Morgunblaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 27
Kárahnjúkavirkjun | Þeir stóðu
niðri við vatnsborð Jöklu í köldu
morgunrökkrinu, Carlo Massetti
öryggisfulltrúi hjá Impregilo
S.p.A. og Oddur Friðriksson yf-
irtrúnaðarmaður við Kára-
hnjúkavirkjun og bentu fingrum
að efstu bergbrún. Vísast hafa
þeir verið að spekúlera í hæð
Kárahnjúkastíflu, en gerð hennar
verður nú fram haldið af fullum
krafti eftir að Jöklu var veitt hjá
og þurrt er að verða í stíflustæð-
inu.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Spáð í það
sem koma skal
Kárahnjúkavirkjun | Í kringum 300
manns verða á virkjunarsvæðinu við
Kárahnjúka yfir hátíðarnar, bæði ís-
lenskir og erlendir starfsmenn verk-
takafyrirtækja. 118 portúgalskir
starfsmenn Impregilo flugu út í
jólafrí með þotu frá Egilsstaðaflug-
velli til Lissabon sl. föstudag og aðrir
hafa farið með innanlandsflugi og út
í gegnum Keflavík.
Unnið verður á virkjunarsvæðinu
til hádegis á aðfangadag, en menn
eiga frí á jóladag og annan í jólum,
eftir hádegi á gamlársdag og á ný-
ársdag.
Tvær eiginkonur ítalskra starfs-
manna Impregilo komu fyrir helgi
Völdu
Kárahnjúka
umfram
Kólumbíu
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Glaðbeittir á leið í jólaleyfi heim til Lissabon. Þeir mæta í vinnu við Kára-
hnjúka 5. janúar nk. og eru eflaust fegnir að komast um stund til sinna.
frá Bogota í Kolumbíu með börn sín
og hyggjast verja jólum og áramót-
um í faðmi eiginmanna sinna við
Kárahnjúka.
AUSTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 27
ÓDÝRT
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
en gott
Við bjóðum
14
34
/
TA
K
T
ÍK
n
r.
4
0
C
Stærð:
D: 50 cm
B: 30/40 cm
H: 180 cm
Stál-
skápar
fyrir
vinnustaði
kr. 7.719,-
Verð frá
Stálskápar
(Fyrsti skápur
kr. 8.840,-)
ÞESSI hnýsni sveinki kíkir inn um
skjáinn á húsi nokkru á Fáskrúðs-
firði. Sjálfsagt er nefið frosið við
rúðuna því sveinki hefur hangið á
glugganum í dagafjöld og tilheyrir
útiskreytingum hátíðarinnar.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Nefið frosið við rúðuna
Fjarðabyggð framkvæmir |
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar
fyrir næsta ár gerir ráð fyrir að
1300 milljónum króna verði varið
til framkvæmda í sveitarfélaginu
á tímabilinu. 447 milljónir fara til
hafnargerðar við væntanlegt ál-
ver á Reyðarfirði og koma þrjú
hundruð milljónir á móti frá rík-
inu í það verkefni. Fyrstu tekjur
sveitarfélagsins vegna álversins
koma inn árið 2004 í formi
greiðslu 30 milljóna króna vegna
byggingarleyfis. Um 340 milljónir
fara í stækkun og endurbætur
grunnskóla sveitarfélagsins, þar
af 200 milljónir í grunnskólann á
Reyðarfirði. 130 milljónir renna
til íþróttamannvirkja, bróðurpart-
urinn í sundlaug á Eskifirði og 60
milljónir verða settar í stækkun
leikskóla. Þá verður rúmlega 100
milljónum varið til áframhaldandi
hitaveituframkvæmda og -rann-
sókna. Fjarðabyggð hyggst taka
885 milljóna króna lán til að fjár-
magna framkvæmdir næstu miss-
eri, en áætlaðar tekjur sveitarfé-
lagsins árið 2004 eru 1.686
milljónir og gjöld 1.656 milljónir.
Reiknað er með að framlag úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til
Fjarðabyggðar nemi 156 millj-
ónum á næsta ári.
Dómur felldur | Erlendur starfs-
maður Impregilo við Kárahnjúka,
sem réðst að íslenskum vinnufélaga
sínum í rútu fyrir nokkrum vikum,
hefur verið dæmdur í 6 mánaða
fangelsi. Þar af eru 4 mánuðir skil-
orðsbundnir. Hann var og dæmdur
til að greiða þolanda 250 þúsund
krónur í bætur og til að greiða sak-
arkostnað og laun verjanda, 350 þús-
und krónur. Maðurinn er í farbanni
til 16. janúar nk. og hefur tekið sér
frest til að áfrýja úrskurði Héraðs-
dóms Austurlands.
Stíflugerð | Suðurverk hf. bauð
lægst í gerð tveggja stíflna við
Hálslón; Desjarárstíflu og Sauð-
árdalsstíflu sem liggja munu sitt
hvorum megin við Kárahnjúkas-
tíflu. Fimm verktakahópar buðu í
stíflurnar. Tilboð Suðurverks í
Desjarárstíflu nam 1.640 milljónum,
sem er ríflega 60% af kostnaðar-
áætlun og tilboðið í Sauðárdalsstíflu
nam 754 milljónum króna, eða 53%
af kostnaðaráætlun.
Egilsstaðir | Óljóst virðist hvað
stórum áformum um uppbyggingu
menningarseturs á Eiðum á Austur-
Héraði líður.
Áramótin 2001/2002 tóku nýir eig-
endur við Eiðum, þeir Sigurjón Sig-
hvatsson og Sigurður Gísli Pálma-
son, sem ásamt Árna Páli Árnasyni
lögmanni skipa stjórn sjálfseignar-
stofnunarinnar Eiða ehf.
Hafði félagið markað sér þá stefnu
að skapa staðnum sess sem alþjóð-
legu mennta- og menningarsetri og
var skipuð sérstök nefnd valin-
kunnra aðila sem vinna skyldi að
hugmyndum um framtíðarnýtingu
Eiða. Lítið mun hafa gerst áþreif-
anlegtsem rennt getur stoðum undir
slík áform, utan að haldið var nám-
skeið á staðnum seint í sumar af
hálfu Eiða ehf.
Í kynningarskýrslu um verkefnið
sem kom út í fyrra, sagði m.a. að ein-
staklingum, fyrirtækjum og opinber-
um aðilum yrði boðin aðild að starf-
rækslu hinnar alþjóðlegu mennta- og
menningarmiðstöðvar. Þá voru lagð-
ar fram hugmyndir um alþjóðlegan
umhverfislistagarð, sköpunar- og
fræðasetur og miðstöð lykilverkefna
í umhverfismálum, svo dæmi séu
tekin. Óperustúdíó Austurlands hef-
ur verið með aðstöðu á Eiðum á vor-
in og þar er rekið sumarhótel Eddu.
Vilja fá fleiri
aðila í samstarf
Virðist steyta á tilraunum eigenda
til að fá sveitarstjórn Austur-Héraðs
og ríkið til að koma fjárhagslega að
uppbyggingunni á Eiðum og tengj-
ast þær umræður m.a. áformum um
fjárstuðning ríkisins til menningar-
húsa á landsbyggðinni.
Eigendur benda á að starfsemi á
Eiðum þurfi að vera sjálfbær og því
þurfi samvinna við fleiri aðila að
koma til svo unnt sé að leggja út í
trausta uppbyggingu.
Samtök Eiðavina ályktuðu á fundi
sínum í haust að skora á eigendur
Eiða að vinna brautargengi hug-
myndum sínum um Eiða sem
menntaseturs. Jafnframt var skorað
á bæjarstjórn Austur-Héraðs að
skoða með opnum huga þátttöku í
fyrirliggjandi hugmyndum um sviðs-
listahús á Eiðum og taka afstöðu til
þess sem fyrst til að eyða óvissu sem
nú ríkti.
Lítið að gerast á
alþjóðlegu menn-
ingarsetri á Eiðum
Djúpivogur | Í síðustu viku var
opnað nýtt bókasafn á Djúpavogi.
Signý Óskarsdóttir er bóka-
vörður, en hún hefur staðið í
ströngu undanfarna mánuði við
að koma nýja safninu upp. „Í
haust var tekin ákvörðun um að
sameina héraðsbóka- og skóla-
bókasöfnin á Djúpavogi,“ sagði
Signý í samtali við Morgunblaðið.
„Bæði söfnin voru flutt í nýtt hús-
næði að Vörðu 2, sem áður var
heimavist og kennsluhúsnæði.
Með sameiningunni eykst framboð
á lestrarefni fyrir almenning og
hagræðing næst um reksturinn.“
Þeim sem heimsækja bókasafn-
ið gefst einnig kostur á að nota
tölvu við vinnu sína á safninu.
„Vonandi sjá gestir safnsins sér
hag í að nýta sér þá gagnabanka
og upplýsingavefi sem safnið hef-
ur upp á að bjóða“ bætir Signý
við.
Börn fengu bókargjöf
Við opnun safnsins á dögunum
litu margir góðir gestir inn, m.a.
Guðjón Sveinsson rithöfundur frá
Breiðdalsvík og Ingimar Sveins-
son, fyrrum skólastjóri á Djúpa-
vogi, en hann hefur verið iðinn
við að skrifa sögu Djúpavogs-
hrepps.
Öll börn sem komu á opnunina
fengu bókargjöf og boðið var upp
á kaffi og piparkökur.
Bókasafnið verður opið þrjá
daga í viku. Signý segist vona að
fólk verði duglegt að nýta sér
safnið, reynt hafi verið að skipu-
leggja það á einfaldan og að-
gengilegan hátt og þar ættu allir
að finna eitthvað við sitt hæfi.
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Signý Óskarsdóttir bókavörður er ánægð með nýja safnið: Friðrik Snær Jóhannsson, Andri Jón Sveinsson og Lára
Hafrún Tumadóttir eiga eflaust eftir að finna í safninu margt til fróðleiks og skemmtunar.
Betri tíð fyrir bókvísa á Djúpavogi