Morgunblaðið - 19.05.2003, Síða 8
FRÉTTIR
8 MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Rúsínan í pylsuendanum???
Náttúrufræðingurinn í nýjan búning
Fylgjum betur
forskriftinni
TÍMARITIÐ Nátt-úrufræðingurinnkom fyrst út árið
1931 og er því nokkuð
gamalt í hettunni. Það
sýndi sig þó fyrir
skemmstu er 1.–2. hefti 71.
árgangs 2002 kom út að
það er aldrei of seint að fá
andlitslyftingu. Ritstjóri
blaðsins síðustu árin er
Álfheiður Ingadóttir, út-
gáfustjóri Náttúrufræði-
stofnunar Íslands, og svar-
aði hún nokkrum spurn-
ingum í tilefni þessa.
– Segðu okkur fyrst
eitthvað af sögu Náttúru-
fræðingsins ...
„Náttúrufræðingurinn
kom fyrst út árið 1931 og
voru útgefendurnir þeir
Guðmundur G. Bárðarson
jarðfræðingur og Árni Friðriks-
son fiskifræðingur, sem gáfu ritið
út á eigin ábyrgð. Hið íslenska
náttúrufræðifélag keypti tímarit-
ið árið 1941 og gerði það að fé-
lagsriti sínu 1952. Frá 1996 hefur
Náttúrufræðistofnun Íslands
annast umsjón með útgáfunni
samkvæmt samningi við HÍN.“
– Hvað eru þá tölublöðin orðin
mörg?
„Fyrstu fjögur árin var Nátt-
úrufræðingurinn gefinn út í örk-
um en síðan hafa verið gefin út
fjögur hefti í árgangi sem þó hef-
ur stundum verið skellt saman
eins og nú er með nýja heftið, sem
er 1.–2. tölublöð 71. árgangs. Við
erum, eins og sjá má, nokkuð á
eftir með útgáfuna vegna útlits-
breytinganna, ættum að vera að
hefja 73. árganginn. Hins vegar
er stutt í næsta hefti með fullt af
spennandi efni.“
– Er Náttúrufræðingurinn í
heild ekki verðmætur?
„Jú, og mjög eftirsóttur. Marg-
ir árgangar eru algerlega ófáan-
legir og aðeins hægt að fá tímarit-
ið hjá útgefanda samfellt frá 1977.
Eldri árganga eignast menn helst
úr dánarbúum eða kaupa dýrum
dómum í fornbókaverslunum.“
– Er ekki óvinsælt fyrir safnara
að broti á svona gömlu tímariti sé
breytt?
„Jú, það er ástæðan fyrir því að
ekki hefur verið lagt í þetta fyrr.
Nú stendur hins vegar þannig á
bandi að einu hefti má ljúka með
70. árganginum og þá tekur bara
við nýtt líf og nýtt band. Við höf-
um kviðið viðbrögðum þeirra sem
binda inn sjálfir, en þau hafa verið
betri en við bjuggumst við.“
– Hversu stórt hefur upplag
blaðsins verið og hverjir hafa
keypt það?
„Nýjasta tölublaðið er prentað í
1700 eintökum. Kaupendur eru
einkum náttúrufræðingar, raun-
vísindamenn, stúdentar og áhuga-
menn um náttúrufræði og vísindi.
Í haus blaðsins stendur enn, eins
og á fyrsta heftinu 1931, að Nátt-
úrufræðingurinn sé „alþýðlegt
fræðslurit um náttúrufræði“ og
markmiðið er að birta greinar og
fréttir sem eru læsi-
legar öllum áhuga-
mönnum um fræðin. Í
bland birtast svo rit-
rýndar fræðigreinar
enda er Náttúrufræð-
ingurinn nær eini vett-
vangurinn fyrir slíkar
greinar á íslensku.“
– Nýja útlitið bendir til að létta
eigi aðeins á blaðinu, nær það líka
til efnistaka?
„Jú, við fáum langþráð tæki-
færi til að létta lesefnið með
myndum og nota myndrænni út-
færslu en gamla brotið bauð upp
á. Þannig getum við betur fylgt
forskriftinni um efni við allra hæfi
og ég vona að þessi nýi búningur
laði að nýja lesendur og hvetji
menn til dáða á ritvellinum.“
– Er í bígerð að sækja fram
með blaðið og koma því víðar?
„Félagsmenn HÍN fá blaðið
heim og það er til sölu hjá Nátt-
úrufræðistofnun Íslands í Reykja-
vík og á Akureyri. Við erum að
semja við bóksölur á þessum stöð-
um um að taka tímaritið í sölu og
ég vona að það gangi eftir.“
– Hvernig er að ritstýra slíku
blaði?
„Þetta er skemmtilegt starf og
heldur manni vakandi í faginu og
styrkir tengsl við fjöldann allan af
fólki. Ég hef verið ritstjóri Nátt-
úrufræðingsins í tæp 7 ár og
lengst af unnið með sömu rit-
stjórninni undir forystu Áslaugar
Helgadóttur plöntuerfðafræð-
ings. Okkur berst talsvert efni
sem ritstjórn les og metur eftir
atvikum, en fræðilegar greinar
um niðurstöður rannsókna eru
ritrýndar, þ.e. tveir sérfræðingar
úr viðkomandi fagi eru fengnir til
að lesa og meta fræðilegt innihald
og framsetningu efnisins. Það
kemur fyrir að greinum er hafnað
en yfirleitt er öllum ábendingum
og athugasemdum vel tekið, en
vinnsla greinanna getur tekið
langan tíma, enda er yfirlesturinn
oft unninn í hjáverkum þar sem
ekki er hægt að borga
fyrir hann.“
–Eru einhverjar
frekari breytingar á
blaðinu í vændum?
„Nú er komin ný
ritstjórn undir forystu
Árna Hjartarsonar
jarðfræðings og við
munum að sjálfsögðu halda áfram
að þróa nýja búninginn og efn-
istök Náttúrufræðingsins. Ég
hvet menn til að skrifa í Náttúru-
fræðinginn og vona að við fáum
ábendingar frá lesendum og höf-
undum um það sem enn má
bæta.“
Álfheiður Ingadóttir
Álfheiður Ingadóttir er fædd í
Reykjavík 1. maí 1951. Stúdent
frá MR 1971 og BS-próf í líffræði
frá HÍ 1975. Blaðamaður við
Þjóðviljann 1977–87 og vara-
borgarfulltrúi í Reykjavík 1978–
86 og um tíma formaður um-
hverfismálaráðs. Hefur kennt
náttúrufræði, stundað skrif-
stofustörf m.a. hjá Samtökum
um kvennaathvarf og fram-
kvæmdastjóri Hafeldis hf. 1988–
1990. Álfheiður hefur frá 1996
verið útgáfustjóri Náttúrufræði-
stofnunar Íslands og ritstjóri
Náttúrufræðingsins. Maður
hennar er Sigurmar K. Alberts-
son hrl. og eiga þau einn son,
Inga Kristján, 12 ára.
Við erum, eins
og sjá má,
nokkuð á eftir
með útgáfuna
vegna útlits-
breytinganna