Morgunblaðið - 19.05.2003, Side 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Brúarfoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Karma kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vin-
ustofa kl. 13, söng-
stund á morgun kl.
14.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 11 boccia, kl. 13–
16.30 opin smíðastofa/
útskurður, opin
handavinnustofa, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl.
9–12 bútasaumur, kl.
9–17 fótaaðgerð, kl.
10–11 samverustund,
kl. 13.30–14.30 söngur
við píanóið, kl. 13–16
bútasaumur.
Félagsstarf eldri
borgara í Mosfellsbæ,
Kjalarnesi og Kjós.
Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánudagur Kl. 16
leikfimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl.
20.30. Fótaaðgerð frá
kl. 10. Skrifstofan
Gullsmára 9 er opin
kl. 16.30–18, s.
554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, og mynd-
list, kl. 10–12 versl-
unin opin, kl. 13 fönd-
ur og handavinna.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 10,
leikfimi, kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 9–16 op-
in handavinnustofan,
kl. 9–12 myndlist, kl.
13–16 körfugerð, kl.
11–11.30 leikfimi, kl.
13–16 spilað, kl. 10–13
verslunin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, handavinna kl. 9–
16.30, félagsvist kl. 14,
kl. 9–14 hárgreiðsla.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Kóræfingar kl. 10.30,
tréskurður kl 13 og
félagsvist kl. 13.30.
Gjábakki, Fannborg
8. Handavinnustofan
opin, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl.
10.50, leikfimi, kl. 13
skák og lomber, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fóta-
aðgerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13.30 sögu-
stund og spjall, kl. 13
postlínsmálun og hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl.
10 jóga, kl. 13 spilað.
Fótaaðgerðir.
Norðurbrún 1. Kl.
10–11 ganga, kl. 9–15
fótaaðgerð, kl. 9–12
myndlist, kl. 13–16.45
opin handavinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálun. kl.
9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.30–10.30
boccia, kl.11–12 leik-
fimi, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing.
Vitatorg.
Vinnustofur fé-
lagsmiðstöðvarinnar
eru lokaðar í dag
vegna handverkssýn-
ingar sem er opin frá
kl. 9–16.
Gullsmárabrids. Brids
í Gullsmára. Skráning
kl. 12.45, spil hefst kl.
13.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánu-
dagskvöld kl. 20.
Minningarkort
Minningarkort
Hjartaverndar fást á
eftirtöldum stöðum á
Austurlandi: Egils-
staðir: Gallery Ugla,
Miðvangur 5. Eski-
fjörður: Póstur og s.,
Strandgötu 55. Höfn:
Vilborg Einarsdóttir
Hafnarbraut 37.
Minningarkort
Hjartaverndar fást á
eftirtöldum stöðum á
Norðurlandi: Ólafs-
fjörður: Blóm og
Gjafavörur Aðalgötu
7. Hvammstangi:
Verslunin Hlín
Hvammstangabraut
28. Akureyri: Bóka-
búð Jónasar Hafn-
arstræti 108, Möppu-
dýrin Sunnuhlíð 12c.
Mývatnssveit: Póst-
húsið í Reykjahlíð.
Húsavík: Blómasetrið,
Héðinsbraut 1,
Raufarhöfn: Hjá Jónu
Ósk Pétursdóttur, Ás-
götu 5.
Minningarkort
Hjartaverndar fást á
eftirtöldum stöðum á
Suðurlandi: Vest-
mannaeyjar: Apótek
Vestmannaeyja Vest-
mannabraut 24. Sel-
foss: Selfossapótek
Kjarninn.
Minningarkort
Hjartaverndar, fást á
eftirtöldum stöðum á
Reykjanesi: Kópavog-
ur: Kópavogs Apótek,
Hamraborg 11. Hafn-
arfjörður: Lyfja, Set-
bergi. Sparisjóðurinn,
Strandgata 8–10,
Keflavík: Apótek
Keflavíkur, Suðurgötu
2, Landsbankinn
Hafnargötu 55–57.
Í dag er mánudagur 19. maí, 139.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Það sem ég segi yður, það
segi ég öllum: „Vakið!“
(Mark. 13, 37.)
Brynjólfur Stefánssonfjallar í Deiglunni um
launahækkun alþing-
ismanna, ráðherra og
embættismanna, sem
heyra undir Kjaradóm.
Brynjólfur segir aðþessar breytingar
hafi að mörgu leyti verið
tímabærar, „enda bera
þær vott um hugarfars-
breytingu í þá átt að laun
fyrir þessi störf virki sem
hvatning til árangurs“.
Brynjólfur segir aðstörf alþingismanna
séu á margan hátt sér-
stæð. „Varla er hægt að
segja að það sé einfalt
mál að komast inn á þing
en flestir eru sammála
um mikilvægi þess að á
Alþingi Íslendinga veljist
hæfileikaríkt fólk. Ef ein-
hver fær þá flugu í höfuð-
ið að gerast alþingis-
maður er varla hægt að
segja að það sé auðsótt,“
segir hann.
Brynjólfur segir að ann-ars vegar þurfi mað-
ur að finna flokk eða fylk-
ingu sem hafi stefnu í
samræmi við manns eigin
skoðanir. Þá þurfi oftast
að ganga í gegnum próf-
kjör. Hins vegar sé sá
möguleiki fyrir hendi að
bjóða fram sinn eigin lista
með tilheyrandi undir-
skriftasöfnunum, kynn-
ingum og fjárútlátum.
Ef allt gengur að óskum,segir Brynjólfur, tek-
ur hin almenna kosninga-
barátta við. „Ef árangur á
að nást er nauðsynlegt að
vera á útopnu við að
kynna sig, stefnumál sín
og flokksins og almennt
að sannfæra kjósendur
um að setja x-ið á réttan
stað.
Á Alþingi er hins vegarengin ástæða til að
anda léttar því að ásamt
því stressi sem óhjá-
kvæmilega fylgir þing-
störfum er nauðsynlegt
að hafa það á bak við eyr-
að að alls ekki er tryggt
að starfið haldist lengur
en í fjögur ár. Áður en
langt um líður er nauð-
synlegt að ganga aftur í
gegnum kosningaferlið
og nú til að sannfæra fólk
um að starfið hafi verið
árangursríkt og að
stefnumálunum hafi verið
komið til skila,“ segir
hann.
Að lokum segir Brynj-ólfur: „Mikil ábyrgð
fylgir því að taka þátt í
ákvörðunum sem snerta
alla landsmenn og varla
leiðist blessuðum alþing-
ismönnunum okkar skraf-
ið. En því verður ekki
neitað að störf þeirra
hljóta að vera bæði erfið
og krefjandi. Margt hang-
ir á spýtunni og nauðsyn-
legt að hæfileikaríkt fólk
sinni æðstu embættum ís-
lenska ríkisins. Því er
ekki óeðlilegt að laun fyr-
ir slík störf séu í hærri
kantinum og í samræmi
við hálaunastöður á hin-
um almenna markaði. Því
er niðurstaða kjaradóms
skiljanleg.“
STAKSTEINAR
Þurfa laun þingmanna
að vera há?
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er ákaflega ánægðurmeð að nú eigi að bæta beygjuör
við umferðarljósin á Kringlumýr-
arbraut þar sem hún mætir Miklu-
braut. Víkverji skilur ekki í að ekki
skuli hafa verið drifið í þessu miklu
fyrr. Með þessum einfalda hætti má
gera þessi hættulegustu gatnamót
landsins mun öruggari en nú er. Eða
það heldur Víkverji að minnsta
kosti. Hann er farinn að reyna að
forðast að aka um þessi gatnamót.
Til dæmis er hægt að taka á sig lít-
inn krók þegar maður ekur Kringlu-
mýrarbraut í norður og ætlar að
beygja til vinstri vestur Miklubraut-
ina; hægt er þá að beygja til hægri
niður Listabraut, síðan til vinstri (á
milli Borgarleikhúss og Morg-
unblaðshússins) og síðan áfram und-
ir Miklubrautina og upp á hana eftir
lykkjunni og þá sleppur maður við
að taka vinstri beygjuna af Kringlu-
mýrarbraut inn á Miklubraut. Satt
að segja furðar Víkverji sig á því að
það virðist orðið að einhvers konar
hefð að í þessari beygju brjóti menn
umferðarreglurnar og aki yfir á
rauðu. Ekki er óvenjulegt að sjá
þetta sjö til átta ökumenn taka
beygjuna vísvitandi á rauðu ljósi og
oft sleppa þeir naumlega við bíla
sem koma eftir Miklubrautinni á
grænu ljósi. Að þetta skuli vera orð-
ið viðtekið er forkastanlegt að mati
Víkverja. Og að lögreglan skuli ekki
gera átak í að stöðva þessa „hefð“ í
reykvískri umferðarmenningu sýnir
að hún hefur veitt þegjandi sam-
þykki við þessu háttarlagi – senni-
lega á þeim forsendum að annars
gengi umferðin svo hægt fyrir sig.
En með þessu er lögreglan beinlínis
að auka hættuna í umferðinni og
bregst því skyldu sinni algerlega.
Jafnvel þótt maður sé ekki að taka
vinstribeygju af Kringlumýrarbraut
inn á Miklubraut er maður í stór-
hættu á þessum gatnamótum. Um
daginn lenti Víkverji í því sem að
framan er lýst, hann var að aka
Miklubrautina í vestur og annar
ökumaður kom Kringlumýrarbraut í
norður og beygði til vinstri, fylgdi
hefðinni og fór yfir á rauðu ljósi, aft-
astur í röð fimm eða sex bíla (löngu
komið rautt þegar þessi maður lagði
af stað). Þegar Víkverji flautaði á
þennan lögbrjót – sem var aug-
ljóslega að brjóta umferðarregl-
urnar vísvitandi – brást þessi ósvífni
ökumaður hinn versti við og flautaði
á móti og gaf dónalegt merki.
Bæði ökumenn og lögregla hafa
umferðarreglur vísvitandi að engu á
þessum gatnamótum. Margar hefðir
eru góðar, en þessi ekki.
Morgunblaðið/Kristinn
Þekkir einhver fólkið?
MYNDIR þessar munu
hafa verið í eigu konu ætt-
aðrar úr Landsveit í Rang-
árvallasýslu sem bjó í
Reykjavík á árunum 1915
til 1945. Þekki einhver fólk-
ið er sá hinn sami vinsam-
lega beðinn að hafa sam-
band við Gunnar Guð-
mundsson, Freyvangi 15,
850 Hellu, eða í síma
487 5098.
Ánægjuleg samkoma
ÉG var á samkomu hjá níg-
eríska lækningaprédikar-
anum í Austurbæ og varð
alveg hugfangin. Þarna
fékk kona sjónina aftur og
nærvera Guðs var yndisleg.
Ég hvet fólk til að koma og
vera í nærveru Drottins og
fá lækningu. Ég vil taka
það fram að þessi maður
læknar ekki, það er Drott-
inn sem læknar.
Kona í borginni.
Kringlur fyrir landið
NÚNA eru hér á Íslandi
ekki nógu margar verslun-
armiðstöðvar að mínu mati.
Kringlan og Smáralindin
eru mjög fínar verslunar-
miðstöðvar en eru eilítið
langt frá öðrum stöðum.
Hvernig væri nú að byggja
víðar? Það er t.d. engin stór
verslunarmiðstöð á Akur-
eyri. Svo væri hægt að
byggja víðar, s.s. á Blöndu-
ósi, Raufarhöfn og Selfossi.
Hvernig væri nú að drífa í
þessu aðeins?
Húsmóðir
í Vesturbænum.
Dónaleg
ljósmynd
ELDRI kona hafði sam-
band við Velvakanda og
lýsti óánægju sinni með
ljósmynd sem birtist af
Björk Guðmundsdóttur í
Fréttablaðinu. Á ljósmynd-
inni liggur Björk næstum
nakin, með ábreiðu yfir sér,
og er með hendur í skauti.
Þykir henni þetta ekki við
hæfi, sérstaklega í kjölfar
nýlegrar umræðu um vel-
sæmi.
Saltur matur
ÉG vil taka undir með konu
sem skrifaði um salt í mat.
Erfitt virðist vera að finna
unninn mat í verslunum
sem ekki er brimsaltur og
bragðlaus. Þetta á ég bágt
með að skilja, enda eigum
við svo gott hráefni. Sjálf er
ég búin að búa til mat í yfir
60 ár, svo ég veit hvað ég er
að tala um.
Kona í Austurbænum.
Til utangátta
ökumanna
ÞIÐ utangátta ökumenn
sem eruð í umferðinni.
Staldrið við augnablik og
reynið að finna út hvernig á
að gefa stefnuljós.
Það er í raun mjög ein-
falt. Það er hálfhlálegt að
horfa upp á menn sem hlað-
ið hafa alls kyns ljósabún-
aði utan á bíla sína, en virð-
ast ekki hafa stjórn á þeim
búnaði sem fyrir er.
Svavar
Þorsteinsson.
Dýrahald
Gæf og góð
í heimilisleit
FIMM mánaða gamla kisu
vantar heimili vegna of-
næmis heimilismanns.
Hún er svört og hvít,
mjög gæf og góð og falleg-
ur köttur. Áhugasamir hafi
samband við Ásu í síma
867 2802.
Tóti er týndur
KÖTTURINN Tóti týndist
frá hesthúsinu Fjárborg
við Rauðavatn fyrir um
tveimur vikum. Hann er
nokkuð stór, 6 ára, svartur
og hvítur angóruköttur,
eyrnamerktur en ólarlaus
og sérlega mannelskur.
Þeir sem vita um ferðir
hans hafi samband við Jón
Inga í síma 690 3327 eða
Sigrúnu Björk í síma
847 2272.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 listunnandi, 8 grasflöt,
9 hljóðfæri, 10 sár, 11
upptök, 13 ákveð, 15
nauts, 18 gramur, 21 hár,
22 sori, 23 ramba, 24
gullhamrar.
LÓÐRÉTT
2 jurt, 3 býsn, 4 svala, 5
leysir úr, 6 vætlar, 7 fal-
leg, 12 ýlfur, 14 eignast,
15 hlýðna, 16 hugaða, 17
fengu ónógan mat, 18
fullkomlega, 19 lítilfjör-
lega persónu, 20 sefar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 dorga, 4 bráka, 7 iðjan, 8 trauð, 9 ann, 11 tind,
13 barr, 14 álfta, 15 særð, 17 römm, 20 hró, 22 arfur, 23
tinnu, 24 aðals, 25 aumra.
Lóðrétt: 1 drift, 2 rýjan, 3 anna, 4 botn, 5 álasa, 6 arður,
10 næfur, 12 dáð, 13 bar, 15 staga, 16 rifta, 18 ösnum, 19
maura, 20 hrós, 21 ótta.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16