Vísir - 26.03.1981, Qupperneq 4
HARGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29
(milli Laugavégs og Hverfisgötu)
Opið á
laugardögum
Timapantanir
i sima
13010
HOTEL VARDDORG
AKUREYRI
SlMI (96)22600
Góð gistiherbergi
Morgunverður
Kvöldverður
Næg bilastæði
Er i hjarta bæjarins.
.™
Anægður
smááuglýsandi:
Setn v
n Zbeir, öabfj tei
ftí5a «2*
„Ég var búinn aö auglýsa hann
áður I smáauglýsingum án
myndar og fékk þá nokkrar
upphringingar. Enginn þeirra,
sem hringdu þá voru nógu
ákveðnir”, sagði Guðbrandur.
— „Svo auglýsti ég með mynd.
Það varð sprenging. Margir
voru um boðiö. Ég gat valið og
hafnað og það i janúar, þegar
bílasaian er sögð i daufara
lagi.” — „Nú hef ég bara
áhyggjur af þvi að þeir haldi
áfram aö hringja”, sagði Guö-
brandur örlltið áhyggjufullur,
en samt eldhress.
„Myndin
seldi bilinn"
„Það er enginn vafi á þvi, að
þaö var myndin, sem seldi bil-
inn”, sagöi Guðbrandur tvar
Ásgeirsson, Vatnsstig 8, ánægð-
ur en dálltið þreyttur iviö-
skiptavinur smáaugl. Visis.
Anægður, af þvi aö hann seldi
Moskvitsch '74 sendiferðabilinn
sinn á augabragði, eftir að hann
notfærði sér nýja þjónustu Visis
að fá birta ókeypis mynd meö
smáauglýsingu sinni. Þreyttur?
— Já, hver veröur ekki þreyttur
eftir aö svara næstum 40 fyrir-
spurnum i simanum.
Markús Wailenberg, hinn
virti öldungur sænsks iðnaðar,
— SAAB-höldurinn sjálfur — er
þeirrar skoðunar að leysa megi
vaxandi vanda efnahagslifs Svfa
Fiutti hann um það eftirtekt-
arverða ræðu á ársþingi sam-
bands sænskra atvinnurekenda
á dögunum, þar sem hann gerði
grein fyrir lyfseðlinum, sem
hann mundi gefa út við „sænsku
veikinni”. Það er beiskt meðal,
sem mörgum þykir likara
hrossalækningu, en gamli maö-
urinn taidi þó helst mega duga.
wallenberg vlll lækka
launin
„Við verðum að koma okkur
saman um lækkun heildarlauna
(áður en skattar eru álagðir).
Við skulum segja svona fimm-
tán prósent,” sagði Wallenberg.
Marcus Wallenberg, sænski iðjuhöldurinn lumar á umdeildu re
septi.
Fjóröa logmai
Parklnsons
en hann og Wallenberg eygla mdgulelka á lausn „sænsku veiklnnar”
— „Það er sama lækkun og hjá
þeim, sem fara á eftirlaun, eftir
að hafa verið I hálfsdagsstarfi.
Til þess að bæta einstaklingum
upp tekjulækkunina verður að
breyta skattakerfinu og lækka
útsvar og skatta launþega. Til
þess að mæta tekjumissinum af
skattalækkuninni verður hið op-
inbera að skera niður sin út-
gjöld, spara og hagræða rekstri
sinum. Einhverjum hinna opin-
beru fyrirtadtja eða þjónustu
verður um leið best komið i
einkarekstri.”
Meira samráð
Þetta er inntakið i ráðlegging-
um öldungsins, en um það
spunnust ákafar umræður á
ársþinginu. Gerði dr. Wallen-
berg þá frekari grein fyrir hug-
myndum slnum. — Kom þá
fram hjá honum, aö hann teldi
mikla þörf og jafnvel nauðsyn,
að fleira fólk tadci þátt I hinum
pólitisku ákvaröanatökumsamfé-
lagsins. Fyrst og fremst með
samráði forvlgismanna þjóðar-
innar við hina ýmsu aðila, og
eins með þvi að ýmsu fram-
leiðslu- og launaaðilar hefðu sig
meira í frammi, áður en hinar
pólitisku ákvarðanir verða
teknar.
„Það er afar mikilvægt, að
iðnaðurinn og verslunin láti að
sér kveða á stjórnmálasviðinu,
áður en teknar eru hinar póli-
tisku ákvarðanir,” sagði Wall-
enberg. „Fólk á öllum þrepum
iðnaðarins og verslunarinnar
verður að láta i sér heyra i hinni
pólitisku umræðu og taka virk-
an þátt i stjórnmálastarfinu til
þess að hafa áhrif á ákvarðanir
og hina ráðandi aðila. Akvarð-
anir, sem snerta iðnaðinn,
verslunina og þjóðina i heild.”
Meiri hagsæld. meiri
vinna
Annar frægur fyrirlesari flutti
ræðu á þessu ársþingi sænskra
atvinnurekenda. Sá var enski
prófessorinn, Cyril Nothcote
Parkinson, höfundur þeirrar
margivitnuðu bókar „Lögmál
Parkinsons”. Hann kynnti þing-
fulltriíum fjórða lögmál sitt,
viðbætir við hin fyrri þrjú, sem
allir þekkja. Þetta fjórða lög-
mál hafði hann fundið upp sér-
staklega fyrir Svia:
„Stefna ber að hagsæld, og þá
munuð þið fá atvinnuaukningu.
Ef þið einblinið á að skapa at-
vinnu, fáið þið allt annað en
hagsæld.”
Þetta var sem sé álit Parkins-
sons á þeirri miklu áherslu, sem
sænsk efnahagsstefna leggur á
sköpun nýrrar atvinnu og björg-
un eldri atvinnu, sem yfir vofir,
að lognist Ut af.
„Þið nálgist efnahagsstefn-
una frá röngum enda,” sagði
Parkinson. „Rikisstjórn á ekki
að einblina svo á fulla atvinnu.
Heldur á aukna hagsæld með
þvi að örva þá, sem skila arði,
og þá fyrst og fremst með þvi
einu og aðallega að leggja ekki
stein I götu þeirra.”
„Þegar skapast arður, skap-
ast um leið atvinna,” sagði
Parkinson.
Svo einfalt er fjórða lögmál
Parkinsons.
Prdfessor Parkinson og kona hans koma til ársþings sænskra at-
vinnurekenda.
Trúlr eKki á
innrás I Pólland
Georges Marchais, leiðtogi
franskra kommúnista, sem löng-
um hafa verið mjög fylgisspakir
Moskvulinunni, lýsti þvl yfir i
vikunni, að hann tryði þvi ekki, aö
Sovétríkin mundu nokkurn tima
ráðast inn i Pólland.
Sakaði hann franska fjölmiðla
um furðu vangaveltur, en þeir
hafa mikiö skrifað að undanförnu
um hugsanlega innrás Sovét-
manna i Pólland vegna ólgunnar
á vinnumarkaðnum.
Sillrið stlgur
og feiiur
Verð á silfri hrapaði um 52 sent
únsan núna I vikunni, þegar frétt-
ist, að bræðurnir Hunt, silfur-
kóngarnir, sem hömstruðu hvaö
mest silfrið I fyrra, verði aö lik-
indum skyldaðir til þess að seija
silfurbirgðir sinar. Þær eru tald-
ar vera um 63 milijón únsur. -—
Strax daginn eftir hækkaði silfrið
þö aftur i verði um 25 sent vegna
mikils gulls- og silfurbrasks á
meginlandinu I kjölfar fréttanna
um, að Waiesa hefði gengið út af
fundi hjá „Einingu” I Póiiandi. —
Svo litið getur þurft til þess að
verðið rísi eða falli, eins og baró-
meter.
Málverk eftlr Dall
Fangelsi eitt uppgötvaði nýlega
i slnum fórum málverk eftir
Salvador Dali, sem sérfræðingar
vilja meta til 100 þúsund dollara.
Hafði það hangið uppi i matsal
fanganna.
Súrrealistinn spænski hafði gef-
ið Rikers-fangelsinu málverkið,
sem er 1,5 metrar á hæö og sýnir
hvernig krossfestingin kemur
honum fyrir sjónir, þegar hann
heimsótti fangelsið 1965. Dali lof-
aði að veita vistmönnum þessar-
ar stofnunar tilsögn i list, en gat
svo aldrei efnt það loforð.
Nú hyggjast fangelsisyfirvöld
selja málverkiö til þess að fjár-
magna listfræöslu i fangelsinu.