Vísir - 29.01.1981, Blaðsíða 13

Vísir - 29.01.1981, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 29. janúar 1981 13 4 sneiðar nautabuff (filé, entrecote eða lærvöðvi, hver sneið ca 2 cm þykk og um 125 g). 2 tsk salt 1 1/2 msk steyttur pipar til steikingar: 3 msk smjör isósuna: 3-4 dl góðum kjötkrafti 2 dl rjóma 2 msk köldu smjöri i „flamberingu” 1/2 dl koniaki (eða armagnac) Best er að nota hitunartækin sem við höfun undir „fondue” pottinum þegar við „flamberum” piparsteikina. Malið heila pipar- inn i piparkvörn, ef hún er ekki við hendina, setjið þá piparinn á smjörpappir og myljið hann. Saltið kjötsneiðarnr og nuddið muldum eða möluðum piparnum vel á báðar hliðar hverrar sneið- ar. Brúnið smjör á pönnunni og steikið hverja kjötsneið við mik- inn hita I 2-3 minútur á hvorri hlið, aðeins lengur. Snúið sneið- unum nokkrum sinnum. Hellið koniakinu á pönnuna biðið með að kveikja undir pönnunni i nokkrar sekúndur, en setjið þá hitann á fullt „blúss” og þá logar vel i. Takið siðan pönnuna af hita augnablik og hristið pönnuna þannig að lögurinn fari vel yfir allar kjötsneiðarnar á pönnunni. Þá takið þið kjötið af pönnunni og haldið þvi heitu á meðan sósan er búin til. Sósan: Hellið kjötkraftinum á pönnuna, og látið sjóða i nokkrar minútur. Bætið rjómanum úti og er þetta látið malla augnablik. Siðast bætum við smjörbitum út i sósuna. Þegar sósan er tilbúin setjum við kjötsneiðarnar aftur á pönnuna og berum piparsteikina á pönnunni fram. Með steikinni getum við haft grillaða tómata hrásalat, hrisgjón eða bakaðar kartöflur látum bara smekkinn ráða ferðinni þar. „m vel uppiýstra neytenda vlljum við sækja prðtt okkar’’ - segír Reynlr Ármannsson.formaður Neyiendasamtakanna „A siðasta starfsári fjölgaði fé- lagsmönnum um 30% og þvi ber vissulega að fagna,” sagði Reynir Ármannsson formaður Neyt- endasamtakanna i viðtali við blaðamann Visis, og áfram hélt Reynir: ,,... en við megum ekki láta hér staðar numið heldur hefja sókn til að stórauka félaga- töluna. Það fer ekki á milli mála að Neytendasamtökin hafa stóreflst á siðustu misserum og á stofnun deilda úti á landsbyggðinni og störf þeirra átt hvað drýgstan þátt i þeirri eflingu. A siðustu þremur árum hafa 13 deildir ver- ið stofnaðar viðsvegar um landið. Það færist i vöxt að ýmsar stofn- anir þess opinbera og ýmsir aðrir aðilar leiti eftir upplýsingum og samvinnu við NS á ýmsum svið- um. Til aö anna þeirri þjónustu þurfum við i rikari mæli á fleiri virkum félögum aö halda.” Hefur skilningur aukist á störfum Neytendasamtak- anna? „Störf fyrir NS hafa ekki alltaf verið dans á rósum og hefur það ef til vill fælt ýmsa frá að starfa á þeim vettvangi. A 27 ára starfs- ferli samtakanna hefur þó alltaf veriðharðurkjarni, sem ekki hef- ur látið bilbug á sér finna, heldur Reynir Armannsson formaður Neytendasamtakanna trúað á góðan málstað, þrátt fyrir skilningsleysi og jafnvel persónu- legt aðkast, sem ýmsir félagaar okkar hafa orðið fyrir”, sagði Reynir sem hefur verið formaður Neytendasamtakanna siðastliðin fimm ár. ,,Ég minnist þess að þegar ég höf störf við NS fyrir fimm árum þá komum við viðast að lokuðum dyrum með alla áheyrn og fyrir- greiðslu. A þessu hefur orðið mik- il breyting til batnaðar. Aukinn skilningur almennings og þá ekki sist fjölmiðla hefur eflt okkur til dáða.” Fjárþörf samtakanna „Ég gat þess áður að Neyt- endasamtökin hafi eflst á siðustu misserum. 1 þvi sambandi má geta þess, að rikisvaldið hefur aukið fjárstyrk til okkar og ber að þakka það. Ég lit á þetta sem viðurkenningu á störfum samtak- anna. Hitt er ljóst, að við eigum að stefna að þvi að samtökin verði fjárhagslega sem minnst háð ein- um aðila og sæki þrótt sinn fyrst og fremst til vel upplýstra neyt- enda. Ef vel tekst til mun ekki standa á fjölgun félagsmanna, auknum tekjum og beættri þjón- ustu Neytendasamtakanna, sem hafa aö leiðarljósi að sanngirni riki I viðskiptum manna á milli”. sagði Reynir Armannsson. — ÞG þaö borgar sig aðnota PLASTPOKA 0 Plastprent hf. HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 85600 Tökum í umboðssölu allar gérðir aí skíðavörum fyrir börn og fullorðna. Seljum einnig hin heimsþekktu skíði, DYNASTAR og ATOMIC. Ef þú vilt kaupa eða selja, komdu þá til okkar. UMBOÐSSALA MEÐ SKÍÐA VÖRUR OG HUÓMFLUTNINGSTÆKI 1 GRENSÁSVEGI50 108REYKJAVÍK SÍMI: 31290

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.