Vísir - 20.01.1981, Page 3
Þriðjudagur 20. janúar 1981.
r —......
3
Formaður Félags flsksala:
„FISKSALAR VERÐA
HREINLEGA AÐ LOKA
- el ákvðrðun tiskverOs dregst miktu lengur
„Fisksalar verða hreinlega að
loka, ef ekki fer að hilla undir
nýtt fiskverð", sagði Bárður
Steingrimsson formaður P'élags
fisksala i viðtali við Vísi.
Fisksalar eru orðnir mjög
uggandi vegna þess hve seint
gengurað ákveða nýtt fiskverð.
Bæjarútgerð Heykjavikur dró
hins vegar til baka þá 21%
hækkun á neysluíiski til fisk-
sala, sem blaðið greindi lrá i
gær.
,,Þetta mál stendur alveg og
fellur með komu nýja iiskverös-
ins”, sagði Bárður ennfremur.
„Við fáum eftirkröfu og veröum
að yfirborga alla linuýsu sem
við kaupum á Suðurnesjum. Viö
erum þegar farnir að borga 40-
50 krónum meira fyrir ýsuna
núna en við gerðum, bara til að
létta á okkur byrgðirnar þvi hún
gæti hækkað um 70-80 krónur.
Það segir sig sjálft að meðan við
fáum ekki að hækka verðið,
verðum við að loka”.
Hins vegar sagði Báröur, að
fisksalar hefðu nú hækkað verð-
iðofurlitið á þeim fisktegundum
sem ekki væru inni i visitölunni.
Það væri þó aðeins dropi i hafið.
—.iss
Kisksalar segja, að komi ekki nýtt fiskverð á næstunni verði þeir að loka fiskbúðunum.
Vísisntynd: EÞS
NEFND KANNAR HVORT
VIÐHALDIÐ FÆST HEIM
Steingrimur Hermannsson
samgönguráðherra hefur skipað
nefnd sem kanna skal möguleika
á að flytja viðhald alls flugflota
Flugleiða til landsins. Var gengið
frá skipan i nefndina fyrir helgi,
en ákveðið var að gera þessa
athugun þegar Flugleiðum var
veitt rikisábyrgð á fimm milljón
dollara láni á siðastliðnu vori.
1 nefndinni eiga sæti þeir Leifur
Magnússon flugrekstrarstjóri
Flugleiða, Ragnar Karlsson flug-
virki, Helgi Agústsson yfirmaður
varnarmáladeildar, Jón Ormur
Halldórsson aðstoðarmaður for-
sætisráðherra og Birgir Guðjóns-
son deildarstjóri i samönguráðu-
neytinu.
Þegar umrædd rikisábyrgð var
veitt, varð að samkomulagi að
gera athugun á þvi hvernig vinna
mætti markvisst að þvi að færa
allt viðhald flugvélanna hingað ti!
lands, enda væri þá aðstaða fyrir
hendi og kostnaður sambærilegur
við það sem gerist annars staðar.
Hér er fyrst og fremst verið að
ræða um viðhald á DC-8 þotum
Flugleiða, en viðhald á þeim fer
fram i New York.
SG
formast Latex/Lystadún dýnan undir þér— og eltir síðan
hverja hreyfingu þína þannig, að hún styður alltaf undir mitti og mjóhrygg.
Latex/Lystadún dýna er samsett úr stinnu Lystadún undirlagi
og mjúku Latex yfirlagi.
Þyngstu líkamshlutar bæla Latexlagið niður að stinnu
Lystadúnlaginu. Þannig lagar dýnan sig að líkamanum.
Árangurinn er að hryggsúlan liggur nokkuð bein, hvíldin verður
fullkomnari og þér hættir síður til eymsla í hrygg. Þau orsakast oft
af röngum rúmdýnum.
Langbestu
eldavélakaupin
sem við getum boðið frá
Þessi fullkomna glæsilega eldavél er á óvenju
hagstæöu veröi, kr. 6.181.- með viftunni (ef vifta
á ekki aðblása út kostar kolasia kr. 561.-
Þú færð allt með þessarri vél:
2 fullkomnir stórir bakarjfnar, eíri ofninn með
grilli og rafdrifnum tein, sjálfhreinsandi, hrað-
hitun er á ofninum, Ijósaborð yfir rofum. 4 hell-
ur, fullkomin vifta með digitalklukku og fjar-
stýrisbúnaði fyrir vél.
Glæsilegir tískulitir:
Avocado grænn, karrý gulur, inka rauður, svart-
ur og hvítur.
Eigum einnig kæliskápa, frystiskápa, upp-
þvottavélar og frystikistur.
Greiðsluskilmálar
EINAR FARESTVEIT & CO. HF
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995
Hitaveita Akraness og
Borgarfjarðar
óskar eftir tilboðum i vikurflutninga
vegna aðveitu Sileyri-Akranes.
Útboðsgögn verða afhent á verkfræðistof-
unni Fjarhitun sf., Álftamýri 9, Rvik.,
Verkfræði og teiknistofunni sf., Heiðar-
braut 40, Akranesi og verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen Berugötu 12,
Borgarnesi gegn 200 kr. skiiatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Akraness og Borgarfjarðar, Heiðar-
braut40, Akranesi þriðjudaginn 10. febrú-
ar 1981 kl. 15.30.