Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú þangað í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Í október er yndislegt veður í Prag enda vinsælasti tími ferða- manna til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag, frábærir veitinga- og skemmtistaðir. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 39.950 Flug og hótel í 4 nætur, helgarferð 23. okt. M.v. 2 í herbergi á Corinthia Towers 5 stjörnu hótel. Flugvallaskattar innifaldir. Sértilboð á glæsilegu 5 stjörnu hóteli, Hotel Corinthia Towers ***** Verð kr. 29.950 Flugsæti til Prag, 23. okt. Helgarferð til Prag 23. okt. frá kr. 29.950 ÞORSKSTOFNAR við strendur Kanada hafa hrunið síðasta ára- tuginn í kjölfar breyttra aðstæðna í umhverfinu og ofveiða og er ekkert veitt úr þessum stofnum í dag. Veiðibannið hefur leitt til þess að 40.000 manns hafa misst atvinnuna og þrátt fyrir friðun þorsksins und- anfarin ár virðast stofnarnir í erf- iðleikum með að rétta úr kútnum. Þetta kom m.a. fram í erindi Jean Boulva, forstjóra hafrannsókna- stofnunarinnar í Mont-Joli í Queb- ec í Kanada, í hringborðsumræð- um sem haldnar voru í tengslum við heimsókn landstjóra Kanada og forseta Íslands á Hafrannsókna- stofnun. Vísindamenn, stjórnmálamenn og fiskimenn leita nú leiða til að bregðast við þeim vanda sem fylgir hruni þorskstofna í Kanada og sagði Jean Boulva í samtali við Morgunblaðið að til þess að gera fiskistofnana arðbæra væri ekki eingöngu hægt að horfa til fisk- veiðanna sjálfra heldur yrði að líta á vistkerfið í heild sinni. „Við þurfum t.d. að huga að því að valda minni skemmdum á hafs- botninum þegar við stundum veið- arnar. Það þýðir að breyta þarf veiðitækninni smám saman og fisk- veiðarnar verða að ná að aðlagast breyttum áherslum, m.a. með því að hanna nýjan búnað til veiðanna. Við getum ekki haldið áfram að skemma hafsbotninn sem er und- irstaða í fæðumyndun fiskistofna.“ Hætta þarf ef stofnar fara niður að ákveðnu marki Að sögn Boulva er á sama tíma verið að vinna að því að setja upp varúðarráðstafanir til að vernda þá fiskistofna sem nú eru í hafinu og segir hann mikilvægt að unnið sé að því að ákvarða smám saman fyr- ir hvern fiskistofn hvenær hann kemst niður að því marki að hætta þurfi veiðum sjálfkrafa. „Pólitísk ákvarðanataka ætti ekki að koma þar að, þetta ætti nánast að gerast sjálfkrafa. Í for- tíðinni hafa stjórnmálamenn jafn- an gefið leyfi til að veiða meira en æskilegt var talið til þess að fólk héldi áfram störfum við veiðar og vinnslu á fiski en við viljum að hægt og rólega verði sett upp kerfi sem miðar að sjálfvirkri stöðvun fiskveiða ef stofninn fer niður í ákveðið mark. Þetta er sú hug- myndafræði sem við erum að reyna að innleiða en við verðum að uppfræða sjómenn og fá þá til að vinna með okkur. Slíkar ráðstafan- ir kalla á erfiðari tíð eins og nú þeg- ar við verðum að hætta veiðum á mikilvægum þorskstofnum en sjó- menn vita að þetta snertir þeirra framtíð og ef stofnarnir hverfa verður fiskveiðum sjálfhætt,“ segir Boulva. Vöðuselir éta ríflega 7 millj- ónir tonna af fiski árlega Þá segir Boulva að ofan á þessar breytingar í umhverfi sjávarins bætis við afar stór stofn vöðusela, sem éta meira en 7 milljónir tonna af fiskmeti við Kanada á ári hverju. „En kanadískir fiskimenn veiða ár- lega um 1,3 milljónir tonna þegar vel árar. Það þýðir að selirnir éta fimmfalt meira en fiskimennirnir veiða og þetta er bara ein tegund sela. Síðan eru þarna hvalir eins og hrefnur, steypireyðar og langreyð- ar sem setja mikinn aukaþrýsting á afrakstursgetu fiskstofna.“ Boulva segir að rekja megi hrun fiskistofnanna til ýmissa þátta, m.a. umhverfisþátta, en það sé al- menn skoðun meðal sérfræðinga að ofveiðar hafi þar haft afgerandi áhrif. Hann segir að ofveiði hafi verið mikil á árunum frá 1950 fram á miðjan sjöunda áratuginn, en eft- ir að landhelgin var færð út árið 1977 hafi stofnarnir byrjað að rétta úr sér í kjölfar fiskveiðistjórnunar og markvissra aðgerða til að draga úr ofveiði, en óvíst sé hversu mikil áhrif umhverfisþættir höfðu á upp- gang stofnanna. Við lok níunda áratugarins var hins vegar orðið ljóst að stofnarnir stóðu ýmist í stað eða minnkuðu á ný og fljótlega eftir 1990 kom í ljós að stofnarnir höfðu hrunið niður. Þrátt fyrir ít- arlegar rannsóknir hefur engin ein ástæða fundist fyrir þessu hruni, þó svo að margir sérfræðingar telji að ofveiðar hafi skipt þar höfuð- máli, að sögn Boulva. Árið 1994 voru veiðar bannaðar á átta kanadískum þorskstofnum sem orsakaði það að 40.000 manns misstu vinnuna. Hins vegar voru margir bjartsýnir á að friðun myndi draga úr hruni stofnanna og að þeir myndu vaxa á ný. Þegar leið að lokum tíunda áratugarins kom þó í ljós að stofnarnir voru ekki að vaxa, en engu að síður var vaxandi þrýstingur frá fiskveiði- bæjum um að hefja þorskveiðar á ný. Það leiddi til þess leyfðar voru takmarkaðar veiðar úr mörgum þessara stofna. Veiðar á skelfiski skapa 70% af verðmæti landaðs afla Að sögn Boulva eru fiskveiðarn- ar þó enn arðbærar því fiskimenn hafa talsverðar tekjur af veiðum á öðrum tegundum. „Þorskurinn át mikið af snjókrabba og rækju og þegar minna er af þorski vaxa þessir stofnar. Nú hefur orðið sprenging í rækjuveiðum og mun meira veiðist af snjókrabba, sem er mjög verðmætur á japanska mark- aðnum. Í dag kemur 70% af verð- mæti þess afla sem landað er frá veiðum á rækju, snjókrabba og humri, þannig að þetta eru mjög mikilvægar veiðar.“ En þótt margir fiskimenn geri það gott á veiðum á þessum teg- undum hefur ástandið verið mjög erfitt hjá sjómönnum í norðurhluta Nýfundnalands og við strendur Labrador, sem búa á stöðum sem eru einangraðir og umhverfið harðbýlt og hafa þeir þúsundum saman þurft að flytja sig á milli staða eða snúa sér að öðrum at- vinnugreinum. „Þannig hefur fiski- mönnum fækkað en það gefur möguleika á að gera veiðarnar fag- legri og fjölbreyttari. Menn geta þá einbeitt sér að veiðum á þeim stofnum og tegundum eingöngu sem gefa góðan arð. Það þýðir auð- vitað að menn þurfa að fjárfesta í meiri búnaði til þess að geta t.d. veitt til skiptis þorsk og krabba, en til lengri tíma litið gefur það betri möguleika á arðbærum veiðum. Þetta eru m.a. hugmyndir sem við erum að huga að til framtíðar, auk þess sem rannsóknir á umhverfinu og samspili umhverfisþátta skipta þar miklu máli,“ segir Boulva. Forstjóri hafrannsóknastofnunarinnar í Kanada segir brýnt að leita nýrra leiða við stjórn fiskveiða Þorskurinn enn í lægð eft- ir mikið hrun Morgunblaðið/Sverrir Jóhann Sigurjónsson og Jean Boulva ræddu um nýtingu þorskstofna og vísindalega stjórn fiskveiða við Ísland og Kanada. JÓHANN Sigurjónsson, forstjóri Hafrann- sóknastofnunar, segir mikilvægt fyrir ís- lenska vísindamenn að efla tengslin við rannsóknaraðila í Kanada, þar hafi menn mikla sérfræðiþekkingu og hafi stundað afar umfangsmiklar rannsóknir á þorsk- stofnum. „Síðan hafa þeir gengið í gegn- um mjög alvarlega þróun þar sem fisk- stofnarnir hafa hrunið og eru ennþá í algerri lægð. Menn tengja þetta miklum umhverfisbreytingum en auðvitað er öll- um ljóst að það var líka veitt alltof mikið, það var of þung sókn, og þetta saman virð- ist hafa virkað í þá veru að stofnarnir hrundu og eiga greinilega gríðarlega erf- itt uppdráttar, sem er ennþá alvarlegra,“ segir Jóhann. Hann segir að Íslendingar eigi við svip- aðan vanda að glíma að ýmsu leyti, m.a. sé umhverfið hér að breytast til og frá og jafnframt sé ljóst að líklega hafi Íslend- ingar sótt í fiskistofnana hér við land með of miklum þunga. „Við eigum auðvitað að horfa til Kan- ada og þeirra reynslu, því þetta er auðvit- að grafalvarlegt mál og við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að forðast að lenda í sömu aðstæðum, því það yrði mikil skelfing. Margt hefur þó verið til eftirbreytni hér á landi og ánægjulegt að starfsbræður okkar í vestri líti til reynslu og þekkingar okkar í þessum efn- um,“ segir Jóhann. Varðandi það hvort Íslendingar eigi við svipaðan vanda að etja og fiskiát sela og hvala sé í Kanada, segir Jóhann að stofnar sela hér við land séu ekki í líkingu við vöðuseli í Kanada en engu að síður þurfi að taka tillit til þess hve mikið af fiski sjávarspendýr éti hér við land. „Við erum auðvitað ekki að glíma við jafnstóra selastofna en við horfum til hvalastofnanna, sem jafnvel nokkrir eru í vexti, og teljum mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því hversu mikil áhrif þeir hafa á afrakstursgetu fiskstofnanna. Það hefur verið áætlað að vöxtur hvala- stofna úr kannski 80–90% af upprunalegri stofnstærð í 100%, gæti minnkað afrakst- ursgetu þorskstofnsins um 10–20%. Þetta eru auðvitað langt frá því að vera ná- kvæmar niðurstöður, en byggjast þó á reiknilíkönum þar sem allir þessir þættir eru vegnir saman. Það er ljóst að ef þessir stóru hvalastofnar stækka mikið þá munu þeir hafa umtalsverð áhrif, það er ekki hægt að horfa fram hjá því,“ segir Jóhann. Getum lært mikið af reynslu Kanadamanna ARI Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), segir vera fulla samstöða um það á ís- lenskum vinnumarkaði að það eigi ekki að líða nein undanbrögð frá því að kjarasamningar séu virtir. Greint var frá því í Morgun- blaðinu í gær að meira en helmingur norskra fyrirtækja í verkstæðis- og byggingariðnaði hefði fengið tilboð um ódýrt erlent vinnuafl og sagði framkvæmdastjóri Starfsgreina- sambandsins að ýmis verktakafyr- irtæki fylgdust vel með þróun mála við Kárahnjúka og þá með það í huga að nýta sér „ódýrt“ erlent vinnuafl ef hægt yrði að komast upp með það. „Þau réttindi sem kjarasamning- ar skapa og aðrar reglur svo sem um lágmarkslaun, vinnutíma og annað eiga við um alla sem hérna starfa, hvaða sem þeir koma,“ segir Ari Ed- wald. „Það er að sjálfsögðu lögbrot ef undan því er vikist hér eins og að ég hygg í Noregi líka. Ég geri fast- lega ráð fyrir að þau dæmi sem menn nefna frá Noregi séu lögbrot þar eins og þau myndu vera hér. Það er hagsmunamál fyrirtækjanna að það sé gengið eftir því að það fari allir að sömu reglum.“ Sveinn Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, segir inn- lend verktakafyrirtæki mega og geta flutt inn vinnuafl frá Evrópska efnahagssvæðinu. „En þau eru bundin af íslenskum kjarasamning- um og þeir sem hingað koma erlend- is frá eru undir sömu reglur settir. Við erum á því að gerðir samningar eigi að gilda og viljum ekki gefa nokkurn afslátt af því,“ segir hann. Sveinn segir það hluta af verk- samningi við útboð að fara skuli eftir íslenskum kjarasamningum. „Hvað Kárahnjúka varðar er það partur af verksamningi, að sá sem fær verkið á annaðhvort að vera aðili að Sam- tökum atvinnulífsins eða með samn- ing við SA, sem er annar viðsemj- andinn. Það er þeirra og verkalýðsfélaganna að sjá um að farið sé eftir samningum sem gert hefur verið með samráðsnefnd. Ég lít svo á að sú skylda liggi á samn- ingsaðilum báðum megin að fylgja því eftir að farið sé eftir samningum sem þeir hafa gert.“ Sveinn segir aðspurður hvort starfsmenn þurfi að leita til dóm- stóla ef kaup og kjör reynist ekki samkvæmt kjarasamningum sem hér hafa verið gerðir: „Það er ekki fyrr en upp kemur ágreiningur milli [samningsaðila] um hvort sé farið eftir [samningnum] og hvernig eigi að túlka hann, þá fyrst gæti málið farið fyrir dómstóla.“ Kristján Bragason, fráfarandi framkvæmdastjóri Starfsgreina- sambandsins (SGS), segir verktaka- fyrirtæki fylgjast með framvindunni við Kárahnjúka. Verktakafyrirtækin horfa í kringum sig „Þeir horfa á það sem þarna er að gerast og spyrja sem svo, ef Impregilo kemst upp með þetta framferði, hvers vegna ekki íslensk fyrirtæki líka? Þeir horfa á þetta út frá sínum eigin hagsmunum og þessar aðstæður við Kárahnjúka eru tvímælalaust fordæmisgefandi. Við höfum heyrt þetta utan að okkur í spjalli við forsvarsmenn fyrirtækja. Ég vil ekki benda á einstök fyrir- tæki en verktakafyrirtæki á Íslandi horfa að sjálfsögðu í kringum sig. Sum þeirra eru með starfsemi er- lendis og hafa séð það sama gerast þar. Þetta er bara hluti af alþjóð- legri þróun sem við búum við. Ef verkalýðshreyfingin og stjórnvöld sporna ekki gegn henni, mun hún brjóta niður það lagaumhverfi sem við búum við í dag,“ segir Kristján Bragason. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Full samstaða um að samningar séu virtir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.