Morgunblaðið - 26.05.2003, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TNT Hraðflutningar flytja ...
Vegna aukinna umsvifa flytja TNT Hraðflutningar starfsemi sína
frá Hraunbæ 117 að Stórhöfða 32 (póstmiðstöð Íslandspósts).
Þjónustu TNT Hraðflutninga er einnig hægt að fá á öllum
pósthúsum landsins.
Umboðsaðili TNT á Íslandi
Hraðflutningar
Stórhöfða 32 • 110 Reykjavík
Sími: 580 1010 • Fax: 580 1019
www.tnt.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
N
M
0
9
5
4
6
/
si
a.
is
... heimshorna á milli
ALMENNA verkfræðistofan hf.
hefur sett á fót sérstaka mats-
deild um þann þátt starfsemi
stofunnar er snýr að verðmæta-
og kostnaðarmati og skyldum
þáttum. Magnús Magnússon,
framkvæmdastjóri Almennu verk-
fræðistofunnar segir að með
stofnun deildarinnar sé verið að
bæta enn frekar þjónustu við við-
skiptavini fyrirtækisins, sem hef-
ur um áratuga skeið annast víð-
tæk matsstörf fyrir fjölda
stofnana, fyrirtæki og ein-
staklinga.
Hann segir að mat, til að
mynda fyrir tryggingafélög og
tjónþola, hafi til þessa að mestu
verið framkvæmt af einyrkjum.
Með því að koma þessu verkefni í
hendurnar á sérstökum hópi sér-
fræðinga geti Almenna verk-
fræðistofan boðið upp á víðtækari
vinnu á þessu sviði en til þessa og
marghliða sérkunnáttu. Sameig-
inleg reynsla þeirra sex sem
mynda matshópinn af mats-
störfum sé ríflega 100 ár.
Freyr Jóhannesson, bygginga-
tæknifræðingur og formaður
Matsmannafélags Íslands, veitir
matsdeildinni forstöðu, en hann
hefur um árabil haft umsjón með
tjónamati fyrir Viðlagatryggingu
Íslands, þar sem helstu verkefni
hafa verið á sviði náttúruham-
fara. Auk Freys eru á matsdeild-
inni byggingaverkfræðingur,
byggingatæknifræðingur, rekstr-
arverkfræðingur, lögmaður og
fasteignasali. Segir Magnús að
þar að auki njóti matsnefndin að-
stoðar frá öðrum starfsmönnum
Almennu verkfræðistofunnar,
ásamt sésrstökum matsmönnum
utan félagsins, eftir því sem þörf
er á hverju sinni.
Verkefni sem
spanna breitt svið
Að sögn Manúsar hefur Al-
menna verkfræðistofan komið að
fjölmörgum verkefnum á sviði
verðmæta- og kostnaðarmats.
Hann segir að stofan hafi m.a.
haft yfirumsjón með tjónamati
vegna Suðurlandsskjálftans á
árinu 2000. Í því sambandi hafi
hátt í fimm þúsund fasteignir
verið skoðaðar, en heildartjón á
fasteignum í skjálftanum nam um
2,5 milljörðum króna. Þá segir
hann að Almenna verkfræðistof-
an hafi einnig haft yfirumsjón
með tjónamati vegna snjóflóð-
anna í Súðavík og á Flateyri,
vegna sjávarflóða á Akranesi og
Patreksfirði og jökulhlaupa á
Skeiðarársandi. Auk verkefna af
þessu tagi þá segir Magnús að
matsdeildin annist tryggingamat,
kostnaðarmat, markaðsmat,
tekjuvirðingu, mat á arðsemi og
hagkvæmni, leigumat, endur-
skoðun matsgerða, svo og marg-
háttaða ráðgjöf í tengslum við
þessi og önnur verkefni. Hún
veiti einnig einstaklingum og fyr-
irtækjum aðstoð vegna fasteigna-
viðskipta, meti ástand fasteigna
og viðgerðar- og viðhaldsþörf
þeirra ásamt tilheyrandi verk-
efnum.
Magnús segir að verkefni mats-
deildarinnar séu því fjölmörg og
spanni breitt svið. Til að varpa
ljósi á fjölbreytnina megi til við-
bótar við það sem nefnt hefur
verið nefna að meðal verkefna
matsmanna deildarinnar hafi ver-
ið mat á endurstofnvirði veitu-
kerfa og hafnarmannvirkja sveit-
arfélaga, mat á listaverkasafni
banka, mat á kostnaði við gerð
miðlægs gagnagrunns á heil-
brigðissviði, verðmætamat á
lausafé stofnana og fyrirtækja,
svo fátt eitt sé nefnt. Hann segir
að með því að koma þessum mál-
um í hendur á hópi manna með
víðtæka reynslu sé hægt að
tryggja betri gæði og grundvöll
matsgerða. Það sé mjög mikil-
vægt.
Ríflega 100 ára
sameiginleg
reynsla af
matsstörfum
Almenna verkfræðistofan býður
upp á víðtækari vinnu við verð-
mæta- og kostnaðarmat en til þessa Freyr Jóhannesson byggingatæknifræðingur og Magnús Magnússon,framkvæmdastjóri Almennu verkfræðistofunnar.
● HAGNAÐUR Granda á fyrstu 3
mánuðum ársins nam 455 millj-
ónum króna, en á sama tíma árið
2002 var hagnaðurinn 575 milljónir
króna. Rekstrartekjur tímabilsins
voru 1.324 milljónir samanborið við
1.673 milljónir á fyrsta ársfjórðungi
ársins 2002. Er það um 20% sam-
dráttur milli tímabila. Skýrist tekju-
samdrátturinn með verðlækkun á er-
lendum mörkuðum og styrkingu
íslensku krónunnar. Rekstrargjöld
tímabilsins án afskrifta voru 1.009
milljónir en voru 1.064 milljónir í
fyrra. Rekstrarhagnaður af eigin
starfsemi án afskrifta 316 milljónir
króna eða 24% af rekstrartekjum.
Rekstrarhagnaður af eigin starfsemi
var 156 milljónir króna eftir afskriftir
en var 446 milljónir á sama tímabili í
fyrra.
Fjáreignatekjur að frádregnum fjár-
magnsgjöldum námu 258 milljónum
á tímabilinu. Vegur þar þyngst 274
milljóna króna jákvæður gengis-
munur af langtímaskuldum og 52
milljóna arðstekjur, að því er fram
kemur í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands. Hlutdeildarfélög Granda hf.
eru fjögur, Deris SA Chile, Eskja hf.,
Stofnfiskur hf. og Þorbjörn – Fiska-
nes hf. Áhrif þeirra á afkomu félags-
ins skilaði félaginu 125 milljónum
króna.
Veltufé frá rekstri nam 244 millj-
ónum sem er 18% af rekstrartekjum
samanborið við 445 milljónir króna á
sama tíma árið áður. Eigið fé Granda
hf. var hinn 31. mars sl. 5.893 m.kr.
og er eiginfjárhlutfall 40%. Arðsemi
eigin fjár lækkaði úr 12,3% í 8,3% á
tímabilinu.
Horfur eru á að verðlækkanir sem
orðið hafa á helstu afurðum félags-
ins á erlendum mörkuðum muni hafa
þau áhrif að afkoma félagsins verði
lakari en áætlað var, að því er segir í
tilkynningu.
Tekjur Granda dragast
saman um 20%
HAGNAÐUR Þormóðs ramma-Sæ-
bergs nam 431 milljón króna fyrstu
þrjá mánuði ársins en var á sama
tímabili í fyrra 408 milljónir króna.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði nam 180 milljónum króna,
var 353 milljónir á sama tíma í fyrra,
en þetta eru 15,4% af rekstrar-
tekjum, á móti 26,1% á sama tíma ár-
ið áður.
Rekstrartekjur námu á ársfjórð-
ungnum 1.174 milljónum króna en
voru 1.354 milljónir á sama fjórðungi
síðasta árs. Lækkun rekstrartekna
milli ára nemur rúmum 13%.
Rekstrargjöld voru 994 milljónir,
en þau voru 1001 milljón á fyrra ári.
Í janúar var seldur eignarhlutur í
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf.
og nam söluverðið 1.904 milljónum
og er söluhagnaður, 378 milljónir,
færður meðal fjármunatekna. Áhrif
hlutdeildarfélaga eru neikvæð um 82
milljónir króna.
Framlegð af landvinnslu
nánast engin
Í tilkynningu frá Þormóði ramma-
Sæbergi kemur fram að þróun geng-
is hafði veruleg áhrif á tekjur félags-
ins, en einnig lækkaði verð á helstu
afurðum, s.s. rækju og sjófrystum
fiski. Landvinnsla félagsins, sem á
tímabilinu er að uppistöðu til rækju-
vinnsla, velti tæplega hálfum millj-
arði en framlegð af rekstrinum er því
sem næst engin. Mikið tap er á
rækjutogurum félagsins en þeir eru
hráefnisöflunartæki rækjuvinnsl-
unnar. Þá var framlegð frystiskipa
verri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Tekjur Þormóðs ramma-Sæbergs
hf. eru mest í breskum pundum, en
meðalgengi þess hefur lækkað um
13% frá sama tímabili árið áður, og í
Bandaríkjadal, en meðalgengi doll-
arans hefur lækkað um 23% frá
sama tímabili í fyrra.
Heildareignir 31. mars námu 8.124
milljónum króna og heildarskuldir
voru 5.473 milljónir. Skuldir að frá-
dregnum veltufjármunum námu
3.895 milljónum.
Eigið fé 31. mars var 2.650 millj-
ónir og hafði lækkað um 210 millj-
ónir á tímabilinu.
Eiginfjárhlutfall var 32,62%.
Veltufé frá rekstri var 112 milljónir
króna, en var á sama tíma í fyrra 281
milljón króna.
Veiðum á Flæmingja-
grunni hætt
„Afkoma rækjuveiða og vinnslu
hefur versnað mjög undanfarna
mánuði. Helstu ástæður eru lækk-
andi markaðsverð afurða og lækk-
andi gengi breska pundsins gagn-
vart íslenskri krónu. Fjármála-
stofnanir spá áfram háu gengi
íslensku krónunnar og ekki eru líkur
til þess að verð á pillaðri rækju
hækki. Þrátt fyrir ágætan afla
rækjufrystitogarans Sunnu SI-67,
sem gerður er út til veiða á Flæm-
ingjagrunni, er umtalsvert fram-
legðartap af útgerðinni. Því hefur
verið ákveðið að hætta veiðum á
Flæmingjagrunni að sinni og leggja
skipinu eftir þessa veiðiferð. Það er
þegar orðið ljóst að framlegðar-
markmið sem sett voru fram í
rekstraráætlun á síðasta aðalfundi
félagsins munu ekki nást miðað við
óbreyttar forsendur. Endanleg
rekstrarniðurstaða ársins mun ráð-
ast mjög af gengi krónunnar það
sem eftir er árs og hvort unnt verður
að ná niður kostnaði í rækjuvinnslu,“
segir í tilkynningu.
Þormóður rammi-Sæberg
431 milljón
í hagnað