Morgunblaðið - 19.05.2003, Page 7

Morgunblaðið - 19.05.2003, Page 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 7 Meira Danzas.Danzas. Eftirtalin fyrirtæki hafa sameinast undir nafni DHL til a› skapa n‡tt vi›mi› á svi›i hra›flutninga, fraktflutninga og flutningslausna: Danzas, sem er í fararbroddi í flug- og skipafrakt á heimsvísu, DHL Worldwide Express, lei›andi fyrirtæki í hra›flutningum á heimsvísu, og Deutsche Post Euro Express, lei›andi evrópskt fyrirtæki í böggladreifingu. Hi› n‡ja DHL b‡›ur flér meiri afköst,meiri fljónustu og fleiri möguleika í yfir 220 löndum.Til a› komast a› flví hva› vi› getum gert fyrir flig hringdu í 535 1100 e›a kíktu á www.dhl.is SÖNGHÓPURINN Sunnan heiða mun frumflytja verkið Stemmur eftir Gunnstein Ólafsson á tónleikum í Salnum næstkomandi sunnudag klukkan 17. Einsöngvarar með kórnum verða þeir Pétur Björnsson kvæðamaður og Ólafur Kjartan Sigurðsson barítón en stjórnandi er Kári Gestsson. Sönghópurinn sem er að stofni til kór Svarf- dælinga í Reykjavík er síðan á leið í söngferð til Færeyja og Hjaltlandseyja í júní og mun meðal annars flytja verkið í Norræna húsinu í Þórshöfn á Menningarnótt Færeyinga. Sönghópurinn var um helgina við upptökur í Fella- og Hólakirkju og við það tilefni var þessi mynd tekin en stefnt er að því að gefa út geisladisk í haust. Morgunblaðið/Arnaldur Kári Gestsson stjórnar sönghópnum Sunnan heiða og Ólafi Kjartani Sigurðssyni í Fella- og Hólakirkju. Sunnan heiða flytur Stemmur í Salnum MÁLÞING um fötlunarrannsóknir með yfirskriftinni „Ekkert um okkur án okkar“ var haldið í Reykjadal á laugardaginn og var sérstaklega sniðið að þörfum fólks með þroska- hömlun. Átak, félag fólks með þroskahömlun, stóð að málþinginu ásamt Þroskahjálp og Fjölmennt. Friðrik Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Þroskahjálpar, segir að mál- þing sem þetta sé hluti af þeirri stefnu að fólk með þroskahömlun eigi eins og aðrir borgarar sjálfsagð- an og fullan rétt á því að vita um hvað er verið að fjalla hvað varðar líf þeirra. Hann segir að málþingið hafi gengið vonum framar og verið mjög lærdómsríkt bæði fyrir áheyrendur og fyrirlesara sem hafi þurft að laga málflutning sinn að áheyrendahópn- um. Fimm fræðimenn á sviði fötlunar- rannsókna fluttu erindi um rann- sóknir sínar. Rannveig Traustadótt- ir fjallaði um fötlunarrannsóknir almennt, Vilborg Jóhannsdóttir fjallaði um gæðastýrða þjónustu sem byggð er á viðhorfi notenda, Krist- ján Valdimarsson um stefnu í at- vinnumálum fatlaðra, Hrönn Krist- jánsdóttir um lífstíl og heilsu fullorðinna, seinfærra kvenna og Hanna Björg Sigurðardóttir fjallaði um doktorsritgerð sína um þroska- hefta eða seinfæra foreldra. Eftir hvert erindi var opnað fyrir umræður en þátttakendur komu vel undirbúnir til leiks þar sem fyrir- lestrarnir höfðu verið kynntir hjá fullorðinsfræðslu fatlaðra og margir höfðu spurningar í farteskinu. Einn- ig fengu þátttakendur rauð spjöld sem þeir gátu rétt upp ef þurftu nán- ari skýringar á því hvað fyrirlesar- inn var að fjalla um. Fræðimenn kynntu rannsóknir fyrir fötluðum Ekkert um okkur án okkar ERFIÐ fjárhagsstaða Landverndar var rædd á aðalfundi samtakanna á laugardag. Framkvæmdastjórinn, Tryggvi Felixson, hefur sagt upp störfum og hefur stjórn samtak- anna ákveðið að segja skrifstofu- stjóranum upp. Það gæti þýtt að enginn starfsmaður yrði á skrif- stofu til að sjá um daglegan rekst- ur. Framkvæmdastjóra hefur verið falið að endurskipuleggja starfsem- ina á næstu þremur mánuðum. „Það mun augljóslega þýða að draga verður úr starfsemi samtak- anna,“ segir Ólöf Guðný Valdimars- dóttir, formaður Landverndar. Hafa sagt upp aðild Hún segir starfsemina hafa auk- ist mjög undanfarin ár. Mikið sé um fræðsluverkefni en einnig hafi Landvernd látið til sín taka í um- ræðunni umumhverfismál. Umfjöll- un um Kárahnjúkavirkjun og Þjórs- árver hefur þar verið fyrirferðar- mest. „Við höfum reynt að halda uppi opinni og upplýstri umræðu um Kárahnjúka og Þjórsárver en fjárhagurinn farið versnandi,“ segir Ólöf. Hún segir margar ástæður fyrir fjárhagserfiðleikunum, t.d. séu félagar aðeins um hundrað og fé- lagsgjaldið lágt. Hún segir Landvernd vera regn- hlífarsamtök margra annarra félaga og samtaka þaðan sem styrkir til rekstursins hafa komið meðal ann- ars. „En í allri þessari umræðu hafa samtök verið að segja upp aðild sinni og það hefur verið erfiðara að fá styrki. Stjórnvöld hafa ekki aukið styrki í hlutfalli við aukna starfsemi.“ Ólöf segir vel stutt við bakið á ein- stökum fræðsluverkefnum sem samtökin halda utan um, t.d. Vist- vernd í verki og Græn- og Blá- fánann. „En peningar til almenns reksturs og fundarhalda hafa hins vegar verið litlir.“ Ólöf bendir á að þegar Náttúru- verndarráð var lagt niður voru helstu rökin þau að auka ætti í kjöl- farið fjárstuðning til frjálsra félaga- samtaka á sviði umhverfismála. „Það hefur því miður ekki staðið undir þeim væntingum sem við gerðum og alls ekki í hlutfalli við aukna starfsemi Landverndar. Þjóðfélagið allt hefur kallað á meiri umræðu, að einhver aðili haldi á lofti umhverfissjónarmiðum til að gæta mótvægis. En það virðist ekki vera það sem stjórnvöld vilja styrkja í dag.“ Rætt um slæma fjárhagsstöðu Landverndar á aðalfundi samtakanna Óhjákvæmilegt að draga úr starfseminni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.