Vísir - 29.01.1981, Blaðsíða 4

Vísir - 29.01.1981, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 29. janúar '1981 BRASILÍU Stórglæsilegt úrval af LEÐURSÓFASETTUM Smlöjuvegi 6, sími 44544. Kjörgarði, Laugavegi 59, sími 16975 Svlblóð: Hallar undan fæti Það gustar kalt um efnahags- lif Svia i vetur. Lengi hafa þeir verið ónæmir fyrir tilfallandi þrengingum annarra iðnrikja, en þær knýja nú dyra hjá þeim .sjálfum og þykir sú gestakoma ekki frýnileg. Liktog fleiri aðrir þurfa Sviar nú að greiða matvöru, elds- neyti, húsnæði og heilbrigðis- hjálp hærra verði en áður. At- vinna hefur minnkað, fleiri fyrirtæki verða gjaldþrota og langvarandi friður á vinnu- markaðnum hefur verið rofinn með deilum. Einkenni sjúks efnahagslifs, sem smitast hefur af oliu- kreppu, heimskreppunni og of mikilli eyðslu þess opinbera blasa jafnt við landsstjórninni sem landslýð. Samdráttur i framleiðslu, vaxandi innflutn- ingur, dræmari fjárfesting, snarhalli á fjárlögum og óhag- stæður viðskiptajöfnuður við út- lönd. Allthefur þetta verið ræki- lega tiundað og skoðað ofan i k jöl inn. Enginn ber brigður á sjúk- dómsgreininguna. Það er um hitt, sem menn geta ekki orðiö sammála. Hvernig lækna megi meiniö? A meðan þriggja flokka stjórn Thorbjörns Fælldins, forsætis- ráðherra, glimir við að koma jafnvægi á efnahagslifið og minnka biliö milli eyðslu og öfl- unar, hækka samt stöðugt út- gjöld þess opinbera og umfram aukningu þjóðartekna . í fjár- lagafrumvarpi fyrir fjárhags- árið 1981 (sem hefst i Sviþjóð i júli) gerir stjórnin ráð fyrir, að útgjöld rikis hækki um 6,2% eða upp i 225,7 milljarða sænskra króna. Sú hækkun er að visú minnien 14,6% auknmgin á yfir- standandi fjárlagaári, en samt sem áöur langt umfram aukn- ingu þjóðartekna, sem spáð er, að muni hækka á timanum um 0,7%. Þessi munur á breikkun bils- ins milli útgjalda og tekna er af- sakaður með þvi, að stjórnar- flokkarnirséu bundnir af loforð- um sinum um að viðhalda vel- ferðarkerfi Sviþjóðar, en það tóku þeir i arf eftir 44 ára stjórn social demókrata. En þetta Guðmundur Pétursson, fréttastjóri erlendra frétta. kerfi, sem áður virtist duga Svi- um svo vel til þess að bægja frá þrenginum, sligast nú undir ört- vaxandi svimháum útgjöldum. Nýlegir útreikningar þess opinbera um kostnaöinn af rekstri skrifstofubáknsins, sem velferöarþjóöfélagið krefst, þar með talin laun, sýna, að hann muni hækka á fjárlagaárinu 1981 upp i 41 milljarð sænskra króna, sem eru 20% af útgjöld- um rikisins. önnur athugun leiddi i ljós, að hjá 39 ráðum og nefndum rikisins störtuðu um 19 þúsund sérfræðingar að þvi einu að hafa eftirlit með og tryggja, að fyrirtæki og einstaklingar fari að lögum og reglum bákns- ins. Þessi ráö kostuðu skattþega Sviþjóðar 2,75 milljarða sænskra króna árið 1980, sem er 93% aukning á siðustu fimm ár- um. Allir virðast gera sér fulla grein fyrir þvi, að draga verði harkalega úr bæði einkaeyðslu og þess opinbera, og laga sig að bláköldum raunveruleikanum. Siðan skiptast skoðanir. Ein röddin heimtar meiri hagræð- ingu i framleiðslugreinunum, svo að þær standist samkeppn- ina erlendis. önnur leggur til, að iðnaðurinn bsli sér völl á nýju framleiðslusviði. Flestir ein- blina á útflutninginn og vilja leggja áherslu á aö rétta af muninn a útflutningi og inn- flutningi. Hvað innflutningnum við kemur er við ramman reip að draga vegna oliunnar. Oliuinn- flutningur Svia 1980 nam 28 milljörðum sænskra króna og á olian mestan þáttinn i óhag- stæðum viðskiptajöfnuði Svi- þjóöar við útlönd. Sá rhunur á eftir að hækka upp i 22,8 milljarða sænskra króna samkvæmt öllum spám um fjárlagaárið 1981, og kallar það á auknar lántökur erlendis og heima við. Um leið er þvi spáð, að vaxtagreiðslur Svia af skuld rikissjóðs eigi eftir að hækka um 29% eða upp i 26,3 milljarða sænskra króna. Óhugnanlegasta spáin þykir /era fyrirsjáanlegur halli á fjár- ögum 1981, sem siga muni niöur i >7,6 milljarða sænskra króna. Pað er 22% meiri halli en á yfir- itandandi fjárlögum. öeoiaDanki &via neiur Drugoio við með hækkun lánsvaxta og með takmörkunum á útlánum bæði til atvinnuvega og til einkaneyslu Snákakiðt á borðum , Útbreiösla hundaæðis ( Kína hefur spillt fyrir kinverskum sæikerum uppáhalds lostæti þeirra, sem er hundakjöt. i Hong- kong bæta Kinverjar sér það upp meö því að borða meira snáka- kjöt. Klnberjar eru trúaöirá, aö kjöt af þessum skepnum auki þeim karlmannsþrótt og orku að vetrarlagi. En vegna hundaæðis, sem fælir þá frá hundakjötinu, halla þeir sér að snákunum I staö- inn. Er biiist við þvi, að flytja verði inn I vetur um 4 milljónir snáka í Hongkong, sem væri 30% aukning frá þvl I fyrravetur. MýiP peningar i Bretlándi Breska stjórnin ætlar aö láta slá nýja mynt, sem koma skal I stað eins punds-seöils, en verðbólgan hefur rýrt hann svo að giidi. Þessi peningur skal vera gylltur. Einn- ig á að slá nýja sjö-kanta pening, sem veröur 20 pence aö nafn- verði. Öllug vindrafstðð Bretar hyggjast verja 5,6 milljónum sterlingspunda til smlði á vindknúinni rafstöð á Orkneyjum, og verður þáö fyrsta vindstöð þeirra af megawatta- stærð. Vindmyllublööin veröa 30 metra löng, enda á stöðin að framleiða allt að þrem mega- wöttum á klst. Bætur vegna hótelbruna Fram hafa komið skaðabóta- kröfur, samtals að upphæð um 1,5 milljarða dollara, vegna brunans IMGM Grand Hotel I Las Vegas I nóvember I vetur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.