Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 28
DAGBÓK 28 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: í dag eru væntanleg Freri RE og Goðafoss. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag er Selfoss vænt- anlegur til Straums- víkur. Mannamót Aflagrandi 40. Vinnu- stofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10, kl. 14 fé- lagsvist, hársnyrting, fótaaðgerð. Leikhúsferð í Loft- kastalann 16. okt. kl. 20.30 að sjá hið rómaða verk Erling. Pantanir og miðasala í Afla- granda 40, sími 562- 2571. Rúta fer frá Afla- granda kl. 19.45. Ath. takmarkaður miða- fjöldi. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 10 söngstund, kl. 13–16.30 smíðar, útskurður, kl. 13–16.30 handavinna, kl. 13.30 félagsvist kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–16 handavinna, kl. 9– 12 bútasaumur, kl. 9– 17 fótaaðgerð, kl. 10– 11, samverustund, kl. 13.30–14. 30 söngur við píanóið, kl. 13–16 búta- saumur. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fótaaðgerð kl. 10. Skrifstofan er opin í dag kl. 10–11.30. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Farið verður í Borgarleikhúsið 18. okt. að sjá Kvetch kl. 20. Skráning í síma 565 6622 og á skrif- stofu félagsstarfsins í Kirkjuhvoli. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 10 leikfimi, kl. 13 brids, kl. 9–16.30 púttvöllurinn opinn. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin, kl. 10–13 verslunin opin, kl. 11–11.30 leikfimi. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Bað kl. 9– 12, opin vinnustofa, kl. 9–16.30, félagsvist kl. 13.30, kl. 9–12 hár- greiðsla. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Kl. 9 dagblöðin, rabb og kaffi. Pútt í Hraunseli kl. 10–11.30. Billj- ardsalurinn opinn til kl. 16. Kóræfing Gafl- arakórsins kl. 10.30. Tréútskurður kl. 13 og félagsvist kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Brids kl. 13, handmennt, spjall og kaffi kl. 13.30. Línu- danskennsla fyrir byrj- endur kl. 18. Dans- kennsla í samkvæmisdönsum framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. Kennari Sigvaldi. Félagsstarf eldri borg- ara Mosfellssveit. Línudans kl. 17.30. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Sími 575 7720. Vinnustofur opnar kl. 9–16.30. Spilasalur frá hádegi. Kl. 15.15 danskennsla. Á morgun kl. 13 boccia. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handavinna, kl. 9.30 gler og postu- lín, kl. 13 skák, kl. 20 skapandi skrif. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 og kl. 9.55 leikfimi, kl. 10 ganga, kl. 11 boccia, kl. 13 leirmótun og brids, kl. 20.30 fé- lagsvist. Hraunbær 105. Kl. 9 postulín, keramik og fótaaðgerð, kl. 10 bænastund, kl. 13.30 sögustund og spjall, kl. 13 hárgreiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–15 handmennt, kl. 9– 10 og kl. 10–11 jóga, kl. 13–16 spilað. Fótaað- gerðir. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun kl. 10 sund- leikfimi í Grafarvogs- laug. Norðurbrún 1. kl. 9–16 fótaaðgerð, kl. 10–11 ganga, kl. 13–16.45 op- in vinnustofa, mynd- list. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9–10 boccia, kl. 9–12 mósaik, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 9.30–10.30 boccia, kl. 11–12 leik- fimi, kl. 12.15–13.15 danskennsla, kl. 13–16 kóræfing. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband, búta- saumur og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og boccia, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla og spilað. Félag eldri borgara Suðurnesjum. Bingó í Selinu Vallarbraut 4, Njarðvík öll mánu- dagskvöld kl. 20. Gullsmárabrids. Bridsdeild FEBK Gull- smára spilar í félags- heimilinu, Gullsmára 13 mánu- og fimmtu- daga. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Brids kl. 19. Í dag er mánudagur 13. október, 286. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma. (Mark. 10,15).     Ögmundur Jónassonfær greinilega tölu- vert af lesendabréfum vegna heimasíðu sinnar, ogmundur.is.     Þingmaðurinn segir:„Ef dæma skal af þeim lesendabréfum sem mér hafa borist í dag þá er fólki heitt í hamsi út af framkomu Impregilo og samstarfsaðila við verka- menn á Kárahnjúkum. Fólk veltir greinilega fyr- ir sér þýðingu Róm- argöngu Halldórs Ás- grímssonar utanríkisráðherra.     Ljósmóðir spyr hvorthann sé að feta í spor fyrri tíðar manna og leita eftir syndaaflausn og Ól- ína veltir fyrir sér hvort ímynd Impregilo sé til umræðu í Róm enda hafi utanríkisráðherranum ís- lenska ætíð verið mjög annt um hana.     Ólína segir m.a.: „Núgeta menn velt því fyrir sér hvort utanrík- isráðherrarnir hafi verið að ræða statusinn á skó- taui og nærskyrtum portúgalskra verka- manna í smæstu atriðum suður í Róm og hvort virðulegir embættismenn utanríkisþjónustu geti haldið uppi samræðum um svo hversdagslega nytjahluti.     Líklegra þykir mér aðokkar maður hafi í Róm lýst áhyggjum sínum af ímynd ítalska verk- takafyrirtækisins …“ Ég þakka þessum kjarnyrtu konum, Ólínu og ljós- móður, fyrir hugleiðing- arnar.     Eitt fannst mér gott aðheyra í fréttum í kvöld: Ekki aðeins á að senda 300 ullarsokka upp á hálendið heldur stendur einnig til að logsuðumenn fái hlífðargleraugu til nota við logsuðuna! Þetta er sérstaklega þakk- arvert og ég velti því fyr- ir mér hvernig þessi ákvörðun er tilkomin.     Varla var þetta uppá-stunga frá lög- fræðideild Impregíló? Það skyldi þó aldrei vera? Í fréttum fyrir fáeinum dögum var sagt að von væri á lögfræðingum frá Mílanó. Sannast sagna hélt ég að þeirra við- fangsefni væri að ná kostnaðinum niður.     En þegar málið ergaumgæft betur þá skipta nokkur logsuð- ugleraugu litlu í sam- anburði við hin „ófyrir- séðu“ útgjöld sem kveðið er á um í samningum að verkkaupinn þurfi að greiða ef til þeirra stof- nast. Það þarf oft á tíðum löglærða menn til að koma auga á slík útgjöld. Mér er sagt að lögfræð- ingar í Mílanó séu einmitt miklir fagmenn í því efni,“ segir Ögmundur Jónasson. STAKSTEINAR Ullarsokkar og hlífðargleraugu Víkverji skrifar... ALDREI hefur Víkverji taliðsig neinn sérstakan femínista, og hefur meira að segja stundum sætt ákúrum – sem betur fer oft- ast góðlátlegum – fyrir meinta karlrembu. Sem hann vill þó alls ekki kannast við. En Víkverji er þó að minnsta kosti sammála ein- um femínista um eitt. Að það er of algengt að á almenningssal- ernum fyrir karlmenn séu engin skiptiborð, eins og ekki þurfi að reikna með að feður taki upp á því að skipta um bleiu á börnum sínum. Víkverji minnist þess að hafa heyrt yfirlýstan femínista kvarta undan einmitt þessu í sjónvarpsþætti í sumar, og er Víkverji að fenginni reynslu inni- lega sammála þessum femínista um þetta. Þannig ætlaði Víkverji í síðustu viku að skipta á dóttur sinni er þau feðginin voru á ferð í Kringl- unni. En viti menn, aðstaða til að skipta á börnum er inni á kvenna- salerninu, en á karlasalerninu er engin slík aðstaða. Málið þoldi enga bið, því að dóttir Víkverja var farin að tilkynna ítrekað um „kúk“. Ekki var því um annað að ræða en grípa til örþrifaráða og fann Víkverji einhverja hillu inni á salerni fyrir fatlaða og notaði sem skiptiborð, en reyndar var dóttir hans alls ekki sátt við þessa hillu, sem var enda ekki annað en kalt plast. Víkverji vill taka fram, að í Smáralind eru þessi mál með mikl- um sóma, og þar er gert ráð fyrir að feður skipti á börnum sínum. Er Kringlan virkilega svona gömul verslunarmiðstöð að hún hafi verið hönnuð og smíðuð á þeim tímum er ekki þótti við hæfi að feður væru að vasast í bleiuskiptum? Það er mjög langt síðan sú hugsun varð úrelt. Það sama var uppi á teningnum í sumar þegar Víkverji fór með fjölskyldunni í sund í Hafnarfirði. Í karlaklefanum var hvergi sýni- legt skiptiborð, og eru það þó ekki sérlega fyrirferðarmikil tæki og ætti varla að vera stórmál að hafa að minnsta kosti eitt. Þarna eru Hafnfirðingarnir eftirbátar Reyk- víkinga, því að í karlaklefanum í Árbæjarlaug, sem Víkverji fer oft í, enda sérlega fjölskylduvæn laug, eru þessi mál til fyrirmyndar. x x x Í ÖÐRU efni hafa Reykvíking-arnir þó klikkað alveg, að mati Víkverja. Hann botnar ekkert í því hvernig nýju beygjuljósin á mót- um Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar eiginlega eru hugs- uð. Þar er enn við lýði sá ósiður að fjöldi bíla fer yfir á rauðu og skap- ar mikla slysahættu. Eða eru það kannski sér-reykvísk umferðarlög að heimilt sé að fara yfir á rauðu? Morgunblaðið/Arnaldur Hjólahindranir og völundarhús NORÐURLJÓSIN tindr- uðu fagurlega – þegar mér, hamingjusamri hjólreiða- konu um fimmtugt, lá við stórslysi á venjubundinni leiðinni til næturvaktarinn- ar, vestur Miklubrautina. Átti atburðurinn sér stað við gatnamót Kringlumýr- arbrautar, í einu hinu ný- reista fyrir gangandi og hjólandi ætlað, völundar- húsi; sjálfsagt hannað af fræðingum og snillingum. Var það eflaust vegna sæmilegrar þyngdar minn- ar og staðfastra vernd- arengla, sem flugið við áreksturinn á sterklega steinkantsrönd varð ekkert sérstakt og enginn heila- hristingurinn, en framhjól farartækisins er ekki leng- ur algjörlega kringlótt, sem leiðir af sér vissan hjóla- hristing, sem hjólinu væri hollara að vera án. Til að gera yfirferðina ennþá skemmtilegri er okk- ur þar að auki boðið til auka útsýnisstundar á miðri um- ferðareyjunni, vegna ljós- anna, en sjálfsagt líka til að við í eiturgasmenguninni getum notið þess að dást að blikkbeljum og -tuddum áð- ur en haldið er áfram áleið- is á hindrunarbrautina milli Stakkahlíðar og Eskihlíðar. Þar telja fyrirmyndar bíl- stjórar, einhverra hluta vegna, alveg öruggt að gang-hjólabrautin fína sé einkabílastæði þeirra. Segið svo að það sé ekki spennandi og mannfræði- lega forvitnilegt að vera bíl- frjáls á strætum Reykja- víkurborgar. Hamingjusöm hjólreiðakona. Stálsmiðjan – þakkir VIÐ óskum forsvarsmönn- um Stálsmiðjunnar inni- lega til hamingju með stórt afmæli fyrirtækisins. Um leið þökkum við fyrir ynd- islegt kvöld hjá ykkur sem var alveg sérstakt, flott og skemmtilegt. Það er alltaf jafn gaman að koma í gleð- skap hjá ykkur. Við óskum ykkur öllum góðs gengis á komandi tímum. Örn og frú. Dónaskapur ÉG og maðurinn minn vor- um fyrir stuttu að koma frá Ármúla og ætluðum að taka strætó nr. 11 hjá Esjunni. Á biðstöðinni beið stúlka sem ég spurði hvort vagninn hefði farið framhjá. Hún hristi höfuðið en gengur svo í burtu og hrækir í gluggann á skýlinu. Við vorum undrandi, ég og maðurinn minn. Finnst þetta ógeðslegt og mikill dónaskapur að hrækja svona að fólki. Rúna. Skyldur og réttindi sambúðaraðila? ÉG vil koma þeirri skoðun minni á framfæri að gefinn verði út bæklingur til al- mennings um hjónaband, sambúð og réttindi og skyldu. Finnst vanta að hægt sé að ganga að svona upplýsingum á einum stað. Ég er búin að hringja á nokkra staði til að fá upp- lýsingar um þessi málefni en það virðist engin stofnun vera með leiðbeiningar eða upplýsingar um þennan málaflokk. Svona upplýsingar eiga að vera aðgengilegar fyrir fólk til að kynna sér í upp- hafi sambúðar eða hjóna- bands. Fólk þarf að vita hvar það stendur, hvort sem það er íslenskt eða er- lent. Óupplýst eldri kona. Tapað/fundið Armbandskeðja í óskilum ARMBANDSKEÐJA, karlmanns, fannst við Tjarnargötuna í byrjun október. Upplýsingar í síma 551-0949. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 þvættingur, 8 lífsand- inn, 9 varkár, 10 tölustaf- ur, 11 ómerkileg mann- eskja, 13 stækja, 15 hringiðu, 18 fín klæði, 21 rangl, 22 óþokki, 23 al- gerlega, 24 afreksverk. LÓÐRÉTT 2 broddur, 3 streymi, 4 úlfynja, 5 rúlluðum, 6 barsmíð, 7 venda, 12 strit, 14 tré, 15 áll, 16 klaufdýr, 17 hrekk, 18 vitri, 19 viðburður, 20 ættgöfgi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 bjúga, 4 fælin, 7 tolla, 8 ískur, 9 lóð, 11 rita, 13 orga, 14 gátur, 15 beta, 17 fold, 20 ána, 22 ræmur, 23 fimma, 24 torfa, 25 rimma. Lóðrétt: 1 bútur, 2 útlát, 3 aðal, 4 fríð, 5 lýkur, 6 norpa, 10 óttan, 12 aga, 13 orf, 15 burst, 16 tímir, 18 ormur, 19 draga, 20 árna, 21 afar. Krossgáta Horft á heiminn úr fangi pabba. Morgunblaðið/Ásdís 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.