Vísir - 29.01.1981, Blaðsíða 2
Hvern telur þú hæfastan
stjórnmálamann á íslandi í
dag?
Lára Vilhelmsdóttir, simastúlka:
Gunnar Thoroddsen, hann hefur
gert stærstu hlutina.
Anna Gunnarsdóttir, afgreióslu-
stúlka: Gunnar Thoroddsen.
Eirikur Finnsson, matreióslu-
maður: Ekki gott að segja, ég
held þó, að það sé Gunnar Thor-
oddsen.
Hjalti Bjarnfinnsson, nemi: Ætli
Gunnar Thoroddsen sé ekki
skástur.
Anton Kingenberg, verslunar
maóur: Gunnar Thoroddsen.
vísm
Fimmtudagur 29. janúar 1981
r
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
l
i
i
i
i
i
i
i
i
v
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
LlKLEGA MUNll
MENN RÁÐA
OPNUNARTÍMA
SJALFIR
Rætt við FriðriK Eyfjörð sem stundað
hefur verslunarstörf f 53 ár
Arið 1927 hóf 15 ára unglingur,
Friðrik Eyfjörö að sendast fyrir
fyrirtækið O. Johnson &
Kaaber, yfirsumartimann. Alla
tið siðan hefur Friðrik unnið við
verslunarstörf og þótt starfsár-
in séu oröin 53, og það 54. sé óð-
um að bætast við, ber Friðrik
ekki meö sér að hann sé að nálg-
ast sjötugsaldurinn, þar sem við
hittum hann aö máli i Leður-
vöruverslun Jóns Bryjólfsson-
ar, en þar hefur hann starfað i
rúm 50 ár. Friðrik er kvæntur
Fríðu Eyfjörð leikfimikennara
og eiga þau eina dóttur Jórunni
Erlu Eyfjörð.
,,Nei ég hef unað mér vel i
þessu starfi og hefði ekki viljað
velja annað æfistarf, ætti ég völ
á”, sagði Friðrik. — Við inntum
Friðrik eftir fyrstu kynnum
hans af launþegasamtökum
verslunarmanna. „Þegar ég hóf
störf hér, gekk ég i launþega-
samtök verslunarmanna, sem
kennd voru við verslunarguðinn
Merkúr. Þau voru liklega stofn-
uð um 1913. Þarna var hinn
ágætasti kór til staðar en hann
var stofnaður sama ár og ég
gekk i félagið.” sagði Friðrik.
Og þar sem Friörik er mikill
áhugamaður um söng, gekk
hann að sjálfsögðu i karlakór-
inn, hlaut stöðuna 2. tenór og
undi sér hiö besta.”
,,A þessum tima var hugur i
mönnum i slikum samtök-
um. Það var litið um aðra af-
þreyingu og þvi tók félagið aö
sér ýmiskonar skemmtan, sem
hægt er að fá annarsstaöar i
dag. A þessum árum var hugur
mikill i mönnum og þá strax
rætt um að stofna byggingar-
félag og reisa sumarbústaði,
sem nýlega var svo hrundiö i
fra mkvæmd.”
— Voru margir karlakórar
starfandi i félagasamtökum á
þessum árum?
„Nei, mig minnir að aðeins
hafi verið karlakór KFUM og
karlakór Reykjavikur. Viö náð-
um svo langt að syngja i útvarp-
ið og fengum 85 krónur fyrir,
sem dugði i góöa máltið á Borg-
inni, sem þá var nýopnuö.
Annars lagðist félagsskapurinn
niður nokkrum árum eftir að ég
hafði gengið i hann, en þá var
Friðrik Eyfjörö hefur starfaó yfir 50 ár hjá Leðurvöruverslun
Jóns Brynjólfssonar.
Verslunarmannafélag Reykja-
vikur farið aö virka sem laun-
þegafélag.
— Við báðum Friörik að skýra
frá þvi helsta varðandi þá
breytingu sem hann fyndi á
starfinu, frá þvi fyrr á árum.
„Vinnutiminn hefur verið að
smástyttast.Þegarég byrja var
algengt að vinna frá 9-19 sex
daga vikunnar en siöan fór
smátt og smátt að skerast af
laugardögunum. Ég held aö fólk
almennt hafi það ólikt betra i
dag.
Og framtiðin?
,,Ég held að i framtiðinni
muni menn liklega ráða þvi
sjálfir hvenær þeir hafa opið, en
það er jafnframt alvég ljóst að
þótt opnunartiminn verði þannig
frjáls, þá versla menn ekkert
meira, þetta væri fyrst og
fremst hagræði fyrir viðskipta-
vini. Annars er þaö svo að menn
geta nú oröið fengið hvað sem er
i kvöldsölunum allt fram undir
miðnætti, nema þá kjötvörur.”
Varðandi starf sitt taldi Frið-
rik að það hefði litið breyst i
gegnum árin. 1 leðurvöruversl-
uninni hefur heildsalan verið
stærstur hluti i gegnum árin.
Þar þarf að pakka inn varningi,
sjá um sölunótur, bókfærslu,
auk þess sem smásöluverslunin
þarf sinn tima.
Rétt i þessu kom viðskipta-
vinur inn i leit að leðurreimum,
og annar I leit að skinnpjötlum,
svo i nógu var að snúast fyrir
Friðrik. Viö tókum þvi þann
kostinn að kveðja kappann enda
komið að lokunartima. —AS
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
-J
Flensa í
Flensöepg
Flensa herjar nú mjög
á fóik á höfuðborgar-
svæðinu og viðar um
land. Nemendur fram-
haldsskóla veikjast ekki
siður en aðrir og veikindi
þeirra ættu aö valda
læknum ærnum verk-
efnum.
Nemandi I Flensborg
kvaðst hafa lagst i flensu
og ekki vitaö fyr'r en hann
kom á fætur að honum
ber skylda til aö framvisa
læknisvottorði um að
hann hafi verið veikur.
Miðað við hvað flcnsan
hefur verið skæð taldi
nemandinn aö læknar i
Hafnarfiröi hefðu ekki
annað fyrir stafni en að
aka á milli nemenda og
skrifa vottorð.
•
Fréttir
sjónvarps
Fréttastofa sjónvarps
hefur tekiö á sig rögg og
hleypt nýju lifi I frétta-
timana. Fréttaviðtöl eru
fleiri en styttri sem er til
mikilla bóta og þvi hægt
aö segja frá fleiri málum
I hverjum tima.
Þá hefur aukin notkun
bakgrunnsmynda, fyrir-
gefið orðiö, gert frétta-
lesturinn liflegri. Emil og
hans menn byrja þvi nýja
árið vel og vonandi
verður framhaidið ekki
síðra.
„unsu
skáldin
yrkja
kvæði...”
Víkurblaðið á Húsavik
heldur uppi ágætum
visnaþætti og eftir þvi
sem ég kemst næst er
hann I umsjá Brynhildar
þeirrar er gat sér gott orð
i spurningaþætti Jónasar
Jónassonar. I síðasta
visnaþætti mátti lesa
eftirfarandi:
Guömundur Halldórs-
son hafði verið að lesa
svokallað „ljóð” eftir eitt
af þessum svonefndu
„skáldum” i Mogganum.
Þótti Guðmundi litiö til
k veðskaparins koma,
þótti hann I meira lagi
ruglingslegur og litt til
eftirbreytni frekar en
margt það sem úr
pennum ýmissa sjálf-
skipaðra skálda rennur.
Varð þá Guömundi að
orði:
Hverri merking hvolfa
við
kalla fótinn hendi.
Forarpyttinn fiskimiö
og fjöllin akurlendi.
Þorsteinn Jónsson
Þorsteinn í
glafahúslð
Þorkell Valdimarsson
stórgrósser gaf Alþýðu-
sambandinu húseign á
^Vesturgötu á sinum tima
og þótti gefanda við hæfi
að það yröi I eigu ASt þar
sem Ottó N. Þorláksson
bjó þarna á sinum tima.
Alþýðusambandið
braskaði siðan með húsið
i viðskiptum við Alþýðu-
bankann og bankinn
hefur síðan selt það
Þorsteini Jónssyni kvik-
myndagerðarmanni.
Hvort að Þorsteinn á að
gera heimildarmynd um
Ottó eða Alþýðusam-
bandið i staðinn er ekki
vitað.
Þorkell Valdimarsson
Lagt upp
í flugferð
Afgreiðslumaður Flug-
leiða á Keflavikurflug-
velli átti i erfiðleikum
með frú eina sem
kvartaði undan þvi aö
vélin til Kaupmanna-
hafnar færi ekki fyrr en
eftir tvo tima. Lét hún
óspart i það skina að hún
ætti mikið undir sér og
vissara fyrir Flugleiðir
að láta sig ekki biöa.
— Ég þarf ekki annað
en að sveifla annarri
hendi og þá er ég komin
til Kaupmannahafnar,
másaði frúin.
— Gjörðu svo vel. Flug-
brautin er auð og þér er
velkomiö að nota hana,
svaraöi afgreiðslumaöur-
inn án þess að bregða ró
sinni.
Sagan
breytist
Rússinn skoðar ein-
kunnabók sonar síns og
verður illur á svip:
— Hvernig stendur á
þvi að þú færö svona lága
einkunn i sögu?
— Það er vegna þess að
ég las kennslubókina sem
gefin var út i fyrra.
Sæmundur Guðvinsson
olaðamaður skrifar
Kenna
veiðar
og fá
olíu
Útsendarar Gaddafis I
Lígbiu voru staddir i
Færeyjum á dögunum og
þreifuðu fyrir sér um aö-
stoð frá Færeyingum um
kennslu i fiskveiðum. A
móti bjóöa þeir eyja-
skeggjum oliu og ávexti.
Samkvæmt fréttum i
færeyskum blöðum af
þessu máli tæki þaö
Libýumenn 12 tima að
framleiða þá oliu sem
Færeyingar nota á heilu
ári.
Viö höfum fyrir
skömmu tekið upp stjórn-
málasamband við Saudi-
Araba og kannski væri
ekki svo vitlaust að taka
upp samband við fleiri
arabaþjóðir og bjóða
þeim aðstoð við fisk-
veiöar gegn þvi að þær
láti okkur i té ódýra oliu.