Morgunblaðið - 27.05.2003, Qupperneq 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Suðurlandsbraut 54 - við Faxafen - 108 Reykjavík
Sími 568 2444 - Fax 568 2446
INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali.
SJÖFN ÓLAFSDÓTTIR SKJALAGERÐ, MARÍA ÞÓRARINSDÓTTIR.
EINAR SIGURJÓNSSON SÖLUM. ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR RITARI
asbyrgi@asbyrgi.is • www.asbyrgi.is
STÆRRI EIGNIR
STARENGI - ENDARAÐHÚS
Mjög gott 130,3 fm endaraðhús auk 26,2
fm innbyggðs bílskúrs eða húseign alls
156,5 fm á einni hæð. 3-4 svefnherb. Stór
stofa. Eldhús með vandaðri innréttngu.
Hús fullfrágengið að utan og að mestu að
innan. Rúmgóður bílskúr með geymslu-
lofti. tilv. 14913.
ASPARFELL - STÓR ÍBÚÐ Góð
7 herb. 154,7 fm íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi.
Fimm svefnherbergi og tvær stofur. Bað-
herbergi með baðkari og gestasnyrting
með sturtu. Stórar suðursvalir og aðrar í
norður með frábæru útsýni. Þvottahús á
hæðinni. Húsvörður. Gervihnattardiskur.
Íbúðin er laus. Áhv. 11,5 millj. Verð 14,3
millj. tilv. 31248
4RA - 5 HERB.
LANGHOLTSVEGUR - SÉR-
HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR
Efri sérhæð 111 fm með sérinngangi í
góðu, nýlegu tvíbýlishúsi, auk 30 fm bíl-
skúrs. Íbúðin skiptist m.a. í 2 góðar stofur,
3 svefherbergi, eldhús með borðkrók,
þvottaherb. og geymslu innan íbúðar.
Mjög góður bílskúr. Húsið er allt klætt
með steni og nær viðhaldsfrítt að utan.
Verð 17,8 millj. tilv. 31912
ÁLFHEIMAR
Ótrúlega góð „orginal sixties“ 120 fm íbúð
á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi. Íbúðin skipt-
ist í samliggjandi stofur og tvö stór svefn-
herbergi. Innréttingar eru allar uppruna-
legar og í góðu ásigkomulagi. Verð 13,9
millj. tilv. 31474
3JA HERBERGJA
FROSTAFOLD Mjög góð 85,8 fm
íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi. Rúmgóð og björt
stofa m. parketi á gólfi. Stórar suðursvalir.
Fallegt útsýni. Verð 11,9 millj. tilv. 4057
ÁLFTAHÓLAR - BÍLSKÚR 3ja
herb. 74 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlis-
húsi. Rúmgóð stofa, stórar svalir. 26 fm
bílskúr m. hita, rafmagni og fjarst. hurð-
aropnun. Verð 11,9 millj. tilv. 31799
IÐUFELL Fín 3ja herb. 85 fm íbúð á 2.
hæð í góðu fjölbýli. Eldhús með góðum
innréttingum. Baðherb. með nýjum inn-
réttingum. Yfirbyggðar svalir. Hús klætt að
utan með lituðu áli. Verð 9,5 millj. tilv.
30611
BREIÐAVÍK - SÉRINNGANGUR
3ja herb. 90 fm falleg íbúð á 2. hæð í litlu
fjölbýlishúsi. Vandaðar innréttingar, park-
et. Stórar suðursvalir. Upptekin loft í stofu
og eldhúsi. Þvottaherb. innan íbúðar. Laus
strax. Verð 13,5 millj. tilv. 31658
BAKKASTAÐIR- SÉRINNG. -
BÍLSKÚR Mjög falleg vel skipulögð 3ja
herb. 98 fm íbúð á jarðhæð með sérinn-
gangi og sérlóð í litlu fjölbýli. Stór her-
bergi, stór stofa og sjónvarpshol. Þvotta-
herb. og geymsla í íbúð. Verð 16,5 millj.
LAUFENGI - FRÁBÆRT ÚT-
SÝNI
Mjög vel skipulög 3ja herb. 96 fm íbúð á
2. hæð í góðu fjölbýlishúsi. Stór herbergi,
stór stofa. Eldhús með borðkrók. Tengi f.
þvottavél og þurrkara á baði. Stórar suð-
ursvalir. Frábært ústýni. Verð 13,7 millj.
tilv. 31710
GNOÐARVOGUR - 3JA
3ja herb. 68 fm vel skipulögð mikið endur-
nýjuð íbúð á 1. hæð. Nýtt baðherbergi.
Nýlegt parket. Mjög góð sameign. Húsið
klætt á 3 vegu. Laus 15. ágúst nk. 31796
HJALLAVEGUR
3ja herb. 72 fm góð lítið niðurgrafin kjallar-
íbúð í tvíbýlishúsi. Íbúðin er mikið endur-
nýjuð, m.a. eldhús og baðherbergi. Stór
lóð. Verð 9,7 millj.
REYNIMELUR - ÚTSÝNI
Mjög góð 3ja herb. 74 fm íbúð á 4. hæð í
góðu fjölbýlishúsi. Gott skipulag. Stór
stofa. Góðar suðursvalir. Frábært útsýni.
Stutt í alla þjónustu. Verð 11,7 millj. tilv.
31879
2JA HERBERGJA
ARAHÓLAR - FRÁBÆRT ÚT-
SÝNI 2ja herb. falleg íbúð á 2. hæð í
klæddu lyftuhúsi. Góðar innréttingar.
Stórar vestursvalir. Frábært útsýni yfir
borgina. Verð 8,9 millj. tilv. 31570
ASPARFELL - LYFTUHÚS Góð
52,4 fm 2ja herbergja íbúð á 7. hæð í
lyftuhúsi. Eldhús með ágætri innréttingu,
nýrri eldavélahellu, ofni, viftu og nýjum
borðplötum. Sameiginlegt þvottahús á
sömu hæð. Suðvestur svalir. Fallegt út-
sýni. Laus 1. júlí. Áhv. 4,2 millj. Verð 7,3
millj. tilv.31489
SAMTENGD SÖLUSKRÁ FJÖGURRA FASTEIGNASALA - EIN SKRÁNING - MINNI KOSTNAÐUR - MARGFALDUR ÁRANGUR
JÓRSALIR - GLÆSILEGT EINBÝLI
Til sölu nýtt glæsilegt og vel skipulagt
einbýlishús að stærð 223,4 fm auk 41,6
fm tvöfalds bílskúrs. Húsið er að hluta á
tveimur hæðum. Mikil lofthæð. Vandaðar
innréttingar. Húsið er ekki fullklárað.
Mjög góð staðsetning. Verð 33,5 millj.
FLÓKAGATA - FRÁBÆR STAÐSETNING
3ja herb. 79 fm vel skipulögð og góð
kjallaraíbúð í virðulegu og fallegu fjórbýl-
ishúsi. Íbúðin skiptist m.a. í tvö góð
svefnherb., stóra stofu og stórt eldhús.
Nýlegt þak og rafmagn. Stór falleg lóð.
Verð 13,8 millj.
GARÐSENDI - EINBÝLI
Gott einbýlishús, kjallari, hæð og rishæð,
samt. 167 fm auk 32 fm bílskúrs. Húsið
skiptist m.a. tvær saml. stofur og eldhús,
þrjú góð svefnherb. auk einstaklings-
íbúðar í kjallara. Góður bílskúr. Verð 19,5
millj.
VÆTTABORGIR - NEÐRI HÆÐ
Ný 3ja herb. 82,4 fm skemmtileg íbúð á
jarðhæð í tvíbýlishúsi. Tvö svefnherb.
Þvottaherb. og geymsla innan íbúðar.
Gengið beint út í garð, sérverönd. Húsið
nær viðhaldsfrítt að utan. Til afh. í júlí nk.
Verð 13,2 millj. tilv. 30825
DALSEL - RAÐHÚS - Í SÉRFLOKKI
Glæsilegt 234 fm raðhús, sem er kjallari
og tvær hæðir. Húsið er allt með nýjum
innréttingum, þ.e. skápum, eldhúsi, gólf-
efnum, hurðum og baðherbergjum.
Möguleiki á íbúð í kjallara. Góð lóð.
Stæði í bílskýli. Laust. Verð 22,9 millj.
MIÐBÆRINN - LÚXUSÍBÚÐ
Til sölu lúxusíbúð í nýju glæsilegu fjölbýl-
ishúsi með lyftu. Íbúðin er 185 fm og
skiptist m.a. í 2 stórar samliggjandi stof-
ur, fallegt eldhús, tvö baðherbegi og 4
góð svefnherbergi. Tvennar svalir. Inn-
réttingar í sérflokki. Íbúðinni fylgja tvö
stæði í bílageymslu. Upphafl. var íbúðin
hönnuð og samþykkt sem tvær íbúðir og
auðvelt að breyta þannig. Lánshæf fyrir 2
húsbréfalán. Einkasala. Verð 42,0 millj.
ÞAÐ er komið sumar og sól.Þess vegna liggur í augumuppi að það er hægt aðspara heita vatnið. Tæp-
lega þurfum við að hita hús okkar
jafnmikið í 15° hita eins og í 5°
frosti.
Að sjálfsögðu ekki.
Hins vegar er það þversögn á
tímum hinna fullkomnu sjálfvirku
hitastýringa að halda því fram að
þrátt fyrir þá miklu tækni sé það
samt svo að hættan á sóun á heitu
vatni er aldrei meiri en yfir sumarið.
Þetta krefst auðvitað nánari skýr-
inga, skýringa á mannamáli en ekki
einhverju uppskrúfuðu hundleið-
inlegu tæknimáli.
En fyrst svolítil upprifjun á því
hverskonar stýritæki við notum til
að stýra hitanum í húsinu og þar
með hvað við eyðum miklu af heitu
vatni til að ná þeim hita að okkur
líði vel, hitum hvorki of né van.
Ofnakerfi eru algengasti hitagjaf-
inn svo við göngum út frá því að við
séum að ræða um ofnakerfi. Hita-
stýring á ofnum er ýmist með svo-
nefndum túrlokum, sem stýra hit-
anum eftir lofthita í herberginu eða
hvaða rými sem ofninn er í, eða ret-
úrloka, sem stýrist eftir hitanum á
vatninu sem út af ofnunum rennur.
Auk þess setjum við svokallaða
þrýstijafnara á inntak hitaveitunnar
til að geta ráðið því hve þrýstingur
vatnsins inn á ofnana á að vera
meiri en þrýstingurinn út af þeim.
Ef þrýstingurinn er jafnmikill út
sem inn rennur ekkert vatn um ofn-
inn, ekki frekar en í algjörlega lá-
réttum skurði. Því meiri sem þrýst-
ingsmunurinn er því meira rennur í
gegnum ofninn alveg eins og það
rennur meira og meira vatn eftir
skurðinum eftir því sem hallinn
eykst.
Þetta eru þau nauðsynlegu tæki
sem verða að vera í hverju ofnakerfi
til að það hitni og ekki síður að það
renni ekki meira vatn um kerfið en
nauðsyn krefur.
En hver er nauðsynin? Við getum
skýrt það þannig að vatnið á ekki að
renna hraðar um ofninn en svo að
það nái að kólna eins mikið og
mögulegt er á vegferðinni, en þó
nægilega hratt til að gefa okkur
nægan varma til þess að okkur líði
vel.
Þessvegna stillum við þrýstijafn-
arann á þann þrýstingsmun að
rennslið sé nægilegt en ekki meira.
En nú kemur vorið og þá er eins
gott að muna eitt. Við þurfum ekki
eins mikinn þrýstingsmun yfir sum-
arið, hættan á að vatnið renni of
hratt í gegnum ofninn eykst eftir
því sem hlýrra er í veðri.
En hvað um þessa ágætu sjálf-
virku ofnkrana, eiga þeir ekki að sjá
um að loka þegar umbeðnu hitastigi
er náð? Séu þeir í lagi gera þeir það,
en það getur orðið sóun ef of hratt
rennur, þeir loka ekki fyrr en of
heitt vatn er farið að renna út af
ofninum, þetta getur gerst þó allt sé
rétt stillt og kerfið í lagi.
Eftir talsverðu að slægjast
Niðurstaðan er þessi.
Það er eftir talsverðu að slægjast
að minnka þrýstingsmuninn inn og
út af kerfinu, það er gert á þrýsti-
jafnaranum. Þótt þeir séu ekki allir
eins má gefa hér smáábendingu.
Hafi hann verið stilltur á 1,5 í vetur
getur það sparað talsverða peninga
að lækka þá stillingu niður í 1 eða
jafnvel lægra.
Ef of mikið er lækkað verður
kannski ekki nógu heitt í húsinu og
það er ekkert stórslys þegar þessi
árstími er kominn, það má hækka
aftur. Svo eru það ofnkranarnir. Það
var búið að nefna þessar tvær teg-
undir, túrkrana og retúrkrana.
Á þeim degi sem þessi orð eru
felld á skjá er glampandi sól og heit-
asti dagur ársins enn sem komið er,
15°C, alltént í Þorlákshöfn.
Þá er freistandi að sitja úti á palli
og láta sólina verma sig, garðdyrnar
standa opnar allan daginn, nema
hvað.
En þá skal gæta að einu. Ef það
eru túrlokar á ofnunum sem stýrast
efir lofthitanum fara þeir að vinna,
opna og láta vatnið streyma. Það er
mjög eðlilegt því í vetur áttu þeir að
halda 22° hita inni. En nú streymir
þetta heilnæma 15° heita loft inn um
allt hús og ofnlokarnir opna, þeir
spyrja ekki um aðstæður, aðeins
hitastig.
Þetta kennir okkur þá lexíu að á
slíkum degi á að lækka stillingu á
öllum túrlokum þegar allt stendur
upp á gátt.
En munum samt að hækka still-
inguna aftur þegar kvöldkulið kem-
ur, annars má búast við að kalt verði
í húsinu næsta morgun.
En „gamli vagnjálkurinn“ ret-
úrlokinn, hvað um hann? Hann vinn-
ur sitt verk sumar, vetur, vor og
haust, heldur sínu striki hvað sem
tautar og raular. Hann hélt alltaf
sama hitastigi á vatninu sem rann út
af ofninum í vetur og tryggði þannig
að nægjanlegur hiti var í húsinu.
Það gerir hann þó einnig þegar hit-
inn úti er 15°, því miður. Þess vegna
er nauðsynlegt að lækka stillingu
hans þegar þetta langt er liðið á vor-
ið.
Breytið því ekki aftur fyrr en í
byrjun september, eða þegar þörfin
kallar.
Nú er lag að spara heita vatnið
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is
Þrátt fyrir hin fullkomnustu stýritæki
þarf samt stundum að breyta still-
ingum við ný skilyrði.