Vísir - 18.12.1980, Síða 31
Fimmtúdagur 18. désember 1980
e » • » l « f
VISIR
31
JðLAGETRAUN VÍSIS 9. HLUTI
Jólasveinninn er staddur í:
A) Q Oganda B) Q israel C) Q Egyptalandi
Nafn..........................................................
Heimilisfang..................................................
Jóiagetraun Vfsls
í góðum
félagsskap
Nú er lokið kjaradeilu
hreindýranna og Jóla-
sveinsins, því samning-
arnir voru samþykktir á
félagsfundi hreindýr-
anna í morgun með yfir-
gnæfandi meirihluta at-
kvæða. Fréttaskýrendur
segjast ekki vera undr-
andi á því, þar sem hrein-
dýrin hafi náð fram mun
betri samningum en aðrir
hagsmunahópar. Jóla-
sveinninn mun því að öll-
um líkindum ferðast með
hefðbundnum hætti fyrir
næstu jól.
Næstsiðasti hluti Jóla-
getraunar Vísis birtist í
dag og er Jólasveinninn í
góðum félagsskap á suð-
lægum slóðum. Þarna
virðist vera siður að
skreyta píramídana og
dansa í kringum þá í stað
þess að nota jólatré.
Á morgun birtum við
upplýsingar um það hvert
og hvenær lausnir í Jóla-
getraun Vísis eiga að ber-
ast. Við minnum ennþá á
vinningana, sem eru JVC
stereó-, útvarps- og kass-
ettutæki frá FACO, fata-
úttekt í FACO fyrir 75
þdsund krónur, og tíu ís-
lenskar hljómplötur frá
hljómdeild FACO.
JVC stereótækiö, sem er i fyrstu verölaun i Jólagetraun Visis.
Sveitarfélag
„Þú ert alltof mikiö klæddur i þessum hita. Komdu meö mér inn i Keops-piramídann og
kældu þig niöur.”
svo mœlix Svarthöföi
Sendiboði leitar grunnverðs víll um heim
Þá er loksins búið að finna
„fidusinn” f isal. Ingi R. Helga-
son, sérlegur sendimaður Al-
þýðubandalagsins, er sagður
nýkominn frá Astraliu, þar sem
hann reiknaði út með aðstoð
Hagstofu landsins hvernig verð
á súráli hækkaði á leið þaðan til
islands. Er það ekkert smáræði,
cn samkvæmt þeim útreikningi
vantar eina fimm milljarða á
réttarskattgreiðslur af Alverinu
i Straumsvík. Er þetta ekki i
fyrsta sinn sem Atlantshafið
hefur orðið okkur islendingum
dýrt, enda ekki nema rúmur
mannsaldur siðan allur varn-
ingur, sem hingað kom, hækk-
aði ótæpilega í hafi, ekki þó til
taps fyrir tiundina i landinu.
Hækkunin var étin á íslandi.
Ekki fylgir skýrslu Inga R.
Helgasonar, sendiboða, hvað
súrálið hækkaði á leiðinni yfir
Kyrrahaf sérstaklega, en það
væri óneitanlega gaman að vita
það, og mætti reikna út eftirsjó-
milum. Mundi það þá verða í
fyrsta sinn sem sannaöist, að
Kyrrahafið er notað til að hafa
fé af islendingum. Þess er þó
varla að vænta, þótt Ingi R.
Helgason, sendiboði, sé allra
manna færastur i fjármálum,
eins og réttmætt traust á honum
sýnir allar götur síðan hann var
fjárhaldsmaður Sameiningar-
fíokks alþýðu , sósialistaflokks-
ins. Forstjóri isals hefur brugð-
ist hart við þessum látum og
lýst þeim sem pólitiskum of-
sóknum. Er vonum seinna að
eitthvað fari að bera á þeim að
nýju fyrst komið er i ljós að
Flugleiðir eiga fyrir skuldum.
Fyrirtækjaspan Alþýðubanda-
lagsins ætlar að þessu sinni aö
lenda i öngstrætum. En æfingin
skapar meistarann, og næst
þegar borgaraöflin i landinu
kjósa að láta Alþýðubandalagið
ráða fyrir sér i rikisstjórn er
von tii þess að eitthvert stór-
fyrirtæki falli.
En meöal annarra orða. Þeg-
ar talaö er um að vara hækki f
hafi, og flogið er alla leið til
Astraliu til að finna grunnverð,
hefði verið álitamál hvort ekki
hefði mátt fljúga styttra eftir
þýðingarmeiri grunnverðum.
Innflutningur okkar hefur ekki
svo vitað sé lotiö neinum grunn-
verðsreglum, og ættu þeir sem
hafa með viðskipti við Balkan-
rikin og Rússland að gera að
gefa okkur skýrslur þar um.
Fyrst Alþýðubandalagið er far-
ið að vasast i svonefndum
grunnverðum ætti það að nota
sendiboðann til aö afla upp-
lýsinga um grunnverö innflutn-
ingsvöru helstu rúbluheildsal-
anna á tslandi, og þyrfti þó ekki
að fara svo djúpt i saumana á
þeim viðskiptum að ákveönar
blóðgjafir til flokksstarfsemi og
blaðautgáfu yrðu gerðar opin-
skáar. Grunnverð samkvæmt
skilningi súrálsþefara á að vera
það verð sem varan kostar viö
verksmiöjuhlið og er þá gert
ráð fy rir þvi að verksmiðjuverö,
ljós og hiti og fjármagns-
kostnaður vegna hráefniskaupa
sé ekki innifalinn. Slikt grunn-
verð hlýtur að vera hagstæðara
en þegar búið er aö reikna allan
fjandann inn i verðið, jafnvei
óþarfa eins og fjármagnskostn-
að við nýbyggingar. Þar sem
ljóst er að þeir Alþýðubanda-
lagsmenn telja atvinnurekstur
einstaklinga og stofnana ekkert
annað en svindl og brask mætti
segja manni að óbrenglaö
grunnverð væri helst að finna i
Sovétríkjunum og leppríkjum
þeirra.
Nú vill svo til að við kaupum
oliu af Sovétrikjunum. Frá ár-
inu 1974 hefur hún áreiðanlega
hækkaö um hundruöir milljóna
dollara i hafi miðað við grunn-
ver ðskenninguna. Svo
skemmtilega vill til að þessa
oliu kaupum við af Rússum um
þessar mundir á veröi sem gild-
ir i Rotterdam, mestu oliuviö-
skipta- og braskstöð heimsins.
Skyldu þeir ræða grunnverð i
Rotterdam? Þar i borg eru þeir
stundum langt yfir svonefndu
OPEC-verði, sem er næst þvi að
vera heimsmarkaðsverð. Þá
hækkar nú olian okkar heldur
betur i liafi. Súrálið fáum viö á
heimsmarkaösveröi eins og þaö
er skráð hverju sinni. Aströlsk
reikningsdæmi koma þvi máli
litið við. Þar er um óskylt mál
að ræða. Við kaupum oliuna á
Rotterdam-verði, en ekki
OPEC-verði. Samt mundi annaö
verð fyrirfinnast i Baku ef Ingi
R. Helgason færi þangaö og
fengi aö tala viö Hagstofuna, af
þvi hann er trúnaöarvinur henn-
ar og flokks rangfærslanna.
Svarthöfði