Vísir - 26.03.1981, Page 14
VÍSIR
Fimmtudagur 26. mars 1981
Fimmtudagur 26. mars 1981
Enn einu sinni varð islenski hesturinn eftirlæti sýningargesta á Equitana
sýningunni i Essen i Þýskalandi. Equitana sýningin er stærsta hrossasýn-
ing heimsins, haldin annað hvert ár, og þangað koma hestar frá öllum
heimshornum. Sýningin, sem lauk nú fyrir skömmu, var sú fjórða frá upp-
hafi, en islenski hesturinn hefur tekið þátt i þrem þeirra. 1977 var hann val-
inn vinsælasta sýningaratriðið, hélt þvi naumlega 1979 en i ár hafði hann
örugga forustu aftur.
Sýninguna sóttu á þriðja hundrað þúsund gestir og fögnuðu islenska hest-
inum meira en nokkru öðru atriði á sýningunni, meira að segja meira en
sjálfu ólympiuliði Þjóðverja sjálfra i dressure reiðlist og fögrum disum frá
Hollywood, sem sýndu margháttaðar listir á hestbaki.
Þrir islenskir knapar voru
meðal þeirra, sem sýndu
islenska hestinn á Equitana og
Visir náði sambandi tvo þeirra,
Reyni Aöalsteinsson og Svein
Hjörleifsson og bað þá að segja
frá. Sá þriðji er Sigurbjörn
Bárðarson, en til hans náðist
ekki. Reynir hefur sýnt hesta oft
og viða um Evrópu, m.a. verið i
hópi sýnenda á þessum þrem
Equitana-sýningum, sem
fólkið felli pallana. Klaus
Becker, sem stjórnaði okkar
sýningu, sagði þá: Hér er kom-
inn f jöldi fólks til að sjá islenska
hestinn og ef þið látið hann ekki
koma fram, verður fólkið vit-
laust og þá er ekki siður hætta á
að það felli niður pallana. Sýn-
ingarstjórnin gaf sig þá, en
spurði hvort við gætum þá ekki
sýnt þannig að við vektum ekki
alveg eins mikla hrifningu.”
Sveinn Hjörleifsson og Reynir Aöalsteinsson
islenski hesturinn hefur komið
fram á, en Sveinn er minna
reyndur og hefur ekki komið á
Equitana fyrr.
Getið þið ekki vakið
svoiitið minni hrifn-
ingu?
— Hvernig var þetta Sveinn?
,,Það var alveg stórkostlegt.”
— Reynir?
„Það var það, sérstaklega
þegar fór að liða á,”
„Ég hefði ekki trúað, hvað
islenski hesturinn er ofsalega
vinsæll, fyrr en ég fór á þessa
sýningu,” sagði Sveinn. „Við
komum fram þrisvar á dag og
allantimann var hesturinn okk-
ar vinsælasta atriðið. Vinsæld-
irnar eru mældar með þvi að
mæla klappstyrkinn hjá
áhorfendum.”
„Ég skal segja þér smásögu
af vinsældunum,” sagði Reynir.
„A sunnudeginum var komið
mjög margt fólk og var farið að
troða sér undir og reyna að
skriða uppá áhorfendapallana,
aftanfrá. Sýningarstjórnin kom
þá til okkar og segir að viö meg-
um ekki sýna núna, vegna þess
að þeir séu svo hræddir um að
mesta áherslu á töltiö og skeið-
ið, fánann og fánalitina og reynt
að hafa hraða sýningu. Núna
höfðum við lengri sýningu og
reyndum aðsýna sem flest, sem
hægt er að gera með hestinn.
Við sýndum þá fyrir vagni,
sýndum hlýðniæfingar, ferða-
hestinn — þá sýndum við trúss-
hesta og heybandslest og reynd-
um að likja eftir fólki á ferða-
lögum i islenskum lopapeysum
Disir frá Hollywood
'Sveinn skaut inni: „Forstjóri
sýningarinnar sagöi i setningar-
ræðunni að islenski hesturinn
væri einn af burðarásum sýn-
ingarinnar,”
Reynir: „Ég var hissa á einu.
Það komu þarna stelpur frá
Californiu Hollywood. reynd-
ar voru fleiri i sýningunni, en
þær báru hana uppi, og þetta
voru professional stelpur i
svona sýningum, og sýndu eig-
inlega akrobatik á hestunum,
og það var alveg geysilega vin-
sælt. Þegar maður horfði á
þetta datt manni ekki annað i
hug en að þetta væri það allra
hæsta. Inn á milli sýndu þær
snöruleika og ein þeirra reiö um
svæðið og söng lag sem varð svo
vinsælt að þaö gekk alveg i
gegnum sýninguna. Mér datt
ekki annaö i hug en að þetta
hlyti að verða það vinsælasta.
En það varð ekki.
Allt sýnt
Það sem við reyndum að gera
nú, i fyrsta skipti, var að sýna
fram á möguleikana með
islenska hestinn. Við höfum
aldrei veriö með eins stóra sýn-
ingu og nú, við höfum lagt
? '
wm I
■ ''+ím ,
Með fullar bjórkrúsir, og ekki dropi niöur.
— við sýndum hindrunarstökk.
Klaus Becker kom þarna með
gamla Asa sinn, 25 vetra gaml-
an, með fána Bandarikjanna —
hann reið honum yfir þvera
Ameriku, i Amerikureiðinni um
árið og lét hann stökkva yfir
borð, sem fólk sat við og þessum
gamla klár fataðist ekki. Þetta
var tilkomumikið.
En við byggðum sýninguna
upp á töltsýningu, komum inn á
fimm góðum tölturum með
skemmtilega litasamsetningu
og svo kom hitt allt á eftir þar á
meðal fjórir skeiðhestar, sem
lágu á flugskeiði horna á milli i
salnum.”
Þá er gaman að lifa
— Hvernig tilfinning er að
vera svona áberandi eftirlæti
áhorfenda?
Reynir: „Það var á sýningu i
Paris fyrir hálfu öðru ári, þá
vorum viðaðná okkur upp allan
timann og siðasta daginn var
gert dálitið mikið með okkur.
Við gátum svindlað inn nokk-
urskonar móti og sýningin okk-
ar kom svoá eftir. Viðlugumþvi
að á hverju ári væri um þetta
leyti Evrópumót i Berlin, en nú
væri ekki hægt að halda það, þvi
allir hestarnir væru i Paris, og
við fengum ambassadorinn með
okkur i þetta og hann spurði
hvort við gætum ekki fengið
staö og stund fyrir mótið, þann-
ig komum við þvi að. Svo kom
sýningin á eftir og þá hðldum
viö að fólkið hlyti að vera búið
að fá nóg af þessu, en það var nú
aldeilis ekki. Þá fyrst var fólkið
farið að átta sig. Eftir sýning-
una vorum við með músik, sem
bauð uppá að klappa i takt.
Þarna var ekki minni fjöldi en i
Equitana og þegar svona margt
fólk klappar allt, þá fær maður
tilfinninguna, þá tárast maður.
Þá er gaman að lifa.”
Það fór ekki dropi nið-
ur
Sveinn: „Eitt atriðið i sýning-
unni var að við komum inná á
þrem tölturum og riðum heilan
hring með fullar bjórkrúsir i
annarri hendinni. Það var gert
til að sýna hvað töltið er þægi-
legur og þýður gangur, aö hægt
er að riða með fulla bjórkrús án
þess að dropi fari niður.”
— Og fór ekki dropi niður?
„Ekki fyrr en fór ofani okk-
ur.”
— Sveinn, hvernig virka fagn-
aðarlætin á þig, sem ert ekki
eins vanur og Reynir, varstu
tuugaóstyrkur?
„Nei, ég var ekki tauga-
óstyrkur, ég var með ágæta
hesta og hafði stuðning af hin-
um, þessum vanari, svo þetta
varö ekkert erfitt. En þetta er
gaman. Hér heima fær maður
ekki þessa tilfinningu, það eru
aldrei svona fagnaðarlæti hér á
tslandi. Þetta er svo stórkost-
lega sérstakt, að fólk gerir sér
ekki grein fyrir þvi.”
— Hvað er næst?
„Kánada,” segir Sveinn.
„Það voru margir sem höfðu
áhuga á að fá svona sýningar,”
sagði Reynir, „Berlin, Banda-
Texti: Sigurjón
Valdimarsson
rikin, Kanada og fleiri. Við höf-
um mikinn áhuga á að komast á
sýningarnar bæði i Bandarikj-
unum og Kanada, og þá með
hesta héðan að heiman. En það
eru ýms ljón á veginum, i sumar
er fjórðungsmót hestamanna
hér á Suðurlandi og Evrópumót-
ið verður siðsumars, en þessar
sýningar i Ameriku eru i júli og
águst, svo það verður erfitt að
koma þessu öllu heim og sam-
an.”
Rúsfnan
„Og svo var það rúsinan. For-
stjóri sýningarinnar heitir
Kreuber,ungur maður, og hann
var að skemmta sér með okkur i
veislu, sem við heldum, óhemju
mikið fjör.
Þegar verið var að slútta sýn-
ingunni finn ég að það er veriö
að gera eitt hvað staut með okk-
ur, það er alltaf verið að ýta
okkur aftar og aftar, þegar
hestarnir fóru inná siðast. Svo
erum við orðnir siðastir og okk-
ur er gefíð gott pláss og talað
skemmtilega fyrir okkur, sagt
að við séum eftirlæti Equitana
ogsitthvaðfleira.og við vissum
ekki vel hvaðan á okkur stóð
veðrið. En það var þá Kreuber
vinurinn, sem kom riðandi inn á
Hákon, hans Walter Feldmann,
riður einn hring við mikil fagn-
aðarlæti, riður upp að hljóð-
nemanum, heldur sina tölu,
sitjandiá klárnum, slitaræðuna.
Siðan reið hann að stórum
skoskum vagni með stórum
viskiflöskum, fékk sér viski-
glas, eins og islenskur bóndi og
siðan reið hann hring og út. Mér
fannst þetta ein mesta viður-
kenningin. Það hefur alltaf
gengið illa að koma þvi inn hjá
útlendingum að islenski hestur-
inn geti borið fullorðið fólk.
Sfðan riðu hóparnir út hver af
öðrum,en við vorum látnir biða.
Siðast riðum við svo út á fullu
tölti og á eftir fylgdu skeið-
hestarnir á fljúgandi skeiði viö
svoleiðis fagnaðarlæti og öskur
að allt ætlaði um koll að keyra.
Og þá var sýningin búin.”
SV
Stööug umferð var um upplýsingabás tslendinganna.
HUNDRUB ÞOSUNDA HVLLA
ÍSLENSKA HESTINN A EQUITANA
VÍSIR
15
isii
Sumarhús Húsa
fellsbóndans
eru til sölu:
„Engin uppgjöf
af minni hálfu’
- segir Krístieifur bóndi á Husafellí. sem leigir kaupendum iand undir húsin i 20 ár
„Það eru 16 hús sem ég hef
rekið hérna sjálfur og leigt út á
sumri og vetri, en er nú aö
selja” sagöi Kristleifur Þor-
steinsson bóndi á Húsafelli í
Borgarfirði er Visir ræddi við
hann i gær. Að undanförnu hafa
birst i biöðum auglýsingar þar
sem þessi hús eru til sölu, og við
spurðum Kristleif hvort rekstur
þeirra hefði gengið illa.
„Nei, hann hefur fengið af-
skaplega vel, vegna þess að við
settum i þetta bústofninn okkar
á sinum tima og með þvi móti að
engar skuldir hvildu á þessu þá
hefur gengið vel að reka þetta.
En við erum að breyta um
rekstrarform og þessvegna
auglýsti ég húsin til sölu”.
— Hefur verið mikil aðsókn í
húsin?
„Já, hún hefur verið mjög
mikil.
„Hver er þá ástæðan fyrir því
að þú ætlar að hætta þessu og
selja húsin?
„Ég er alls ekki að hætta,
þetta er breyting á leiguformi.
Ég leigði landið undir húsin, sé
um sundlaugina hérna og sel
rafmagn i húsin auk þess að
reka hér þjónustumiðstöð fyrir
húsin. Fólk sem kaupir þetta
verður þvi minir viðskiptavinir
eftir sem áður og það er þá bara
breyting að þvi leytinu til að i
staðinn fyrir að kaupa hér viku-
dvöl þá fær fólkið 20 ára dvöl, en
það er sá timi sem ég leigi land-
ið”. Fólkið kaupir eingöngu
húsin og getur þvi flutt þau
burtu ef því sýnist svo”.
— Hvernig hefur gengið að
selja þessi hús og hverjir hafa
keypt þau?
„Það hefur gengið vel og eru
aðeins örfá hús eftir. Kaupend-
urnir eru starfsmannafélög og
Kristleifur Þorsteinsson, bóndi
á Húsafelli
verkalýðsfélög eins og t.d.
Verslunarmannafélag Arnes-
sýslu og Sjómannafélag Grinda-
vikur”.
„Svo er ég með að auki fullt af
húsum sem ég hef land undir og
þeir sem hafa leigt landið hafa
byggt sjálfir, það eru hér 23
þannig hús. Það er orðið full-
skipað i þau hús. Ég byggði hér
rafstöð og er að fullnýta hana.
Nú er fyrirhugaö að byggja hér
aðra rafstöð og er að byrja að
undirbúa það. Það er þvi ein-
ungis um breytingar á rekstrar-
fyrirkomulagi að ræða, þetta er
engin uppgjöf frá minni hálfu
eða neitt i þá veru”.
— Hvað kosta þessi hús sem
þU ert að selja núna?
„Þau kosta frá 60 þúsund og
upp i 175 þúsund og þá er um að
ræða 50 fermetra hús og það
fylgir þeim allt sem i þeim er”.
gk—■
Alþjóöleg bílasýning -- international motor show
í Sýningahöllinni aó Bíldshöfóa
27/3 - 5/4