Morgunblaðið - 26.05.2003, Side 29

Morgunblaðið - 26.05.2003, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 29 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbörn dagsins: Þú ert góður skipuleggjandi með næmt auga fyrir smá- atriðum og fólk reiðir sig gjarnan á útsjónarsemi þína. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það getur verið erfitt að finna réttu stundina til þess að bera fram persónulegar spurningar en þú ættir ekki að þurfa að hafa af þessu áhyggjur. Naut (20. apríl - 20. maí)  Láttu ekki misskilning um stöðu þína verða til þess að þú gerir eitthvað sem þér er þvert um geð. Þegar allt kem- ur til alls berð þú ábyrgðina. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft að taka meira tillit til annarra og þarft að varast að ganga yfir fólk, þótt boð- skapur þinn sé góður. Leyfðu öðrum að njóta sín. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Stattu upp og láttu til þín taka. Það mun vekja eftirtekt annarra og aðdáun og þú færð tækifæri til að sannfæra fjölda fólks um ágæti þitt. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það eru alltaf einhverjir sem ekki kunna að meta fram- göngu þína. Það verður þá bara svo að vera því enginn getur gert svo öllum líki. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Nú er lag til að söðla um og taka upp nýja háttu. Farðu þér samt hægt, því þá eru lík- ur til þess að þér takist ætl- unarverkið, en óðagotið skemmir. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú lendir í þeirri aðstöðu að yfirráð þín eru dregin í efa. Láttu þetta ekki hafa áhrif á starf þitt því þú munt upp- skera laun erfiðis þíns. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Blindur er bóklaus maður svo þú skalt bæta úr því að þú hefur ekki í langan tíma get- að gefið þér tóm til lestrar. Taktu þér bók í hönd. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er svo auðvelt að taka eigin skoðanir fram yfir ann- arra en stundum hafa nú aðr- ir eitthvað til síns máls ef vel er að gáð. Viðurkenndu það bara. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú verður að safna kjarki og láta langþráðan draum þinn rætast. Þiggðu ráð frá sér- fræðingum og vinum sem vilja aðstoða þig. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vinur þinn gæti gagnrýnt rómantískan áhuga þinn á til- tekinni manneskju. Þú þarft ekki að réttlæta áhuga þinn á þessari manneskju fyrir nein- um. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Sýndu samstarfsfólki þínu og vandamálum á vinnustað þol- inmæði í dag. Það er nokkur spenna í vinnunni en hún hverfur fljótt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. GÍGJAN Um undrageim í himinveldi háu nú hverfur sól og kveður jarðar glaum. Á fegra landi gróa blómin bláu í bjartri dögg við lífsins helgan straum. Þar dvelur mey hjá dimmu fossa tali og drauma vekur purpurans í blæ og norðurljósið hylur helga sali, þar hnígur máninn aldrei niður í sæ. Þar rísa bjartar hallir sem ei hrynja og hreimur sætur fyllir bogagöng en langt í fjarska foldar þrumur drynja með fimbulbassa undir helgum söng. Og gullinn strengur gígju veldur hljóði og glitrar títt um eilíft sumarkvöld, þar roðnar aldrei sverð af banablóði, þar byggir gyðjan mín sín himintjöld. - - - Benedikt Gröndal LJÓÐABROT 50 Ára afmæli. Í dag,mánudaginn 26. maí, er fimmtíu ára Haraldur Reynir Jónsson fram- kvæmdastjóri, Sævangi 48, Hafnarfirði. Í tilefni af þessum tímamótum ætla Haraldur og fjölskylda að bjóða ættingjum, vinum og samferðafólki til veislu í Turninum, Fjarðargötu 13– 15 í Hafnarfirði, miðviku- daginn 28. maí kl. 20–24. 60 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 26. maí, er sextug Svanhildur Guð- mundsdóttir, starfsmaður Sýslumannsins í Hafnar- firði, til heimilis að Arnar- hrauni 48, Hafnarfirði. Eiginmaður hennar er Ólaf- ur Ingólfsson. Þau verða að heiman á af- mælisdaginn. „EF þú velur að trompa út frá hundum, spilaðu þá lægsta trompinu – annað er óþrafa bruðl sem gæti kost- að slag.“ Þetta er heilræði sem keppnisspilarar kannast við og fylgja í reynd. En það eru svo sem tvær hliðar á þessu máli: Norður gefur; AV á hættu. Norður ♠ G985 ♥ ÁK964 ♦ 6 ♣G72 Vestur Austur ♠ 1072 ♠ ÁK4 ♥ DG82 ♥ 10753 ♦ ÁG104 ♦ KD752 ♣85 ♣3 Suður ♠ D63 ♥ -- ♦ 983 ♣ÁKD10964 Spilið kom upp í Cavend- ish-tvímenningnum og víð- ast hvar spilaði suður fimm lauf. Þar sem Eric Rodwell var í suðursætinu gengu sagnir þannig: Vestur Norður Austur Suður -- Pass 1 tígull 2 lauf Dobl * 2 hjörtu Pass 3 lauf Pass 4 lauf Pass 5 lauf Pass Pass Pass Vörnin getur tekið þrjá fyrstu slagina, en vestur valdi að trompa út – spilaði út fimmunni, lægra spilinu! Sagnhafi getur augljóslega hent niður tveimur spöðum í ÁK í hjarta, en hann mun ekki ná að trompa nema einn tígul og því verður hann að fría fimmta hjartað. Rodwell fann lausnina. Hann „svínaði“ laufsjöunni í fyrsta slag. Tók svo ÁK í hjarta og stakk hjarta. Spil- aði laufi á gosa og trompaði enn hjarta. Það féll, svo hann gat hent þriðja tígl- inum heima niður í fimmta hjartað. Þetta var vel spilað hjá Rodwell, en við skulum huga aftur að heilræðinu í upphafi. Það er greinilega ekki út í hött, því ef vestur kemur út með laufáttu þarf sagnhafi ekkert að hafa fyrir hlut- unum. Með því að spila fimmunni út þarf sagnhafi að giska því að vestur gæti auðvitað allt eins verið með fimmu-þrist eins og áttu- fimmu. Ekki satt? Nei, raunar ekki. Úr því að allir „expertar“ hafa tam- ið sér að spila alltaf út LÆGSTA trompinu sínu getur vestur varla átt 5-3 – hann myndi spila út þrist- inum! Brids er skondið spil. BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be3 a6 7. Dd2 Rf6 8. O- O-O Be7 9. f3 O-O 10. g4 b5 11. g5 Rh5 12. Rce2 g6 13. Rg3 Rxd4 14. Bxd4 Rf4 15. h4 e5 16. Be3 Hd8 17. Re2 Rh5 18. Rc3 Bb7 19. Df2 Rf4 20. Bb6 Dc6 21. Bxd8 Bc5 22. Dd2 Hxd8 23. Rd5 Rxd5 24. exd5 Dd6 25. Kb1 Be3 26. Dg2 Dc5 27. h5 De7 28. hxg6 fxg6 29. Bd3 d6 30. Hh4 Bxg5 31. Hg4 Bf6 32. Hh1 Kf8 Staðan kom upp í A-flokki minning- armóts Capablanca sem lauk fyrir skemmstu í Havana á Kúbu. Heimamað- urinn Lenier Dom- inguez (2603) hafði hvítt gegn Alonso Zapata (2543). 33. Bxg6! hxg6 34. Hxg6 Bxd5 35. Hhh6 Bg7 36. Hh7 Hd7 37. Dg4 Df7 38. Hgxg7 Dxg7 39. Hxg7 Hxg7 40. Dc8+ Kf7 41. b3 Hg6 42. Dxa6 Bxf3 43. Dxb5 Ke7 44. a4 Hg2 45. Dd3 e4 46. Dd4 Hg5 47. De3 Hd5 48. Kb2 Kd7 49. b4 Hd1 50. a5 d5 51. Da7+ Ke6 52. a6 d4 53. Db7 og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum og viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar þínar á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn á streitu og kvíða, auka einbeitinguna og taka betri ákvarðanir. Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka sjálfsmynd. Leiðbeinandi Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur. Upplýsingar í síma 694 54 94 NÁMSK EIÐ Í SJÁLFS TYRKIN GU Áhersluatriði: • Að greina eigið samskiptamynstur • Að efla öryggi og sveigjanleika • Að ráða við vandasöm samskipti • Að auka sjálfstyrk á markvissan hátt Höfundar og leiðbeinendur námskeiðs eru sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Skráning í síma 562 3075 Netfang: psych.center@mmedia.is SÁLFRÆÐISTÖÐIN MEÐ MORGUNKAFFINU Á ég að segja þér dálítið skemmti- legt, Kalli?! Ég ætla að koma með nýjan rak- spíra í staðinn fyrir skor- dýraeitrið. ÁRNAÐ HEILLA ÞJÓNUSTA LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11– 15. Upplýsingar í s. 563 1010. BRÁÐAMÓTTAKA fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans opin kl. 8–17 v.d. S. 543 2000 eða 543 1000 um skiptiborð. LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýs- ingar í s. 1770. SJÚKRAHÚS REYKJAVÍKUR: Slysa- og bráðamóttaka í Fossvogi er opin allan sólarhringinn fyrir bráðveika og slasaða s. 543 1000 um skiptiborð / 543 2000 beinn sími. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhátíðir. Símsvari 575 0505. VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369. LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin læknisþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08– 17. Uppl. í síma 520 3600 og á heimasíðu www.- laeknalind.is APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101. APÓTEKIÐ: LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. BORGARAPÓTEK: Opið alla daga til kl. 24, virka daga kl. 9–24 og um helgar kl. 10–24. Sími 585 7700. Læknasími 585 7710 og 568 1250. Fax: 568 7232. Milli kl. 02 og 8 er lyfjaþjónusta á vegum læknavakt- ar. NEYÐARÞJÓNUSTA NEYÐARMÓTTAKA vegna nauðgunar er opin allan sólarhringinn, s. 525 1710 eða 525 1000. EITRUNARUPPLÝSINGASTÖÐ er opin allan sólar- hringinn. S. 525 1111 eða 525 1000. ÁFALLAHJÁLP. Tekið er á móti beiðnum allan sólar- hringinn. S. 525 1710 eða 525 1000 um skiptiborð. BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af depurð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Full- um trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjaf- ar- og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og aðstandendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross- .is VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tekur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrifstofutíma. NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sól- arhringinn. Vímulaus æska-Foreldrahús. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112 60 ÁRA afmæli. Þor-steinn Erlingsson, skipstjóri og útgerð- armaður, til heimilis í Hrauntúni 3 í Keflavík, verður sextugur miðviku- daginn 28. maí. Af því tilefni taka hann og kona hans, Auður Bjarnadóttir, á móti gestum í félagsheimilinu Stapa frá klukkan 20 á af- mælisdaginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.