Vísir - 29.01.1981, Blaðsíða 11

Vísir - 29.01.1981, Blaðsíða 11
Fimnitudagur 29. janúar 1981 VtSIR Nú fer hver að verða siðastur með að gerast áskrifandi að Visi með þvi hugarfari að eiga kost á öllum þremur vinningunum i áskrifendagetraun- inni. — Þó er ekki öll nótt úti enn. Afgreiðsla blaðsins tekur við nýjum áskrifendum simleiðis alveg fram að þvi að dregið verður á morgun kl.17 og til að tryggja nýjum áskrifendum þátttöku i leiknum fylla starfsmenn blaðsins getraunaseðlana út fyrir nýju áskrifendurna. — Hætt er við að álagið verði mikið á morgun svo betra er að hafa varann á og hringja strax i dag. Fyrsti vinningurinn, Mitsubishi Colt, verður dreginn út á morgun kl.17. Coltinn hefur reynst prýðilega hér á landi, sem annars staðar, þykir traust- ur, rúmgóður og sparneytinn. Hann hefur unnið fjölda sparaksturkeppna, hefur verið útnefndur traustasti bill ársins með minnstu bilanatiðnina af öllum bilum i vestur-þýska bilablaðinu ADAC. — Visis-Coltinn er gulllitað- ur framhjóladrifinn, fjögurra dyra tilbúinn á götuna. Sá áskrifandi blaðs- ins, sem hann hreppir verður þanndag7.4 millj. gkr. rikari. ÞETTA BfflST ÞER! Annar vinningurinn, Suzuki SS 80F, verður ■ dreginn út 31. marz nk. Suzuki er nýjasti billinn j frá Japan hér á markaðinum. Við hann eru i bundnar miklar vonir, sérstaklega núna i orku- kreppunni, en hann er sagður eyða aðeins 5 litr- I um á hundraðið. Mörgum kann að þykja billinn | kraftlitill, þegar þeir heyra að orka hans sé að- i eins 40 hestöfl DIN, en hann er þó sagður hafa yfirdrifinn kraft við erfiðustu aðstæður. Visis-Suzuki er fjögurra dyra. Þrátt fyrir litla | fyrirferð vekur athygli hve rúmgóður hann er. Hann er framhjóladrifinn og þvi vel stöðugur við erfiðar aðstæður. Hann kostar út úr búð um 5.9 millj. gkr. Þriðji vinningurinn, sumarbústaður frá Húsasmiðjunni, verður loks dreginn út 29. mai. Lögð er áherzla á að þessi bústaður sé eins vel úr garði gerður og hugsanlegt er. Hann er 42 fermetrar að stærð með stofu, tveimur svefnherbergum, eldhúsi, baðherbergi og geymslu. Bústaðurinn er allur panelklæddur með úrvals furu, með vandað sumarbústaðaparkett á gólf- um, eldhúsinnrettingum og skápum. Lögð er mikil áherzla að vanda ein- angrun hans sem bezt, sem kemur sér vel þó um hásumar sé, fyrir svo utan það, að margir eru farnir að nota bústaði sina lengri tima ársins en áður var. Bústaðurinn verður reistur hvar á landinu, sem vinningshafi vill. Verð- mæti hans er sagt vera 15 millj. gkr., Þeir i Húsasmiðjunni, segja þó að sannvirði hans eins og hann verður frágenginn af hálfu Visis væri nær 20 millj. gkr. • Þú tekur upp tólid og hringir í síma 86611 (opið til kl. 22) • Þú gerist Vísisáskrifandi • Þú biður afgreiðslu Vísis að fylla út getraunaseðilinn • Fulltrúi borgarfógeta dregur þinn seðil út (ef heppnin er með) • Þú ekur á brott í nýjum gulílituðum Colt AUir Vísisáskrifendur eiga kostá Coltínu (líka þeir, sem koma á seinustu stundu) Coltinn unnist

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.