Morgunblaðið - 13.10.2003, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 29
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert fagleg/ur og ákveð-
in/n og átt auðvelt með að
setja þér markmið. Á kom-
andi ári muntu byrja á
mörgum nýjum verkefnum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sýndu maka þínum og vinum
þolinmæði í dag. Ef þú gefur
þér tíma til að hlusta geturðu
komist að einhverju nýju um
þína nánustu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Byrjaðu vikuna á því að
skipuleggja þig bæði í
vinnunni og á heimilinu. Það
mun auðvelda þér lífið að
draga úr óreiðunni.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Settu þér það markmið að
gera eitthvað skemmtilegt í
vikunni. Njóttu samvista við
vini þína, farðu í bíó eða leik-
hús.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt eiga mikilvægar
samræður við einhvern í fjöl-
skyldunni í dag. Mundu að
sátt innan fjölskyldunnar
stuðlar að hamingju og heil-
brigði.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samræður við systkini þín
setja svip sinn á daginn. Þú
gætir einnig farið í stutt
ferðalag eða átt áhugaverðar
viðræður við vinnufélaga
þína.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Íhugaðu hvernig þú getur
haft sem mest not af eignum
þínum. Reyndu að koma
þeim hlutum í verð sem þú
hefur ekki not fyrir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þar sem bæði sólin og merk-
úr eru í merkinu þínu er
þetta góður tími til að koma
sjónarmiðum þínum á fram-
færi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þar sem venus er í merkinu
þínu ertu óvenju félagslynd/
ur í dag. Þú þarft eftir sem
áður á einveru og hvíld að
halda. Reyndu að finna ein-
hvers konar jafnvægi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er mikið að gerast í fé-
lagslífinu. Reyndu að skipu-
leggja þig þannig að þú getir
nýtt tíma þinn sem best.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þar sem þér hefur verið falin
aukin ábyrgð þarftu að leggja
aukna rækt við útlitið.
Mundu að aukinni ábyrgð
fylgir aukin athygli.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Framhaldsmenntun, útgáfu-
starfsemi, lögfræði og ferða-
mál eru í brennidepli hjá þér.
Settu þér skýr markmið fyrir
vikuna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ættir að huga að trygg-
ingum, erfðamálum eða sam-
eiginlegum eignum. Þú getur
náð góðum árangri ef þú
leggur þig fram.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KRÓKÓTT LEIÐ
Hví stynur lækjar buna blá
og byltir sér,
túnin dreifist og engið á
og yfir fer,
keppir svo áfram krókótt skeið
og kvíslar brýr,
bregður svo óðar út af leið
og aftur snýr?
Eins tímans straumur burt mig ber.
Til baka samt
á krókótta lífsins leið er mér
að líta tamt.
Á reyk, sem í loftið leggur fjær,
ég löngun finn
að horfa, föðurhúsin kær
og hólinn minn.
Páll Ólafsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 19. júlí sl. Gréta Sævars og
Árni Bergþór Sveinsson. Heimili þeirra er í Bláskógum 14,
Reykjavík.
AUSTUR á góða 15
punkta en mælir ekki orð
frá munni á meðan NS feta
sig upp í þrjú grönd.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ KG1075
♥ D83
♦ D32
♣73
Austur
♠ ÁD3
♥ G972
♦ Á8
♣Á642
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 grand
Pass 2 hjörtu * Pass 2 spaðar
Pass 2 grönd Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Suður opnar á 15-17
punkta grandi, norður yf-
irfærir í spaða og gefur svo
jafnskipta áskorun í geim,
sem suður tekur. Settu þig
í spor austurs, sem hefur
fylgst með sögnum af at-
hygli og stillt sig um að
blanda sér í málin. Makker
spilar út laufgosa. Viltu
drepa eða dúkka?
Ekkert liggur á. Suður á
örugglega hjónin og þú
dúkkar því. Sagnhafi tekur
með drottningu og spilar
tígulkóng í öðrum slag.
Hvað nú?
Svisslendingurinn Jean
Besse var með spil austurs
og hann tók sér langan
tíma til að íhuga vörnina.
Loks drap hann á tígulás
og spilaði LITLU laufi:
Norður
♠ KG1075
♥ D83
♦ D32
♣73
Vestur Austur
♠ 984 ♠ ÁD3
♥ 104 ♥ G972
♦ 9654 ♦ Á8
♣G1098 ♣Á642
Suður
♠ 62
♥ ÁK65
♦ KG107
♣KD5
Sagnhafi stakk upp
kóng, en það var aðeins
áttundi slagurinn.
Lítum á hvað gerist ef
austur tekur á laufásinn og
spilar aftur laufi. Þegar
suður tekur fríslagi sína á
tígul lendir austur í vand-
ræðum. Hann má henda
spaðaþristi í þriðja tíg-
ulinn, en sá fjórði setur
hann í vanda. Skást er að
henda laufi, en þá er ein-
falt mál fyrir sagnhafa að
spila austri inn á fjórða
hjartað og þiggja níunda
slaginn á spaðakóng í lok-
in.
Besse sá þessi vandræði
fyrir og þegar suður spilaði
fjórða tíglinum henti hann
laufásnum! Þannig hélt
hann valdi á hálitunum og
opnu sambandi við makker
í laufinu. Glæsilegt.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 c6
4. Rc3 e6 5. e3 a6 6. b3 Bb4
7. Bd2 0-0 8. Bd3 Rbd7 9.
Dc2 Bd6 10. Re2 c5 11. 0-0
b6 12. cxd5 exd5 13. Rg3
Bb7 14. Rf5 Bc7 15. dxc5
bxc5 16. b4 c4 17. Be2 Re4
18. Bc3 Rxc3 19. Dxc3 Rf6
20. Hfd1 Bc8
Fyrir nokkrum árum
tefldi Garry Kasp-
arov (2.830) fjöl-
tefli við ísraelska
landsliðið í skák
sem var skipað
mörgum öflugum
stórmeisturum. Á
meðal þeirra var
Alexander Huzm-
an (2.574) sem tap-
aði sannfærandi
fyrir skrímslinu
með þúsund augun.
Fram að viðureign
þeirra á Krít hafði
Kasparov unnið all-
ar fjórar skákir sínar og
þar á meðal á móti Alex-
ander Grischuk. Í þessari
skák var Garry hins vegar
óþekkjanlegur og nýtti
Huzman sér það til hins
ýtrasta. 21. Hxd5! De8
Hrókurinn var friðhelgur
vegna mátsins á g7 og svo
hins vegar vegna
21. – Dxd5 22. Re7+ og
hvítur vinnur drottn-
inguna. 22. Bxc4 og svart-
ur gafst upp enda fátt um
fína drætti í stöðu hans.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
ÞAKRENNUR
Frábært verð!
B Y G G I N G AV Ö R U R
www.merkur.is
594 6000
Bæjarflöt 4, 112 R.
Gæði á góðu verði
80 ÁRA afmæli. Í dag, mánudaginn 13. október, eru átt-ræð tvíburasystkinin frá Bolungarvík þau Kristín
Sveinsdóttir, Digranesvegi 34, Kópavogi og Haukur
Sveinsson, Hólabraut 5, Hafnarfirði.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FJÖGUR fyrirtæki í heilbrigð-
isþjónustu sem hafa komið sér
fyrir í endurnýjuðu húsi við Suð-
urlandsbraut í Reykjavík, Orku-
húsinu, höfðu um helgina opið
hús fyrir gesti. Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, klippir hér á
borða og opnar húsið formlega
með Sigurði Ásgeiri Kristinssyni,
bæklunarlækni og framkvæmda-
stjóra rekstrarfélags Orkuhúss-
ins. Fyrirtækin eru Læknastöðin,
Íslensk myndgreining, Sjúkra-
þjálfun Íslands og innanlands-
deild Össurar hf. Fjölmenni heim-
sótti húsið um helgina, m.a.
margir fulltrúar heilbrigðisstétta.
Morgunblaðið/Þorkell
Fjölmargir skoð-
uðu Orkuhúsið
FRÉTTIR
ÚT er komin ný íslensk tölvubók um
StarOffice 6, ber hún nafnið „Ís-
lenska StarOffice 6 bókin“. Höfund-
ur bókarinnar er Elías Ívarsson sem
áður hefur ritað tölvubækur í ís-
lensku. Bókina má lesa á Netinu á
slóðinni www.ibok.ci.is og einnig má
panta þar eintak af henni. Bókin
fjallar ítarlega um öll helstu forrit í
StarOffice skrifstofuvöndlinum, sem
eru ritvinnsla (Writer), töflureiknir
(Calc) og glærugerð (Impress).
Lesa má allar tölvubækur Elíasar
frítt á vefslóðinni www.ibok.ci.is, en
hugbúnaðurinn „Acrobat Reader“ er
þó nauðsynlegur til þess. Þar má
einnig panta sérprentuð eintök bók-
anna. Óski lesendur þess að eiga
prentað eintak geta þeir pantað bók-
ina sérstaklega. Umboðsaðili Star-
Office hérlendis er EJS hf.
Ný íslensk tölvubók
www.thjodmenning.is