Morgunblaðið - 13.10.2003, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 33
Stórkostleg
gamanmynd sem
er búin að gera allt
sjóðvitlaust í USA
með Jamie Lee
Curtis og
Lindsay Lohan í
aðalhlutverki.
Þetta er sko
stuðmynd í
lagi!
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 10. . B.i. 12.
KVIKMYNDIR.IS
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.40, 8 OG 10.20. B.I. 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50 og 6.10. Ísl tal.
Topphasarmyndin
í USA í dag.
SV MBL
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
Frá framleiðanda
Fast & the Furious og xXx
Löggur þurfa líka hjálp!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
AKUREYRI
Kl. 6 og 8.
KRINGLAN
Kl. 5.40, 8 og 10.20.
ÁLFABAKKI
Kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
Myndin er byggð á bókinni,
Milljón holur sem komin er út á íslensku.
Myndin sló
í gegn
í USA.
Sum
leyndarmál
eru betur
geymd
grafin....
eða
hvað!
Milljón Holur
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16.
Fór beint ítoppstætið
í USA
þrælmögnuð yfirnáttúruleg
spennumynd sem hefur slegið
rækilega í gegn.
KVIKMYNDIR.IS
Skonrokk 90.9
HP KVIKMYNDIR.COM
AKUREYRI
Sýnd kl. 10.15. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
SV MBL
HK.DVKVIKMYNDIR.IS
MINEUR-AGGRESSIF er
fyrsta plata Kimono en hefur
hvergi á sér byrjendabrag og gef-
ur okkur mynd af fumlausri og
öruggri en að vísu
heldur melankól-
ískri sveit. Yfir-
bragðið er þung-
lyndislegt,
innhverft síðrokk
þar sem menn
horfa á fætur sér meðan gítararnir
eru knúnir áfram en meira hangir
á spýtunni. Mollhljómurinn er
raunalegur þráður í gegnum lögin
en Kimono-liðar leika sér („leika
sér“ er reyndar
alltof glaðbeitt
lýsing á með-
limum) með
blæbrigði og
uppbyggingu
og forðast
þannig að allt
fletjist út í alls-
herjar þyngsli.
Titillinn, Min-
eur-aggressif
er lýsandi fyrir
lögin sem fær-
ast á milli lág-
værra, melód-
ískra kafla þar
sem sefjandi
munstur eru
snúin saman úr
gítarlínum, og sterkari, kraftmeiri
hluta þar sem stefin verða
ákveðnari og grimmari. Dálítið
Úlpu-legt á köflum en þetta tvítog
á líka við textana, undarlegar
furðusögur þar sem mörkin milli
óráðs og veruleika eru hvergi
skýr, sungið um hrylling og hvers-
dagsleika og japanska lögreglu-
menn.
Eitt mikilvægasta hljóðfærið hér
er rödd söngvarans, Alex, kyrrlát
og næstum fjarræn eins og hún sé
ekki alveg í tengslum við þessa til-
vist, og hálfhvíslar sínar draum-
kenndu smásögur. Textabókin sem
fylgir er dálítið sniðug, þar er ekki
að finna textana sem slíka heldur
sögurnar sem þeir eiga rætur í og
teikningarnar fylla upp í myndina
af þessu undirfurðulega umhverfi.
Lögin eru ekki lögð eftir beinni
línu eða skýrum kaflaskiptum
heldur er slóðin krókótt, stundum
dvalið lengur á einum stað og
nostrað við nóturnar, síðan snúið
við eða beygt í aðra átt, gefið í eða
dregið úr og hlustandinn veit
sjaldnast hvert krákustígarnir
leiða. Í raun afar myndræn tónlist
þar sem gefinn er tími til að hlaða
upp og bæta við hljóðlínum frekar
en að snúast um smellið viðlag.
Hér skiptir líka máli að hljómur er
mjög góður og gefið rúm fyrir ým-
is smáatriði og óvenjuleg hljóð
sem víkka út lögin, fyrir utan það
grundvallaratriði að sveitin er
greinilega mjög vel samstillt og
æfð.
Upphafslagið „Japanese police-
man“ er verulega sterkt; sefjandi
gítarstef og mild röddin dáleiða
okkur inn í lagið en síðan er keyrt
áfram með gítarstefið af síauknum
þunga. Í „The Elegy“ fer laglínan í
allar þær áttir sem maður á ekki
von á og hámarkið sem byggt er
undir kemur ekki fram – kannski
best að grípa til setningar í texta-
bókinni „Some songs are defined
by what they aren’t“. Smáatriði
verða lykilatriði í hinu hæga og
dapurlega „Tea can forest“, þar
sem sellóleikur undirstrikar
draumkennt andrúmsloftið og ör-
lítil innkoma básúnu lyftir laginu
upp í lokin, það endar líka afar fal-
lega með
nokkrum stök-
um píanónót-
um eins og úr
öðru lagi. Ball-
aðan „Ü perez“
er ekki síðri,
þar fer einsöm-
ul gítarlína og
kyrrlát röddin
yfir og trega-
full fiðla –
samt alls ekki
verið að sykra
með strengjun-
um heldur að-
eins teikna í
kring svo lagið
dýpkar við.
Hámarki – á
reyndar mjög jafnri skífu – ná
Kimono í lokalaginu, „The Apol-
ogy“, áhrifamiklu lagi þar sem ró-
legheitum er skyndilega snúið á
haus og kraftinum hleypt óbeisl-
uðum fram, með ágengu gítarstefi
sem magnað er upp og umbreytt í
hverju skrefi. Orðlaus, kröftugur
endir á hugmyndaríkri og vel
heppnaðri frumraun.
Tónlist
Týndir
í mollinu
Kimono
Mineur-aggressif
Smekkleysa
Kimono eru Halldór Örn Ragnarsson,
bassi, Þráinn Óskarsson, trommur, pí-
anó, orgel, Gylfi Blöndar, gítar, og Alex
Macneil, gítar, söngur. Einnig komu við
sögu Gyða Valtýsdóttir á selló, Matthías
Stefánsson á fiðlu, Samúel J. Sam-
úelsson, básúna og Birgir Örn Stein-
arsson, „delay“ og rafbor. Öll lög eftir
Kimono, textar eftir Alex. Hljóðritað í
Tíma og Geimsteini. Upptökur: Curver og
Birgir Örn Steinarsson, hljóðblöndun og
mastering Curver.
Steinunn Haraldsdóttir
Frumraun Kimono, Mineur-aggressif, er
hugmyndarík og vel heppnuð að mati
gagnrýnanda.
AÐDÁENDUR hljómsveitarinnar
Limp Bizkit brugðust ókvæða við
þegar hljómsveitin hætti að leika á
tónleikum eftir
einungis 17 mín-
útur. Nú hafa 172
tónleikagestir í
sameiningu farið
fyrir dómstóla og
krafist þess að fá
endurgreiðslu
vegna þessa. Því
er haldið fram að
hljómsveitin hafi
brotið samning vegna þess að tón-
leikagestir hafi borgað fyrir og búist
við 90 mínútna sýningu. Fred Durst,
söngvari hljómsveitarinnar, segir að
þeir hafi hætt svo snemma vegna
þess að þeim stafaði ógn af mann-
fjöldanum, sem að hans sögn lét
dólgslega. Þessi málsókn er ekki sú
fyrsta sinnar tegundar í Bandaríkj-
unum því að í apríl sl. höfðuðu tón-
leikagestir mál gegn rokk-
hljómsveitinni Creed. Því var haldið
fram að Scott Stapp, söngvari hljóm-
sveitarinnar, hefði verið í annarlegu
ástandi og því ekki hæfur til þess að
syngja. Í því tilfelli vildu dómstólar
ekki taka undir
kröfur tónleika-
gesta. ... R&B
stjarnan Ms
Dynamite hefur
samið lag fyrir
nýja plötu ástr-
ölsku söngkon-
unnar Kylie Min-
ogue, sem á að
koma út í næsta
mánuði. Ms Dynamite samdi lagið
Secret ásamt útsetjaranum Reza
Safinia fyrir plötu Kylie, sem bera
mun heitið Body Language. Min-
ogue, sem náði gríðarlegum vinsæld-
um með laginu Can’t Get You Out of
My Head árið 2001, er sögð hafa
breytt töluvert um stíl á nýju plöt-
unni. Talsmaður Minogue sagði að
hún hefði ekki unnið beint með Ms
Dynamite við gerð lagsins. Hún
bætti því við að Kylie hefði tekið þátt
í því að semja nokkur lög á plötunni.
Íslenska tónlistarkonan Emilíana
Torrini tók einnig þátt í því að semja
lag á plötuna. Lagið heitir Slow og
þær sömdu það í sameiningu Emil-
íana og Kylie ásamt náunga sem
kallar sig Mr. Dan. Emilíana stjórn-
aði jafnframt upptökum á laginu
ásamt Mr. Dan. Á heimasíðu Kylie
er lagið sagt í rólegri kantinum og
hljómurinn í því sá svalasti sem
heyrst hefur frá Kylie og sjálf segir
hún það vera
„sexí“. ... Ósk-
arsverðlauna-
leikkonan Emma
Thompson mun
leika einn af
kennurum
galdrapiltsins
Harrys Potters í
Hogwarts-skóla í
þriðju kvikmynd-
inni sem gerð verður eftir bók J.K.
Rowling, að því er kvikmyndafyr-
irtækið Warner Bros. Pictures til-
kynnti fyrir skömmu. Thompson
leikur kennslukonuna Sybill Trelaw-
ney í myndinni Harry Potter og
fanginn frá Azkaban. Þá mun leik-
arinn góðkunni Gary Oldman leika
Sirius Black og leikarinn David
Thewlis fer með hlutverk Lupins
prófessors. Þá mun Michael Gamb-
on leika Dumbledore prófessor en
Richard Harris, sem nú er látinn,
lék prófessorinn í tveimur fyrri
myndunum …Skötuhjúin Cameron
Diaz og Justin Timberlake rifust
heiftarlega í næt-
urklúbbi í New
York á dögunum
eftir að Diaz
dansaði við karl-
mann á staðnum.
Vitni segja að
parið hafi látið vel
að hvort öðru fyrr
um kvöldið en
Justin varð held-
ur óhress þegar Diaz fór upp á svið
og dansaði eggjandi dans við íþrótta-
mannslega vaxinn klúbbgest. Að
lokum missti Justin þolinmæðina og
skammaði Diaz sína sem sagði hon-
um að hundskast í burtu. Justin varð
svo mikið um að hann rauk á dyr en
Diaz hélt áfram
að dansa …
Britney Spears
er bandill þessa
dagana eftir að
fyrirtæki sem
framleiðir megr-
unarpillur notaði
hana í auglýs-
ingar sínar í leyf-
isleysi. Popp-
drottningin sást nefnilega missa glas
af Zantrez 3, vinsælum megr-
unarpillum, á flugvelli fyrr á árinu
og náðist mynd af atvikinu sem
framleiðandinn hefur notað í sölu-
herferð sinni. Í auglýsingunum kem-
ur fram að loks hafi tekist að afhjúpa
megrunarleyndarmál Britneyjar en
talsmenn hennar segja möguleika á
að hún fari í mál verði herferðinni
ekki hætt. Margir eru hins vegar
gramir út í Britney vegna sambands
hennar við dansarann Colombus
Short sem er giftur söngkonunni
Brandi en hún ber einmitt með barn
hans undir belti …
FÓLK Ífréttum