Morgunblaðið - 15.12.2003, Síða 22
22 C MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
S
jáland í Garðabæ mun
hafa yfir sér sérstakt yf-
irbragð. Skipulag hverf-
isins tekur mið af nálægð
þess við sjóinn, en hverfið stendur
á ströndinni við Arnarnesvog og
eitt aðaleinkenni þess er gott út-
sýni yfir voginn allt til Snæfells-
jökuls og til Esju.
Hverfið er byggt í þremur
áföngum. Í fyrsta áfanga verða
reistar tæplega 300 íbúðir. Þær
verða í fjölbýlishúsum, sem verða
frá þremur og upp í sex hæðir.
Alls er gert ráð fyrir, að um 750
íbúðir verði byggðar á Sjálandi og
íbúar hverfisins verði um 2.000
alls. Hönnuður hverfisins er Björn
Ólafs, arkitekt í París, en margir
arkitektar munu hanna húsin. Það
á að tryggja fjölbreytni í húsagerð
og að yfirbragð hverfisins verði
ekki of einsleitt.
Það eru fyrirtækin Björgun og
Byggingafélag Gylfa og Gunnars,
sem standa að uppbyggingu hverf-
isins í samvinnu við Garðabæ.
Þetta verður afar aðlaðandi hverfi.
Vestast við Arnarvog er náttúrleg
fjara. Í beinu framhaldi af henni til
austurs er gert ráð fyrir svæði,
þar sem verður leikskóli, spark-
völlur og sjóbaðsströnd, sem snýr í
sólarátt. Aðstöðu til fuglaskoðunar
verður komið fyrir á tanga og
strandlengjan verður öll opin al-
menningi, en gangstígur á að
tengja hana og hverfið við miðbæ
Garðabæjar.
Hverfið hefur fengið nafnið Sjá-
land eftir Sjálandi í Danmörku og
götur í hverfinu eiga að heita eftir
þekktum götum í Kaupmannahöfn,
þar sem Íslendingar komu við
sögu fyrr á öldum. Hugmynda-
smiðurinn að þessum nafngiftum
er Hallgrímur Helgason rithöfund-
ur.
Þannig á verzlunargata hverf-
isins að heita Strikið, lengsta gat-
an Langalína og höfnin í hverfinu
á að heita Nýhöfn. Útivistargarð-
urinn á að heita Bakkinn eftir
Dyrehavsbakken og baðströndin
Sjóvangur líkt og Søvang í Dan-
mörku. Þarna verður líka Vest-
urbrú og Strandvegur og göngu-
stígar hverfisins fá heitin
Hafnarslóð og Sagnaslóð.
43 íbúðir
Hjá Borgum og Eignamiðlun
eru nú til sölu íbúðir í fjölbýlishúsi
í smíðum við Strandveg 24-26 og
Norðurbrú 4-6 á Sjálandi. Húsið
verður vinkillaga og stendur því
við tvær götur. Í húsinu eru 43
íbúðir, en það verður fjórar hæðir
auk bílageymslu í kjallara. Bygg-
ingaraðili er Þ. G. verktakar en
hönnuður nýbyggingarinnar er
Björn Ólafs arkitekt, sem einnig
hefur skipulagt hverfið samkvæmt
framansögðu.
Íbúðirnar eru mismunandi að
stærð, allt frá 2ja herbergja og
upp í 4-5 herbergja. Minnsta íbúð-
in er 57,8 ferm. en sú stærsta
140,7 ferm. Verðið er líka að sama
skapi mismunandi, en minnsta
íbúðin kostar 11,7 millj. kr. og sú
stærsta 27 millj. kr.
Töluvert er í þetta hús lagt. Það
er steinsteypt með hefðbundnum
hætti og útveggir einangraðir að
innan. Þakplatan er steypt og ein-
angruð að ofanverðu. Gluggar eru
úr furu, álklæddir að utan og gler-
jaðir með K-gleri, opnanleg fög
eru úr áli og hurðir ýmist úr áli
eða úr Oregon pine.
Útveggir hússins eru ýmist
klæddir með litaðri álklæðningu
eða litekta múrklæðningu og mis-
munandi litaval utanhússklæðn-
inga mun gefa húsinu ferskan blæ.
Á þaki eru fimm bogalaga kvistir
en annars eru þökin flöt og upp-
byggð í stofurýmum á efstu hæð.
Fjórir stigagangar eru í húsinu
og lyfta í þeim öllum. Bílageymsla,
með aðkomu í austurenda hússins,
er í kjallara og bílastæði fylgir öll-
um íbúðum sem og sérgeymsla í
kjallara. Stórar svalir fylgja flest-
um íbúðum. Þaksvalir eru á efstu
hæð og sérafnotaréttur fylgir
íbúðum á jarðhæð.
Flestar íbúðirnar hafa sjávarút-
sýni til norðurs og vesturs að hluta
og frá íbúðum á efstu hæð er
framúrskarandi útsýni. Stutt er í
góðar gönguleiðir og útivistar-
svæði.
Að innan skilast íbúðirnar full-
búnar en án gólfefna, nema bað-
herbergi sem verða flísalögð.
Fataskápar verða allir spónlagðir
með eik og í yfirhæð. Slökkvitæki,
reykskynjari og læsanlegur lyfja-
skápur fylgja hverri íbúð.
Í eldhúsi verða innréttingar af
vandaðri gerð frá danska fyrirtæk-
inu HTH, en þar er strangt gæða-
eftirlit með framleiðslunni og ekki
notuð efni, sem á einhvern hátt
hafa skaðleg áhrif á umhverfið og
andrúmsloft heimilisins.
Eldunartæki verða af vandaðri
gerð frá AEG. Í öllum íbúðum
verða keramikhelluborð, sem felld
eru í borðplötu og veggháfar, en
háfar og ofnar verða úr burstuðu
stáli.
Baðherbergi eru rúmgóð og í
flestum íbúðum eru baðkar og
sturta með klefa. Baðinnrétting
verður spónlögð með eik. Mynd-
dyrasími fylgir öllum íbúðum og
hurðir í bílageymslum verða með
fjarstýrðum opnunarbúnaði.
Innganga og aðkeyrsla í bíla-
geymslu verður með snjóbræðslu
og við íbúðir á jarðhæð verða ver-
andir úr timbri. Sameiginleg garð-
svæði verða öll fullfrágengin með
gróðri og girðingum samkvæmt
teikningum landslagsarkitekts.
Stórir glerfletir í útsýn-
isáttum
Góð hönnun á íbúðunum þarf
ekki að koma óvart, en Björn Ólafs
hefur getið sér gott orð fyrir fram-
úrskarandi hönnun bæði hér
heima og erlendis. Í þessu fjöl-
Útlitsteikning af húsinu, sem er fjórar hæðir auk bílakjallara. Í húsinu eru 43 íbúðir, en það er vinkillaga og stendur við tvær götur, Strandveg 24-26 og Norðurbrú 4-6 í Sjálandi. Fjórir stigagangar eru í hús-
inu og lyfta í þeim öllum. Við hönnun hússins var lögð áhersla á að fá fram bjartar íbúðir með góðri innri nýtingu og stórum glerflötum í útsýnisáttum. Stórar svalir fylgja flestum íbúðum. Þaksvalir eru á
efstu hæð og sérafnotaréttur fylgir íbúðum á jarðhæð.
Útsýnið út á sjóinn verður snar þáttur
í stemmningu Sjálands í Garðabæ
Mikill áhugi er úti á markaðnum á hinu nýja hverfi í
Sjálandi í Garðabæ. Magnús Sigurðsson kynnti sér
íbúðir í smíðum í fjölbýlishúsi við Strandveg og
Norðurbrú.
Morgunblaðið/Jim Smart
Íbúðirnar eru til sölu hjá Borgum og Eignamiðlun, en fyrstu íbúðirnar verða afhentar í júní–júlí á næsta ári. Þessi mynd er
tekin fyrir framan fjölbýlishúsið, en uppsteypa þess er nú vel á veg komin. Frá vinstri: Magnús Geir Pálsson, sölumaður
hjá Borgum, Þorvaldur Gissurarson byggingameistari, sem byggir húsið, Þorleifur St. Guðmundsson sölumaður og
Sverrir Kristinsson fasteignasali, en þeir starfa báðir hjá Eignamiðlun.
Morgunblaðið/Jim Smart
Björn Ólafs arkitekt er hönnuður hússins. Hann hefur einnig skipulagt hverfið.