Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ KRINGLAN Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 8 og 10.20. B.i. 10 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6 og 10. B.i. 16. Topphasarmyndin í USA í dag. Fór beint ítoppstætið í USA þrælmögnuð yfirnáttúruleg spennumynd sem hefur slegið rækilega í gegn. KVIKMYNDIR.IS ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16. Sýnd kl. 10. B.i. 16. Sýnd kl. 8. THE MAGDALENE SISTERS Skonrok Fm 90.9 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 12. Sýnd kl. 6 .  HP KVIKMYNDIR.COM SV MBL HK.DV KVIKMYNDIR.IS Kl. 5.45. B.i. 14. H.K. DV Kl. 10. B.i. 10. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16. CATE BLANCHETT Rafmögnuð spenna frá byrjun til enda. Breskur spennutryll- ir sem kem- ur stöðugt á óvart. Frá framleið- andanum Jerry Bruckheimer og leikstjóran- um Joel Schumacher Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 14. Magnaði spennutryllir sem byggður er á sönnum atburðum. Sýnd kl. 8. Radio X SV MBL SG MBL SG DV Mögnuð heimildarmynd frá leikstjórunum Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu atti kappi við Þjóðverja á AOL-leikvanginum í Hamborg síðastliðinn laugardag. Ríflega 2.500 Íslendingar lögðu leið sína til Ham- borgar til þess að styðja við bakið á sínum mönnum. Stór hluti stuðningsmannanna safnaðist saman í nálægum garði fyrir leikinn þar sem grillaðar voru pylsur og kneyfaður mjöður. Þar voru til sölu ýmsir minjagripir tengdir landsliðinu og boðið var upp á andlitsmálun. Myndaðist í garðinum mikil stemning meðal íslensku stuðningsmannanna og héldu þeir, eftir grillveisluna, í skrúðgöngu að leikvang- inum. Á leiknum létu Íslendingarnir vel í sér heyra og yfirgnæfðu á köflum áhangendur þýska liðsins, sem voru í miklum meirihluta. Leikurinn endaði 3-0, Þjóðverjum í vil, en það var ekki að sjá að áhangendur íslenska liðsins væru niðurdregnir þrátt fyrir tap. Eftir leik- inn var slegið upp dansleik í húsi sem er ná- lægt leikvanginum. Hljómsveit Jóns Ólafs- sonar lék þar fyrir dansi ásamt söngvaranum Stefáni Hilmarssyni. Húsfyllir var á þessum dansleik og skemmti fólk sér með besta móti fram á rauða nótt. Rúmlega 30 manns voru samankomnir á Goethe-stofnuninni á Íslandi, gagngert til þess að fylgjast með leiknum. Þýskukenn- arar við Háskóla Íslands stóðu að þeirri uppákomu í samráði við Goethe-stofnunina. Carsten Thomas, einn af skipuleggjend- unum, var ánægður með það hvernig til tókst. „Ég var ánægður með úrslit leiksins og stemninguna hér á meðan á leik stóð.“ Carsten var þó ekki eins ánægður með þá staðreynd að Íslendingar komust ekki áfram í keppninni því hann hefði viljað sjá þjóð- irnar mætast aftur. Skemmtu sér konunglega þrátt fyrir tap Björn Jónsson og Hjálmar Örn Jóhannsson sveipuðu sig ís- lenska fánanum á dansleiknum eftir leikinn. Bjarni Th. Bjarnason, Sigurjón Arnarson, Jónas Gunnarsson og Iðunn Jónsdóttir undu sér vel í grillveislunni fyrir leikinn. Þórður Reynisson, Gunnar Hall, Jóhann Austin og Þórólfur Jónsson ætluðu að láta heyra í sér á áhorfendapöllunum. Víða mátti sjá íslenska fánanum bregða fyrir í áhorfendastúkum á vellinum. Morgunblaðið/Einar Falur Þjóðverjar fögnuðu innilega á Goethe-stofn- uninni. Stefán Hilmarsson söng þekkt dægurlög með Hljómsveit Jóns Ólafssonar, klæddur í landsliðstreyju, áritaðri af leikmönnum íslenska landsliðsins. Stuðningsmenn landsliðsins létu ekki sitt eftir liggja á dansgólfinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.