Vísir - 26.03.1981, Síða 27
Fimmtudagur 26. mars 1981
27
Stjdrn, varastjórn og endurskoðendur: talið frá vinstri, sitjandi
(stjórnin): Einar I. Sigurðsson, framkv.stjóri Heilbrigöiseftirlits
Kópavogs, ritari: Kormákur Sigurðsson, heilbrigöisfulltrúi i
Reykjavik, formaður: Valdimar Brynjólfsson, framkv.stjóri Heil-
brigöíseftirlits Akyreyrar, gjaldkeri. Standandi frá vinstri: Oddur
R. Hjartarson, heilbrigðisráðunautur viö Heilbrigðiseftirlit ríkisins,
Reykjavík, endurskoðandi: Sveinn Guðbjartsson, framkv.stjóri
Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, 1. varam. stjórnar: Matthias
Garðarsson, heilbrigðisfulltrúi i Reykjavik, 2. varam. stjórnar:
Hróbjartur Lúthersson, heilbrigöisfulltrúi í Reykjavik, endurskoð-
andi.
Heilbrigöisfulltrúar
stofna landssamtök
Heilbrigðisfulltrúafélag Is-
lands var stofnað i Kópavogi á
dögunum, og nær umdæmi þess
yfir allt landið en heimili þess
og varnarþing er i Reykjavik.
1 lögum félagsins segir m.a.
að markmið þess sé að sameina
heilbrigðisfulltrúana um áhuga
og hagsmunamál stéttarinnar
og auka gagnkvæm kynni fé-
lagsmanna, aðviðhalda og auka
menntun heilbrigðisfulltrúanna,
að auka þekkingu og skilning á
starfi heilbrigðisfulltrúa og að
efla samvinnu þeirra um allt
sem horfir til framfara i heil-
brigðismálum þjóðarinnar og
koma á samvinnu við aðrar
heilbrigðisstéttir i landinu.
Þeir sem hafa rétt til inn-
göngu i félagið eru sérmenntað-
ir heilbrigðisfulltrúar og þeir
sem starfað hafa sem heilbrigð-
isfulltrúar i 5 ár i fullu starfi,
enda hafi þeir tekið fullan þátt i
námskeiðum Heilbrigðiseftirlits
rikisins og námskeiði fyrir heil-
brigðisfulltrúa erlendis.
1 stjórn félagsins voru kosnir
Kormákur Sigurðsson Reykja-
vik formaður, Einar Ingi Sig-
urðsson Kópavogi ritari og
Valdimar Brynjóífsson Akur-
eyri gjaldkeri. gk—.
Nokkrir stofnenda Heilbrigöisfulltrúafélags Islands á stofnfundin-
um talið frá vinstri: Ólafur Pétursson, heilbrigðisráðunautur við
Heilbrigðiseftirlit rikisins, Reykjavik: Kormákur Sigurðsson, heil-
brigðisfulitrúi i Reykjavik, Hróbjartur Lúthersson, heiibrigðisfull-
trúi i Reykjavik, Hrafn V. Friðriksson, forstm. Heilbrigðiseftirlits
rikisins, Reykjavik: Þórhallur Halldórsson, framkv.stjóri Heil-
brigðiseftirlits Reykjavikur: Guðmundur Einarsson, heilbrigðis-
fulltrúi i Reykjavik: Harald S. Holsvik, heilbrigðisráðunautur við
Heilbrigðiseftiriit rikisins, Reykjavik.
VÍSIR
Slundakennarar
Við H.I.
Boða verk-
fall um
mánaðamót
í
Hrútfirðingar
Hin árlega skemmtun
okkar verður haldin á
Hótel Heklu, föstudag-
inn 27. mars, og hefst
kl. 21.00. Fjölmennið og
takið með ykkur gesti.
Var þessi ákvörðun tekin á
fundi Samtaka stundakennara við
H.I. I ályktun fundarins segir, að
þar sem stjórnvöld hafi hafnað
öllum kröfum samtakanna um
bætt kjör og aukin réttindi, feli
fundurinn stjórn samtakanna að
boða til verkfalls stundakennara
við H.l. frá og með 1. april n.k.
Hafa kennararnir einkum farið
fram á aukna álagsprósentu og
bættar aðstæður i kröfugerð sinni.
Hefur fundur verið boðaður i fé-
laginu 31. mars n.k. og er þess
vænst að svör ráðuneyta liggi þá
fyrir.
— JSS
Seðlaprufur fundust I
fórum starfsmanns:
Ekklí
umferð?
Verkakvennafé/agið
Framsókn
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og önn-
ur trúnaðarstörf i félaginu fyrir árið 1981,
og er hér með auglýst eftir tillögum um
félagsmenn i þau störf. Frestur til að skila
listum er til kl. 12 á hádegi, mánudaginn
30. mars 1981.
Hverjum lista þurfa að fylgja meðmæli
100 fullgildra félagsmanna. Listanum ber
að skila á skrifstofu félagsins i Alþýðuhús-
inu Hverfisgötu.
Stjórnin.
I frétt Visis i gær af frimerkja-
málinu svonefnda, á þar sem
starfsmaður Seðlabankans var
staðinn að þjófnaði á ýmsum
gögnum úr skjalavörslu bankans,
kom fram að smávægilegt magn
af peningaseðlaprufum hefðu
einnig farið i umferð. Rannsókn-
arlögreglan hefur óskað eftir þvi
að birt sé, að ekkert bendi til þess
að seðlaprufurnar hafi farið i um-
ferð, heldur hafi prufur þessar
fundist i fórum starfsmannsins.
— AS
Lánskjaravisitaia:
Skal vera
232 í apríl
Með tilvisun til laga frá 1979
hefur Seðlabankinn reiknað út
lánskjaravisitölu fyrir aprilmán-
uð 1981.
Skal iánskjaravisitalan 232
gilda fyrir umræddan mánuð.
Húseignin Klapparstígur 28
Til sölu
Húsið er 3 hæðir og ris, samtals 716 fer-
metrar. Allar nánari upplýsingar i símum
34527 og 23054 eftir kl. 13 næstu daga.
svo mœlir Svarthöfði
álfönM álþMbMdaIB
Þegar dr. Gunnar Thoroddsen
birti alþjóð um siðustu áramót,
að vilji væri allt sem þyrfti,
bjóst launþegahreyfingin i land-
inu ekki við þvi, að hún þyrfti að
éta þennan vilja lika á útmán-
uðum. Nú eru horfur á þvi að al-
fonsar Alþýðubandalagsins ætli
að halda úti einskonar gleði-
konuiítgerð á launþegahreyf-
ingunni fram á næsta haust, ein-
faldlega vegna þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn tók upp á þeim
fjanda að fresta landsfundi.
Alþýðubandalagið má ekki til
þess hugsa að Sjálfstæðismenn
nái saman aftur og taki upp
sambýli á ný i pólitisku sam-
lyndi. Þess vegna verður laun-
þegahreyfingin að búa við það
enn um sinn að vera einskonar
markaðsvara á hinu pólitiska
uppboðstorgi, svo að hægt verði
að fara aö skipunum þeirra,
sem eru Alþýðubandalaginu
æðri, um upplausn og sundr-
ungu borgaraflokkanna á
islandi.
Alþýðubandalagið hefur
raunar ekkert fram að leggja i
þeirri baráttu nema launþega-
hreyfinguna. Nú skiptir ekki
máli þótt laun séu skert á
þriggja mánaða fresti, og mesta
fásinna að halda að samningar
þurfi að vera i gildi. Sighvatur
Björgvinsson hefur upplýst á
AÍþingi að hafnarverkamaður i
Dagsbrún hafi þegar unnið
kauplaust i þrjá mánuði aðeins
til að koma fram pólitiskum
hermdarverkum á borgara-
flokkunum, nú siðast Sjálfstæð-
isflokknum. Og hafnarverka-
maður Dagsbrúnar verður bú-
inn að vinna gott betur kaup-
laust fyrir Alþýðubandalagið á
haustdögum, vegna þess að
frestun landsfundar fram á
haust þýðir að Alþýöubandalag-
iö verður að halda kaupinu
skertu i sumar hvað sem tautar,
svo dr. Gunnar hafi einhverja
von um framhaldslif í pólitik-
inni á landsfundi.
Þetta fer þannig i taugarnar á
Alþýðubandalaginu, að ekki má
minnast á handatiltektir þess i
politíkinni öðruvisi en þeir ætli
að ganga af vitinu. Eins og al-
kunna er þá neita þeir aö ræöa
fyrirhugaðar aögerðir á Kefla-
vi'kurvelli vegna þess að þær
ganga þvert á stefnumið „her-
námsandstæðinga”. Og nú skal
launþegahreyfingin notuð eins
og portkona á torgum i vor og
allt sumar, einungis til að
^ þjóna i pólitiskum skollaleik,
sem Alþýðubandalagið telur
brýnt að heyja við Sjálfstæðis-
flokkinn. Framundan er enn
meiri kjararýrnun en orðið er.
Það verður sérkennilegt að
líta yfir svið launamála I haust,
þegar hafnarverkamenn Dags-
brúnar hafa gefið enn meira af
launum sinum i þágu núverandi
ríkisstjórnar. Þá mun Sighvatur
Björgvinsson koma aftur og
reikna launatap þeirra i nnfnuð-
um minnugur þess, að launatap
þetta er tilkomiö vegna aðgerða
manna, sem heimtuöu
samninga I gildi hvaö sem það
nú þýðir. Portkonur eiga ekki
margra kosta völ i höndum al-
fonsa, en þó er yfirleitt meiri
saga af þvi hyernig þær verða
að portkonum. Sú saga er ein-
mitt að gerast nú, enda má ekki
oröinu halla, svo hinir tauga-
veikluðu portkonustjórar fari
ekki i kerfi.
Vilji er allt sem þarf, var sagt
um siðustu áramót. Siðan hafa
oröið miklar verðhækkanir I
landinu. Til þeirra hefur þurft
ákveðinn vilja. Jafnframt hafa
oröiö kauplækkanir og til þeirra
hefur þurft ákveðinn vilja lika.
Þær áttu aðeins að standa fram
yfir landsfund Sjálfstæðis-
manna i vor. Nú er fyrirsjáan-
legt launalitið sumar af þvi
landsfundi hefur verið frestað,
og Alþýðubandalaginu þykir
nauðsynlegt af pólitiskum á-
stæðum að láta launþega-
hreyfinguna borga brúsann við
tilraun til sprengingar i Sjálf-
stæöisflokknum. Það er þvfljóst
að hagur launþegahreyfingar-
innar skiptir ekki máli lengur.
Hún hefur löngum veriö notuö
sem afl i pólitiskum skæruhern-
aði. Svo er enn. Alþýöubanda-
lagið skortir ekki viljann. Hitt
er svo annað mál hvort laun-
þegahreyfingin i landinu hefur
ekki aðrar og meiri þurftir en
fyrirmælt stefnumið Alþýöu-
bandalagsins.
Svarthöföi.