Morgunblaðið - 23.12.2003, Page 24
LANDIÐ
24 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Allt til bútasaums
15%
afslá
ttur a
f tilb
únum
pakk
ning
um
Opið virka daga frá 10-18
og laugardaga frá 10-16
Sími: 482 4241
Gula línan
Hellissandur | Nýtt pípuorgel var nýlega vígt
við hátíðarguðþjónustu í Ingjaldshólskirkju við
Hellissandi. Þá var einnig vígður og tekinn í
noktun nýr hökull sem kirkjunni var gefinn og
afhentur af Hildigunni Smáradóttur á hundrað
ára afmælishátið kirkjunnar í október sl. Á
undan guðsþjónustunni voru aðventutónleikar
sem hófust með því að stjórnandi kirkjukórs
Ingjaldshólskirkju Kay Wiggs lék á hið nýja
orgel verkið Ferðin til Betlehem eftir Cesar
Franck. Þá söng Ingveldur Ýr Jónsdóttir jóla-
lög við undirleik Kay Wiggs. Einnig söng Ingv-
eldur Ýr einsöng í þremur lögum með kirkju-
kórnum auk þess að syngja með kórnum við
guðsþjónustuna.
Hátíðleg vígsluathöfn
Formaður sóknarnefndar Þorbjörg Alexand-
ersdóttir bauð gesti velkomna og skýrði frá að-
draganda að smíði og kaupum orgelsins og
þakkaði gjafir til kirkjunnar og orgelsjóðsins.
Sóknarpresturinn séra Ragnheiður Karítas
Pétursdóttir þjónaði fyrir altari ásamt ná-
grannaprestunum þeim séra Óskari Hafsteini
Óskarssyni í Ólafsvík og séra Guðjóni Skarp-
héðinssyni á Staðastað önnuðust þau hina há-
tíðlegu kirkjuathöfn.
Kvenfélag Hellissands stofnaði minning-
arsjóð um frú Jóhönnu Vigfúsdóttur á Mun-
aðarhóli árið 1994. Í þann sjóð skyldi safna pen-
ingum fyrir andvirði nýs orgels í kirkjuna á
Ingjaldshóli. Jóhanna var organisti í Ingjalds-
hólskirkju í áratugi og stjórnaði sunnudaga-
skóla. Hún var félagi í Kvenfélagi Hellissands
frá 14 ára aldri og var þar jafnan í forustu. Fjöl-
skylda Jóhönnu kom til liðs við sjóðinn á árinu
1996. Stjórn orgelsjóðsins hafa verið þau Aldís
Stefánsdóttir frá kvenfélaginu, Jón Hjartarson
leikari, sonur Jóhönnu og Arnheiður Matthías-
dóttir sem fulltrúi kirkjukórsins.
Á vordögum 2002 leitaði sóknarnefnd til
stjórnar orgelsjóðsins um samstarf við að
kaupa nýtt orgel fyrir kirkjuna. Samþykkt var
að hefjast handa. Eftir ráðleggingum frá Org-
elnefnd þjóðkirkjunnar var ákveðið að leita til
Björgvins Tómassonar orgelsmiðs um smíði á
pípuorgeli. Huga skyldi vel að því að hljóðfærið
færi sem allra best á kirkjuloftinu. Fengin var
umsögn og samþykki Húsafriðunarnefndar um
val á orgelinu.
Sjö radda hljóðfæri
Orgelhúsið er úr eik. Það er sjö radda með
einu hljómborði og petalrödd. Hljóðfærið er
vandað að allri gerð. Björgvin Tómasson og
samstarfsmaður hans Jóhann Hallur Jónsson
hafa skilað góðu verki og kirkjunni á Ingjalds-
hóli góðum og fögrum grip. Frá stofnun org-
elsjóðsins hefur Kvenfélag Hellissands lagt til
hans árlegt framlag. Sjóðnum hafa borist fjöl-
margar gjafir frá velunnurum kirkjunnar. Gísli
Ketilsson á Hellissandi gaf fyrstu greiðslu til
verksins. Hann lést 4. september sl. og hafði
hann arfleitt kirkjuna af eignum sínum.
Íslenskt orgel í Ingjaldshólskirkju
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Kirkjuprýði. Hið nýja orgel setur virðulegan svip á Ingjaldshólskirkju.
Vestmannaeyjar | Það var hart bar-
ist á Þrekmeistaramóti Hressó í
Eyjum um síðustu helgi. Fimm lið
skráðu sig til leiks og þegar upp var
staðið munaði aðeins sekúndu á sig-
urliðinu og liðinu sem varð í öðru
sæti. Það lið sem vakti þó mesta at-
hygli voru „ömmurnar.“ Þar voru
komnar bráðhressar konur á besta
aldir og margfaldar ömmur. Þær
hafa verið duglegar í líkamsrækt-
inni í mörg ár og fannst nú komin
tími til að bera sig saman við yngri
konurnar. Náðu þær góðum tíma.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Að lokinni keppni. Unnur Jóna Sigurjónsdóttir, Kristjana Björnsdóttir,
Emma Pálsdóttir, Aðalheiður Bernódusdóttir og Þuríður Jónsdóttir.
„Ömmur“ í þrekmeistaramóti
Stykkishólmur | Á undanförnum
árum hefur verið vinsælt hjá fjöl-
skyldum að fara í skógarferð upp í
Sauraskóg með kakóbrúsann og
velja jólatré. Starfsmenn Skóg-
ræktarfélags Stykkishólms hafa
leiðbeint fólki við valið. Á þann
hátt hafa Hólmarar hjálpað félag-
inu við að grisja skóginn.
En fyrir þessi jól hefur orðið
breyting á, því ekki verða felld tré
á skógræktarsvæðum Skógrækt-
arfélagsins. Ástæðan er ástand
skógarins. Sitkalúsarfaraldur hef-
ur herjað á grenið á þeim svæðum
sem geyma jólatrén.
Furan fýkur um koll
Að sögn Trausta Tryggvasonar
skógarvarðar er ástandið mjög al-
varlegt ef veðurfarið breytist ekki
í takt við árstíðina. Hann segir að
furan hafi einnig fengið að kenna
á veðráttunni. Það er ekki nein
veruleg óværa að herja á furuna,
en vegna frostleysis hafa trén ver-
ið að fjúka um koll. Hann segir að
ræturnar hafa ekki náð að halda
trjánum föstum, en frost í jörð á
veturnar hefur hjálpað til við það
verk. Í haust hefur jörð verið
ófrosin og því fer sem fer.
Trausti segir að lúsin hafi herj-
að lengi á grenitré í skógrækt-
arsvæðinu við Grensás við Stykk-
ishólmi. Nú í sumar var fyrst vart
við lúsina í svona miklu magni í
Sauraskógi sem er 8 kílómetrum
ofar.
Trausta þykir það leitt að fólk
geti ekki komið í Sauraskóg á val-
ið sér jólatré því oft skapaðist
skemmtileg stemning í skóginum
þegar fjöldi manns var að ná sér í
tré.
Til að íbúar Stykkishólms geti
áfram haft lifandi tré er Skóg-
ræktarfélagið með sölu á trjám, en
í þetta sinn koma trén með flutn-
ingabíl frá höfuðborginni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Ekki er vitað um ætt og uppruna þessara jólatrjáa. Trausti Tryggvason
skógarvörður, Róbert Árni Jörgensen, Magnús Fr. Jónsson, Ísak Hilm-
arsson og Margrét Ísleifsdóttir sjá um að Hólmarar fái sín lifandi jólatré.
Sitkalúsin eyðileggur
jólatré Hólmara
SKEMMUVEGI 36
Sími 557 2000
BLIKKÁS –
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar