Morgunblaðið - 23.12.2003, Síða 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hafnarfjörður | Jólaþorpið sem
hefur staðið á Thorsplaninu í
Hafnarfirði á aðventunni hefur
svo sannarlega vakið bæði athygli
og mikla lukku. Undanfarnar
helgar hefur fjöldi fólks komið
saman til að njóta jólaþorpsins.
Trjágróðurinn sem umlykur þorp-
ið skýlir gestum fyrir vindinum
og það er því notalegt að ganga
um á milli húsanna og kíkja á
hvað þar er á boðstólunum. Engu
að síður er mikilvægt að klæða
sig vel áður en komið er í heim-
sókn.
Í dag er síðasti dagurinn sem
jólaþorpið stendur og verður það
opið frá hádegi til ellefu í kvöld.
Um fjögurleytið í dag koma þeir
Lilli klifurmús og Mikki refur úr
Hálsaskógi í heimsókn og slegið
verður upp jólaballi. Kór Öldu-
túnsskóla, félagar úr Þröstum og
söngvarar frá Fjörukránni taka
lagið og Grýla verður á svæðinu.
Um klukkan átta hefst jóla-
dagskrá sem Sparisjóður Hafn-
arfjarðar býður gestum jóla-
þorpsins en þá stíga á sviðið
Björgvin Halldórsson, Margrét
Eir og Hera Hjartardóttir.
Síðasti dagur Jólaþorpsins
Morgunblaðið/Þorkell
Handverk fyrir jólin: Systir Kristína, frá Karmelítuklaustrinu, var að selja ýmiss konar handverk frá klaustrinu,
til dæmis handmáluð kerti, jólakort og aðra muni fyrir jólaundirbúninginn. Nunnurnar selja handverk og muni til
að halda uppi starfsemi klaustursins og starfrækja litla búð í klaustrinu þar sem fólk getur komið og verslað.
Mosfellsbær | Um eitthundrað fimm
ára börn úr leikskólum Mosfells-
bæjar mættu á leiksýningu í Bóka-
safni Mosfellsbæjar ásamt starfs-
fólki leikskólanna á dögunum og
máttu sáttir þröngt sitja. Það er
orðin hefð að Bókasafn Mosfells-
bæjar bjóði 5 ára leikskólabörnum
upp á leiksýningu í safninu fyrir jól-
in. Alltaf fjölgar börnunum í bæn-
um og í þessum árgangi eru nú um
110 börn. Að þessu sinni var boðið
upp á leikritið Heiðarsnælda, saga
úr sveitinni í flutningi Möguleik-
hússins. Virtust börnin skemmta
sér hið besta að vanda og var þessi
stóri hópur að öllu leyti til fyr-
irmyndar.
Leikið fyrir börnin
Nýtt íbúðahverfi | Þriðjudaginn
16. desember sl. samþykkti hrepps-
nefnd Bessastaðahrepps samstarfs-
samning við byggingarfyrirtækið
Húsbygg ehf. um uppbyggingu íbúð-
arhverfis við Asparholt í
Bessastaðahreppi. Húsbygg ehf. er
annað tveggja fyrirtækja sem vinna
að byggingu Birkiholtshverfisins.
Samkvæmt samningnum munu
Húsbygg ehf. annast allar fram-
kvæmdir, gatnagerð og húsbygg-
ingar á svæðinu, svo og öryggismál
og heilbrigðismál þar á fram-
kvæmdatímanum. Bessastaðahrepp-
ur fer með skyldur sveitarfélags
með því að annast skipulag og bygg-
ingareftirlit, veita byggingarleyfi og
fleira.
Íbúðarhverfið við Asparholt sam-
anstendur af sex fjölbýlishúsum og
tveimur raðhúsalengjum, líkt og
Birkiholt. Í hverfinu verða byggðar
tveggja, þriggja og einkum þó fjög-
urra herbergja íbúðir. Gert er ráð
fyrir að hafist verði handa um gatna-
gerð fljótlega. Byggingarfram-
kvæmdir hefjast síðan í vor.
Seltjarnarnes | Seltjarnarnesbær er
óðum að taka á sig jólalegan blæ
enda skammt að bíða þess að
jólahátíðin gangi í garð. Í lok nóv-
ember voru skreytingar settar á
ljósastaura og gatnamót Suður-
strandar og Nesvegar. Að þessu
sinni var aukið við skreytingarnar
þannig að nú er Nesvegur skreytt-
ur frá bæjarmörkunum að gatna-
mótunum. Þaðan taka við skreyt-
ingar meðfram Suðurströnd allt að
Bakkavör. Bæjarbúar hafa brugð-
ist vel við aukningu á skrauti. Garð-
yrkjustjóri Seltjarnarness, Stein-
unn Árnadóttir, hefur veg og vanda
af jólaskreytingum á Nesinu í ná-
inni samvinnu við bæjarstjóra. Að
hennar sögn mun örugglega verða
bætt við á næstu árum þó að sjálf-
sögðu verði reynt að hafa skrautið
smekklegt og innan skynsamlegra
marka. Markmiðið með skreyting-
unum er að gleðja bæjarbúa og lýsa
bæinn enn betur upp í svartasta
skammdeginu.
Jólalegt um að litast: Seltjarnarnesið er aldeilis jólalegt á að líta þessa dag-
ana, enda er Nesvegurinn fagurlega skreyttur með alls kyns ljósum.
Jólin koma á Nesinu
Kópavogur | Ný álma við Mennta-
skólann í Kópavogi var tekin í notk-
un við hátíðlega athöfn á dögunum.
Þessi áfangi er reistur á grunni
eldri byggingar sem látin var víkja
og er mun rýmri og einni hæð
hærri en gamla álman. Auk al-
mennra kennslustofa er í álmunni
að finna tvo stóra lestrarsali og að-
stöðu fyrir sérdeild sem einhverfir
nemendur sækja. Aðstaðan sem
húsnæði þetta skapar býður upp á
að um tvö hundruð nemendur til
viðbótar geta nú sótt nám í þennan
skóla sem einnig hýsir Hótel- og
matvælaskólann, en hann þykir afar
glæsilegur og gjaldgengur á al-
þjóðamælikvarða.
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra flutti ávarp við opnun nýju
álmunnar ásamt Gunnari Birgis-
syni, forseta bæjarstjórnar Kópa-
vogs og Sigurrósu Þorgrímsdóttur
formanns skólanefndar MK.
Ný álma opnuð í húsnæði MK
Rúm fyrir 200
fleiri nemendur
Reykjavík | Það kyngdi niður snjó í
fyrrinótt og var sums staðar allt að
þrjátíu sentimetra lag af snjó þegar
mest var. Þó eru allar vonir um jóla-
snjó enn í óvissu, enda hlýnaði strax
um þrjúleytið sömu nótt og fór að
rigna. Það var því mjög þykkur og
blautur snjór sem mætti íbúum höf-
uðborgarsvæðisins í morgun og olli
gangandi vegfarendum mikilli ar-
mæðu. Nefnist slíkur snjór gjarnan
„slabb“, sem minnir mjög á áferð
hans og eðli.
Starfsmenn sveitarfélaganna
höfðu nóg að gera í morgun við að
ryðja snjóinn frá helstu umferð-
aræðum og gangstéttum, enda
sjaldnast mikilvægara að umferðin
gangi greiðlega en einmitt nú í jóla-
ösinni.
Jólasnjónum rutt til
Morgunblaðið/Eggert