Morgunblaðið - 23.12.2003, Qupperneq 16
ERLENT
16 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÖRYGGISGÆSLA á flugvöll-
um, við landamærin, í verslun-
armiðstöðvum og fleiri stöðum í
Bandaríkj-
unum var
aukin í gær
eftir að yfir-
völd hækk-
uðu viðbún-
aðarstigið
vegna hættu
á hryðju-
verkum um
jólin. Emb-
ættismenn í Washington sögðu
að hættan á hryðjuverkum
hefði aldrei verið meiri frá 11.
september 2001.
Tom Ridge, ráðherra heima-
varna, sagði í sjónvarpsviðtali
að hryðjuverkasamtökin al-
Qaeda virtust vera staðráðin í
að valda álíka mikilli eyðilegg-
ingu og 11. september eða jafn-
vel enn meiri. Ennfremur
hvatti hann Bandaríkjamenn
sem dvelja erlendis til að vera á
varðbergi.
Háttsettur embættismaður í
Washington sagði að al-Qaeda
legði mesta áherslu á að gera
árásir í New York, Washington
og Los Angeles.
Mannskætt
ferjuslys
ÓTTAST var í gær að 74 manns
hefðu farist þegar ferja sökk í
óveðri undan suðurströnd Pa-
lawan-eyju á Filippseyjum í
gær. Hermt var að gat hefði
komið á skipsskrokkinn þegar
brotsjór gekk yfir ferjuna.
Björgunarmenn sögðust í gær
vera orðnir úrkula vonar um að
fleiri fyndust á lífi eftir skriðu-
föllin á Filippseyjum um
helgina. Talið er að yfir 200
manns hafi látið lífið.
DVD-Jón
sýknaður
ÁFRÝJUNARRÉTTUR í
Noregi sýknaði gær ungan
Norðmann, Jon Lech Johan-
sen, af
ákærum um
að hafa brot-
ið norsk lög
um gagna-
leynd þegar
hann bjó til
og setti á
Netið hug-
búnað sem
gerir fólki
kleift að skoða læsta DVD-
diska á tölvunni sinni. Saksókn-
arar höfðu krafist þriggja mán-
aða skilorðsbundins fangelsis-
dóms yfir DVD-Jóni eins og
Johansen hefur verið kallaður.
Uppreisn í
sérsveitum
Ísraelshers
ÞRETTÁN hermenn í sérsveit-
um Ísraelshers hafa sent Ariel
Sharon, forsætisráðherra
landsins, bréf þar sem þeir
segjast ekki lengur vilja taka
þátt í því að kúga Palestínu-
menn og vernda landtöku-
byggðir gyðinga á Vesturbakk-
anum og Gaza-svæðinu. Zeev
Boim, aðstoðarvarnarmálaráð-
herra Ísraels, krafðist þess að
hermennirnir yrðu leiddir fyrir
herrétt og reknir úr hernum.
STUTT
Aukin
öryggis-
gæsla
Jon Lech Johansen
Tom Ridge
MUAMMAR Gaddafi, hinn óútreikn-
anlegi Líbýuleiðtogi, hefur enn einu
sinni komið umheiminum á óvart. Að
þessu sinni með því að lýsa yfir, að
hann sé hættur öllum tilraunum til að
koma sér upp gereyðingarvopnum.
Að auki ætlar hann að leyfa Alþjóða-
kjarnorkumálastofnuninni, IAEA,
fyrirvaralaust eftirlit í landinu. Hefur
yfirmaður hennar, Mohammed El-
Baradei, þegar boðað komu sína til
landsins í næstu viku. Eru þessi tíð-
indi óneitanlega mikill sigur fyrir
George W. Bush, forseta Bandaríkj-
anna, og Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, og heilmikill plástur
á það sár, sem er árangurlaus leit að
gereyðingarvopnum í Írak.
Á síðustu árum hefur Gaddafi unn-
ið markvisst að því að breyta ímynd
sinni á Vesturlöndum og það er ekki
víst, að það hafi verið einskær til-
viljun, að hann nálgaðist Breta og
Bandaríkjamenn í mars síðastliðnum,
á sama tíma og verið var að reka
Saddam Hussein Íraksforseta frá
völdum. Gaddafi, sem verið hefur við
völd í Líbýu frá 1969, áttaði sig á, að
farið var að þjóta öðruvísi í fjöllunum
og hann vildi komast inn úr kuld-
anum.
„Þriðja heimskenningin“
Gaddafi var aðeins 27 ára er hann
steypti Idriss Líbýukonungi af stóli
og svona til að undirstrika umskiptin,
lét hann það verða sitt fyrsta verk að
breyta tímatalinu og nefna mánuðina
upp á nýtt.
„Hinir fáfróðu og hatursfullu furða
sig á því, að ég skuli hafa verið við
völd í 34 ár en sannleikurinn er sá, að
ég er ekki við stjórnvölinn. Það er
fólkið, sem hefur ráðið öllu frá 1977
og það er þess vegna, sem Banda-
ríkjamönnum hefur ekki tekist að
koma stjórninni frá,“ sagði Gaddafi
nú síðast í september er hann minnt-
ist valdatökunnar 1969.
Gaddafi vísaði sérstaklega til ársins
1977 en þá kom hann á fót því, sem
hann kallaði „Jamahiriya“, „Ríki fólks-
ins“. Þar áttu hin eiginlegu völd að
vera í höndum kjörinna ráða en sjálfur
bar hann titilinn „ráðgjafi bylting-
arinnar“. Á þessu sama ári gaf hann
einnig út „Grænu bókina“, „þriðju
heimskenninguna“, sem átti að fara bil
beggja milli kapítalisma og sósíalisma
og vera eina von mannkynsins.
Gaddafi gerði sér snemma dælt við
ýmsa öfgahópa en árásir palestínskra
hryðjuverkamanna, sem aðsetur
höfðu í Líbýu, í flughöfnunum í Vín
og Róm urðu til þess, að Bandaríkja-
stjórn sleit stjórnmálasambandi við
Líbýu í janúar 1986. Sprengjutilræði
á diskóteki í Berlín, sem varð nokkr-
um bandarískum hermönnum að
bana, varð svo til þess, að Bandaríkin
gerðu loftárásir á Líbýu þetta sama
ár. Féllu í þeim 37 manns, þar á með-
al eitt barna Gaddafis.
Játa á sig
hryðjuverk
Mesta hryðjuverkið var þegar Pan
Am-þota var sprengd upp yfir Lock-
erbie í Skotlandi en þá fórust alls 270
manns. Að auki er Líbýumönnum
kennt um, að frönsk farþegaþota
sprakk upp yfir Níger í Afríku 1989.
Fyrir fáum árum var líbýskur leyni-
þjónustumaður fundinn sekur um
Lockerbie-hryðjuverkið.
Líbýumenn hafa gengist við þess-
um glæpum og hafa nú samið við
stjórnvöld í Bandaríkjunum og Bret-
landi um að greiða ættingjum hinna
látnu 2,7 milljarða dollara í bætur,
hátt í 200 milljarða ísl. kr. Í framhaldi
af þessu afléttu Sameinuðu þjóðirnar
refsiaðgerðum gegn Líbýu en Banda-
ríkjastjórn hefur ekki gert það enn.
„Israetine“
Eitt af stóru málunum hjá Gaddafi
var arabísk þjóðernishyggja en til-
raunir hans til að koma á einingu
meðal arabaríkjanna báru sjaldnast
neinn árangur. Á síðustu árum hefur
hann líka snúið baki við þessari
stefnu og vill nú leysa deilur Ísraela
og Palestínumanna með stofnun þess,
sem hann kallar „Israetine“, eins rík-
is fyrir Ísraela og Palestínumenn.
Gaddafi, sem var áður sakaður um
að fjármagna skæruliðahópa í Afríku
og ýmis öfgasamtök, hefur að und-
anförnu reynt að skapa sér ímynd
milligöngumannsins, hins alþjóðlega
sáttasemjara, og þá oft í krafti líb-
ýska olíuauðsins. Árið 2000 samdi
hann um lausn Þjóðverja, sem voru
gíslar ofstækisfullra múslíma á Fil-
ippseyjum, og skammt er síðan hann
átti þátt í frelsun 14 Evrópumanna,
sem voru fangar öfgamanna í Alsír.
Ágreiningurinn við arabaríkin varð
til þess, að Gaddafi dró Líbýu út úr
Arababandalaginu á síðasta ári en
síðan snerist honum hugur um það og
lýsti þá yfir, að það væri „fólksins að
taka slíka ákvörðun“. Þá hefur hann
einnig slakað nokkuð á sósíalískum
skoðunum sínum og ætlar nú að
einkavæða ýmis ríkisfyrirtæki, ekki
síst í olíuiðnaðinum.
Vill friðmælast
við Bandaríkin
Líbýa er mjög olíuauðugt land en
olíuiðnaðurinn þar hefur dregist
mjög aftur úr og þarf sárlega á end-
urnýjun að halda. Einmitt þess vegna
skiptir svo miklu fyrir Gaddafi að
friðmælast við Bandaríkjamenn og fá
þá til að aflétta refsiaðgerðum. Á því
kann þó að verða einhver bið en Bush
hefur látið að því liggja, að að því
muni koma, standi Gaddafi við stóru
orðin.
Vitað var, að Líbýumenn réðu yfir
efnavopnum og þeir voru meðal ann-
ars sakaðir um að beita þeim eða
sinnepsgasi í átökum í Chad 1987.
Vinna þeirra að smíði kjarn-
orkuvopna kemur hins vegar á óvart
þótt ekki sé enn ljóst hve langt á veg
þeir voru komnir. Hefur Gaddafi
lengi rekið þann áróður, að arabarík-
in ættu að koma sér upp kjarn-
orkuvopnum vegna þess, að Ísraelar
réðu yfir þeim en vestrænir sérfræð-
ingar og vísindamenn hafa lengi full-
yrt, að Líbýumenn muni ekki geta
komið sér upp slíkum vopnabúnaði í
fyrirsjáanlegri framtíð. Líbýa var auk
þess aðili að samningnum um bann
við útbreiðslu kjarnavopna og því var
talið, að venjulegt eftirlit IAEA væri
næg trygging út af fyrir sig. Það er
hins vegar mjög alvarlegt mál, hafi
svo ekki verið.
Sinnaskipti Gaddafis eru mikil tíð-
indi og lexían, sem af þeim má læra
fyrir önnur ríki, er, að taki þau upp
heiðarlegt samstarf við alþjóða-
samfélagið, muni þeim verða umbun-
að fyrir það. Íranir hafa nauðugir vilj-
ugir verið að feta sig inn á þessa slóð
og ráðamenn í Norður-Kóreu hljóta
að átta sig á því hvað klukkan slær.
Önnur afleiðing þessarar þróunar er
svo sú, að nú eru ýmsir farnir að
krefjast þess, að Ísraelar geri einnig
hreint fyrir sínum dyrum, en talið er,
að þeir ráði yfir allt að 200 kjarna-
sprengjum.
Heimildir: AP, AFP, BBC.
Líbýustjórn segist hætt öllum tilraunum til að komast yfir gereyðingarvopn
AP
Muammar Gaddafi við styttu, hönd, sem kremur bandaríska orrustuþotu,
skammt frá heimili sínu í Tripoli. Hann hefur nú lagt á hilluna öll áform um
að koma sér upp gereyðingarvopnum og langdrægum eldflaugum.
Gaddafi vill inn
úr kuldanum
Sigur fyrir Bush og Blair og sárabót
fyrir gereyðingarvopnaleysið í Írak
’ Á síðustu árumhefur Gaddafi unnið
markvisst að því að
breyta ímynd sinni á
Vesturlöndum. ‘
HRÍÐ og hvassviðri ollu búsifjum í
Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku í
gær og fyrradag og kostuðu að
minnsta kosti tvö mannslíf. Rafmagn
fór af um 100 þúsund heimilum í Sví-
þjóð og miklar tafir urðu á sam-
göngum á lofti, láði og legi.
Veðrið skall á í Svíþjóð á sunnu-
daginn, og létust ung hjón er bifreið
þeirra fór út af veginum og hafnaði í
skurði í Vänersborg, sem er um 100
km norður af Gautaborg. Í gær-
morgun var tilkynnt um rúmlega 50
minniháttar umferðaróhöpp í land-
inu, en mikið hvassviðri gekk þá yfir.
Fór óhöppum fjölgandi er leið á dag-
inn. Fjölmargir þjóðvegir tepptust,
þ.á m. hraðbrautin á milli Stokk-
hólms og Óslóar, vegna flutningabíla
sem lentu þvert á vegina í hálku.
Síðdegis í gær komst aftur á raf-
magn á um 35 þúsund heimili, en
fulltrúi sænsku rafmagnsveitnanna
tjáði fréttastofunni TT að vonast
væri til að allir fengju rafmagn að
nýju í gær.
Á Arlandaflugvelli í Stokkhólmi
var einungis annarri flugbrautinni
haldið opinni síðdegis í gær og um
klukkutíma seinkun orðin á flugi um
völlinn. Var þess beðið að veðrið
gengi niður til að hægt væri að opna
báðar brautirnar.
Óveðrið hafði mikil áhrif á ferju-
siglingar og urðu um 300 farþegar
sem fóru með ferju frá Gautaborg
áleiðis til Friðrikshafnar í Dan-
mörku á sunnudagskvöldið að verja
nóttinni um borð þar sem ferjan gat
ekki lagst að vegna veðursins. Sömu
sögu var að segja af ferju frá Noregi
er kom til Hanstholm í Danmörku.
Ennfremur urðu tafir á siglingum
finnskra ferja á Eystrasalti í gær
vegna veðursins, og snjókoma tafði
einnig járnbrautarsamgöngur í
Finnlandi. Þar urðu og fjölmargir
árekstrar.
Reuters
Jólainnkaupin voru tafsöm í Helsinki í gær vegna hvassviðris og snjókomu.
Mannskaðaveður í Svíþjóð
Stokkhólmi. AFP.