Morgunblaðið - 13.10.2003, Qupperneq 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 13
Innlausnarverð:
9.976.349 kr.
1.995.270 kr.
199.527 kr.
19.953 kr.
1. flokkur 1991:
Innlausnardagur 15. október 2003
Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
3.186.046 kr.
318.605 kr.
31.860 kr.
3. flokkur 1991: Nafnverð:
1.000.000 kr.
500.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
2.834.967 kr.
1.417.483 kr.
283.497 kr.
28.350 kr.
1. flokkur 1992: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
13.961.101 kr.
2.792.220 kr.
279.222 kr.
27.922 kr.
2. flokkur 1992: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
1. flokkur 1993:
Innlausnarverð:
13.742.001 kr.
2.748.400 kr.
274.840 kr.
27.484 kr.
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
3. flokkur 1993:
Innlausnarverð:
12.655.670 kr.
2.531.134 kr.
253.113 kr.
25.311 kr.
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
1. flokkur 1994:
Innlausnarverð:
10.976.379 kr.
2.195.276 kr.
219.528 kr.
21.953 kr.
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
1. flokkur 1995:
Innlausnarverð:
10.581.517 kr.
2.116.303 kr.
211.630 kr.
21.163 kr.
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
1.874.519 kr.
187.452 kr.
18.745 kr.
1. 2. og 3. flokkur 1996: Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
Húsbréf
Rafrænt 96/2 1 1,87451931
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 www.ils.is
ÍSRAELSKA leyniþjónustan Moss-
ad hefur lagt á ráðin um árásir á sex
staði í Íran en Ísraelar telja, að þar
sé unnið að smíði kjarnorku-
sprengna. Segir þýska tímaritið Der
Spiegel frá þessu í mánudagsútgáfu
sinni og hefur ísraelska leyniþjón-
ustumenn fyrir því.
Að sögn tímaritsins fengu sérstak-
ar sveitir innan Mossads skipun um
það fyrir tveimur mánuðum að und-
irbúa aðgerðirnar en talið er unnt að
gjöreyða skotmörkunum með árás-
um F-16-sprengju- og orrustuþotna.
Eftir fall stjórnar Saddams Huss-
eins í Írak líta Ísraelar á Írani sem
sinn helsta hernaðarlega óvin í Mið-
austurlöndum.
Ísraelskir fjölmiðlar gerðu mikið
úr þessari frétt í gær og slógu einnig
upp frétt úr Los Angeles Times þess
efnis, að með því að breyta banda-
rískum Harpoon-stýriflaugum sé
unnt að láta þær bera kjarnaodd og
skjóta þeim frá kafbátum. Ísraelar
hafi því að sögn getu til að beita
kjarnorkuvopnum frá landi, lofti og
sjó. Ýmsir ísraelskir og erlendir
vopnasérfræðingar vísuðu þessu á
bug í gær og sögðu, að útilokað væri
að breyta Harpoon-flaugunum þann-
ig, að þær gætu borið kjarnaodda.
Ísraelskar sprengjuflugvélar eyði-
lögðu Osirak-kjarnorkuverið við
Bagdad árið 1981 en ísraelsku fjöl-
miðlarnir sögðu, að sams konar árás
á Íran yrði miklu áhættusamari. Eru
kjarnorkuverin þar dreifð um víð-
áttumikið svæði og austurlandamæri
Írans eru í 1.300 km fjarlægð frá Ísr-
ael.
200 kjarnasprengjur?
Ísraelska dagblaðið Haaretz tók
undir með Los Angeles Times og
sagði, að líklega væri um skipulagð-
an leka að ræða í því skyni að hræða
Írani. Þá hafði blaðið Yediot það eftir
heimildum, að fréttirnar væru í raun
„tilbúningur“, engar líkur væru á, að
Ísraelar réðust á Íran. Talið er, að
Ísraelar eigi allt að 200 kjarnorku-
sprengjur þótt þeir hafi aldrei við-
urkennt tilvist slíkra gereyðingar-
vopna.
Der Spiegel vitnar í ísraelskar leyniþjónustuheimildir
Hugsanlega „tilbún-
ingur“ til að vara
Íransstjórn við
Berlín, Jerúsalem. AFP.
Mossad skipuleggur árásir
á kjarnorkuver í Íran
LÆKNAR í Dallas í Bandaríkj-
unum skildu í gær að egypska sí-
amstvíbura, drengi, sem voru sam-
vaxnir á höfði. Stóð aðgerðin yfir í
26 klukkustundir og tókst mjög vel.
Næsta stigið er að endurmóta að
sumu leyti höfuðkúpur drengjanna
og græða sárin skinni. Vonir standa
til, að drengirnir, sem eru tveggja
ára gamlir, bíði engan skaða af að-
gerðinni og geti því tekist á við lífið
sem tveir aðskildir einstaklingar.
AP
Síamstvíburar skildir að
IAIN Duncan Smith, leiðtogi
breska Íhaldsflokksins, vísaði í gær
á bug ásökunum um, að hann hefði
brotið þingreglur með því að hafa
konu sína á launaskrá í eitt ár eftir
að hann varð leiðtogi flokksins.
Ásakanirnar komu fyrst fram í
blöðunum fyrir viku en sagt var, að
Betsy, eiginkona Duncan Smiths,
hefði starfað á skrifstofu hans frá
því í september 2001, er hann var
kjörinn leiðtogi Íhaldsflokksins, og
fram í desember 2002. Á þessum
tíma var það þingið, sem greiddi
henni laun, það er að segja skatt-
borgararnir.
Duncan Smith hótaði í gær máls-
sókn gegn þeim fjölmiðlum, sem
flutt hefðu „þessar illgjörnu og
röngu fréttir“ og sagðist mundu
vísa ásökununum til siðameistara
þingsins til úrskurðar. Það hefur
raunar einn blaðamaður, sem skrif-
aði um málið, einnig gert.
Íhaldsflokkur á uppleið
Aðrar fréttir úr pólitíkinni eru
Duncan Smith líklega meira að
skapi því að í nýrri skoðanakönnun,
sem YouGov gerði fyrir Mail on
Sunday, hefur Íhaldsflokkurinn
fimm prósentustig umfram Verka-
mannaflokk Tony Blairs forsætis-
ráðherra, 38% á móti 33%.
Duncan Smith ber
af sér sakir
London. AP.
Duncan Smith
ATVINNA mbl.is