Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 12
ERLENT
12 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Til bókaútgefenda:
BÓKATÍÐINDI 2003
Skilafrestur vegna kynningar og
auglýsinga í Bókatíðindum 2003
er til 15. október nk.
Ritinu verður sem fyrr dreift
á öll heimili á Íslandi
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Barónsstíg 5, sími 511 8020.
————————————— —————————————
Frestur til að leggja fram
bækur vegna Íslensku
bókmenntaverðlaunanna 2003
er til 30. október nk.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
!" !#$!%
&' ( !# !#$!%
)
!* !#$!%
+ !, !#$!%
-
!. !#$!%
/
(
01 '
!
" " #$ % $
& % ' " "
(
" " )
*
! +
,
-
"
" "
!)
!
.
)
"
$ / 0
AÐ minnsta sex manns týndu lífi og
tugur manna eða jafnvel nokkrir
tugir slösuðust í sjálfsmorðsárás í
Bagdad í gær. Var bíll sprengdur í
loft upp við Bagdad-hótelið en það
er aðsetur CIA, bandarísku leyni-
þjónustunnar, í Írak, sumra banda-
rískra verktaka í landinu og einnig
nokkurra meðlima Íraska fram-
kvæmdaráðsins.
Tala látinna var nokkuð á reiki
en talsmaður bandaríska hersins
sagði, að sex hefðu farist og tíu
slasast. Læknar á nálægu sjúkra-
húsi sögðu hins vegar, að þangað
hefði verið komið með 38 menn
slasaða. Sagt er, að hinir látnu séu
allir Írakar en sprengingin varð
engum að bana inni í hótelinu.
Haft er eftir vitnum, að reynt
hafi verið að koma bílnum framhjá
varðstöð en þá hafi íraskur lög-
reglumaður skotið á hann. Hafi bíll-
inn þá verið sprengdur upp en þá
átti hann eftir nokkra tugi metra að
sjálfu hótelinu. Á árásin sér stað
aðeins fjórum dögum eftir líka árás
á lögreglustöð í Sadr-borg, fá-
tækrahverfi í Bagdad, en hún varð
að minnsta kosti tíu mönnum að
bana.
Eftir írösku lögreglunni var haft,
að bílarnir hefðu verið tveir og
hefði ökumanni annars þeirra tekist
að komast alveg að hótelinu. Vitni
töluðu þó aðeins um einn bíl og talið
er, að misskilningurinn stafi af því,
að annar bíll hafi orðið alelda og
sprungið eftir að bíll árásarmanns-
ins sprakk.
Ekki líkur Íraka
Eitt vitnanna, Sabah Ghulam,
sem var í bíl skammt frá, kvaðst
hafa séð árásarmanninn undir stýri
á bílnum, Toyota Corolla, árgerð
1990, og hefði hann verið ljós á hör-
und og ekki líkur Íraka.
Sprengingin var mjög öflug og
olli nokkrum skemmdum á Bagdad-
hótelinu og einnig á nokkrum bygg-
ingum í kring.
Bandaríkjastjórn og Paul Brem-
er, ráðsmaður Bandaríkjamanna í
Írak, fordæmdu árásina í gær og
sögðu, að hryðjuverkamönnum
myndi ekki takast að koma í veg
fyrir uppbyggingu landsins.
Stefna Bush gagnrýnd
Hryðjuverkið kemur á slæmum
tíma fyrir Bandaríkjastjórn en á
síðustu dögum hefur hún verið að
reyna að snúa vörn í sókn heima
fyrir og sýna fram á, að Íraksstríðið
hafi verið réttmætt og mikið hafi
áunnist í landinu. John Kerry öld-
ungadeildarþingmaður, sem sækist
eftir því að verða forsetaefni demó-
krata í næstu kosningum, gagn-
rýndi George W. Bush forseta harð-
lega í gær og sagði, að stefna hans í
málefnum Íraks væri öll í molum.
Sagði hann, að Bandaríkin ættu að
biðja Sameinuðu þjóðirnar um að-
stoð og gera það af auðmýkt en
ekki hroka.
AP
Vopnaður en óeinkennisklæddur Bandaríkjamaður fyrir framan Bagdad-hótelið eftir árásina í gær.
Sex létust í sjálfsmorðs-
árás á hótel í Bagdad
Starfsmenn CIA,
bandarísku leyni-
þjónustunnar, með
aðsetur á hótelinu
Bagdad. AP, AFP.
AHMED Qureia, forsætisráðherra
Palestínumanna, lýsti yfir því á fundi
miðnefndar Fatah-flokksins í gær að
hann ætlaði ekki
að gegna embætt-
inu lengur en í
þrjár vikur en þá
verður ný ríkis-
stjórn Palestínu
mynduð.
Qureia stjórnar
nú neyðarríkis-
stjórn sem Yasser
Arafat, forseti
Palestínumanna, skipaði fyrir viku.
Þeir Qureia og Arafat hafa hins vegar
deilt um hver eigi að vera innanrík-
isráðherra og hvort Arafat hafi völd
til að mynda ríkisstjórn með tilskip-
un. Eftir fund miðstjórnarinnar í gær
sagði Qureia, að ný stjórn yrði mynd-
uð eftir þrjár vikur „með nýjum for-
sætisráðherra,“ þegar skipunartími
neyðarstjórnarinnar rennur út.
Qureia hótaði á fimmtudag að segja
af sér eftir deilur við Arafat um vald-
svið stjórnarinnar og hver ætti að
ráða yfir öryggisstofnunun. Fyrir-
rennari Qureias, Mahmud Abbas,
sagði af sér vegna sams konar deilna
við Arafat sem vill ekki sleppa hend-
inni af öryggisstofnunum sem tryggja
honum umtalsvert vald á heima-
stjórnarsvæðum Palestínumanna.
Qureia í embætti
í þrjár vikur
Ramallah. AP.
Ahmed Qureia
ÞRJÁTÍU manns, aðallega sjúkling-
ar, týndu lífi þegar eldur kom upp í
geðsjúkrahúsi í Hvíta Rússlandi í
gær. Grunur leikur á, að einn sjúk-
linganna hafi kveikt í.
Eldur kom upp snemma morguns
en sjúkrahúsið er í borginni Randilo-
vichy. Talið er, að einn sjúklinganna,
kunnur brennuvargur, hafi kveikt í
en hann hafði reynt það áður.
Byggingin var úr timbri og barst
eldurinn um hana á skömmum tíma.
Báru tilraunir til að slökkva hann
ekki árangur og þegar slökkviliðið
kom var hún rústirnar einar.
Flestir sjúklinganna, sem létust,
voru sofandi, á róandi lyfjum, en
tveir þeirra vildu ekki láta bjarga
sér, heldur stukku þeir inn í eldinn
og brunnu lifandi.
30 fórust í eldsvoða
Mínsk. AFP.
ATVINNA
mbl.is mbl.isFRÉTTIR