Vísir - 26.03.1981, Side 28
síminner 86611
veðurspá
dagsins
Um 500 km suð-suðvestur af
Reykjanesi er 965 mb lægð
sem þokast norðvestur en 1018
mb hæð yfir Grænlandi. Smá
saman hiynar i veðri. Veður-
horfur næsta sólarhring.
Suöurland til Breiðafjarðar:
Austanátt, viða allhvasst eða
hvasst en sumstaðar stormur
á miðum, skýjað en dálitil
slydda en siðar rigning öðru
hverju.
Vestfirðir: Allhvöss austan
eða norðaustan átt en stormur
á miðum, dálitil él.
Strandir til Norðurlands
eystra: Austanátt, hvöss og
sumstaðar stromur á miðum,
en hægari til landsins. Skýjað
að mestu en úrkomulitið, viða
skafrenningur.
Austurland að Glettingi: All-
hvass austan, skýjað og dálitil
él, einkum á miðum og ann-
nesjum, viða skafrenningur.
Austfirðir: Allhvass eða hvass
austan, dálitil él og siðar
slydda með köflum.
Suðaustui land: Austan strom-
ur eða rok og slydda en siðar
rigning með köflum, heldur
hægari er liður á daginn.
veðriö hér
og par
Veður kl. 6 i morgun:
Akureyri skýjað -í-l, Bergen
rigning 2, Helsinkiskýjað -^4,
Osló snjókoma 1, Reykjavik
slydda 2, Stokkhólmur slydda
1, Þórshöfn alskýjað 4.
Veður kl. 18 I gær:
Aþena léttskýjað 13, Berlin
skýjað 15, Chicago skýjað 10,
Feneyjar þokumóða 14,
Frankfurt skýjað 18, Nuuk
heiðrikt -^8, London rigning
12, Luxemborg skýjað 17, Las
Palmas skýjað 21, Mallorka
léttskýjað 19, Montreal létt-
skýjað 19, N-York skýjað 10,
Paris skýjað 20, Róm þoku-
móða 13, Malaga skýjað 18,
Vfn skýjað 16, Winnipeg al-
skýjað 1.
segjp
Sumir iþróttafréttaritarar eru
sifellt með stórfyrirsagnir um
að einhverjir séu að pissa i
skóinn sinn, siðast þeir á Þjóð-
viljanum i morgun. H'vað
veldur þessum mikia áhuga á
skópissi?
Vinnuslys í álbræðslunni í StraumsvTk:
Fékk éunsan lofi-
hamar á höluðlð
Vinnuslys varð i Alverinu i
Straumsvik i gær, þegar 50 kilóa
þungur lofthamar féll á höfuð,
starfsmanns. Hann var fluttur á
slysadeild, en eftir rannsókn
var ekki talin ástæða til þess að
leggja manninn inn á sjúkrahús,
og talið, að öryggishjálmur,
sem maðurinn bar, er hann
fékk höggið hafi bjargað honum
frá stórslysi.
Verið var að grafa gryfju ofan
i gólfið í svonefndri skaut-
smiðju, en þar er nú unnið að
skipulagsbreytingum. Maður-
inn var niðri i gryfjunni við að
slétta botninn, þegar lofthamar,
sem staðsettur hafði verið á 2.30
metra háum barmi gryfjunnar,
féll á höfuð honum. Eins og áður
segir, bjargaði öryggishjálmur-
inn honum, en skylda er að bera
slika hjálma á vinnusvæðinu.
—AS
' '
Hafsteinn Hauksson, framkvæmdastjóri AUTO '81, sést hér undir stýri Rolls Royce bilsins, sem er til
sölu á sýningunni og kostar um 283 milljónir gkr. Vísismynd GVA
ftUTO '81 opnuð á morgun:
Veir Rolls Royce og
.skruggukerra”
itolsk
- að verðmætl um 850 milllðnlr gkr. á
meðal sýnlngargripanna
[ ,,Við verðum með þrjá bila sem
viðfáum sérstaklega erlendis frá
til að hafa á sýningunni, einn
Rools Royce frá verksmiðuunni
aðverðmæti um 283 milljónir gkr.
og er hann til sölu, og svo fáum
við tvo bila frá dönskum bila-
áhugamanni að nafni Lars Bang,
annar er Rolls Royce en hinn
italskur sportbill af gerðinni
Lamborghini Countach Lp. 400S”
sagði Hafsteinn Hauksson fram-
kvæmdastjóri AUTO ’81 sem
opnar i Sýningarhöllinni Bilds-
höfða kl. 19 á morgun.
— Þessir þrir glæsibilar sem
eruað verðmæti um 850 milljónir
gkr. samtals verða skrautfjaðrir
sýningarinnar, og gefst nú i
fyrsta sinn tækifæri til að sjá
Rolls Royce hér á landi. Þeir sem
hafa áhuga á að skoða þessar
glæsikerrur og þá meö kaup á
Rollsinum i huga ættu þó að var-
ast að spyrjast fyrir um bensin-
eyðslu, þeir sem kaupa Rolls
Royce velta nefnilega svoleiðis
hlutum ekki fyrir sér.
Á sýningunni sýna öll bifreiða-
umboðin hér á landi það mark-
verðasta sem þau hafa á boð-
stólnum, en einni verða sýndir
varahlutir, verkfæri og fylgi-
hlutir: Ýmislegt annað verður á
boðstólnum fyrir sýningargesti,
m.a. verður á klukkustundar-
fresti dreginn út vinningur, utan-
landsferð, 10 gira reiðhjól og
ýmislegt fleira, en verðmæti
þessara lukkuvinninga nemur um
8 milljónum gkr.
— Sýningin
stendur yfir til 5. april.
gk-.
Fjúrir á
sjúkrahús
eftir harð-
an árekstur
Harður árekstur varð um
klukkan 17 i gær, er tveir fólksbil-
ar rákust saman á blindhæð við
Syðra-Gil i Eyjafirði.
Fjórir voru fluttirá sjúkrahús á
Akureyri, hjón með barn sitt úr
öðrum bilnum, en stúlka úr hin-
um. Ekki er talið að meiðsli
þeirra séu alvarleg. en bilarnir
eru gjör-ónýtir.
—AS
Dekkjamálið
í sakadómi
„Dekk jamálið” svonefnda,
sem upp kom á Keflavikurflug-
velli 1979, er nú til meðferðar i
sakadómi Reykjavikur. Væntan-
lega verður dæmt i málinu i mai
eða júni, að sögn Haraldar
Henrýssonar.
1 máli þessu voru nokkrir
islenskir starfsmenn á Kefla-
vikurflugvelli ákærðir fyrir að
hafa dregið sér fé á þann hátt að
láta varnarliðið greiða fyrir hjól-
barðasendingar sem aldrei bár-
ust til landsins. Akæran hljóðaði
upp á rúmar 30 milljónir gkróna,
eða um 150 þúsund dollara.
—AS
Rætt við Daníel
A fundi rekstrarstjórnar
Sjúkrahúss Suðurlands var
samþykktað stjórnin i heild hæfi
viðræður við Daniel Danielsson,
yfirlækni, vegna þeirra deilna
sem geisað hafa um sjúkrahús-
mál á Selfossi.
Aður hafði Daniel sent
rekstrarstjórninni bréf. þar sem
hann tjáði sig fúsan til þess að
taka upp sllkar viðræður i tengsl-
um við opnun nýja sjúkrahússins.
—P.M.
.næst SUZUK/...og svo bústaðurinn
Dreginn ut i þessum manuði
afmælis- Mars - seðillinn
getraun laugardag.
VeuSand' vísm
áSW’" sími 86611
Dregið 29. mai n.k.