Morgunblaðið - 25.10.2003, Side 15
m 15
Viltu baða þig í desertum? Á Sólbaðs-
stofunni Smart, Grensásvegi 7, er
hægt að gera ljósatímann að lystauk-
andi afslöppun og fá meira en bara lit
á húðina. Þar er hægt að fá krem sem
draga nafn sitt og ilm af ýmsum eft-
irréttum. Hægt er að velja til dæmis
Créme Brulée á kroppinn, Chocolait à
L’orange, Chocolait framboises (jarð-
arberjasúkkulaði), ferskjusúkkulaði og
sítrónusorbet – allt eftir því hvað
manni finnst best fyrir ljós og eftir mat.
Créme Brulée á kroppinn
MarieBelle
konfektmol-
arnir eru engu
öðru líkir. Hver
moli er lista-
verk, mynd-
skreyttur munnbiti af því allra
besta súkkulaði sem hægt er
að finna. MarieBelle er kon-
fektverslun í Soho-hverfinu í
New York, og nafnið er dregið
af stofnanda hennar og hönn-
uði, Maribel Lieberman (sem
má segja að líti sjálf út eins og
lítill, sætur, súkkulaðimoli).
Súkkulaðið sem þar fæst er
handgert úr sérvöldu hágæða-
súkkulaði, með allt að 72%
kakóinnihaldi og inniheldur
engin rotvarnarefni og með-
höndlast því sem ferskvara.
Það sem eykur enn sérstöðuna
eru myndskreytingarnar á mol-
unum, en þeir eru vandvirkn-
islega skreyttir með litríkum
munstrum, glaðlegum fígúrum
og dálítið „sixties“legum
teikningum sem eru jafnljúf-
fengar og súkkulaðið sjálft.
Einnig er á boðstólum í versl-
uninni kakó sem dregur nafn
sitt af Aztekum, og inniheldur
allt að 73% úrvals belgískt
súkkulaði og má fá í ýmsum
bragðtegundum. Fallegu
ítölsku gjafaöskjurnar og boxin
eru svo punkturinn yfir i-ið og
sýna hversu grannt er hugsað
um að upplifunin af súkku-
laðinu verði sem fullkomnust.
Þeir sem leið eiga um New
York ættu að líta inn í þessa
draumaverslun súkkulaðisjúka
listunnandans.
MarieBelle, New York, 484
Broome Street.
www.mariebelle.com
sætar og ætar myndir