfir í tígulkóng. Sagnhafi á augljóslega átta slagi á tromp og einn á tígulás. Með einhverju móti þarf hann að skapa sér slag á lauf. Weinstein lét spaðann eiga sig og hóf strax að víxltrompa hjarta og tígul. Eftir tvær stungur á báð- um höndum kemur upp þessi staða: Norður ♠ ÁG8 ♥ – ♦ 6 ♣843 Vestur Austur ♠ 103 ♠ 4 ♥ – ♥ DG ♦ DG ♦ – ♣ÁD6 ♣G975 Suður ♠ KD9 ♥ 9 ♦ – ♣K102 Suður á út og spilar hjartaníu. Hvað á vestur að gera? Ef hann hendir laufi getur sagnhafi sótt slag á kónginn með því að fella ÁD. Hendi vestur tígli getur sagnhafi til dæmis tekið tvisvar tromp, spilaði tígli og hent laufi heima. Þá fær hann á lauf- kónginn í lokin. Þriðji möguleiki vesturs er að stinga í hjartaníuna. Það yrði yfirtrompað, tígull stunginn, trompin tekin í einni umferð og laufi spilað á tíu. Vestur er í raun þvingaður í þremur litum, þar á meðal í trompinu! BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Rbd2 b6 5. a3 Bxd2+ 6. Bxd2 Bb7 7. Bg5 d6 8. e3 Rbd7 9. Dc2 De7 10. Hd1 h6 11. Bh4 g5 12. Bg3 Re4 13. d5 Rxg3 14. hxg3 e5 15. Bd3 Kf8 16. g4 Kg8 17. Rd2 Rf6 18. Bf5 Bc8 19. Bxc8 Hxc8 20. Rf1 He8 21. Rg3 Rxg4 22. Rf5 Df8 23. f3 Rf6 24. e4 a5 25. g4 Hh7 26. Hd2 Kh8 27. Hdh2 Rg8 28. Hh5 f6 29. H1h3 Hee7 30. Dh2 Hef7 31. Kd2 Hfg7 32. Rxh6 Rxh6 33. Hxh6 Df7 34. Kc3 Hxh6 35. Hxh6+ Hh7 36. Hxh7+ Dxh7 37. Dxh7+ Kxh7 38. Kb3 Kg7 39. Ka4 Kf7 Staðan kom upp á pólska meistara- mótinu sem lauk fyr- ir skömmu í Varsjá. Mikhail Krasenkov (2.609) hafði hvítt gegn Bartlomiej Mac- ieja (2.634). 40. c5! dxc5 41. Kb5 c4 41. ... Ke7 hefði einn- ig leitt til ósigurs eftir 42. Kc6 Kd8 43. d6 cxd6 44. Kxd6. 42. Kc6 a4 43. Kxc7 b5 44. d6 b4 45. d7 bxa3 46. bxa3 og svartur gafst upp. Voratskákmót Tafl- félagsins Hellis hefst kl. 20 í húsakynnum félagsins, Álfabakka 14a, en mótinu verður fram haldið 26. maí. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum og viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar þínar á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn á streitu og kvíða, auka einbeitinguna og taka betri ákvarðanir. Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka sjálfsmynd. Leiðbeinandi Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur. Upplýsingar í síma 694 54 94 3 KYNNINGAR Á morgun, þri. 20. maí, HYGEA Laugavegi Miðvikud. 21. maí HYGEA Kringlunni Fimmtud. 22. maí HYGEA Smáralind Alla daga frá kl. 12-17Síðustu kynningar fyrir sumarfrí! 10% kynningar- afsláttur og fallegur kaupauki ERU HRUKKUR OG ÞREYTT HÚÐ AÐ DRAGA ÞIG NIÐUR? Kringlunni 8-12, sími 533 4533 Laugavegi 23, sími 511 4533 Smáralind, sími 554 3960 NÝTT! Cellular Anti-Wrinkle Firming Serum www.laprairie.com Fallegar heilsárs síðar kápur Verð 29.900 Nýtt Visatímabil Opið virka daga frá kl. 9-18 Laugardaga frá kl 10-15 Mörkinni 6 - Sími 588 5518 MEÐ MORGUNKAFFINU Bíðum bara og sjáum til hvort köttur nágrannans þorir yfir! MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík FRÉTTIR BORIST hefur eftirfarandi yf- irlýsing frá alþjóðlega flutninga- fyrirtækinu DHL: „Á sama tíma og alþjóðlega flutningafyrirtækið DHL harm- ar að misbrestur hafi orðið á af- greiðslu utankjörstaðaratkvæða í nýafstöðnum Alþingiskosning- um, sem send voru með fyrir- tækinu, óskar DHL eftir að koma eftirfarandi á framfæri: Til þess að tryggja öryggi í lofti, láði og legi áskilur DHL sér rétt til þess að opna pakka sem fyrirtækið flytur. Sé pökk- um eða umslögum lokað í við- urvist starfsmanna DHL eru þeir ekki opnaðir aftur, heldur sérstaklega merktir að örygg- iskröfum DHL hafi verið full- nægt. Því miður láðist starfs- manni DHL að merkja umslögin með þessum hætti í umræddu tilviki. Hlutaðeigandi aðilum hefur verið gerð grein fyrir málsatvikum og mun DHL vinna að því að þetta atvik endurtaki sig ekki. Árum saman hefur DHL átt samstarf við ríkisstjórnir víða um heim vegna utankjörstaðar- kosninga. Þegar um slíkt sam- starf er að ræða geta borgarar viðkomandi ríkis nálgast kjör- gögn á skrifstofum DHL í 220 löndum og DHL tryggir að at- kvæðin komist á kjörstað í tæka tíð. Sá háttur var hafður á fyrir forsetakosningar Bandaríkjanna 2000 og þingkosningar Banda- ríkjanna í fyrra. Þá geta kjós- endur frá Belgíu nálgast kjör- gögn með sama hætti, fyrir þingkosningarnar sem munu fara fram 18. maí nk. Íslenskum stjórnvöldum hefur staðið til boða að ganga til slíks samstarfs frá árinu 1999.“ Yfirlýsing frá DHL-flutningum Harma misbrest við flutning atkvæða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.