Vísir - 17.10.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 17.10.1980, Blaðsíða 4
4 Föstudagur 17. október 1980 vtsm FÆREYINGAR VELTA SÉR UPP ÚR SKOÐANAKÖNNUNUM í FYRIR ÞINGKOSNINGAR i Hákon Djurhuus flregup sig íhlé Einn af nafnkunnari stjórn- málamönnum Færeyinga, Hákon Djurhuus, tilkynnti á dögunum að hann hygðist draga sig i hlé úr stjórnmálabaráttunni, og gefur hann ekki aftur kost á sér til þings. Hann var einn af stofnendum Fólkaflokksdeildarinnar i Klakksvik á Norðureyjum fyrir fjörtiu árum (og ber flokksskirt- eini númereitt) oghefur átt sæti á lögþinginu i þrjátiu og fjögur ár. Fyrir dyrum standa nú í Fær- ■ eyjum kosningar til lögþingsins, | eins og Færeyingar kalla heima- þing sitt. Er kosningabaráttan hafin af fullum krafti og mikill hugur i kjósendum. Þar hafa farið fram skoðana- kannanir og þykja niðurstöður þeirra siðustu benda til þess, að fylgisaukning hafi orðið hjá borg aralegu flokkunum. Gáfu þær til kynna, aö fólkaflokkurin fengi 15%, sambandsflokkurin 28%, javnaðarflokkurin 22%, sjálv- stýrisflokkurin 7%, tjóðveldis- flokkurinn 21% og framburös- og fiskvinnsluflokkurinn 7%. Umreiknað i fulltrúatölur fengi fólkaflokkurinn fimm menn kjörna, sambandsflokkurinn niu, jafnaðarflokkurinn sjö, sjálf- stjórnarflokkurinn tvo, þjóð- veldisflokkurinn sjö og fram- burðs- og fiskvinnuflokkrinn tvo menn. Til samanburðar liggja fyrir niðurstöður skoðanakönnunar sömu aðila fyrir kosningarnar 1978. Þá var fólkaflokknum spáð 13% á grundvelli hennar. Sam- bandsflokknum 30%, sjálfstjórn- arflokknum 6%, þjóðveldisflokk- num 25% og framburðs- og fiski- vinnuflokknum 2%. A daginn kom svo, að fólka- flokkurinn fékk 17.9% en ekki 13%, eins og þá var spáð, en nú bendir könnunin til 15% I_________________________________ fylgis.Sambandsflokkurinn fékk engin 30%, eins og spáð var, heldur 26.2% og er nú spáð 28%. „Dagblaöiö” i Þórshöfn leggur út af þessari könnun á þann veg,að vinstriflokkarnir hafi fengið 6.4% minna, en kannanir gáfu til kynna, og borgararflokk- arnir 6.4% meira. Telur blaðið könnunina i þetta skipti þó senni- lega nær lagi, hvað vinstriflokk- ana áhrærir, en fylgi borgara- legu flokkanna of lágt metið.Með þvi að reikna út 6.4% skekkju- mörk á niðurstöðum könnunar- innar, vill blaðið spá þannig fyrir um fylgi, að fólkaflokkurinn fái 19.9%, sambandsflokkurinn 24.2% jafnaðarflokkurinn 20.3% sjálfstjórnarflokkurinn 8.2%, þjóðveldisflokkurinn 16.3% og framburðs- og fiskivinnufiokk- num 11.1%. Þvi ætlar blaðið báðum vinstri- flokkunum — jafnaðarflokknum og sambandsflokknum — saman- lagt44.5% atkvæða.en hinum öll- um 55.5%. Einhverjum kann að þykja þessi færeyski leikur að tölum úr skoðanakönnunum koma eitthvað einkennilega fyrir sjónir, en það verðurnógu forvitnilegt samt, að sjá, hversu nærri þessi reikni- | kúnst mun fara raunveruleikan- j um, þegar þar aö kemur. j Taka SAS 09 Sterling ■ upp samslarf? Viðræður eru hafnar milli flug- félagannaScanair ogSterlingum samvinnu þessara félaga í leigu- flugi og skiptingu á markaðnum þeirra i milli. Scanair er, eins og kunnugt er, dótturfyrirtæki SAS, og vekja þessar samstarfshug- myndir fyrir þá sök meiri athygli, að það hefur ekki alltaf rikt svo bróðurlegur andi milli SAS og Sterling. Ekki frekar en eitt sinn milli SAS og Loftleiöa. 1 rauninni eru þvi við- ræður þessara tveggja aðila, Scanair og Sterling, fjögurra póla vegna tengsla Scanair og SAS og hinsvegar tengsla Sterl- ings og Tjareborg. Þarna er þó ekki verið að ræða um neina sameiningu eða sam- runa flugfélaganna, heldur sam starf til þess að nýta hvað best markaðsmöguleika og svo flug- vélakostinn. SAS reynir að bæta sætanýtingu sina með leiguflugi um helgar, en vegna samdráttar á Evrópuleið- unum hefur félagið haft fjórar eða fimm langar DC-8-36 þotur á sölulista. Sterling elur á hug- myndum að taka við áætlunar- flugi á þeim Evrópuleiöum, sem SAS finnst ekki borga sig að halda uppi áfram, og nýta þessar DC-8 þotur SAS til leiguflugs, en skipta þó fyrst um hreyfla i þeim fyrir aðra sparneytnari. 1 sumar hefur Sterling fækkað i flugvélaflota sinum og selt til Frakkalnds sex Caravelle-þotur. Var þá um leið sagt upp störfum 200 manns. Er vonast til þess, að ekki þurfi að koma til fleiri upp- sagna. Enn á Sterling þó sex Caravellur og fimm nýjar Boeing 707-200 þotur. Sjötta Boeing-þotan er á leiðinni i þann flota. Bláfátækur Rockefeller Þegar menn heyra nefndan Rockefeller, sjá þeir gjarnan fyrir sér dollaramerki með minnst sex núllum fyrir aftan tölustafina. En Steven Rockefeller, jr. tvitugt barnabarn Nelson heitins Rockefeiler, kvaðst ekki hafa einu sinni ráð á að fá sér lögfræð- ing, þegar hann mætti á dögun- um fyrir rétti f Vermont kærður fyrir ölvun við akstur, mótþróa viö lögreglu o.fl. Hann er stúdent við háskólann 1 Vermont. Játaði hann sig sekan af ákærum, en baö dómarann að skipa sér réttargæslumann, þvl aö hann heföi engar tekjur, Eitthvað viröist dómaranum hafa runniðtilrifja þetta ástand f efnahagsmálum hins fátæka stúdents, þvf að henn lét nægja að sekta hann um 100 dollara fyrir of hraban akstur, en ölvunar- og mótþróakæran lá ó milii hluta. Gaf oflasi oeningana „Eg fann alltnf til sektar- kenndar þegar ég hafði unnið mér ínn mikla peninga og þess vegna gaf ég þá oftast eða reyndi að eyða þeim á sem fljótiegastan hátt” segir Bitillinn John Lennon nýiega i viðtali víð danskt dag- blaö. Lennon, sem vakti ávallt mikla athygli á velgengnisárum The Beatles fyrir uppátæki sfn hefur ekki verið i sviösljósinu undan- farin ár. „Ég hef sibustu árin helgað mig uppeldi á syni minum Sean og reynt aö vera aimenni- iegur heimUisfaðir” segir hann. Forsetalaun Þegar tfmaritið Penthouse valdi eina þokkadfsina „gæludvr ársins", en þeirri nafnbót fylgdu 300 þúsund dollara verblaun og fleira slfkt smávegis, var einn hinna minna þekktu frambjóð- enda til forsetakosninganna f USA, Ed Clark, tekinn tali af blaðamanni. Sá spurði Clark, hvað honum fyndist um, að ein feguröar- drottning gætiÍ!. oröiö fyrir út- litið eitt tekjuhærri en sjálfur Bandarfkjaforseti. Hann svaraði: „Alit getur það veriö afstætt, en ef menn miöa t.d. viö núverandi forseta, þá finnst mér það I góöu lagi, þvf að ekki er hann túskild- ings virði. Sjálfum finnst mér, að iaun forseta ættu að vera gullúr.. fjórða hvert ár.” Fiugsiys Atta manna áhöfn flutningavél- ar kanadfska flughersins fórst f gær, þegar vélin hrapaði I óbyggðum Quebec, þar sem hún var i ieitarflugi vegna þyrlu, sem saknað er. Ekki slollð ai nauðsyn Það eru ekki allir sem stela vegna þess að þeir séu i fjár- þröng, þaö sannaðist er arabiska prinsessan Noura Al Saud var handtekin i London á dögunum fyrir smáþjófnað úr versiun þar f borg. Það sem hún var að reyna aö stela átti aðeins aö kosta nokkur pund svo varla heföi prinsessunni orðið skotaskuld úr að borga fyrir hiutinn. En þaö viidi hún ekki gera þótt f veski hennar væri álitleg peningaupphæð eða nokkur hundruð pund.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.