Morgunblaðið - 26.05.2003, Síða 32

Morgunblaðið - 26.05.2003, Síða 32
32 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 8. B.i.14.Sýnd kl. 5.30. B.i.12 ára. Sýnd kl. 6, 8, 9 og 10. B. i. 12 ára.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15.  KVIKMYNDIR.COM Kvikmyndir.is  ÓHT Rás 2 „Grípandi og gefandi með óborganlega bardaga“ R E Y K J A V Í K & A K U R E Y R I 3.24 milljón virkir dílar. Ljósnæmi ISO 100. Aðdráttarlinsa 38-228mm. Hægt að fá víðvinkil (30mm) og enn meiri aðdrátt (342mm). Tekur allt að 200 sek kvikm. með hljóði. Hægt að tala inn á ljósmyndir allt að 30 sek á hverja mynd. Notar nýju x-D minniskortin. Hægt að taka allt að 300 skot á venjulegar AA Alkaline rafhlöður! Allt sem þarf til að byrja fylgir. Verð kr. 59.900,- Nánari upplýsingar á www.fujifilm.is 2.0 milljón virkir dílar. Ljósnæmi ISO 100. Aðdráttarlinsa 38-114mm. Hægt að taka allt að 300 skot á venjulegar AA Alkaline rafhlöður! Tekur allt að 80 sek kvikmynd (án hljóðs). Notar nýju x-D minniskortin. Allt sem þarf til að byrja fylgir. Verð kr. 39.900,- Fujifilm stafrænar myndavélar POTTÞÉTT EIN FYRIR ÞIG 3ja kynslóð af Super CCD myndflögu. Allt að 6 milljón díla (pixel) myndir. Ljósnæmi stillanlegt ISO 160-1600. Aðdráttarlinsa 3X (36-108mm). 640x480 díla kvikmyndataka á 15 römmum á sek. m/hljóði. Hljóðupptaka – 33-272 mín. eftir minniskorta stærð. Hægt að tala inn á ljósmyndir allt að 30 sek. á hverja mynd. Mjög einföld í notkun, þrátt fyrir fjölbreytta notkunarmöguleika. Allt sem þarf til að byrja fylgir. Verð kr. 79.900,- F601 S304 A203 Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 ı Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850 ÁLFABAKKI / KRINGLAN kl. 5.20, 8 og 10.20. / kl. 5.20, 8 og 10.20. Sýnd kl. 6. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára ÁLFABAKKI kl. 4. ísl. tal. / kl. 6. Ísl. tal. ÁLFABAKKI / KRINGLAN Sýnd kl. 8. KEFLAVÍK Frábær rómantísk gamanmynd sem hefur allstaðar slegið í gegn. KVIKMYNDIR.COM ÓHT Rás 2 BRETAR sátu eftir stigalausir í söngkeppni evrópskra sjónvarps- stöðva á laugardag en Tyrkir fóru hróðugir heim. Breskir fjölmiðlar hafa velt sér mikið upp úr stiga- leysinu í fréttum helgarinnar. Til- gátur hafa verið uppi um að aðrir Evrópubúar hafi sameinast um að gefa Bretum ekki stig vegna stuðn- ings þeirra við stríðsstefnu Banda- ríkjanna í Írak. Slíkar samsær- iskenningar koma iðulega upp í tengslum við Evróvisjón. Í þetta sinn verður að teljast líklegra að Evrópubúum hafi einfaldlega þótt breska lagið afleitt og vegna þess ákveðið að vera ekkert að splæsa á það stigum. Tyrkneska dívan Sertab Erener, sem sigraði keppnina vafin bleikum borðum, er afar vinsæl í heimalandi sínu. Fréttum af frækilegum sigr- inum, og þeim fyrsta sem Tyrkir hljóta í Evróvisjón, var slegið upp á forsíðum dagblaða. Tyrkland hefur tekið þátt í Evróvisjón frá árinu 1975 og ávallt sungið lögin á tyrknesku, þar til nú. Sú ákvörðun að senda lag á ensku til keppni var umdeild í Tyrk- landi í fyrstu, en því hafa ábyggilega allir gleymt nú þegar sigur lagsins Everyway that I can er í höfn. Gleði Tyrkjanna er slík að ráðamenn hafa jafnvel sagt sigurinn vera merki um að landið væri á góðri siglingu inn í Evrópusambandið, að því er fram kemur í frétt AFP. Breski dúettinn Jemini vakti ekki alveg eins mikla lukku við heimkomuna í gær. Í frétt Sky News kemur fram að þau Chris Cromby og Gemma Abbey, sem skipa dú- ettinn, hafi engu að síður borið höfuð hátt. „Okkur líður stór- kostlega. Við gerðum okkar besta,“ er haft eftir Chris. Þeirra besta dugði því miður ekki til því engin hinna 25 þjóðanna sáu snilldina við framlag Breta. Einhverjir sem Sky News ræðir við eru þess fullvissir að hollusta Breta við stríðsstefnu Bandaríkja- manna í Írak hafi valdið því að fram- lag Breta í keppninni var sniðgeng- ið. Aðrir segja lagið Cry Baby einfaldlega ekki hafa verið nógu gott og því ekki átt skilið eitt einasta stig. Tyrkir hlutu 167 stig í keppninni og Belgar höfnuðu í öðru sæti með 165 stig. Rússnesku gelgjurnar í t.A.T.u. náðu í bronsið með 164 stig á bak við sig en hafði fyrirfram verið spáð sigri. Rússnesku stúlkurnar fengu hvað mesta athygli fjölmiðla, enda virðast þær sækjast eftir at- hygli öðru fremur. Höfðu margir spáð því að þær yrðu heimalandi sínu til skammar með ósiðlegri hegðun á sviðinu. Þeir spádómar rættust þó ekki og þegar upp var staðið var klæðaburður þessara ungu stúlkna og framkoma með smekklegasta móti. Slíkt hið sama var ekki hægt að segja um aðra keppendur, en margar af þeim föngulegu stúlkum sem fram komu virtust sérlega áfjáðar í að sýna þeim 150 milljón Evrópubúum sem á horfðu sem allra mest hold. eyrun@mbl.is Tyrkir efstir og Bretar neðstir … í fyrsta sinn Reuters Táningsstúlkurnar í t.A.T.u. sungu lagið Don’t Believe án allra stæla og vandræðagangs eins og spáð hafði verið. Sertab Erener varð hetja Tyrkja þegar hún tryggði þeim sigur í Evróvisjón- keppninni í fyrsta sinn í 28 ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.