Vísir - 29.01.1981, Blaðsíða 19

Vísir - 29.01.1981, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 29. janúar 1981 varð fa Dönsk fatafella, sem gengur undir lista- mannsnafninu „Lady Jane” Jætur sér ekkitil hug ar koma að blanda sér i það sem faðir hennar prédikar á laugardögum i söfnuð „sjöundaiags aðventista”. Og sálusorgarinn faðir hennar er einnig fáorður um starf dóttur sinnar enda eru störf prédikarans og fatafellunnar svo ólik sem nokkuð iná vera. Að sumu leyti kennir Lady Jane uppeldi sinu um stöðu sina i dag, en heimilislifið einkenndist af strangri trúrækni. Þó lætur hún þess getið, að hún og þrjú systkini hennar, hafi notið kærleiks- rikrar umhyggju i bernsku, en það sem geröi ef til vill útslagið var, aö fjölskyldan var á stöðugu flakki. Lady Jane fæddist á Jótlandi og bjó þar fyrstu sjö ár ævi sinnar. A eftir fylgdu fimm ár i Noregi þar sem faöirinn sinnti trúboði og siðan flutti fjölskyldan til Bandarikjanna og var þar næstu þrjú árin. Siðan lá leiðin aftur til Noregs og það- an aö lokum til Danmerkur. Skólaganga i hinum ýmsu löndum hefur haft vandamál i för með sér fyrir Lady Jane, einkum hvað varðar atvinnu- möguleika. Hún er til dæmis tæplega skrifandi á nokkru tungumáli þar sem hún ruglar saman réttritun og setningagerð hinna þriggja tungu- mála. Þegar Lady Jane var 15 ára fékk hún pláss sem nemi á barnaheimili i Bröndbyöster. Hún gat vel hugsað sér að verða barnfóstra, en þegar til átti að taka komst hún ekki að i skólanum. Þegarhún svo vildi læra hjúkrun var hún heldur ekki talin gjaldgeng á hjúkrunarfræöinganám- skeiöi og gafst þvi upp við frekara nám. Skömmu eftir 1970, þegár hún var tvi.tug, varð á vegi hennar náungi einn sem haföi lausn henn- ar vandamála á reiðum höndum. Hann var öll- um hnútum kunnugur i Istedgade i Kaupmanna- höfn og stjórnaði meðal annars kynlifssýningum (liveshow), sem þar voru tiökuð. — í þá daga vissi ég ekki einu sinni að Isted- gade væri til hvað þá að ég vissi um þá starfsemi sem þar var stunduð, — segir Lady Jane. — En þó þetta hafi verið mikil umskipti frá presís- heimilinu var ég tiltölulega fljót að aölagast þessu lifi, — bætir hún við. Til að byrja meö fékk hún þann starfa, að lokka inn viðskiptavini en seinna, þegar ein fyrirsætan forfallaðist, varð hún að hlaupa i skarðið. Lögreglan hreinsaöi til i hverfinu skömmu sið- ar og um skeið var Lady Jane húsmóöir á heim- ili vinar sins, sem fékk sér heiöarlega atvinnu i oliuhreinsunarstöð. Fjórum árum seinna stakk hann af og hún varö að leita sér aö vinnu og tók starf sem fatafella i Eden Club. Siðan hefur Lady Jane tint af sér spjarirnar i hinum ýmsu klúbbum Kaupmannahafnar og um þessar mundir starfar hún i næturklúbbnum Waterloo i Kaupmannahöfn. Lady Jane hefur i hyggju að hætta striplinu við fyrsta tækifæri að eigin sögn. — Ekki vegna þess aö mér leiðist það að dansa heldur eru viss ald- ursmörk i þessum bransa. Ég er nú orðin 28 ára gömul og vil ekki fá á mig nafngiftina „ellilif- eyrisþeginn”. En það er erfitt fyrir mig að fá svona vel launaöa vinnu vegna þess að ég er ómenntuð — segir hún. En önnur ástæðan fyrir þvi, að hún hyggst hætta, er sú, að hún er trúlof- uð ungum iönaðarmanni, og hann hefur lofaö henni þvi, aö vinna fyrir þeim báðum. Prestsdóttirin i þvi hlutverki sem faðir hennar vill helst sjá hana i, — i hlutverki hinnar heimavinnandi húsmóöur. inn á ný Aretha Frankliri/ sem kölluð hefur verið //Drottning Soul-tón- listarinnar" og á að baki 38 ár og 21 gull- plötu/ er nú kominn á toppinn á ný eftir nokkurra ára þögn. Hún leikur stórt hlut- verk í kvikmyndinni //The Blues Brothers", sem hlotið hefur mikl- ar vinsældir í Banda- rikjunum og víðar og nýja breiðplatan henn- ar „Aretha" hefur slegið í gegn á sama markaði. Aretha gifti sig á ný fyrir tveimur árum, leikaranum Glynn Turman, sem er 33 ára gamall, og að sögn á hann stóran þátt í glæsilegri endurkomu söngkonunnar. Þau hittust árið 1977 þegar Aretha tók þátt í góð- gerðartónleikum i Los Angeles,/ en Turman hafði þar stundað kennslu í leiklist. Það varð úr, að Aretha hóf að sækja leiklistartíma hjá honum og í april áriðeftir voru þau vígð saman af föður Arethu, sem er prest- ur. í kirkjunni mætti söngkvartettinn „Four Tops" og söng lagið „Isn't She Lovely" til heiðurs brúðurinni. Strax eftir brúð- kaupið fór Turman að vinna að þvi að koma Arethu í svíðsljósið á ný og hann hefur svo sannarlega haft árangur sem erfiði. Aretha Franklin á topp-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.