Vísir - 26.03.1981, Blaðsíða 19
í fyrsta skipti i 400 ár:
Barn með tvö
höfuð lifir
„Læknisfræðilega mögulegt”,
segir fæðingarlæknir
á Landsspitalanum
Eitt sjaldgæfasta fyrirbrigöi i
sögu iæknavisindanna átti sér
staö i Búlgarfu i byrjun febrúar
sl. Þá fæddist stúlkubarn meö tvö
eðlileg höfuö. Stúlkan hefur siöan
veriö undir eftirliti lækna og var
við gúða heilsu er siðast fréttist.
Að sögn Dr. Atanas Maleev,
forstöðumanns læknaakademi-
unnar i Sofia, höfuðborg Búl-
gariu, eru bæði höfuðin fullkom-
lega eðlileg, en að auki hefur
barnið tvo hryggi og aðskilda
meltingarvegi. Barnið hefur ver-
ið skýrt bæði Anne og Maria, en
Anne, sem er með stærra höfuð,
virðist vera sterkari. Báðum er
gefið að borða þótt læknar telji að
barnið myndi lifa þó aðeins öðru
höfðinu yrði gefinn matur.
Að öðru leyti en þessu er barnið
eðlilegt, með eitt hjarta, tvo
handleggi og fætur o.s.frv. Lækn-
ar telja þó, að stúlkan myndi
deyja ef annað höfuðið yrði fjar-
lægt og þvi hefur verið horfið frá
þvi ráði, þótt vissulega hafi það
verið til umræðu i upphafi. Rúm
400 ár eru siðan siðast var vitað
um fæðingu manns með tvö höf-
uð.sem lifði af fæðinguna eins og
búlgarska stúlkan. Það var i
Skotlandi á 16. öld og sá maður
lifði þar til hann varð 28 ára.
Það skal viðurkennt, að Mann-
lifssiðan átti bágt með að trúa
frétt þessari jafnvel þótt mynd-
irnar, sem við sjáum hér á sið-
unni, fylgdu með.
Við höfðum þvi samband við
Arna Ármannsson, fæðingarlækni
á Landsspitalanum og spurðum
hann álits á máli þessu. Árni
sagði að fæðing sem þessi væri
læknisfræðilega möguleg, þótt
hann hefði að visu ekki heyrt um
þetta einstaka tilfelli. Hann benti
á, að fyrirbrigði sem þessi væru
ekki óalgeng meðal dýra og t.d.
kæmi oft fyrir að kálfar fæddust
með tvö höfuð.
Röntgen-mynd af barninu sýnir m.a. hrygginga tvo.
Ljótustu hund
ar i Ameriku
„Finnst ykkur ég vera Ijótur?”
gætu hundarnir tveir á meðfylgj-
andi myndum verið að segja eftir
að hafa verið útnefndir sigurveg-
arar i keppninni „Ljótasti hundur
i Ameriku 1980” sem nýlega var
haldin i Petaluma i Kaliforniu.
„Snuffy” nefnist aniiar hundur-
inn, litill og horaður með bognar
lappir og beygluð eyru, en hann
sigraði i „ræfils-flokknum” og i
úrslitakeppninni bar hann sigur
úr býtum yfir sigurvegaranum úr
„svipljóta-flokknum”, „Archie”,
sem er bolabitur af ensku bergi
brotinn.
Eigandi „Snuffys” er 11 ára
gömul stúlka, Elaine Hibbs frá
Kaliforniu en Ed Thompson frá
Florida er eigandi bolabitsins
„Archie”:
„Snuffy” bar sigur úr býtum IrS
„ræfils-flokknum” og i úrslituml^
hlaut hann sæmdarhcitiö „Ljót-
asti hundur i Ameriku 1980”
Annaö andlitiö myndar
brosþegar hjúkrunar
konan snertir þaö.
Barniö hefur veriö
skýrt tveimur
nöfnum, —
Anna er til
vinstri,
Maria
hægri
r
f Frekja
' Ethel Kennedy, ekkja Ró-
berts Kennedy, átti ekki upp á
pallborðió hjá flugfarþegum
sem biðu á vellinum í VVash-
ington DC nú nvverið enda
gekk hún fram af fólki með ó-
trúlegri frekju sinni. Degar
hún kom að afgreiðsluborðinu
sagði hún afgreiðslumannin-
um deili á sér og krafðist þess
jafnframt að fá að fara án taf-
ar um borð, — á undan hinum.
\ ið þetta æstust þeir
k sem höfðu beðið lengur og
er Ethel hvarf inn i vélina
fyigdu henni bölv og
^ formælingar hinna
reiðu
farþega...