Morgunblaðið - 26.05.2003, Qupperneq 31
karlleikarar, en sá síðarnefndi lést
sviplega í bílslysi daginn eftir að
myndin var valin á hátíðina, langt
fyrir aldur fram.
Kanadíski leikstjórinn Denys Arc-
and hlaut verðlaun fyrir besta hand-
ritið, að mynd sinni Innrás barbar-
anna (Les invasion barbares) og
besta leikkona hátíðarinnar kemur
einnig úr þeirri mynd, Marie-Josée
Croze. Myndin er framhald Hnign-
unar ameríska heimsveldisins frá
1986 og fjallar um Rémy, dauðvona
háskólaprófessor, sem nýtur þeirra
forréttinda að fá að eyða síðustu
dögum sínum með vinum sínum og
vandamönnum. Í þessari sorglegu
en um leið fyndnu og hjartnæmu
mynd ræða þau saman um lífið og
dauðann, fjölskylduna, kynslóðabilið
og heimsmálin. Margir höfðu spáð
myndinni sigri en hinn glaðbeitti
Arcand sagðist ekkert taka það
nærri sér, þeir sem fengjust við
gamanmyndir, meistarar eins og
Chaplin, hefðu ekki hlotið náð fyrir
augum dómnefnda fyrr en á elliár-
um. Arcand sagðist reyndar sann-
færður um að gamanmyndir ættu
mun minni séns á að fá æðstu verð-
laun á kvikmyndahátíð, slíkar mynd-
ir yrðu að sætta sig við minni veg-
tyllur, eins og dómnefndarverðlaun,
en Monty Python-hópurinn breski
hlaut þau einmitt 1983 fyrir Tilgang
lífsins.
Hin 23 ára gamla Samira
Makhmalbaf frá Íran vann dóm-
nefndarverðlaunin í ár fyrir Klukk-
an fimm síðdegis (Panj é asr), mynd
um réttindarbaráttu ungra afg-
anskra kvenna eftir fall talibana-
stjórnarinnar. Leikstjórinn ungi
þakkaði George Bush forseta og
bandarísku þjóðinni fyrir að hafa
frelsað afganskar konur úr ánauð og
sagðist efast um að myndin fengist
sýnd óklippt í heimalandi sínu, en
vonist til að hún verði þó sýnd í fullri
lengd í Afganistan, sem og öllum
öðrum löndum. Myndin fékk einnig
sérstök kirkjunnar verðlaun.
Auk Gullpálmans og verðlauna í
aðalkeppninni er veittur fjöldinn all-
ur af smærri og minna áberandi
verðlaunum. Ítalska myndin La
meglio gioventú eftir Marco Tullio
Giordana fékk Altadis-verðlaunin
sem veitt eru myndum sem sýndar
eru í Un Certain Regard dag-
skránni, þar sem Stormviðri, mynd
Sólveigar Anspach, var sýnd. Í
þeirri dagskrá voru einnig verð-
launaðar íranska myndin Talaye
sorg eftir Jafar Panahi og hin mar-
okkóska Mille mois eftir Faouzi
Bensaidi. Camera D’or verðlaunin
fyrir bestu frumraunina hlaut Dan-
inn Christoffer Boe fyrir Recon-
struction, auk þess sem ákveðið var
að nefna sérstaklega frumraun
Afganans Sedigh Barmak fyrir
Osama.
Stuttmyndaverðlaunin hlutu Ástr-
alinn Glendyn Ivin fyrir frumraun
sína Cracker Bag og Frakkinn Juan
Solanas fyrir L’homme sans téte.
Nýju mynddiskaverðlaun Cannes-
hátíðarinnar runnu til tveggja út-
gáfna, Captain Conan eftir Bertrand
Tavernier og viðhafnarútgáfu Sjötta
skilningarvitsins eftir M. Night
Shyamalan. Alþjóðasamtök gagn-
rýnenda, FIPRESCI, völdu úr að-
alkeppninni rússnesku myndina
Föður og son (Pére et fils) eftir Al-
exander Sokurov, úr Un Certain
Régard bandarísku myndina Am-
erican Splendor eftir Shari Sringer
Berman og Robert Pulcini, og úr
leikstjóradagskrá hátíðarinnar Las
Horas del Dia eftir Jaime Rosale.
Þess má svo geta að handhafi Gull-
ljónsins í Feneyjum, Magdalenu-
systurnar eftir Skotann Peters
Mullens, fékk sérstök verðlaun Evr-
ópsku kvikmyndastofnunarinnar
MEDIA fyrir árið 2003, þótt myndin
hafi reyndar ekki verið sýnd á hátíð-
inni.
Mestu leiðindin í 40 ár
Burtséð frá hverjir unnu og hverj-
ir ekki þá verður hátíðarinnar í ár
minnst á allt annan og miður
skemmtilegri máta. Þegar talað
verður um 56. kvikmyndahátíðina í
Cannes þá mun nefnilega fyrst koma
upp í hugann leiðindi, vonbrigði og
ennþá meiri leiðindi. Það er nefni-
lega mál manna, þar á meðal allra
reyndustu Cannes-fara, að keppnin
um Gullpálmann hafi ekki verið til-
þrifaminni í heil 40 ár og sjaldan eða
aldrei fyrr hafi verið eins fáar af
myndunum tuttugu í keppninni,
verðugur verðlaunakandídat. Á
meðan menn voru í stökustu
vandræðum í fyrra að velja og upp
undir tíu myndir þóttu koma til
greina, þá voru einungis fjórar-fimm
í umræðinni þetta árið; danska
Dogville, Innrás Barbaranna, Ein-
semd, franska Sundlaugin (Swimm-
ing Pool), og Klukkan fimm síðdegis.
Nei, í stað sælla minninga um af-
hjúpun ódauðlegra kvikmyndaverka
þá eiga menn eftir að tala um Brúnu
kanínuna (The Brown Bunny), rusl-
ræmu Vincents Gallos, sem hlaut
verstu móttökur á frumsýningu á
Cannes í manna minnum, mynd sem
varð til þess að leikstjórinn tók sig
meira að segja til og gerði það sem
aldrei fyrr hefur verið gert hér í
Cannes, baðst innilega afsökunar á
mynd sinni, og að hafa eytt tíma við-
staddra til einskis í að sitja undir
henni. Og fleiri hefðu mátt sjá sóma
sinn í að fara að dæmi Gallos, eins og
t.a.m. Bertrand Bonello sem lét
menn þurfa að þola yfirgengilega til-
gerð með samtímatúlkun sinni á
grískri goðsögn í Tiresia, Kiyoshi
Kusosawa sem náði ekki nokkurri
átt í marglyttu-myndinni Bjarta
framtíð (Akarui Mirai) og Bertrand
Blier sem klúðraði algjörlega leik-
verkinu vinsæla Kótilettunum (Les
Cotelettes). Þessar myndir, og
reyndar fleiri, áttu nákvæmlega
ekkert erindi í keppni um Gull-
pálmann. Það er mat langflestra
sem sáu þær, jafnt gagnrýnenda,
blaðamanna sem almennings.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
skarpi@mbl.is
Bandaríski leikstjórinn Gus van
Sant hampar Gullpálmanum í ár,
flestum að óvörum.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 31
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Kvikmyndir.com
SV MBL
HK DVKvikmyndir.is
Kyngimagnaður
tryllir með
stórleikaranum
Robert De Niro
þegar þú leitar
morðingja er
sonur þinnsá
síðasti sem þú
vilt finna
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. B.i. 14.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 12.
Kvikmyndir.com
"Tvöfalt
húrra"
Frétta-
blaðið
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 12.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. MIÐAVERÐ 750 KR.
Svakaleg spennumynd með
töffaranum Vin Diesel úr xXx.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 B.i. 16