Morgunblaðið - 26.05.2003, Qupperneq 27
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 27
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396
Íbúðareigendur
í Sólheimum 25 og 27
Ég hef verið beðinn um að leita eftir 3ja
herb. íbúð í Sólheimum 25 eða 27 fyrir
aðila, sem er tilbúinn að gefa allt að 10 til
12 mánuði í afhendingartíma.
Áhugasamir vinsamlegast hafi samband
og ég mun fúslega veita allar nánari
upplýsingar.
Hafðu samband - það kostar ekkert!
FJÓRIR nemendur í 8. og 9. bekk
Varmalandsskóla í Borgarfirði
hafa undanfarið skrifað fréttir úr
skólastarfinu og tekið viðtöl við
samnemendur, sem fara út um
héraðið í starfskynningu og í
ferðalög. Greinarnar birtast svo á
sérstakri heimasíðu sem verið er
að útbúa í skólanum. Þetta er hluti
af verkefni sem kallast „Sérstaða
sveitaskóla“ og er svar við leng-
ingu skólaársins. Hugmyndin varð
upphaflega til sem samstarfsverk-
efni við þrjá aðra grunnskóla á
Norðurlandi, með það að leiðar-
ljósi, að nemendur stundi nám ut-
an skólastofunnar og þá í
tengslum við hið daglega líf.
Fá birta grein
í bandarísku blaði
Fréttamennirnir heita Eggert
Kristjánsson, Hallgrímur Eggerts-
son, Stefán Bjartur Runólfsson og
Hjalti Þórhallsson, en þeir starfa
undir leiðsögn kennara sinna,
Ingibjargar Daníelsdóttur og Guð-
rúnar Finnbogadóttur, sem hafa
haft veg og vanda að þessu verk-
efni. Eggert og Stefán spjölluðu
við fréttaritara Mbl. ásamt kenn-
urum sínum.
Þeir segjast fara í fréttaöflun og
taka myndir á stafræna myndavél
skólans. Sumar greinar eru unnar
í samvinnu en líka er viss hlut-
verkaskipting. Þegar búið er að
semja efnið, þarf að koma því á
prent og á heimasíðu skólans,
ásamt myndum. Þar bjargar Hjalti
oft málum, en hann er aðal mynda-
og tæknimaðurinn í hópnum. Stef-
án og Eggert segjast hins vegar
vera mest í að skrifa niður viðtöl
og taka myndir. Stefán, Eggert og
Hallgrímur búa á Bifröst eins og
stór hluti nemendanna, en börn
starfsfólks og nemenda á Bifröst
koma mörg hver úr þéttbýli og eru
e.t.v. að kynnast starfsháttum á
sveitabæjum í fyrsta skipti. Pilt-
arnir segja að hópurinn hafi ekki
verið sérlega náinn fyrir verkefnið
en samstarfið gangi vel. Stefán fór
með yngri krökkunum í veiðiferð
að Hreðavatni og birtist viðtal við
fjóra krakka á fréttavef skólans.
Eggert segir það mikilvægt að fá
þjálfun í vinnubrögðum og báðir
telja þeir sig hafa lært mikið af
þessu verkefni. Hópurinn vann
saman grein upp úr þremur frétt-
um um starfskynningu á bænum
Síðumúlaveggjum, og fengu kenn-
arana til að hjálpa sér við að þýða
hana á ensku. Greinina munu þeir
síðan fá birta í blaðinu „Village
Voice“ í Bandaríkjunum.
Kynnast starfsháttum
í sveitinni
Eins og piltarnir og kennarar
segja vantar nemendur innsýn í
störf foreldra sinna vegna breyttra
starfshátta og lengra skólaárs.
Börnin eru minna heima við að að-
stoða t.d. við sauðburð og önnur
vorverk. Einnig eru margir for-
eldrar sem vinna utan heimilisins.
Á Varmalandi er reynt að mæta
þessu með starfskynningu og
nokkurs konar rannsóknarverk-
efnum í leiðinni fyrir 7., 8. og 9.
bekk. Nemendurnir fara út úr
skólanum í 4–5 daga, á bæi í sveit-
inni og í fyrirtæki til að kynnast
starfsháttum. Þau halda dagbók
og þurfa síðan að skila verkefnum
sem tengjast viðkomandi störfum.
Börnin hafa m.a. kynnst sauðburði
og vigtun lamba, starfað með
dýralækni og uppfræðst um sauð-
fjársjúkdóma, kynnst störfum í
Framköllunarþjónustunni í Borg-
arnesi, sinnt æðarvarpi, unnið við
hestaleigu, smíðað og rafsoðið.
Fréttahópurinn fór á héraðs-
fréttablaðið Skessuhorn og fékk
m.a. birt viðtal við nemendur sem
fóru í gönguferð að Langavatni og
grein um sérstöðu sveitaskóla. 10.
bekkur fer í starfskynningu eins
og tíðkast í öðrum skólum, en
yngri börnin fara í dagsferðir og
vinna þemaverkefni í skólanum.
Grunnskólanemar fræð-
ast um fréttamennsku
Varmalandi. Morgunblaðið.
Fréttamennirnir Stefán B. Runólfsson og Eggert Kristjánsson fara yfir
birtar greinar, en þeir hafa meðal annars skrifað fréttir úr skólastarfinu.
Foreldrafélag geðsjúkra barna og
unglinga heldur aðalfund sinn í dag,
mánudag, kl. 20 í húsi Geðhjálpar á
Túngötu 7 í Reykjavík. Efni fund-
arins eru hefðbundin aðalfund-
arstörf, kjör nýrrar stjórnar og önn-
ur mál. Stjórn félagsins hvetur
foreldra sem annað áhugafólk til að
mæta á fundinn.
Í DAG
Kynningarfundur um visthópa-
starf Landverndar Þátttakendur í
visthópnum Orkuboltar halda
kynningarfund um visthópastarfið í
Foldasafni í Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 27. maí kl. 20.30. Vist-
vernd í verki er alþjóðlegt um-
hverfisverkefni fyrir heimilin.
Markmið þess er að hvetja og
styðja fólk til vistvænna heim-
ilishalds og lífsstíls og stuðla þann-
ig að sjálfbæru samfélagi. Það eru
sveitarfélögin, í samvinnu við
Landvernd, sem bjóða íbúum til
þátttöku í verkefninu sem tekur yf-
ir u.þ.b. tvo mánuði í senn. Þátttak-
endur Orkuboltanna munu á fund-
inum segja frá því hvaða gagn þeir
höfðu af því að taka þátt í visthópi.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
ZEN-fyrirlestur verður í Gerðu-
bergi á morgun, þriðjudaginn 27.
maí kl. 20. Zenmeistarinn Jakusho
Kwong-Roshi mun fjalla um hina
nýútkomnu bók, „No Beginning No
End“. Einnig les hann kafla úr
bókinni og svarar spurningum
áheyrenda um Zen-iðkun. Roshi
mun árita bókina í lok fyrirlestrar.
Á MORGUN
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111