Morgunblaðið - 13.10.2003, Page 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Lestu meira um þetta einstaka tilboð á
www.microsoft.is/frabaerttilbod
og hvað þú græðir á því...
Microsoft
og HP gera þér
frábært tilboð!
Fáðu leyfin
á hreint og þú
færð fartölvu
í staðinn
G
R
E
Y
C
O
M
M
U
N
IC
AT
IO
N
S
IN
TE
R
N
AT
IO
N
A
L
G
C
I
IC
E
LA
N
D
ÁHYGGJUR AF ÁHRIFUM
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra hefur áhyggjur af því að
áhrif EFTA-ríkjanna á ákvarð-
anatöku í EES- og Schengen-
samstarfinu minnki í kjölfar breyt-
inga á stofnsáttmála ESB, sem
kunni að auka völd ráðherraráðsins
og Evrópuþingsins.
Bjarni geimfari á frímerki
Kanadíska póstmálastofnunin hef-
ur gefið út frímerki með mynd af
Bjarna Tryggvasyni geimfara. Frí-
merkin eru gefin út til heiðurs
Kanadísku geimferðastofnuninni og
átta núlifandi kanadískum geimför-
um. Frímerkin eru gefin út í sex
milljónum eintaka.
Veiði hætt við stofnlágmark
Jean Boulva, forstjóri hafrann-
sóknastofnunarinnar í Mont-Joli í
Quebec, telur æskilegt að veiðum á
fisktegundum sé sjálfkrafa hætt
þegar stofnstærð fer niður fyrir
ákveðið lágmark. Þetta verði að ger-
ast án afskipta stjórnmálamanna.
Samningar séu virtir
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, segir fulla
samstöðu um að ekki eigi að líða nein
undanbrögð frá kjarasamningum.
Hann segir þau réttindi sem kjara-
samningar skapa eiga við um alla
sem hingað koma til starfa.
Árás í Bagdad
Að minnsta kosti sex menn fórust
er bíll var sprengdur upp nærri
Bagdad-hótelinu í Bagdad í gær.
Þar hafa meðal annars aðsetur
starfsmenn CIA, bandarísku leyni-
þjónustunnar, bandarískir verktak-
ar og félagar í írösku framkvæmda-
stjórninni. Þeir sem féllu voru
aðallega íraskir lögreglumenn, en
þeir sem voru inni á hótelinu sluppu.
Heimilin eyðilögð
Ísraelar hafa eyðilagt á annað
hundrað húsa og heimila um 1.500
manna í Rafah-flóttamannabúð-
unum á Gaza í þriggja daga hern-
aðaraðgerðum. Jöfnuðu þeir húsin
við jörðu með jarðýtum. Hafa palest-
ínskir embættismenn lýst svæðið
hamfarasvæði og talsmaður Samein-
uðu þjóðanna segir eyðilegginguna
meiri en dæmi sé um áður.
mánudagur 13. október 2003 mbl.is
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Fasteignablaðið
// Listiðnaður
Þrjár listakonur eru komnar með vinnustof-
ur á Gránufélagsgötu 48 á Akureyri. Þær
fást við leirlist, skartgripahönnun og mósaík
– niðri á Tanga eins og kallað er. 12
// Holland
Stefna Hollendinga í húsnæðismálum beinist
á síðustu árum í þá átt að ýta undir séreign á
húsnæði. Gert er ráð fyrir, að árið 2010 búi
um 65% Hollendinga í eigin húsnæði. 31
// Básbryggja
Bryggjuhverfi hefur mikið aðdráttarafl fyrir
marga. Hjá Miðborg eru nú til sölu nýjar
íbúðir í fjölbýlishúsi við Básbryggju 2. Húsið
er á þremur hæðum auk bílakjallara. 41
// Smáatriðin
Fólk á skilið, að því sé kennt að bjarga sér
með smáatriði sem pirra alla og enginn fag-
maður fæst til að lagfæra. Fagmaðurinn ætti
að kenna fólki þessi einföldu verk. 44
w
w
w
.f
rj
a
ls
i.
is
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur
komið við í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent
tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan
hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa
fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem
veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Vextir % 6,50% 7,50% 8,50% 9,50% 10,00%
5 ár 19.600 20.000 20.500 21.000 21.200
15 ár 8.700 9.300 9.800 10.400 10.700
30 ár 6.300 7.000 7.700 8.400 8.800
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta.
Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar
Kjörhiti
í hverju herbergi
!"
#$%&'
( )*'
+*!"
, *- %%'
./0112
*./0112
' 3
./0112
*./0112
4
4
1 66
6
!
.071
.071
.071
.071
8
8
8
"#
$
%
#
$
"
"&
%
"
%
' (
1 15 )
1.1
))
)
) * #
1466
1 166
HÚSIÐ Lyngheiði 21 í Kópa-
vogi á sér óvenjulega sögu en
það var upphaflega félags-
heimili KFUM. Nú hafa hjónin
Ríkey Pétursdóttir og Birgir
Másson gert þetta hús upp.
„Húsið var einstaklega vel
byggt og hefur t.d. aldrei lek-
ið,“ segja þau í viðtali hér í
blaðinu í dag. En það var ým-
islegt komið til ára sinna og
þau hjón segja að her-
bergjaskipan að innan hafi
verið látin halda sér en allt
annað tekið í gegn.
Allar hurðir voru ónýtar og
ekkert skápapláss. Baðher-
bergið var mjög hrátt og eld-
húsið of lítið. En það er sann-
arlega ekki í kot vísað að búa í
þessu húsi í dag. Það er með
eindæmum fallega uppgert og
garðurinn einstaklega vel
hannaður. /26
Gamalt hús
gert upp
UM ÞESSAR mundir standa yfir
lóðarframkvæmdir við Kennarahá-
skóla Íslands að norðanverðu. Þess-
ar framkvæmdir koma í kjölfar ný-
byggingar skólans sem vígð var í
desember sl.
„Við köllum þetta stundum í
gamni „menntabrautina“, þennan
göngustíg frá Háteigsvegi að aðal-
dyrunum,“ segir Guðmundur Ragn-
arsson, fjármálastjóri KHÍ.
„Í nýbyggingunni, sem gefið hefur
verið nafnið Hamar, eru kennslustof-
ur, tveir stórir fyrirlestrarsalir og
það sem við köllum „menntasmiðju
KHÍ“, en menntasmiðjan er bóka-
safn, gagnasmiðja og tölvuþjónusta.
Lóðarframkvæmdirnar hófust nú í
september og er áætlað að þeim ljúki
um mánaðamótin nóvember/desem-
ber nk.
Aldrei nóg af bílastæðum
Við erum að útbúa bílastæði, en
þau eru orðin „eilífðarvandamál“
allra háskóla. Það er aldrei nóg af
þeim því allir nemendur eru á bílum,
auk kennaranna.
Síðan erum við að ganga frá
gönguleiðum og gróðri á lóðinni.
Björn Jóhannsson landslagsarkitekt
hannaði lóðina en aðalhönnuður
hússins og framkvæmdanna allra er
Batteríð.
Verktakinn er fyrirtækið Mottó en
framkvæmdirnar eru í höndum
Framkvæmdasýslu ríkisins. Verkið
var boðið út og áætlaður verkkostn-
aður er um 35 millj. kr.“
Unnið við „menntabraut“
Kennaraháskólans
Morgunblaðið/Ásdís
Unnið er nú að því að ljúka framkvæmdum við lóð Kennaraháskóla Íslands.
2003 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
BÆTTU FYRIR MISTÖKIN 1966 Á WEMBLEY / B6
ÞORLÁKUR Árnason hætti í gær störfum sem
þjálfari knattspyrnuliðs Vals eftir að hafa stýrt
því undanfarin tvö ár. Í fyrra unnu Valsmenn
öruggan sigur í 1. deildinni undir hans stjórn en
í haust féllu þeir á ný úr úrvalsdeildinni þrátt
fyrir að þeir fengju 20 stig. Þorlákur sagði við
Morgunblaðið í gær að hann myndi halda áfram
að þjálfa en óráðið væri í augnablikinu hvar
það yrði. Þrjú félög úr úrvalsdeildinni hafa ekki
gengið frá sínum málum, Fylkir, Fram og
Grindavík, en Þorlákur vildi ekkert segja um
hvort hann væri á leið til einhvers þeirra.
„Ég skil við Valsmenn í algjörri sátt og það
er engin misklíð á milli mín og þeirra. Ég tel
mig skila góðu búi, enda þótt ég sé að sjálf-
sögðu ekki ánægður með niðurstöðu sumarsins.
Vonandi tekst Val að komast aftur í hóp þeirra
bestu þar sem félagið á að vera.“
Þorlákur er
hættur með Val
á ferðinni og menn voru lengi að átta
sig á vellinum. Það var allt annað að
sjá til leikmanna í byrjun seinni hálf-
leiksins og við náum að jafna, en öll-
um til undrunar dæmdi dómarinn það
af. Ég gat ekki séð neitt athugavert
við markið. Upp úr því skora Þjóð-
verjar sitt annað mark og það má
Logi sagði að eftir að strákarnirhöfðu sofnað á verðinum þegar
Þjóðverjar skoruðu fyrsta markið í
byrjun leiksins, hefðu
þeir verið nokkuð
lengi að koma sér inn
í leikinn. „Það var
ákveðin taugaveiklun
segja að það hafi drepið okkur. Eftir
það tökum við ákveðna áhættu, enda
vissum við að tap og jafntefli gæfu
okkur ekkert. Við það riðlast leikur
okkar og Þjóðverjar ná betri tökum á
leiknum og skapa sér nokkur góð
marktækifæri – og nýttu eitt þeirra til
að skora þriðja mark sitt.“
Það sást í leiknum að þú og Ásgeir
voruð ekki sáttir við dómarana. Þú
lést austurríska eftirlitsmanninn
heyra það?
„Jú, við vorum afar óhressir með
hvernig samvinna dómara og aðstoð-
ardómara var. Dómarinn dæmdi af
okkur löglegt mark og annar aðstoð-
ardómarinn sleppti að veifa nokkrum
sinnum á leikmenn Þýskalands er
þeir voru rangstæðir innan við vörn
okkar er þeir fengu knöttinn. Stund-
um veifaði aðstoðarmaðurinn, en lét
síðan fánann snöggt niður. Þetta voru
óþolandi vinnubrögð – já, fyrir neðan
allar hellur. Svona á ekki að sjást í
landsleikjum í Evrópukeppni, eða í
neinum leikjum. Það var sárt að sjá
dómarann dæma markið af Her-
manni.“
Logi sagði að þrátt fyrir tapið væri
hann ánægður með margt í leik ís-
lenska liðsins. „Það sást að leikmenn
okkar höfðu sjálfstraustið og báru
ekki virðingu fyrir Þjóðverjum á
þeirra heimavelli. Það var ákveðin
spenna hjá strákunum í upphafi leiks-
ins. Þeir voru þónokkra stund að átta
sig á vellinum, sem er erfiður – mikil
ljónagryfja. En strákarnir voru mjög
yfirvegaðir og rétt stemmdir. Við get-
um ekki sagt við neinn að hann hafi
ekki lagt sig fram.
Við getum ekki lokað augunum fyr-
ir því að við vorum að leika við þjóð
sem var númer tvö á síðasta heims-
meistaramóti. Þjóð sem hefur tugi
milljóna íbúa – á móti 280 þúsund íbú-
um. Þó að það sé alltaf súrt að tapa,
þá getum við ekki annað en verið sátt-
ir við framlag okkar manna á vellin-
um.“
Hvað er framundan hjá landslið-
inu?
„Nú bíðum við spenntir eftir að
dregið verði í riðla í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar í Þýska-
landi 2006. Það verður gert fimmta
desember.
Þá sjáum við hverjir verða mót-
herjar okkar og um leið hefst und-
irbúningur fyrir að mæta þeim. Þá
brettum við upp ermarnar og spýtum
í lófana, ákveðnir að gera betur,“
sagði Logi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vonbrigðin leyna sér ekki í svip Eiðs Smára Guðjohnsens, fyrirliða, og Loga Ólafssonar eftir tapið fyrir Þjóðverjum á AOL Arena í Hamborg, vitandi það að Skotar unnu
á sama tíma á heimavelli og skutust þar með upp fyrir íslenska liðið og tryggði sér um leið sæti í umspili í nóvember fyrir Evópumótið á næsta ári.
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari var ekki ánægður með þátt dómarans frá Rússlandi
Vonlaus vinnubrögð
„ÉG verð að viðurkenna það að fréttirnar frá Glasgow voru ekki þær
ánægjulegustu sem komu í kjölfarið á tapinu hér í Hamborg. Nei,
þar voru ekki gleðifréttir sem komu þaðan. Eftir á að hyggja þá
misstum ekki af tækifærinu til að komast áfram hér, heldur heima á
Laugardalsvellinum þar sem við náðum ekki að nýta okkur þau
tækifæri sem við fengum gegn Þjóðverjum, sem höfðu þá heppnina
með sér í jafnteflisleik,“ sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari sem
var ekki ánægður með framgöngu dómaranna frá Rússlandi í leikn-
um í Hamborg – sagði vinnubrögð þeirra hafa verið fyrir neðan allar
hellur. Þjóðverjar fengu 18 stig í riðlinum, Skotar 14 og Íslendingar
13. „Með sigri á Þjóðverjum í Reykjavík hefðum við verið með fimm-
tán stig, sem hefði gefið okkur annað sætið,“ sagði Logi.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
frá Hamborg
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 25
Vesturland 11 Kirkjustarf 25
Erlent 12/13 Bréf 26
Daglegt líf 14/15 Dagbók 28/29
Listir 16 Leikhús 30
Umræðan 17 Fólk 30/33
Forystugrein 18 Bíó 30/33
Hestar 20 Ljósvakar 34
Minningar 21/24 Veður 35
* * *
ÁRNI Magnússon félagsmálaráðherra skoðaði
virkjunarsvæðið við Kárahnjúka í fyrsta sinn í
björtu og fögru veðri á laugardag. Með í för voru
fulltrúar frá Vinnumálastofnun, Vinnueftirliti, emb-
ættismenn úr ráðuneytinu og yfirtrúnaðarmaður
verkalýðsfélaganna á virkjunarstað.
„Það er með ólíkindum að þessar miklu fram-
kvæmdir skuli þó hafa gengið svo vel fram sem
raun ber vitni, miðað við þann stutta tíma sem
menn hafa haft til að setja sig niður og svo þær veð-
urfarslegu aðstæður sem eru brostnar á og við
þekkjum vel,“ sagði ráðherra eftir ferðina.
Vantar enn þá vettlinga
„Við hittum m.a. portúgalska starfsmenn
Impregilo þar sem þeir voru að borða í mötuneyti
og spjölluðum við þá. Þeir sem við hittum voru
komnir með galla og skó, kvörtuðu raunar yfir því
að hafa ekki enn fengið vettlinga, en fannst þetta
greinilega horfa til betri vegar.“
Árni skoðaði framkvæmdir og aðbúnað, fundaði
með fulltrúum Landsvirkjunar og sagði að í lok
ferðarinnar hefði hann átt stuttan fund með yfir-
mönnum Impregilo.
„Þeir gera sér grein fyrir að það er mikil pressa á
þeim að uppfylla og standast þær kröfur sem við
gerum,“ sagði ráðherra. „Mér sýnist þeir vera vel
meðvitaðir um það og átta sig líka á að hér hefur
verið um ákveðna byrjunarörðugleika að ræða. Mér
fannst hins vegar bæði á þeim og verkamönnum
sem við töluðum við að hlutirnir væru á réttri leið
með því samkomulagi sem hefði nú náðst. Auðvitað
sér maður að ýmsir hnökrar eru enn á vissum svið-
um, það var farið hratt af stað og fyrirtækið hefur
núna ákveðna fresti til að leysa þau mál. Vinnu-
málastofnun og Vinnueftirlit ríkisins munu fylgjast
vel með framvindu mála við Kárahnjúka og ég mun
að sjálfsögðu fylgjast grannt með því einnig.“
Reistu virkjuninni níðstöng
Það voru fleiri á ferð á virkjunarsvæðinu á laug-
ardag. Tæpt hundrað björgunarsveitarmanna af
Austurlandi kynnti sér aðstæður og aðkomuleiðir
að svæðinu miðað við verstu skilyrði sem upp gætu
komið. Þá var fólk úr Ásatrúarfélaginu og Nátt-
úruvaktinni við Kárahnjúka á laugardag og ákallaði
landvætti og goð. Var m.a. reist níðstöng gegn
framkvæmdunum.
Félagsmálaráðherra vitjar virkjanasvæðisins við Kárahnjúka í fyrsta sinn
Horfir allt til betri vegar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Meðal þess sem Árni Magnússon félagsmálaráðherra skoðaði í ferð sinni var ný aðstaða Landsvirkj-
unar sem stendur gegnt aðalbúðunum í Laugarási. Hún verður tekin í gagnið í vikunni.
UNG vinstri græn (UVG) stóðu fyr-
ir gjörningi í Reykjavík á laugar-
dag til að vekja fólk til umhugsunar
um vændi. Með þessu vildu UVG
sýna í verki stuðning við fyrirhug-
að frumvarp um að kaup á vændi
verði gerð refsiverð.
Anna Tryggvadóttir, stjórnar-
maður í UVG, segir að á síðasta
kjörtímabili hafi VG lagt fram
frumvarp um þetta efni en það hafi
ekki fengið hljómgrunn. „Nú er
verið að leggja fram frumvarpið
aftur í breyttri mynd með stuðningi
þingkvenna frá öllum flokkum
nema Sjálfstæðisflokknum.“
Morgunblaðið/Sverrir
Styðja vændisfrumvarp
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
var kölluð út á laugardag til að
sækja slasaðan mann á Snæ-
fellsnes. Fékk hann stálbita í
brjóstkassann við vinnu á bæn-
um Miðhrauni um klukkan eitt
eftir hádegi. Samkvæmt skýrsl-
um sátu nokkrir úr áhöfn þyrl-
unnar fastir í umferð nálægt
Valsheimilinu og töfðust tals-
vert.
Neyðarlínunni barst hringing
klukkan 13.15 og fyrsta útkall
barst Landhelgisgæslunni
klukkan 13.35 og fór þá af stað
útkallsrannsókn. Tuttugu mín-
útum síðar bárust Landhelgis-
gæslunni frekari upplýsingar
um líðan mannsins og klukkan
14.27 tók TF SIF á loft frá
Reykjavíkurflugvelli. TF SIF
lenti svo í Reykjavík um hálf-
fjögur.
Kvartað um seinagang
Maðurinn er ekki talinn í lífs-
hættu, en hann brotnaði á þrem-
ur hryggjarliðum. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins
kvörtuðu vinnufélagar manns-
ins yfir því hversu langan tíma
tók að fá lækni á staðinn. Fyrst
hafi komið tveir lögreglubílar og
síðan sjúkrabíll en enginn lækn-
ir hafi komið fyrr en um klukku-
tíma eftir að slysið var tilkynnt.
Töfðust
í umferð
á leið í
útkall
nú fyrir nokkrum vikum um sam-
starf milli landanna og Clarkson
spurðist fyrir um það. Hydro
Manitoba eða „Landsvirkjunin“ í
Manitoba, er t.d. miklu stærri en
Landsvirkjun hér heima og rekur
sextán vatnsaflsvirkjanir. Kanada-
menn standa vel að vígi og fram-
leiða mikla vatnsorku og flytja
hana jafnvel suður yfir landamær-
in. Þeir vilja nota enn meira af
endurnýjanlegum orkulindum
enda eru endurnýjanlegar orku-
lindir eitt höfuðstefið í opinberri
SEGJA má að landstjóri Kanada,
Adrienne Clarkson, hafi ferðast
úr fortíð í framtíð í heimsókn
sinni í Þjóðmenningarhúsið um
helgina; fyrst skoðaði hún hand-
ritasýninguna en að loknum
hringborðsumræðum um orkumál
ók hún síðan á brott í vetnisstræt-
isvagni – knúðum kanadískum
efnarafal.
„Við förum yfirleitt með er-
lenda gesti í Þjóðmenningarhúsið
og sýnum þeim handrit en það er
dálítið skemmtilegt að þetta er
líklega í fyrsta sinn sem orkumál
komast á blað sem þjóðmenning,“
segir Þorsteinn I. Sigfússon,
stjórnarformaður Nýorku, sem
stjórnaði hringborðsumræðunum.
Kanadískt hjarta
í vetnisvögnunum
Efnarafalarnir í strætisvagn-
inum, sem Clarkson ók í, eru
framleiddir af fyrirtækinu Ballard
sem er með höfuðstöðvar í Van-
couver á vesturströnd Kanada.
Þorsteinn segir að allir efnaraf-
alarnir í þeirri línu af strætis-
vögnum sem eigi að aka í tíu
borgum Evrópu séu framleiddir af
Ballard og ekki að undra að Kan-
adamenn séu nokkuð stoltir enda
megi segja að rafallinn sé hjartað
í vetnisstrætisvögnunum. „Það er
raunar mikil vatnsorka í Quebec
og Manitoba og iðnaðarráðuneytið
gerði samning við Manitoba-fylki
heimsókn landstjóra Kanada hing-
að,“ segir Þorsteinn.
Adrienne Clarkson og föruneyti
verða í dag á Akureyri og kynna
sér starf stofnunar Vilhjálms Stef-
ánssonar. Flytur landstjórinn
minningarfyrirlestur þar, þiggur
hádegisverð í boði menntamála-
ráðherra, Tómasar Inga Olrich og
sækir sameiginlega kynningu Út-
gerðarfélags Akureyringa og
Samherja í höfuðstöðvum ÚA. Á
morgun verður farið í Skagafjörð
og Mývatnssveit.
Úr fornum handritum
í vetnisstrætisvagn
Morgunblaðið/Sverrir
Landstjóri Kanada leggur af stað í ökuferð með vetnisstrætisvagninum.