Morgunblaðið - 23.12.2003, Side 52
DAGBÓK
52 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss, Örfirisey,
Arnarfell, Kristrún og
Sylvia koma í dag. Sel-
foss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Rubicone og Barbara
koma í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg
5. Fatamóttaka og
fataúthlutun þriðju-
daga kl. 13–18 og
fimmtudaga kl. 15–18
sími. 867 7251.
Bókatíðindi 2003.
Númer þriðjudagsins.
desember er 086579.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað og vinnustofa, kl. 9
jóga, kl. 13 postulíns-
málun. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
9–12.30 bókband, kl. 9
leikfimi, kl. 9.30 dans,
kl. 9.45 boccia, kl. 13–
16.30 smíðar, kl. 20.30
línudans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
11.30 sund, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðsla, kl. 10
samverustund, kl. 14
félagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin og
vefnaður, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16
vinnustofa, tréskurður,
postulín, kl. 10–11 leik-
fimi, kl. 12.40 versl-
unarferð, kl. 9–12 hár-
greiðsla, kl. 13.15–
13.45 bókabíll.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hársnyrting, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna. Kl. 15
söng og harmoniku-
stund í borðsal.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið Hraunsel
verður opnað aftur
mánudaginn 5. janúar
2004 með hefðbundinni
dagskrá.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Skrifstofa félagsins
verður lokuð 23. des.
og 24. des., einnig milli
jóla og nýárs. Opnum
aftur 2. janúar. Félags-
starfið fellur niður milli
jóla og nýárs. Hefst
aftur með dansleik 4.
janúar. FEB óskar öll-
um eldri borgurum
gleðilega jóla og far-
sældar á nýju ári.
Gerðuberg, félags-
starf. Opið í dag frá 9–
16.30, m.a. spilasalur,
sími 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler- og postu-
línsmálun, kl. 14
ganga, kl. 14.45 boccia,
kl. 19 brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin virka daga frá kl.
9–17.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulín og gler-
skurður, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð, kl. 13
myndlist, línudans og
hárgreiðsla. kl. 15 línu-
dans.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–10 boccia, kl. 9–16.30
handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaað-
gerðir virka daga, hár-
snyrting þriðju- og
föstudaga.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
10–11 boccia, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
skinnasaumur, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.15–16 postulín, kl.
10.15–11. 45 enska, 13–
16 spilað og bútasaum-
ur.
Vitatorg. Allt almennt
félagsstarf er lokað
fyrir jól en matstofan
er opin alla daga, milli
kl. 11 og 12.30. Óskum
öllum gleðilegra jóla.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
13–16 keramik, tau-
málun, almennt fönd-
ur, kl. 15 bókabíllinn.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl.
11.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, kl. 20,
svarað í s. 552 6644.
Minningarkort
Minningarsjóður
Krabbameinslækn-
ingadeildar Landspít-
alans. Tekið er við
minningargjöfum á
skrifst. hjúkrunarfor-
stjóra í s. 560 1300 alla
virka daga milli kl. 8 og
16. Utan dagvinnutíma
er tekið á móti minn-
ingargjöfum á deild
11-E í s. 560 1225.
Í dag er þriðjudagur 23. desem-
ber, Þorláksmessa, 357. dagur
ársins 2003. Orð dagsins: En halt
þú stöðuglega við það, sem þú
hefur numið og hefur fest trú á,
þar eð þú veist af hverjum þú
hefur numið það.
(2. Tím. 3, 14.)
Vefþjóðviljinn gagn-rýnir hömlur á rétt
manna til að stunda akst-
ur leigubifreiða og segir
þær neytendum í óhag.
Á Vefþjóðviljanum seg-ir: „Líklega þekkja
flestir sem hafa lagt leið
sína í miðbæ Reykjavíkur
á föstudags- eða laugar-
dagskvöldi að það getur
orðið býsna napurt að
standa í frosti, roki og
jafnvel hríð, að bíða eftir
leigubíl. Biðin verður
stundum óhófleg og vos-
búðin ömurleg, en það er
eins með þessa bið og
flest annað, hún á sér
eðlilega skýringu, sem er
skortur á leigubílum. Til
að gera út leigubíl er
ekki nóg að uppfylla al-
menn skilyrði á borð við
bílpróf, heldur þarf að fá
sérstakt leyfi. Leyfin eru
takmörkuð og þannig er
fjölda leigubíla haldið
niðri, sem kemur sér vel
fyrir þá sem hafa leyfin
en illa fyrir aðra. Þeir
sem hafa leyfin beita
ýmsum rökum gegn því
að öðrum verði hleypt að,
svo sem að gæði þjónust-
unnar versni og öryggið
minnki.“
Vefþjóðviljinn vísar ígrein eftir Sean C.
Barrett í nýjasta tölu-
blaði Economic Affairs
um afnám aðgangshindr-
ana að leigubílamark-
aðnum á Írlandi, sem
leiddi til þess að leigubíl-
um fjölgaði um 297%
milli áranna 2000 og
2002. „En það er ekki
fjölgun bílanna sem
skiptir máli, heldur nið-
urstaðan gagnvart not-
endum þjónustunnar, og
það er óhætt að fullyrða
að þeir eru sáttir við
breytinguna. Samkvæmt
rannsókn frá því í fyrra
sem Barrett vitnar til
voru yfir tveir þriðju
hlutar fólks þeirrar skoð-
unar að breytingin hefði
verið góð, en innan við
sjöundi hver var því
ósammála. Þeir sem voru
ósammála hafa líklega
ekki oft þurft að nýta sér
þjónustu leigubíla á
annatíma, því biðtíminn
minnkaði verulega. [...]
Barrett kemur í grein-
inni einnig inn á öryggi
farþeganna og ef marka
má niðurstöðu hans er
ekkert sem bendir til að
það hafi minnkað.
Þeir sem ekki hafa sér-staka hagsmuni af
óbreyttu leyfiskerfi á
leigubílamarkaðnum
ættu að geta fallist á að
það væri til bóta að þeir
sem uppfylla ákveðin al-
menn skilyrði geti fengið
leigubílaleyfi og hafið
leigubílaakstur. Það sem
stendur í veginum eru
eingöngu sérhagsmunir
ákveðins hóps sem óttast
um hag sinn verði fleir-
um hleypt að í greininni.
Þessi ótti er út af fyrir
sig skiljanlegur, þótt
hann sé líklega meiri en
efni standa til. Hann á
hins vegar ekki að ráða
því að öðrum sé bannað
að framfleyta sér með
leigubílaakstri, eða að
fólk þurfi að híma löng-
um stundum að nóttu til í
nepjunni í miðbæ Reykja-
víkur.“
STAKSTEINAR
Aðgangshindranir á
leigubílamarkaði
Víkverji skrifar...
Núna veit ég hvernig þér líðurþegar Arsenal er að keppa,“
sagði eiginkonan við Víkverja, þar
sem þau sátu fyrir framan sjón-
varpið eitt föstudagskvöldið á dög-
unum. Víkverji starði á konuna.
Hlessa. Og svei mér þá? Þarna sat
hún á sófabrúninni, andstutt og
rauðdílótt í framan. Að farast úr
spennu. Þessi líka prúða kona sem
að jafnaði lætur sér fátt um alla
keppni finnast.
Og hvað olli þessari geðshræringu
hjá konunni? Stjörnuleitin á Stöð 2.
Sjónvarpsþáttur þar sem nokkur
ungmenni keppa sín á milli í söng og
sviðsframkomu. Þar hafði hún fund-
ið mann til að halda með – bindast
tilfinningalegum böndum. Hann
heitir Helgi Rafn og er sviphreinn
og kurteis menntaskólanemi með
bítlahár. Hennar Arsenal.
Víkverji fagnaði þessum tíðindum
enda eru fáar athafnir mannlegri en
keppni, hvort sem menn taka sjálfir
þátt eða styðja einhverja aðra. Blóð-
rennsli af þessu tagi er hollt.
En keppni hefur tvær hliðar. Eins
og það er gaman þegar vel gengur
nístir ósigur gegnum merg og bein.
Og sl. föstudag dundi reiðarslagið
yfir – Helgi Rafn féll úr keppni.
Þjóðin hafnaði honum í atkvæða-
greiðslu. Þvílíkur dónaskapur!
Víkverji var í vinnunni og missti af
þessari dæmalausu útsendingu.
Hafði þó snemma spurnir af úrslit-
um og hugsaði strax til konunnar.
Nú liði henni líklega eins og Vík-
verja þegar Arsenal laut í lægra
haldi fyrir Wrexham í bikarnum
1992. Það voru jafn fáránleg og
ósanngjörn úrslit. Vanlíðan vætlaði í
æðum.
Víkverji hringdi akút í konuna.
Hún var bærilega haldin – merkilegt
nokk. Víkverji kveikti þó fljótt á því
að hún hlyti að vera í afneitun. Tal-
aði um að símkerfið hlyti að hafa
brugðist í kosningunni. Þetta gat
einfaldlega ekki verið satt. Víkverji
var líka kominn með bullandi sam-
viskubit enda búinn að margsann-
færa konuna um að Helgi Rafn
myndi vinna þessa keppni, alla vega
verða meðal tveggja efstu. Lagðist
þar lítið fyrir poppfræðinginn, Vík-
verja.
Síðan eru liðnir nokkrir dagar og
eiginkona Víkverja er á hægum en
öruggum batavegi. Alveg eins og
Víkverji eftir Wrexham-leikinn
1992. Menn læra nefnilega að lifa
með ósigrunum. Það er svo ein-
kennilegt. Þar fyrir utan er Víkverji
búinn að sannfæra konuna um að
þjóðin eigi eftir að éta þessa ákvörð-
un ofan í sig. Helgi Rafn muni snúa
aftur sem poppstjarna.
x x x
Þótt eiginkonan hafi lýst því yfirað hún sé hætt að horfa á
Stjörnuleitina mun Víkverji halda
því áfram. Sjónvarpsefnið er gott.
Nú mun hann snúast á sveif með
Jóni nokkrum Sigurðssyni. Bráð-
hressum manni, sem tekur árásum
dómnefndar með jafnaðargeði en
hún vill bersýnilega losna við hann
úr keppninni. En Jón bara brosir og
heldur sínu striki. Magnaður maður.
Þjóðin hafnaði þessum manni.
Má ekki sitja
í framsæti?
ÉG las grein föstudaginn
19. desember á baksíðu
Morgunblaðsins um hertar
kröfur um öryggisbúnað
barna í bifreiðum og þar af
leiðandi mega börn lægri
en 150 cm ekki sitja í fram-
sæti.
Þá spyr ég bara, hvað
með fullorðið fólk sem er
minna en 150 cm. Ég per-
sónulega er 145 cm og 23
ára. Þýðir það þá að ég
mætti jafnvel ekki keyra bíl
fyrst börn mega ekki vera
undir 150 cm?
Hulda Rós.
Þakkir til
R-listans
ÞAÐ gerist ekki oft að okk-
ur í baslinu sé rétt hjálp-
arhönd sem verulega mun-
ar um – á tímum þegar
aðrir og ónefndir gera sjálf-
um sér tilboð um ríkuleg
eftirlaun og síhækkandi
launatékka. Því var óskap-
lega gleðilegt að heyra af
fyrirætlunum Reykjavíkur-
borgar að lækka leikskóla-
gjöld fimm ára barna og
greiðslu fyrir dvöl á frí-
stundaheimilum. Þetta er
dæmi um aðgerð sem lækk-
ar bein útgjöld fjölmargra
heimila um tugi þúsunda á
ári – heimila sem sannar-
lega geta þegið slíka að-
stoð. Fyrir hönd barnafólks
í Reykjavík langar mig að
færa borgarstjórn Reykja-
víkur kærar þakkir fyrir
þessa snemmbúnu jólagjöf
sem munar svo sannarlega
um.
Sigþrúður Gunnarsd.,
Laugarnesvegi 78, R.
Óánægja
með Idol
ÉG vil koma á framfæri
óánægju minni í sambandi
við úrslit Idol í gær, 19.
desember.
Í fyrsta lagi skildi hvorki
ég né nokkur annar fjöl-
skyldumeðlimur orð af því
sem Egill Ólafsson sagði.
Hvað þýðir þetta
semitrískur? Og hvað kem-
ur það söng við?
Í öðru lagi stóð Helgi
Rafn sig með prýði og átti
ekki þessi ummæli skilin né
það að vera sendur heim.
Hann hefur allt til að
bera til að vera poppstjarna
og í mínum huga á hann
ekki heima neins staðar
nema á sviðinu í Smáralind.
Ef það er einhver sem er
sviðsdýr í þessum hóp er
það Helgi Rafn.
Kveðja,
Idol-aðdáandi.
Fuglafóður
í búðirnar
ÉG er með fyrirspurn til
þeirra sem eru með Sól-
skríkjusjóðinn. Hvers
vegna er ekki hægt að fá
fuglafóður í verslunum?
Ég er búin að vera að
leita í verslunum að fugla-
fóðri en er sagt að það sé
ekki fáanlegt hjá birgjun-
um.
Væri ekki hægt að kippa
þessu í lag nú þegar vetur-
inn er skollinn á og lítið er
um æti fyrir fuglana?
Kona í
Vesturbænum.
Á lægra plani
ÉG er áskrifandi að Morg-
unblaðinu.
Eftir að Morgunblaðið
fór að keppa við ruslblöðin
fór það á lægra plan í stað-
inn fyrir að halda sér eins
og það var áður fyrr.
Það er allt of mikið af
aukablöðum og það vantar
góða fréttaritara eins og
áður fyrr.
Sólveig.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 fussa, 4 snæða, 7 snúa
heyi, 8 skottið, 9 lánað,
11 landabréf, 13 ofnar,
14 úði, 15 líf, 17 heiti, 20
ekki gömul, 22 dáin, 23
skrökvað, 24 krossa yfir,
25 beiskar.
LÓÐRÉTT
1 dreng, 2 fljót, 3 ein-
kenni, 4 fjöl, 5 glufan, 6
fugls, 10 borðaður, 12
guð, 13 skelfing, 15 loð-
skinns, 16 erfið, 18 gram-
ur, 19 eltir uppi, 20 elska,
21 fánýtt skraut.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 belgingur, 8 fögur, 9 gætir, 10 fag, 11 skali, 13
allur, 15 sleif, 18 hræða, 21 róa, 22 kaupi, 23 leiði, 24
burgeisar.
Lóðrétt: 2 eigra, 3 garfi, 4 nugga, 5 umtal, 6 ofns, 7
þrár, 12 lúi, 14 lár, 15 sekk, 16 efuðu, 17 Frigg, 18 halli,
19 æðina, 20 alin.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16