Morgunblaðið - 13.10.2003, Page 17
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 17
Snyrtiklefi
Austurstræti 12, sími 562 9020
Estée Lauder andlitsmeðferðin miðar öll að því að veita þér slökun og
dekra við þig - allt frá vandvirkri hreinsun húðarinnar að yndislega
róandi nuddinu.
Nútímaleg húðumhirða okkar vinnur gegn vandamálum sem stafa af
þurri húð eða feitri, hrukkum, slælegri blóðrás, þreytulegri húð og
öðru sem hrjáir húðina. Öll er meðferðin umvafin ljúfri munúð og
slökun.
Veittu þér andlitsmeðferð eins og þær gerast bestar og sjáðu hvað
svolítið dekur gerir húðinni gott.
Það kostar aðeins kr. 2.500.
Hringdu og pantaðu tíma.
Síminn er 562 9020
Aðeins það besta
fyrir andlit þitt
Árvekni um
brjóstakrabbamein
ÞEGAR við látum hugann reika
aftur í tímann veltum við því held
ég flest oft fyrir okkur hvers vegna
ekki urðu fleiri til
að rísa upp og and-
æfa mestu og alvar-
legustu glæpaverk-
um mannkynsins.
Þá verða efst í huga
útrýmingarbúðir
nasista þar sem
murkað var lífið úr milljónum gyð-
inga af vísindalegri yfirvegun og
nákvæmni. Illvirkinn var þýska rík-
ið og morðin voru viðbjóðslegri fyr-
ir þá sök að þau voru unnin af
verkfræðingum og vísindamönnum
á hvítum sloppum; mönnum sem
fóru heim til sín á kvöldin, kysstu
börnin sín og hlustuðu á skemmti-
þátt í útvarpinu. Þarna liggur mun-
urinn á milli tilfinningaverunnar,
sem hefur misst barnið sitt eða
bróður í sprengjuárás, múruð inni í
gettói og leitar hefnda, jafnvel
reiðubúin að láta nota sig til ill-
virkja eins og stúlkan sem tók líf
sitt og annarra í sjálfsmorðsárás-
inni í Haifa fyrir fáeinum dögum;
þarna liggur munurinn á milli
manneskjunnar sem buguð af sorg
og vitstola af örvæntingu sér að-
eins svartnættið framundan og hins
vegar ríkisins sem hefur verið
fengið það hlutverk að veita tilfinn-
ingum okkar og bræði inn í yf-
irvegaðan farveg. Í mörg þúsund
ár hefur mannkynið verið að basla
við að hafa hemil á hefnigirninni
með boðun trúar- og heim-
spekikenninga og á síðari öldum
hefur okkur tekist að ná það langt
að smíða réttarríki og hinar Sam-
einuðu þjóðir, sem eiga að halda
uppi merki réttarríkisins á heims-
vísu.
Hvorki gyðingar né Palest-
ínumenn heldur manneskjur
Vitur maður sagði í mín eyru
fyrir fáeinum dögum, að þegar allt
kæmi til alls hefðu nasistar ekki
verið að ofsækja gyðinga. Þeir
hefðu verið að ofsækja manneskjur
og því mættum við aldrei missa
sjónar á. Nú, þegar það hefur orðið
hlutskipti gyðinga að vera í hlut-
verki þess sem ofsækir og beitir
valdi á miskunnarlausan hátt, þá
megum við ekki missa sjónar á því
að nú sem fyrr eru það manneskjur
sem eru að ofsækja manneskjur.
Hörðustu gagnrýnendur ofsókna
Ísraela á hendur Palestínumönnum
eru einmitt gyðingar, afburðamenn
í andanum, sem neita að sjá trú-
flokka og kynþætti heldur aðeins
manneskjur. Hið sama gildir í hópi
Palestínumanna. Þar er að finna
menn sem tala fyrir vináttu og
friði. Þetta er það fólk sem raun-
verulega heldur uppi merki vegvís-
isins til friðar.
Á vinnustað mínum við Aust-
urvöllinn í Reykjavík heyrði ég til
manns sem lagði að jöfnu gjörðir
stúlkunnar sem áður er vitnað til
og svipti sig lífi og tók líf annarra í
Haifa – hann lagði hennar gjörðir
að jöfnu við árásir ísraelska hers-
ins, íraelska ríkisins á búðir flótta-
manna í Sýrlandi. Þetta var ekki
bara einhver maður. Þetta var ut-
anríkisráðherra Íslands. Halldór
Ásgrímsson sagði að stúlkan hefði
ekki verið ein á báti heldur á bandi
hryðjuverkamanna og með nokkr-
um þjósti spurði hann undirritaðan
hvort verið gæti að ég væri að rétt-
læta þetta hryðjuverk. Í reynd var
ráðherrann með málflutningi sínum
að taka undir með þeim Sharon og
Bush: Enginn friður getur orðið
fyrr en stjórn Palestínumanna hef-
ur haft hemil á öllum hópum sem
berjast gegn hernámi Ísr-
aelsmanna.
Nú er það svo að Ísraelsríki hef-
ur þverbrotið ályktanir Sameinuðu
þjóðanna, alþjóðalög og mannrétt-
indasáttmála í málefnum Palest-
ínumanna, ekki síst flóttamanna, í
meira en hálfa öld. Hernámið stríð-
ir gegn samþykktum Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna og hefur gert
í 36 ár. Þessi brot virðast skipta
þessa aðila minna máli en brot
Saddams Husseins gegn sam-
þykktum sama ráðs. Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, og Bush
Bandaríkjaforseti segja að örygg-
issveitir Arafats verði að ráða nið-
urlögum Hamas-samtakanna og
annarra andspyrnuhreyfinga gegn
hernáminu. Undir þetta tekur tals-
maður ríkisstjórnar Íslands í utan-
ríkismálum.
En trúa þessir menn því að rétt-
kjörin stjórnvöld Palestínu hafi
burði til þess arna? Ísraelsmenn og
vitorðsmenn þeirra vita sem er að
samstundis myndi blossa upp borg-
arastyrjöld þar sem þau fengju
ekkert við ráðið. Hafa menn skoðað
myndir af nánast hverri einustu
lögreglustöð öryggissveita heima-
stjórnarinnar á Vesturbakkanum?
Þær eru allar sundurskotnar, rúst-
ir einar. Hafa menn skoðað ný-
byggð íbúðahverfi Palestínumanna
á hernumdu svæðunum sem byggð
hafa verið fyrir gjafafé frá Vest-
urlöndum? Ágætar myndir er að
finna á vefsíðu félagsins Ísland-
Palestína: www.palestina.is. Þar má
sjá að öll nýju íbúðarhverfin eru
meira og minna sundurskotin eftir
árásir ísraelska hersins.
Múrinn
Og hafa menn skoðað myndir af
Aðskilnaðar-múrnum, dæmigerðan
fyrir apartheid-stefnu Ísraela?
Berlínarmúrinn bliknar. Múr Shar-
ons er tvöfalt hærri eða allt að átta
metra hár. Á stöðum sem taldir
eru „viðkvæmir“ er múrinn sér-
staklega styrktur. Sitt hvorum
megin eru fimm metra djúpir
skurðir og síðan gaddavír. Í gadda-
vírinn er leitt rafmagn. Raf-
eindanjósnabúnaður er á múrnum
á þessum stöðum og örfínt sandlag
til hliðar svo nema megi fótspor.
Ekki er múrinn alls staðar
styrktur á þennan hátt en nánast
alls staðar skerðir hann land Pal-
estínumanna. Hann sníður af gróð-
ursælustu lönd þeirra og bestu
vatnsbólin. Þeir sem eru innan
múrs eru fangar – í eigin heim-
kynnum. Og þó, því ekki fá þeir
notið eigin heimkynna. Viðar Þor-
steinsson var með áhrifaríka lýs-
ingu í morgunútvarpi RÚV fyrir
fáeinum dögum. Hann var við hlið
á múrnum. Hann var þar ásamt
öðrum Íslendingi, Sigrid Valt-
ingojer, í hópi sjálfboðaliða sem
komnir voru til að veita bændum
vernd með nærveru sinni og að-
stoða við ólífutínsluna. Bændurnir
höfðu brotið upp hliðið til að kom-
ast inn á landið sitt, þar sem ólífu-
trén og aldingarðar þeirra eru, lífs-
björgin. Ísraelsmenn segja að þetta
sé ekki þeirra land. Og ef dæma
skal af málflutningi ríkisstjórnar
Íslands virðast áhöld um að þetta
sé þeirra land. Að minnsta kosti er
enginn merkjanlegur áhugi á að
ræða málið af alvöru fyrr en Pal-
estínumenn taki „betur á öryggis-
málum heima fyrir og taki betur á
öfgamönnum“ í eigin röðum. Vissu-
lega fylgir það líka með í málflutn-
ingi utanríkisráðherrans, Halldórs
Ásgrímssonar, að nauðsyn beri til
að Ísraelsmenn „vinni betur í sam-
ræmi við þær áætlanir sem hafa
verið gerðar“. Á þessum forsendum
er málið rætt í Stjórnarráði Ís-
lands.
Er ekki kominn tími til að rík-
isstjórnin endurskoði afstöðu sína
og áherslur í þessu máli, skoði það
í sögulegu samhengi og freisti þess
að vera ögn betur sjálfri sér sam-
kvæm þegar samþykktir Samein-
uðu þjóðanna eru annars vegar?
Eru allir jafn sekir?
Eftir Ögmund Jónasson
Höfundur er alþingismaður.
Í ÁVARPI núverandi félagsmála-
ráðherra, Árna Magnússonar til fé-
laga í Átaki, sem er hluti af al-
heimshreyfingu
fólks með þroska-
hömlun, á tíu ára
afmæli hins íslenska
félags á Evrópuári
fatlaðra 2003 og birt
er í 2 og 3 tbl.
Þroskahjálpar,
tímariti um málefni fatlaðra, segir
ráðherrann meðal annars: „Barátta
Átaks gegn fordómum er einnig af-
ar mikilvæg vegna þess að for-
dómar geta valdið því að fólk með
þroskahömlun njóti ekki þeirra
tækifæra sem samfélagið býður
upp á, auk þess sem fordómar geta
haft slæm áhrif á líðan þeirra sem
fyrir þeim verða. Við verðum að
stuðla að því í samvinnu að fólk
með þroskahömlun njóti virðingar
til jafns við aðra og að á það sé
hlustað. Í þessu sambandi er mik-
ilvægt að fólk með þroskahömlun
þekki réttindi sín og geti notið
þeirra og öruggt sé að því séu
tryggð sömu réttindi og aðrir njóta
í samfélaginu.“
Sjónarhóll er einmitt vettvangur
þess megininntaks er ráðherrann
vitnar til. Ekki bara að fólk með
þroskahömlun þekki réttindi sín,
heldur að samfélagið viðurkenni
þær sjálfsögðu skyldur, að allar
fjölskyldur barna með sérþarfir á
Íslandi þekki réttindi sín, þegar
upp koma tilvik sem oft á tíðum
breyta verulega högum slíkra fjöl-
skyldna til framtíðar.
Það er foreldrum áfall þegar
barn greinist með alvarlegan sjúk-
dóm, varanlega fötlun eða önnur
þroskafrávik. Eðlilegar væntingar
breytast í áhyggjur og við taka
ófyrirséð verkefni s.s. greining,
rannsóknir meðferð, upplýsingaleit,
útvegun hjálpartækja, fundir og
viðtöl svo eitthvað sé nefnt.
Mikill tími fer í að fá yfirsýn yfir
og samræma þann stuðning sem í
boði er og foreldrum er oft að
óþörfu vísað frá einum stað til ann-
ars. Fjölskyldulífið fer að verulegu
leyti að snúast um þarfir hins veika
barns og umtalsvert vinnutap með
tilheyrandi fjárhagsvanda er óum-
flýjanlegt.
Hér skortir sárlega leiðsögn og
stuðning aðila sem þekkja málin af
eigin raun og geta með reynslu
sinni veitt foreldrum þá yfirsýn
sem þeim er nauðsynleg til að gera
leitina að réttu úrræði sem stysta
og áhrifaríkasta. Sjónarhóll er slík-
ur aðili – ráðgjafarmiðstöð fyrir
fjölskyldur barna með sérþarfir.
Markmið Sjónarhóls er að veita
foreldrum stuðning og leiðsögn til
að fóta sig í hinu nýja hlutverki
sínu.
Ætla má að hérlendis séu um
4.000 til 5.000 fjölskyldur barna
með sérþarfir og að málefnið snerti
því um 25 til 30 þúsund Íslendinga.
Þá er einungis átt við nánustu ætt-
ingja, en ef vinnuveitendur og
starfsfélagar sem taka á sig aukin
verkefni vegna fjarveru foreldris
eru teknir með í reikninginn,
hækkar sú tala töluvert.
Foreldrafélag barna með AD/HD
(áður Foreldrafélag misþroska
barna), Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra, Landssamtökin Þroska-
hjálp og Umhyggja, félag til stuðn-
ings langveikum börnum hafa unn-
ið frá því í byrjun árs að
undirbúningi stofnunar ráðgjaf-
armiðstöðvar fyrir foreldra barna
með sérþarfir.
Ríkisstjórn Íslands samþykkti á
fundi sínum 20. maí síðastliðinn til-
lögu Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra þess efnis að fulltrúar ráðu-
neyta, félags-, mennta- og
heilbrigðismála tækju upp viðræður
við félögin fjögur. Þegar þetta er
ritað nú í byrjun október 2003,
hafa liðið vel yfir fjórir mánuðir,
sem ráðuneytin hafa haft mál þetta
til skoðunar.
Svar hefur enn ekki fengist um
hvort ríkisvaldið hyggst taka þátt í
mótun þessa tilraunaverkefnis
Sjónarhóls við að geta stutt og
bætt lífskjör sem/og réttindamál
foreldra barna með sérþarfir á Ís-
landi er fái leiðbeint foreldrum um
frumskóg þess kerfis sem samfélag
okkar byggist á. Reynsla félaganna
fjögurra er fyrir hendi. Stuðningur
þeirra, sem spannar öll frjáls félög
barna með sérþarfir á Íslandi, er í
dag ómetanlegur fyrir þær fjöl-
skyldur sem oft í þungum sporum
standa. Vonir standa þó til að fé-
lagsmálaráðherra, Árni Magnússon,
sá hinn sami og vitnað er til hér að
framan, leggi fram tillögur vinnu-
hóps ráðuneytanna til ríkisstjórnar,
með hvaða hætti stjórnvöld gætu
komið að þessu framfararmáli í
samvinnu við félögin fjögur.
Starfsemi Sjónarhóls er ætlað að
verða þekkingartorg foreldra um
völundarhús „kerfisins“. Eins kon-
ar „fyrsta hjálp“ um eðlileg og
sjálfsögð mannréttindi þeirra, þeg-
ar upp koma tilvik um alvarleg
veikindi barns. Sjónarhóll er og
verður ávallt óháður vettvangur
fyrir foreldra gagnvart starfandi
opinberum stofnunum ríkis og
sveitarfélaga sem skv. lögum eiga
að sinna samfélagslegum skyldum
sínum í þágu borgaranna. Sjón-
arhóll er í raun leiðsögn foreldra
um frumskóg kerfisins og raunhæf
leið foreldra til að úrbætur fáist.
7. júní síðastliðinn var ráðgjaf-
armiðstöðin Sjónarhóll formlega
stofnuð við hátíðlega athöfn í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum Laug-
ardal. Sjónarhóll verður rekinn af
sjálfseignarstofnuninni Í góðum
höndum ses., en að henni standa
áðurnefnd félög. Mörg hliðstæð fé-
lög innan annarra Norðurlanda
horfa til þessa verkefnis og hvernig
til muni takast hér á landi. Hér er
um að ræða óháð afl, þ.e. vel sam-
stillt átak félaganna fjögurra, nokk-
urs konar umboðsmaður foreldra,
við að ná fram réttindum og hand-
leiðslu fyrir foreldra barna með
sérþarfir, innan samfélags okkar.
Þótt vonir standi til að hægt
verði að tryggja Sjónarhóli samn-
inga við ríki og sveitarfélög er ljóst
að starfsemin verður að verulegu
leyti háð frjálsum framlögum ein-
staklinga og fyrirtækja.
Laugardagskvöldið 8. nóvember
nk. verður efnt til landssöfnunar til
styrktar húsnæðiskaupa Sjón-
arhóls, með tilstyrk ríkisútvarps –
sjónvarps. Lesandi góður, við leit-
um til þín um stuðning.
Sælir þeir, er sárt til finna
sinnar andans nektar hér,
þeir fá bætur þrauta sinna,
þeirra himnaríkið er.
(Sb. 201. Valdimar Briem.)
Sælir þeir, er sárt til finna …
Eftir Arnar Pálsson
Höfundur er stjórnarmaður
Í góðum höndum ses.
Tískuvöruverslun Laugavegi 25