Vísir - 24.11.1980, Blaðsíða 1

Vísir - 24.11.1980, Blaðsíða 1
I I I I I I I I 20% gengisfelling um áramótin? „EG ÞORI EKKERT IIM ÞAB RB SEGJA' - segir Tómas Árnason viöskiptaráðherra „Þessar bollaleggingar á þessu stigi eru hvergi marktæk- ar”, sagði Pálmi Jónsson, land- búnaðarráðherra, þegar blaða- maður Vísis spurði hann I morg- un álits á þeirri spá um 20% gengisfellingu um áramótin, sem komið hefur frá forystu- mönnum f útflutningsiönaðin- um. „Þessi spá miðast viö þarfir fiskiðnaðarins verði ekki gripið til neinna aðgerða i efnahags- málum, en það er margyfirlýst af hálfu ríkisstjórnarinnar, að það er stefnt aö viðtækum að- gerðum um áramótin og i ljósi þess kemur til með aö draga úr þörfinni fyrir gengisfellingu”, sagði Pálmi, en vildi ekki til- taka nánar i hverju þær aðgerð- ir yrðu fólgnar. „Það er ekkert nýtt, að óskir um gengisfellingu komi frá aöil- um i útflutningsiðnaöi, en þaö eru ekki þeir sem ráða þeim málum”, sagði Pálmi. „Ég þori ekkert um þetta að segja, og vil ekkert láta hafa eftir mér um þessi mál”, sagði Tómas Arnason, viðskiptaráð- herra, þegar blaðamaður bar þessi mál undir hann i' morgun. — P.M. j I I I I I I I I Enn leltað Hulda Harðardóttir sem sést á myndinni hér að ofan, er 43 ára, um 160 sm á hæð, grönn, ljóshærð með frekar stutt hár og grá augu. Sjá nánar frétt af leitinni að henni á baksiðu. Lögreglan auglýsti I gær eftir gulrl Volvoblfrelö, og var leitað að henni I gærkvöldl. Hún fannst I nótt og reyndist ökumaðurinn, sem var kona, lát inn, f fjörukambinum við Suðurnes á Seltjarnarnesi. Myndin var tekin þar eftir að konan fannst. Visismynd: Gunnlaugur Rögnvaldsson. Ólympíumólið: Tap uegn Rúlgörum Aö loknum fjórum umferðum á ólympfuskákmótinu hefur Islenska karlasveitin unnið tvær umferöir, tapað einni og gert jafntefli f þeirri fjórðu. I tveimur fyrstu umferðunum vannst sigur á Luxemborgurum og Kinverjum. A móti Búlgörum seig á ógæfuhliöina og tapaði íslenska sveitin, fékk hálfan vinn- ing móti tveimur og hálfum, en Margeir á óteflda biöskák. Frið- rik tefldi i þessari umferð og tap- aði sinni skák sem og Jón L. Arnason en Helgi gerði jafntefli. Jafntefli varð hins vegar með íslendingum og Spánverjum, 2:2. Kvennasveitin tefldi i gær gegn Sviss og vann 2:1, en áöur höfðu konurnar teflt viö kynsystur sinar frá Bandarikjunum og Kólumbiu.. Máttu þær þoia stórt tap gegn kaninunum en fengu einn og hálf- an á móti Kðlumbiu. Ekkert verö- ur teflt i dag. — SG Forystukjör hiá fllDvöuDandalaginu: Svavar sjálfkjörinn formaöur en mótframboð gegn Kjartani „Okkar flokkur breytist ekki viö þaö eitt, aö skipt er um for-. mann, en ég geri ráö fyrir því, að nýjum mönnum fylgi alltaf örlitið aðrar áherslur. t grund- vallaratriðum hcldur flokkurinn fast viö sina stefnu, og henni var ekki breyttá þessum landsfundi á einn eða annan hátt”. Þetta sagði Svavar Gestsson f samtali viö blaðamann Visis, en Svavar var á laugardaginn kjörinn formaður Alþýöubanda- lagsins i stað Lúðviks Jóseps- sonar. Uppstillinganefnd, sem kjörin var i upphafi landsfundarins, stakk upp á Svavari i sæti for- manns, og þar sem aðrar uppá- stungur komu ekki fram, var hann sjálfkjörinn. Hlutimir gengu ekki eins hljóöalaust fyrir sig varðandi varaformannskjöriö, en þar bauö Erlingur Viggósson sig fram gegn Kjartani ólafssyni, sem var tilnefndur af uppstill- inganefnd. Kjartan hlaut 171 atkvæöi, Erlingur 40 og 17 sátu hjá. Guðrún Helgadóttir var endurkjörinn ritari flokksins, án mótframboðs, og sömu sögu er að segja um Tryggva Þór Aöal- steinsson I sæti gjaldkera. „Þaö er þrennt sem er mikil- vægast fyrir flokkinn, og þá er égekkibara að tala um nærtæk- ustu vandamálin”, sagði Svavar Gestsson við blaöamann I gær. „1 fyrsta lagi er þaö, að flokk- urinn sé jafnan i forystusveit þeirra afla, sem vilja treysta og efla sjálfstæði islensku þjóöar- innar. 1 öðru lagi, að hann leggi áherslu á baráttu fyrir lýöræöi og jafnrétti andspænis fjár- magnsöflunum f þjóðfélaginu. 1 þriöja lagi, að flokkurinn f sfnu innra starfi leggi áherslu á það að vera bæði lýöræðislegri og virkari en aðrir flokkar”. Aðspurður sagöist Svavar ekki geta neitað þvi, að sig hafi veriö farið að gruna aö hverju stefndi varðandi formannskjör- ið fyrir þingið, þannig að þetta hefði ekki komið sér svo mjög á óvart. — P.M.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.