Morgunblaðið - 26.05.2003, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 11
www.casa.is
Morten Schmidt, arkitekt frá dönsku arkitektastofunni
Schmidt, Hammer & Lassen, og Ögmundur Skarphéðinsson,
arkitekt hjá Hornsteinum, lýsa byggingunum og sam-
eiginlegu svæði íbúanna.
Líkön af byggingunum,
myndir og teikningar á staðnum.
Nýr lífsstíll á besta stað í miðborginni
101 Skuggahverfi er þyrping íbúðabygginga af ýmsum
stærðum sem rís á einum fegursta útsýnisstað í borginni
á reit sem markast af Skúla götu, Frakkastíg og Lindargötu.
Framkvæmdir eru þegar hafnar og fyrstu íbúðirnar
verða afhentar í september 2004.
Í boði eru íbúðir frá 54m2 og að 270m2 „penthouse-íbúð“.
Kynningarfundur
í Listasafni Íslands
v i ð f r í k i r k j u v e g
í dag 26. maí kl. 17.30
101 Skuggahverfi hf.
Kringlunni, 3. hæð
Sími 575-9000
Netfang:
101skuggi@101skuggi.is
Vefsetur: www.101skuggi.is
Síðumúla 21
Sími 588-9090
Fax 588-9095
Netfang:
101skuggi@eignamidlun.is
Vefsetur: www.eignamidlun.is
Suðurlandsbraut 52
Sími 530-1500
Fax 530-1501
Netfang:
101skuggi@husakaup.is
Vefsetur: www.husakaup.is
G l æ s i l e g a r í b ú ð i r
í h j a r t a R e y k j a v í k u r
m e ð ú t s ý n i t i l a l l r a á t t a
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
SK
U
2
07
60
05
/2
00
3
S a l a á í b ú ð u n u m e r h a f i n
Óvenju bjartar íbúðir
Hátt til lofts, 2,70 m
Góð hljóðeinangrun
Hátækni samskipta-
lausn í samvinnu
við Nýherja
JÓN Gunnarsson, formaður Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, gerði
opnun fræðslu- og þjónustumið-
stöðvarinnar á Gufuskálum fyrir
tveimur árum að umtalsefni í
opnunarræðu sinni á fjórða lands-
þingi félagsins, sem sett var sl.
föstudag. Jón sagði að með því
hefði mikilvægur áfangi náðst. „Er-
lendar rústabjörgunarsveitir hafa
sýnt mikinn áhuga á að nýta sér
þessa aðstöðu til þjálfunar og félag-
inu var sýnd mikil viðurkenning
þegar því var falið námskeiðahald í
rústabjörgun fyrir hermenn úr
fastaliði NATO,“ sagði hann.
Fjórða landsþing Slysavarna-
félagsins Landsbjargar var sett á
Ásvöllum í Hafnarfirði að við-
stöddum 400 þingfulltrúum. Stóð
þingið yfir í tvo daga. Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti Íslands, flutti
ávarp á þinginu. Samhliða þinginu
voru Björgunarleikar björgunar-
sveita, þar sem liðsmenn hinna
ýmsu björgunarsveita reyndu fyrir
sér í margskonar þrautum.
Mikilvægt framfaraskref
Að sögn Jóns náðist mikill árang-
ur í samstarfi Slysavarnafélagsins
Landsbjargar við opinbera aðila á
síðasta þingi. Hann nefndi að lög
um björgunarsveitir og björgunar-
sveitarmenn hefðu loksins litið
dagsins ljós eftir áralanga bið og
benti á að með þessum lögum væri
réttarstaða og tryggingarmál
björgunarmanna tryggð. Eitt af
baráttumálum félagsins var að
koma á einni samræmingarstjórn-
stöð fyrir alla aðila sem koma að
leit og björgun á landinu og sagði
Jón að nú í ár hefði sá áfangi náðst.
„Í okkar huga er þetta mjög mikil-
vægt framfaraskref í skipulagi
björgunarmála. Það gefur augaleið
að allt skipulag og öll yfirsýn í að-
gerðum verður miklu markvissari
og minni hætta er á misskilningi
milli aðila. Það er aukaatriði í raun
undir hvers stjórn viðkomandi at-
burður heyrir, aðalatriðið er hvern-
ig tekst til við aðgerðastjórnun og
vinnu á vettvangi,“ lagði hann
áherslu á.
Jón sagði mikinn árangur hafa
náðst í skipulagsmálum á undan-
förnum árum og að félagið stæði á
traustum grunni. Hann sagði að
byggja þyrfti á þeim grunni og
hvatti félagsmenn til að hlúa að
þeirri grunnhugmynd sem starfið
byggðist á, það er sjálfboðalið-
unum.
400 fulltrúar voru á landsþingi
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Réttarstaða björg-
unarmanna tryggð
Morgunblaðið/Kristinn
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var viðstaddur setningu 4. landsþings Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
ÖKUMAÐUR var fluttur með
sjúkrabíl á sjúkrahús eftir að bíll
hans valt út af Laugarvatnsvegi um
kl. sjö á laugardagskvöld. Maðurinn
var einn í bílnum og er hann grun-
aður um ölvun. Hann hlaut beinbrot
við veltuna. Erilsamt var hjá lögregl-
unni á Selfossi í fyrrinótt og barst
fjöldi kvartana vegna hávaða í
heimahúsum.
Bílvelta við
Laugarvatn