Morgunblaðið - 26.05.2003, Side 10

Morgunblaðið - 26.05.2003, Side 10
FRÉTTIR 10 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ „ÞAÐ er mikið tilhökkunarefni að fá að takast á við þetta mikla ábyrgðarstarf sem það er að fá að vera formaður þingflokks Sjálf- stæðisflokksins, stærsta stjórn- málaflokks þjóð- arinnar, flokks sem er leiðandi í ríkisstjórn,“ segir Einar Kristinn Guðfinnsson, nýskip- aður þingflokksformaður Sjálfstæð- isflokksins. „Ég þekki það af fenginni reynslu sem varaformaður þingflokksins til nokkurra ára að þetta er erilsamt og krefjandi starf, sem ég tel af hinu góða. Í upphafi kjörtímabils og við myndun ríkisstjórnar þá reynir mik- ið á þingflokksformenn, ekki síst vegna þess að okkar hlutverk er meðal annars að hafa forystu um nefndaskipan á Alþingi og fyrir hönd þingflokkanna að taka þátt í mótun starfsins í þinginu á næstunni. Þegar fram í sækir felst í þessu að vera eins konar verkstjóri á þessu sviði og það er auðvitað mikið ábyrgðar- og áhrifastarf,“ segir Einar Kristinn. Hann segir að hann hafi verið svo lánsamur að hafa átt þess kost að starfa með Sigríði Önnu Þórðardótt- ur, fráfarandi þingflokksformanni, en hún hafi verið afar samviskusöm og ötul í sínu starfi og skili góðu búi. „Ég þekki því ágætlega til innviða þessa starfs, jafnframt því að hafa verið þingmaður síðustu tólf árin.“ Einar K. Guðfinnsson Tek við góðu búi Einar K. Guðfinnsson LIÐSINNI tvö þúsund Íslendingaer þörf við þróun íslenska tal-greinisins, sem verður tilbúinn íhaust, en safna þarf upplýsingum fyrir vélræna greiningu á íslensku talmáli. Sú greining er síðan forsenda fyrir því að hægt sé að búa til lausnir til notkunar í síma- og tölvukerfum. Verkefnið, sem nefn- ist Hjal, er samstarfsverkefni Símans, Ný- herja, Háskóla Íslands, Grunns gagnalausna og Hex hugbúnaðar, auk þess sem Scansoft, þekkt erlent tungutæknifyrirtæki, kemur að verkefninu. „Við þurfum að fá fólk til þess að lesa texta sem inniheldur öll hljóð í íslensku. Þetta þarf að vera dæmigert safn af þjóð- inni, fólk sem er orðið 14 ára og eldra, jafnt kynjahlutfall og fólk úr öllum landshlutum. Ekki síst fólk af Norðurlandi þar sem fram- burður þeirra sker sig mest úr,“ segir Sæ- mundur Þorsteinsson, forstöðumaður rann- sóknardeildar Landssímans. Hann segir að öll hjálp sé vel þegin, en segist jafnframt vonast eftir töluverðri breidd. „Ef við fáum til dæmis of fáa af Norðurlandi eða of fáa af aldursbilinu 14–18 ára þá verðum við að fara í sérstakar aðgerðir til að reyna að fá þessa hópa til liðs við okkur,“ bendir hann á. Sæmundur segir að upptökurnar séu í þann veginn að hefjast og þeim ljúki í lok júní. Hann undirstrikar að þeir sem vilja taka þátt í verkefninu og stuðla þar með að framtíð íslenskrar tungu geti farið inn á heimasíðuna, www.tungutaekni.is, fundið þar krækju sem vísar á skráningarsíðuna og skráð sig. „Fólk skráir sig þarna inn og síðan höfum við samband við það og send- um því í tölvupósti textann sem það á að lesa og segjum því hvaða símanúmer á að hringja í. Það getur síðan hringt í þetta númer hvenær sem því hentar og við borg- um kostnaðinn af símtölunum. Það tekur um fimm mínútur að lesa textann,“ bætir hann við og hvetur almenning til að skoða heimasíðuna. Að upptökunum loknum verða tíu nöfn dregin út úr hópi þátttakenda og fá þeir farsíma í verðlaun. Ýmis hljóð í íslensku sem ekki koma fyrir í erlendu máli Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í ís- lensku, hefur unnið að málfræðilegri undir- búningsvinnu verkefnisins. Hann segir að ferlið sé í raun tvískipt. Annars vegar sé verið að leita að ákveðnum orðum sem er líklegt að séu mikið notuð í alls konar kerf- um sem greinirinn yrði notaður í, til dæmis tölur og dagsetningar, staðanöfn, manna- nöfn og ýmislegt fleira. Hins vegar sé um setningar að ræða, orðin skipti þá í sjálfu sér ekki máli, heldur sé verið að leitast við að ná fram öllum hljóðum og hljóða- samböndum sem koma fyrir í íslensku. „Síðan er þetta hljóðasafn tekið og þessar upptökur verða hljóðritaðar og skráðar nið- ur á ákveðinn hátt. Þá er þetta greint allt saman og þannig á kerfið að geta, út frá því hráefni sem þarna verður til, greint og þekkt orð sem það hefur ekki heyrt áður,“ segir Eiríkur og leggur áherslu á að fá mis- munandi fólk í lesturinn. Hann bendir á að kerfið vinni eftir ákveðnum hljóðmunstrum og þegar hringt sé inn í svona kerfi, reyni það að greina talið niður og finna munstur í því sem passi við einhver munstur sem það kann til þess að átta sig á því hvaða orð þetta séu. „Þó um „sama orðið“ sé að ræða getur framburðurinn verið talsvert misjafn á milli manna og munstrin þar af leiðandi talsvert mismunandi. Þess vegna þarf að fá munstur frá sem flestum til þess að geta búið til eitt svona sem dæmigerðast. Ef það væru bara fengnar upptökur frá fáeinum þá væru miklu minni líkur á að kerfið geti greint þetta rétt,“ undirstrikar Eiríkur. Hann segir að undirbúningsvinnan hafi verið afar spennandi, en ákveða þurfti hljóðritunar- og skráningarkerfi, jafnhliða því að koma upp skrá um öll íslensk mál- hljóð og hljóðmynstur sem koma fyrir í ís- lensku. „Við höfum fylgst með því að það hefur verið að verða til svona talgreining fyrir ýmis tungumál á undanförnum árum en það hefur ekkert slíkt verið til fyrir ís- lensku og við höfum í raun og veru ekki séð fram á að það væri á næstu grösum fyrr en nú,“ bætir hann við. Hann segist ekki eiga von á að einhverjir sérstakir erfiðleikar eigi eftir að koma upp við notkunina, hvort ís- lenska reynist erfiðara eða auðveldara tungumál en önnur sem unnið hefur verið að. „Menn hafa svolítið verið að reyna að gera tilraunir með að nota talgreinarforrit, sem hafa verið þróuð fyrir önnur mál, fyrir íslensku. Það strandar þá oft á því að það eru ýmis hljóð í íslensku sem ekki koma fyrir í erlendu máli,“ segir hann. Minni tæki og engin lyklaborð Sæmundur leggur áherslu á að miklir möguleikar felist í notkun á talgreini. Hann nefnir sem dæmi að í framtíðinni verði mögulegt að hringja í bankann og biðja um stöðu á reikningi eða hækkun á heimild og talgreinir svari. „Við sjáum að það er gríð- arleg framtíð í tungutækni, ef við getum farið að tala við tækin sem við notum getum við farið að losna við lyklaborð og þá er hægt að minnka tækin enn meira. Ef við getum til dæmis talað við tæki í bíl, þá eyk- ur það þægindi og öryggi. Tungutæknin mun í framtíðinni koma væntanlega alls staðar inn þar sem við erum að nota tækni- búnað,“ segir hann og bendir á nauðsyn þess að mögulegt verði að nota íslensku í því umhverfi. Hann segir jafnframt að er- lendir framleiðendur tungutæknibúnaðar hafi lítinn áhuga á því að gera eitthvað fyrir tæplega 300 þúsund manna málsvæði og því hafi íslenskir aðilar séð þann kost vænastan að taka frumkvæðið sjálfir og framkvæma þetta í samvinnu við erlendan framleiðanda. Vonir standa til að verkefninu ljúki í haust og þá verði tilbúin fyrsta útgáfa af talgreini fyrir íslensku, svokallaður stak- orðagreinir. Að sögn Sæmundar mun Landssíminn eiga talgreininn sem slíkan og getur boðið upp á ýmsa þjónustu sem bygg- ist á því að tölva taki við skilaboðum í gegn- um síma. Í Hjal-verkefninu er hins vegar unnið að almennum grunni fyrir íslenska tungutækni. Verkefnið er styrkt af Tungu- tæknisjóði menntamálaráðuneytisins og nið- urstöður þess verða aðgengilegar hverjum þeim sem vill búa til tungutæknibúnað fyrir íslensku. Upplýsingum safnað meðal almennings við þróun íslenska talgreinisins sem verður tilbúinn í haust Upptökur á framburði tvö þúsund Íslendinga að hefjast „Við þurfum að fá fólk til þess að lesa texta sem inniheldur öll hljóð í íslensku. Þetta þarf að vera dæmigert safn af þjóðinni, fólk sem er orðið 14 ára og eldra, jafnt kynjahlutfall og fólk úr öllum landshlutum,“ segir Sæmundur Þorsteinsson. Þverskurður þjóðarinnar, eða um tvö þúsund manns, les upp texta í síma á næstu vikum, en textinn inniheld- ur öll hljóð sem koma fyrir í íslensku. Upptökurnar af framburði þessa fólks verða notaðar við þróun á ís- lenska talgreininum, sem kemur á markað í haust. AÐALFUNDUR Rauða kross Ís- lands, sem haldinn var um helgina, samþykkti stefnu félags- ins til næstu sjö ára en í henni er m.a. lögð áhersla á að félagið bregðist skjótt við neyð innan- lands og utan. „Þetta er í raun það sem við höf- um verið að gera,“ útskýrir Þórir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, „en með því að setja það í stefnu félagsins er verið að leggja enn frekari áherslu á verkefnið.“ Í stefnu félagsins kemur einnig fram að fyrirhugað er að efla fræðslu um Genfarsamningana og mannúðarhugsjón Rauða kross- ins, auka aðstoð við þá sem lenda í skyndilegri neyð, t.d. eftir hús- bruna og önnur slík áföll, og þróa áfram þjónustu sjálfboðaliða Rauða krossins fyrir þá sem eru einmana og sjúkir. 55 börn söfnuðu 85 þús- undum á risatombólu „Stefnt er að því að auka veru- lega þátttöku ungs fólks í starfi Rauða krossins og beina starfinu í enn meiri mæli að ungu fólki,“ segir aukinheldur í fréttatilkynn- ingu frá Rauða krossinum. Á meðan aðalfundur Rauða krossins fór fram héldu um 55 börn á aldrinum sjö til tólf ára risatombólu í Kringlunni á laug- ardag til aðstoðar stríðshrjáðum börnum í Írak. Að sögn Þóris gekk tombólan vel og söfnuðu þau um 85 þúsund krónum. Ýmis varningur var á tombólunni, m.a. munir sem sum barnanna höfðu búið til sjálf. Ein milljón til fórnarlamba jarðskjálftans í Alsír Rauði krossinn ætlar ekki að- eins að sinna börnum í Írak heldur ákvað stjórn hans um helgina að senda eina milljón króna til stuðn- ings fórnarlömbum jarðskjálftans sem varð í Alsír á miðvikudag. Í fréttatilkynningu segir að hundr- uð starfsmanna Rauða krossins og Rauða hálfmánans séu við björg- unarstörf á jarðskjálftasvæðinu. „Fjárstuðningurinn er svar Rauða kross Íslands við hjálpar- beiðni frá Alþjóða Rauða krossin- um. Óttast er að jarðskjálftinn hafi skemmt vatnslagnir, sem get- ur leitt til vatnsskorts og marg- víslegra heilbrigðisvandamála,“ segir í fréttatilkynningu Rauða krossins. Aðalfundur Rauða kross Íslands markar stefnu til næstu sjö ára Bregðast skjótt við neyð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.