Vísir - 29.01.1981, Qupperneq 28
síminnerðóóll
vtsm
Fimmtudagur 29. janúar 1981 23. tbl. 71. árg.
Loðnuskipstjórar loðnir um lófana:
Fékk 30 mllliónlr
á iveimur mánuðuml
A tveggja mánaða timabili,
frá 1. september til 1. október
sl„ var skipstjórahluturinn á
aflaskipinu Óla Óskars RE tæp-
lega 30 milljónir gamalla króna,
eða samsvarandi hálfri milljón
króna á dag. Hásetahluturinn á
sama tima var tæplega niu
milljónir króna.
Þess skal getið, að veiðar Óla
Óskars gengu sérstaklega vel,
og hann fyllti veiðikvótann sinn,
sem var 12 þúsund tonn af loðnu,
á ofangreindum tveimur mán-
uðum. Skipstjóri á þessu tima-
bili var Eggert Þorfinnsson, en
eigandi skipsins er ólafur
Oskarsson.
Vegna vélarbilunar i Óskari
Halldórssyni RE, sem einnig er
i eigu Olafs Óskarssonar, fékk
áhöfn þess skips að veiða upp i
sinn kvóta á Óla Óskars, og fóru
þær veiðar fram á timabilinu 8.
nóvember til 4. desember. Skip-
stjóri var Viðar Sæmundsson og
fyrir þessa 26daga fékk hann 12
milljónir i sinn hlut. Hásetarnir
fengu hins vegar 3,4 milljónir.
— P.M
Framtalseyðublöðin verða send út um helgina. Myndin var tekin á skattstofunni i Reykjavik. Visis-
mynd: GVA
Glaðningur í vændum:
FRAMTALSEYÐUBLÖÐUM
DREIFT UM HELGINA
Skólatannlæknar I
Reykjavík:
veðurspá dagsins
Nálægt Hvarfi er 995 mb
lægð, sem fer hægt aust-norð-
austur, en 985 mb lægð 600 km
vestur af Hvarfi fer norður.
Um 300 km suð-suöaustur af
Hornafirði er 1005 mb lægð,
sem fer norðaustur án þess að
hafa veruleg áhrif á veðrið
austanlands. Nokkuð mun
hlýna, einkum sunnan og vest-
an til á landinu. Veðurhorfur
næsta sólarhring:
Suðurland til Faxaflóa: Hæg-
viðri og siðan austan gola eða
kaldi og þykknar smám sam-
an upp i dag, fer að snjóa sið-
degis með suðaustan
stinningskalda, rigning i
kvöld. Oengur i suðvestan
kalda með slydduéljum i nótt.
Breiðafjörður og Vestfirðir:
Sunnan gola og dálitil slyddu-
él, einkum á miðum og ann-
esjum i fyrstu, suðaustan og
austan stinningskaldi og snjó-
koma með kvöldinu, en siðan
slydda. Gengur i nótt i suð-
vestan kalda með slydduélj-
um.
Strandir og Norðurland
vestra: Sunnan gola og skýjað
i dag, suðaustan kaldi eða
stinningskaldi og snjókoma i
kvöld, en suðvestan kaldi og
slydduél i fyrramálið.
Norðurland eystra: Hæg
breytileg átt, bjart veöur.
Austurland að Glettingi: Hæg
breytileg átt, skýjað til lands-
ins og dálitil él á miðum i dag,
en bjart veður með kvöldinu.
Austfirðir: Norðaustan gola
eða kaldi, smáél i dag en hæg-
viðri og skýjað i kvöld og nótt.
Suðausturíand: Norðaustan
kaldi og dálitil slydda austan
til i fyrstu, en gola og bjart
veður vestan tii. Austan gola
og smáél i kvöld, austan kaldi
eða stinningskaldi og snjó-
koma i nótt.
veðríð par 09 hér
Veöur ki. 6 i morgun:
Akureyri léttskýjað 4-3,
Bergen súld 4, Helsinki þoku-
móða 1, Kaupmannahöfn súld
2, Osló þoka -3, Reykjavik
léttskýjað 4-5, Stokkhólmur
þoku'móða 4-1, Þórshöfn rign-
ing 9.
Veður kl. 18 i gær:
Aþena hálfskýjað 2, Berlin
súld 2, Chicago léttskýjaö 4-3,
Feneyjar skýjað 0, Frankfurt
þokumóða 0, Nuuk alskýjað
4-5, London þokumóða 8,
Luxemborg þokumóða 0, Las
Palmas mistur 20, Mallorka
léttskýjað 10, Montreal létt-
skýjað 9, Paris alskýjað 7,
Róm heiðskirt 3, Malaga létt-
skýjað 11, Vin léttskýjað 3,
Winnipeg skýjað 4-15.
Loki segir
„Sjö h ækkunarbeiðnir
samþykktar” segir i Moggan-
um I morgun um ákvarðanir
Verðlagsráðs. Þannig fram-
kvæma stjórnmálamenn verð-
stöövun eins og alitaf áður.
„Skattframtalseyðublöðin hafa
flest verið send frá okkur og eru
komin eða eru á leiðinni til skatt-
stjóranna”, sagði Kristján Össur
Jónasson, skrifstofustjóri hjá
rikisskattstjóra.
„Ég geri ráð fyrir, að almennt
muni dreifing eyðublaðanna hefj-
ast núna næstu daga og um
helgina”, sagði Kristján.
Hjá skattstjóranum i Reykja-
vik, Gesti Steinþórssyni, fengust
þær upplýsingar, að þessa dag-
ana væri verið að ganga frá
eyðublöðunum i dreifingu og aö
dreifing mundi hefjast um helg-
ina.
— Eru margar breytingar á
framtalseyðublöðunum frá þvi i
fyrra?
„Nei, það er litil breyting á
þeim. Helsta breytingin er vegna
vaxtameðferðar, en að megin-
uppistöðu eru blööin eins og i
fyrra”, sagði Gestur.
Hvað viðkemur skattaprósent-
unni sagði Gestur, að i fjárlögun-
um hefði skattvisifalan verið á-
kveðin 145 miðað við-100 i fyrra,
þannig að allar tölur i skattalög-
unum, sem háðar eru skattvisi-
tölu, hækka um 45% frá þvi i
fyrra. Sagði Gestur, að á þessu
stigi væri ekki vitað um frekari
breytingar á skattheimtunni.
Arslaunin
40 milljónir
í fjárhagsáætlun Reykjavikur-
borgar er gert ráð fyrir, að skóla-
tannlæknar á vegum borgarinnar
fái samanlagt 680 milljónir gam-
alla króna i laun á þessu ári. Er
þá einungis átt við launagreiðsl-
ur, en annar kostnaður við tann-
lækningarnar ekki meðtalinn.
Starf skólatannlækna hjá borg-
inni jafngildir sautján stöðugild-
um, þannig að árslaun hvers
tannlæknis miðað við fullt starf
yrðu 40 milljónir. Langsamlega
flestir tannlæknanna gegna þessu
þó sem hlutastarfi og reka jafn-
framt tannlækningastofu.
—P.M.
Fundur um
Blönduvirkjun:
„Málin rædd
í vinsemd”
- seglr Jón ísherg,
sýsiumaður
„Við ræddum málin i vinsemd
og rólegheitum og ákveðið var að
skipa nefndir, er komast skyldu
að samkomulagi um jarðbætur”,
sagði Jón Isberg, sýslumaður á
Blönduósi, en i gær var haldinn
fundur forsvarsmanna RARIK;
fulltrúa iðnaðarráðuneytisins og
hreppsnefnda þeirra sex hreppa,
sem land eiga að Blöndu.
,,A fundinum var rætt almennt
um Blönduvirkjun og leitað hóf-
anna um samkomulag um bætur
vegna taps á gróðurlendi. Gert
var ráð fyrir því, að nefndin, sem
ákveðið var að skipa, tæki til
starfa næstkomandi miðviku-
dag,” sagði Jón Isberg.
-ATA
-ATA
Coltinn?
Vertu strax
áskrifandi
Við fyllum út
fyrir þig seðilinn
VtSIR
Simi 86611
Dregíö á morgun kl. 17.
Dregió 31. mars n.k. Dregió 29. mai n.k.