Morgunblaðið - 06.10.2003, Qupperneq 47
er greitt af nýreistum húsum. Af
hverri byggingu, sem reist er, skal
greiða 3‰ (þrjú pro mille) í eitt
sinn af brunabótavirðingu hverrar
húseignar. Nýbygging telst hvert
nýreist hús, sem virt er til bruna-
bóta svo og viðbyggingar við eldri
hús, ef virðingarverð hinnar nýju
viðbyggingar nemur 1/5 af verði
eldra hússins. Þetta á einnig við
um endurbætur, sem hækka bruna-
bótavirðingu um 1/5.
Húsbyggjendur
Lóðaumsókn – Eftir birtingu aug-
lýsingar um ný byggingarsvæði
geta væntanlegir umsækjendur
kynnt sér þau hverfi og lóðir sem
til úthlutunar eru á hverjum tíma
hjá byggingaryfirvöldum í viðkom-
andi bæjar- eða sveitarfélögum – í
Reykjavík á skrifstofu borgarverk-
fræðings, Skúlatúni 2. Skilmálar eru
þar afhentir gegn gjaldi, ef tilbúnir
eru. Umsækjendur skulu fylla út ná-
kvæmlega þar til gert eyðublað og
senda aftur til viðkomandi skrif-
stofu. Í stöku tilfelli þarf í umsókn
að gera tillögu að húshönnuði en
slíkra sérupplýsinga er þá getið í
skipulagsskilmálum og á umsókn-
areyðublöðum.
Lóðaúthlutun – Þeim sem út-
hlutað er lóð, fá um það skriflega
tilkynningu, úthlutunarbréf og þar
er þeim gefinn kostur á að stað-
festa úthlutunina innan tilskilins
tíma, sem venjulega er um 1 mán-
uður. Þar koma einnig fram upplýs-
ingar um upphæðir gjalda o.fl. Skil-
yrði þess að lóðaúthlutun taki gildi
eru að áætluð gatnagerðargjöld
o.fl. séu greidd á réttum tíma. Við
staðfestingu lóðaúthlutunar fá lóð-
arhafar afhent nauðsynleg gögn,
svo sem mæliblað í tvíriti, svo og
hæðarblað í tvíriti og skal annað
þeirra fylgja leyfisumsókn til bygg-
ingarnefndar, auk frekari gagna ef
því er að skipta.
Gjöld – Gatnagerðargjöld eru
mismunandi eftir bæjar- og sveit-
arfélögum. Upplýsingar um gatna-
gerðargjöld í Reykjavík má fá hjá
borgarverkfræðingi en annars stað-
ar hjá byggingarfulltrúa. Að auki
koma til heimæðargjöld. Þessi gjöld
ber að greiða þannig: 1/10 innan
mánaðar frá úthlutun, síðan 30%
sex mánuðum eftir úthlutun, 30%
tólf mánuðum eftir úthlutun og loks
30% átján mánuðum eftir úthlutun.
Framkvæmdir – Áður en unnt er
að hefjast handa um framkvæmdir
þarf framkvæmdaleyfi. Í því felst
byggingaleyfi og til að fá það þurfa
bygginganefndarteikningar að vera
samþykktar og stimplaðar og eft-
irstöðvar gatnagerðargjalds og
önnur gjöld að vera greidd.
Einnig þarf að liggja fyrir bréf um
lóðarafhendingu, sem kemur þegar
byggingarleyfi er fengið og nauð-
synlegum framkvæmdum sveitarfé-
lags er lokið, svo sem gatna- og
holræsaframkvæmdum.
Í þriðja lagi þarf að liggja fyrir stað-
setningarmæling bygginga á lóð en
þá þarf einnig byggingarleyfi að
liggja fyrir, lóðarafhending að hafa
farið fram og meistarar að hafa
skrifað upp á teikningar hjá bygg-
ingarfulltrúa. Fylla þarf út umsókn
um vinnuheimtaugarleyfi til raf-
magnsveitu og með þeirri umsókn
þarf að fylgja byggingarleyfi, af-
stöðumynd sem fylgir bygging-
arnefndarteikningu og umsókn um
raforku með undirskrift rafverktaka
og húsbyggjanda.
Umsækjanda er tilkynnt hvort hann
uppfyllir skilyrði rafmagnsveitu og
staðfestir þá leyfið með því að
greiða heimtaugargjald. Fljótlega
þarf að leggja fram sökklateikn-
ingar hjá byggingarfulltrúa og fá
þær stimplaðar en að því búnu
geta framkvæmdir við sökkla hafist.
Þá þarf úttektir á ýmsum stigum
framkvæmda og sjá meistarar um
að fá byggingafulltrúa til að fram-
kvæma þær.
Fokhelt – Fokheldisvottorð, skil-
málavottorð og lóðasamningur eru
mikilvæg plögg fyrir húsbyggjendur
og t.a.m. er fyrsta útborgun hús-
næðislána bundin því að fokheld-
isvottorð liggi fyrir. Bygging-
arfulltrúar gefa út fokheldisvottorð
og skilmálavottorð og til að þau fá-
ist þarf hús að vera fokhelt, lóð-
arúttekt að hafa farið fram og öll
gjöld, sem þá eru gjaldfallin að hafa
verið greidd. Skrifstofur bæja- og
sveitarfélaga (í Reykjavík skrifstofa
borgarstjóra) gera lóðarsamning
við lóðarleigjanda að uppfylltum
ýmsum skilyrðum, sem geta verið
breytileg eftir tíma og aðstæðum.
Þegar lóðarsamningi hefur verið
þinglýst, getur lóðarhafi veðsett
mannvirki á lóðinni.
Húsbréf
Húsbréfalán – Lán innan hús-
bréfakerfisins eru svokölluð hús-
bréfalán. Þau eru veitt til kaupa á
notuðum íbúðum, til nýbygginga
einstaklinga, nýbygginga bygging-
araðila og til endurbóta á eldra
húsnæði. Annars vegar er um að
ræða fasteignaveðbréf, sem gefin
eru út af íbúðarkaupanda, hús-
byggjanda eða íbúðareiganda, og
eru þau skuldaviðurkenningar þess-
ara aðila. Húsbréfin sjálf koma
kaupanda ekki beint við. Seljendur
aftur á móti eignast húsbréf með
því að selja Íbúðalánasjóði fast-
eignaveðbréfin.
Þar með losna seljendur við að inn-
heimta afborganir af fast-
eignaveðbréfunum og geta notað
húsbréfin á þann hátt, sem þeir
kjósa; ýmist með því að selja þau á
verðbréfamarkaði, eiga þau sem
sparnað eða nota húsbréfin til að
greiða með annaðhvort við kaup,
eða upp í skuldir sínar. Hér að neð-
an er birt dæmi um þann feril, sem
á sér stað við kaup á notaðri íbúð.
Frekari upplýsingar ásamt almennri
fjármálaráðgjöf í tengslum við lán-
veitinguna veita bankar og spari-
sjóðir.
Kaup á notaðri íbúð
Frumskilyrði fyrir húsbréfaláni, er
að umsækjandi verður að sækja
um skriflegt mat á greiðslugetu
sinni hjá banka eða sparisjóði.
Þegar mat þetta er fengið, gildir
það í sex mánuði.
Umsækjandi skoðar sig um á
fasteignamarkaðnum í leit að
notaðri íbúð.
Þegar hann hefur í höndum sam-
þykkt kauptilboð, kemur hann því
til Íbúðalánasjóðs ásamt
greiðslumatskýrslu og öðrum
fylgigögnum
Meti stofnunin kauptilboðið láns-
hæft, fær íbúðarkaupandinn af-
hent fasteignaveðbréfið til und-
irritunar og hann getur gert
kaupsamning.
Fasteignaveðbréfið er síðan af-
hent seljanda eftir undirskrift.
Því næst lætur kaupandi þinglýsa
kaupsamningi og kemur afriti til
seljanda.
Seljandi lætur þinglýsa fast-
eignaveðbréfinu, útgefnu af
kaupandanum, sem Íbúðalána-
sjóður síðan kaupir og greiðir
fyrir með húsbréfum. Afgreiðsla
þeirra fer fram hjá Íbúðalána-
sjóði.
Stofnunin sér um innheimtu af-
borgana af fasteignaveðbréfinu.
Lánskjör – Fasteignaveðbréfið er
verðtryggt. Lánstími er 25 eða 40
ár og ársvextir eru nú 5,1%. Þeir
eru fastir og breytast því ekki á
lánstímanum. Gjalddagar á nýjum
fasteignaveðbréfum eru nú mán-
aðarlega eða ársfjórðungslega og
afborganir hefjast á 3ja reglulega
gjalddaga frá útgáfu bréfsins, sé
um mánaðarlega gjalddaga að
ræða og öðrum reglulega gjalddaga
sé um ársfjórðungslega gjalddaga
að ræða.
Á allar greiðslur, bæði vexti og af-
borganir, eru jafnan reiknaðar verð-
bætur í samræmi við neyzluvísitölu.
Lántökugjald er 1%. Mánaðarleg
greiðslubyrði af 1 millj. króna láni til
25 ára er í dag 5.924 kr.
Önnur lán– Íbúðalánasjóður veit-
ir einnig fyrirgreiðslu vegna bygg-
ingar leiguíbúða eða heimila fyrir
aldraða, meiriháttar endurnýjunar
og endurbóta eða viðbygginga við
eldra íbúðarhúsnæði.
Margir lífeyrissjóðir veita einnig lán
til félaga sinna vegna húsnæðis-
kaupa, svo að rétt er fyrir hvern og
einn að kanna rétt sinn þar. Mögu-
leikar á lánum til kaupa á íbúðar-
húsnæði kunna einnig að vera fyrir
hendi hjá bönkum og sparisjóðum.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 C 47Fasteignir
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar.
564 1500
25 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
RAÐ- OG PARHÚS
Birkigrund 196 fm raðhús á tveim
hæðum, 5 svefnherb., suðursvalir og
garður, í kjallara er tveggja herbergja
ósamþykkt íbúð. 25 fm bílskúr.
Miðsalir Parhús í byggingu, 177 fm á
tveimur hæðum, 3 svefnherb. Afhent til-
búið að utan, fokhelt að innan. Innbyggð-
ur bílskúr.
Hvannhólmi 16 205 fm einb. á
tveimur hæðum, vandaðar innréttingar,
hægt er að hafa séríbúð á neðri hæð, 25
fm bílskúr.
Birkihvammur 160 fm einbýli á
tveimur hæðum, mikið endurnýjað, 4
svefnherb. 56 fm tvöfaldur bílskúr og
einnig er 56 fm rými undir bílskúrnum með
gluggum.
3JA TIL 4RA HERB. ÍBÚÐIR
Hlíðarvegur sérhæð, 69 fm 3ja herb.
á 1. hæð ásamt 27 fm bílskúr, laus 1. okt.
Hamraborg 70 fm 3ja herb. á 3. hæð
í lyftuhúsi, ný flísalagt baðherbergi, parket
á stofu.
4RA HERBERGJA ÍBÚÐIR
Engihjalli 97 fm á 10. hæð, 3 rúmgóð
svefnherb., tvennar svalir, mikið útsýni.
2JA HERBERGJA ÍBÚÐIR
Vitastígur Glæsileg nýleg 2ja herb.
íbúð, eikarinnrétting í eldhúsi, suð-austur-
svalir, mikið útsýni.
Reynihvammur 60 fm sérhæð í ný-
byggðu húsi, íbúðin er tilbúin til innréttinga
og afhendingar strax.
Dynsalir 78 fm með sérinngangi á 1.
hæð, glæsilegar innréttingar. Laus fljót-
lega.
Freyjugata 43 fm einstaklingsíbúð á
1. hæð. Íbúðin er öll endurnýjuð, parket á
gólfum, til afh. fljótlega.
Njálsgata 46 fm í kjallara í þríbýli. Verð
6,8 m.
Vegna mikillar sölu síðustu daga vantar okkur
allar stærðir eigna á skrá í Kópavogi
KÍNVERJAR, sú gamla og
mikla menningarþjóð, hafa sín
eigin stjörnumerki sem eru
aldeilis ólík þeim stjörnu-
merkjum sem „stjórna“ lífi
okkar Vesturlandabúa. Hér eru
kínversku stjörnumerkin sýnd
bróderuð í röð.
Morgunblaðið/Guðrún
Kínversk
stjörnumerki
Í ÞESSARI glæru en eigi að síður
skrautlegu skál er samankomið
talsvert af þurrkuðum blómum,
ljósasería og loks er á barmi skál-
arinnar froskur nokkur sem sýn-
ist gera sig líklegan til að klifra
upp í skálina til þess að taka al-
mennilega þátt í samkvæminu.
Morgunblaðið/Guðrún
Skrautleg skál
BATÍKMYND frá Afríku sem sýnir
tvö andlit. Batík er aðferð til að
myndlita vefnað og er þá einkum
notuð bómull eða silki. Þessi aðferð
er upprunnin í Suðaustur-Asíu. Þeir
hlutar vefnaðarins sem ekki á að
lita eru þá þaktir bræddu vaxi áður
en honum er dýft í lit.
Morgunblaðið/Guðrún
Batík
frá Afríku