Morgunblaðið - 13.10.2003, Page 26
26 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÝLEGA efndum við hjá Flugmála-
félagi Íslands til hópflugs á einka-
flugvélum til Víkur í Mýrdal.
Suðurströnd landsins skartaði
sínu fegursta úr lofti og eftir fallegt
flug tylltum við 23 flugvélum niður á
Höfðabrekkuflugvelli við Vík í glaða-
sólskini og logni. Þegar viðburður af
þessu tagi er skipulagður með góð-
um fyrirvara á þessum árstíma er
slíkt blíðskapaveður óvænt heppni.
En það voru ekki bara veðurguðirnir
er léku við okkur því heimamenn
létu ekki sitt eftir liggja.
Flughópnum var sannarlega ekki
í kot vísað í Vík enda nutum við gest-
risni og greiðvikni eins og hún best
gerist á Íslandi. Gestgjafar okkar
voru kollegar okkar úr fluginu,
Reynir Ragnarsson og Jóhann Ein-
arsson, fjölskyldur þeirra og vinir úr
Björgunarsveitinni Víkverja.
Okkur var boðið í skoðunarferð
upp á Höfðabrekkuafrétt en þangað
er um 50 mínútna bílferð. Þarna er
bæði ægifagurt og svo athyglisvert
hellasvæði sem hefur verið vel varð-
veitt leyndarmál enda ekki vel greið-
fært þar til í fyrra að ráðist var
vegabætur. Á leiðarenda var áð í
Þakgili og slegið upp glæsilegri grill-
veislu í stórum og miklum, en opnum
helli, og brugðið á fjöldasöng svo
undir tók í hellisþakinu.
Staðarhaldarar í Þakgili eru hjón-
in Bjarni Finnsson og Helga Ólafs-
dóttir er hafa átt veg og vanda að því
að laga leiðina þangað og meira að
segja lagt brú á eigin kostnað. Í hell-
inum mikla hafa þau komið fyrir
veglegum borðum og bekkjum,
fyrsta flokks grillaðstöðu og stein-
snar frá rafstöð og snyrtilegu húsi
með salernum og sturtuaðstöðu
enda mun fyrirhugað að reka þarna
tjaldstæði þegar á næsta ári. Í þess-
ari óvenjulegu náttúruparadís hátt
uppi í fjallasal ætti ekki að væsa um
neinn í tjaldi. Dagsferð með grill-
veislu og fjöldasöng í hinum stóra og
mikla helli eða lengri dvöl á tjald-
svæðinu er spennandi dæmi fyrir fé-
lagasamtök og fyrirtækjahópa sem
alltaf eru að leita að einhverju nýju,
óvenjulegu og skemmtilegu fyrir sitt
fólk.
Markmið Flugmálafélagsins með
hópflugum af þessu tagi er marg-
þætt. Sjálf njótum við þess að geta
flogið saman nokkrum sinnum á ári í
okkar fallega landi og lenda á góðum
stað til að skoða það sem náttúran
hefur upp á að bjóða undir leiðsögn
staðkunnugra vina úr fluginu. Síðast
en ekki síst er það ákaflega gefandi
fyrir okkur í fluginu að geta boðið
öllum heimamönnum á viðkomandi
stöðum að skoða og fræðast um flug-
vélarnar okkar og eftir því sem færi
gefst sýna þeim stór og smá flug-
atriði.
Þessar heimsóknir okkar út á land
hafa hvarvetna vakið áhuga og hrifn-
ingu enda ekki á hverju ári sem flug-
mannahópur á stórum flugflota
kemur í heimsókn sjálfum sér til
fróðleiks og heimamönnum til
skemmtunar. Þetta er skilvirk og
ódýr leið til að kynna flugið fyrir al-
menningi og hreinlega vökva þennan
mikla áhuga sem er á flugi þannig að
fólkið í landinu standi með fluginu
þegar á þarf að halda.
Eftir þennan skemmtilega dag
sem þar sem við í flughópnum vor-
um sólarmegin í lífinu sem auðfúsu-
gestir í Vík þá viljum við færa íbúum
og nærsveitarmönnum hjartans
þakkir fyrir skemmtilega viðkynn-
ingu og góðan viðurgjörning. Með
flugkveðju!
GUNNAR ÞORSTEINSSON,
Flugmálafélagi Íslands.
Flugmenn sólarmegin
í Vík í Mýrdal
Frá Gunnari Þorsteinssyni
SKEMMUVEGI 36
Sími 557 2000
BLIKKÁS –
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Moggabúðin
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.
Moggabúðin
Músarmotta, aðeins 450 kr.