Morgunblaðið - 26.05.2003, Síða 8
FRÉTTIR
8 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Það er skammt stórra högga á milli. Hvert stórmennið af öðru flýr land, og það mitt
í öllu góðærinu.
Fríkirkjukórinn á ferð og flugi
Kórinn kominn
í ferðafötin
Fríkirkjusöfnuðurinní Hafnarfirði er níu-tíu ára um þessar
mundir og verður Frí-
kirkjukórinn af því tilefni
mikið á ferð og flugi á
næstunni. Kór hefur verið
viðloðandi söfnuðinn allar
götur, en það eru aðeins
tvö ár síðan hann var
skráður sem félag með
kennitölu og tilheyrandi.
Formaður Fríkirkjukórs-
ins í Hafnarfirði er Ár-
mann Eiríksson verkefnis-
stjóri hjá Hafnarfjarðar-
bæ.
– Hvert er svo verið að
fara?
„Já, það má nú segja, að
Fríkirkjukórinn í Hafnar-
firði er kominn í ferðafötin.
Að morgni 29. maí næst
komandi, á uppstigningardag,
stígum við upp í þotu Flugleiða og
er ferðinni heitið til Danmerkur
þar sem við ætlum að syngja fyrir
og skemmta frændum okkar Dön-
um og Íslendingum búsettum í
Danmörku.“
– Verður þetta mikið fjölmenni?
„Já, þetta er mikil útrás hjá
kórnum. Með kórnum í téðri útrás
verða báðir prestar kirkjunnar,
fjöldi maka og velunnara, söng-
stjórar, þriggja manna hljómsveit/
léttsveit auk söngkonunnar Ernu
Blöndal sem syngur einsöng í
nokkrum laganna sem prýða söng-
skrá kórsins í þessari ferð.“
– Segðu okkur frá ferðinni..
„Við komuna til Kastrupflug-
vallar um hádegisbilið bíður kórs-
ins langferðabifreið sem mun aka
söngsveitinni ásamt fríðu föru-
neyti heim á hótel á Frederiks-
berg til innskráningar og til að
losa fólk við íþyngjandi ferðatösk-
ur. Ekki verður til setunnar boðið
því ferðinni verður strax haldið
áfram og haldið í Tívolí þar sem
kórinn er bókaður sem sérstakur
viðburður á „Plænen“, stóra sviði
skemmtigarðsins, klukkan 17 til
þess greinilega að snerta við næm-
ustu tilfinningataugum gesta og
gangandi með ljúfum lagaflutningi
ættuðum frá Íslandi og reyndar úr
flestum heimshornum.
Daginn eftir syngur kórinn í
Godhåbskirken á Frederiksberg
ásamt íslenska kvennakórnum í
Kaupmannahöfn. Áfram verður
sungið hvern daginn á fætur öðr-
um. Laugardaginn 31. maí verður
haldið til Græsted Kirke á Norð-
ur-Sjálandi. Loks mun svo kórinn
syngja hámessu í Frederiksberg
Kirke á sunnudagsmorguninn 1.
júní sem eru í rauninni slit á vina-
bæjarmóti sem Hafnarfjarðarbær
á aðild að ásamt Tartu í Eistlandi
og öðrum bæjarfélögum hinna
Norðurlandanna. Kórinn hefur
svo loks verið beðinn um að halda
vísi að tónleikum í safnaðarheimili
Frederiksberg Kirke að aflokinni
messu. Þaðan verður svo haldið í
eftirmiðdagskaffi í Jónshúsi þar
sem sungið verður fyrir viðstadda
vini, vandamenn, gesti og gang-
andi.
Næstu fjóra daga
mun Fríkirkjukórinn
svo ferðast til eyjarinn-
ar Manar og Bornholm
þar sem m.a. verða
haldnir lokatónleikar fyrir eldri
borgara í Rönne.“
– Hvað er Fríkirkjukórinn stór?
„Fríkirkjukórinn hefur bók-
staflega vaxið og sprungið út á
síðustu tveimur árum. Sveitina
skipa nú 33 einstaklingar, 10
karlar og 23 konur. Stjórnendur
eru tveir, þau Þóra Vigdís Guð-
mundsdóttir organisti Fríkirkj-
unnar og tónmenntakennari og
Örn Arnarson tónlistarmaður.“
– Hvað finnst ykkur skemmti-
legast að syngja?
„Metnaður er jafnan hafður í
fyrirrúmi við það að velja og flytja
fallegan og vandaðan samsöng.
Auk hefðbundins sálmasöngs
syngur kórinn oft klassískar perl-
ur gömlu meistara tónbók-
menntanna, sem og íslensk og er-
lend þjóðlög.“
– Hvert má eiginlega segja að
sé hlutverk kirkjukórs?
„Meginhlutverk Fríkirkjukórs-
ins er, líkt og annarra kirkjukóra,
að leiða söng við almennar sunnu-
dagsguðsþjónustur sem og á
kvöldvökum og kyrrðarstundum
sem að jafnaði eru einu sinni í
mánuði. Kórinn fylgir og prestum
sínum þegar þeir eru kvaddir til
starfa eða athafna utan sjálfrar
kirkjunnar á hátíðum og tyllidög-
um.“
– Svo á Fríkirkjusöfnuðurinn í
Hafnarfirði stórafmæli?
„Já, hann var stofnaður á sum-
ardaginn fyrsta árið 1913 og fagn-
aði því nítugasta aldursári sínu nú
í vor. Aðalmarkmið hans var að
reisa kirkju í Hafnarfirði sem þá
var vaxandi kaupstaður
en þá hafði engin kirkja
verið í Hafnarfirði um
aldir. Fram til þess
tíma höfðu Hafnfirðing-
ar átt kirkjusókn að
Görðum á Álftanesi og þótti mörg-
um löng leið að sækja þangað
helgihald. Fríkirkjusöfnuðurinn
er lúterskur söfnuður og starfar á
sama grunni og Þjóðkirkjan. Frí-
kirkjuhugsjónin beindist aldrei
gegn kennisetningum Þjóðkirkj-
unnar, heldur gegn hinum miklu
afskiptum ríkisvaldsins af málefn-
um kirkjunnar sem féllu mörgum
illa.“
Ármann Eiríksson
Ármann Eiríksson er formað-
ur Fríkirkjukórsins í Hafn-
arfirði. Fæddur 1946 og lauk
verslunarprófi frá Versl-
unarskóla Íslands 1965 og stúd-
entsprófi frá öldungadeild skól-
ans. Starfaði um tíma í
Danmörku hjá Standard Electric
og við heimkomuna hjá SH.
Stundaði eigin verslunarrekstur
til 1972 en varð þá sölumaður og
sölustjóri hjá Glerborg til sjö
ára. Hefur síðan verið í stjórn-
unarstöðum hjá Sölufélagi garð-
yrkjumanna og Bandalagi ís-
lenskra farfugla, atvinnu-
málafulltrúi í Hafnarfirði og
síðast verkefnisstjóri á sviði
atvinnu- og þróunar við um-
gengni á atvinnusvæðum. Maki
er Sigrún Gísladóttir sem á þrjú
börn, en Ármann á sjálfur þrjú
uppkomin börn með fyrri konu,
Erlu Guðrúnu Gestsdóttur, sem
nú er látin.
…bókstaf-
lega vaxið og
sprungið út